Morgunblaðið - 05.07.1947, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 05.07.1947, Qupperneq 7
Laugardagur 5. júlí 1947. KðRGUNBLAÐIÐ J Hjálpin til A.-Eyíellinga Alíreð Gíslason, læknir: LAXNES-BÚIÐ ÞAÐi hefur oft verið sett í blöð og útvarp, þegar hlaupið hefur verið undir bagga hjá ein- staklingum eða sveitarfjelögum, þá válegir atburðir ske. Þykir mjer sæma að við Aust ur-Eyfellingar gerum alþjóð kunnugt, með hverjum vinar- hug og höfðingslund Mýrdæl- ingar rjettu okkur höndina í vetur, þegar vikurfallið af völd- Um Heklugossins breytti okkar gróðursælu og byggilegu sveit í svarta eyðimörk, og ekki var sýnilegt þá að nokkurri skepnu yrði lífvænt á jörð; og þótt hey væru mikil hjá öllum þorra bænda var sýnilegt að innistöðu tími á fjenaði yrði svo langur, að full óvissa ríkti um hvað nóg yrði. Þá var það sem Mýrdæl- ingar sýndu þann manndóm, sem seint mun gleymast Eyfell- ingum, og færast ætti afdráttar laust í þann annál, sem ritaður verður um Heklugosið 1947, til verðugs lofs þeim ágætismönn- úm er þá voru uppi í vestur- hluta Skaptafellss. (Hvamms- og Dyrhólalire'ppi). Þá var það sem bændur í þessum híeppum leggja fram aðstoð sína, með' því að taka á gjöf og hagagöngu ! mikið á annað hundrað af hross urn A.-Eyfellinga, og geta þeir er vita Itvað slíkur hópur hrossa þarf mikið í fullri innistöðu, sett sig inn í það, hve stórkost- lega hjálp var hjer um að ræða fyrir A.-Eyjafjallasveit. Um flutning á öðrum fjenaði var ekki að ræða, þar sem bann að er að flytja sauðfje og naut- pening austur yfir Jökulsá á Sólheimasandi, vegna sýkingar- hættu af völdum mæði- og garnaveiki, sem báðar hafa bor- ist í Rangárþing, og þó að þær plágur hafa ekki herjað okkur fjallamenn enn þá, er það ef til vill aðeins tímaspursmál, hve sá friður varir lengi. Annars mátti fyllilega heyra það á Mýr- dælingum að þeir hörmuðu það að geta ekki bjargað bæði fje og kúm okkar Eyfellinga og fullvíst er það að á því hefði ekki staðið frá þeirra hendi, ef áðurgreind hætta hefði ekki verið til staðar. En eitt er víst og hiklaust ó- hætt að undirstrika, að það var fjarri þeim að nota sína sterku aðstöðu til þess að falast eftir hrossum okkar til kaups fyrir „slikk“. - Þessi stórmannlega hjálp, ásamt þeirri göfugmannlegu hluttekningu og bróðurlega hugs unarhætti, hefði maður getað búis,t við að flestir hefðu þóttst vera búnir að gera vel. En svo var ekki með þá Mýrdælinga, þegar farið var að vitja þessara hrossa (sem fóðruð höfðu verið með þeim ágætum, að sum þeirra máttu teljast alin) og áttu nú að rekast út í Holt til vor- og sumarbeitar, bjóða Pjet- urseyjar-, Nikhóls- og Eyjar- hólabændur land á jörðum sín- um til þess að hafa mikinn f jölda þessara hrossa á í sumar, aðeins þurftum við að girða það, sem þá var gert með góðri aðstoð þessara manna, auk þess hafa ýmsir aðrir bændur þar í Mýrdal hross í sínum högum fram eftir sumrinu. Þegar til þess kom að við Fjallamenn ætluðum að fara að borga fóðr- ið þá var svar Mýrdælinga þetta: „Þið eigið ekki að borga". Þetta sem fram hefur verið tekið talar sínu máli, að þarna í Mýrdalnum býr ekki fó'lk með þrönga sjerhagsmunahyggju, þarna búa menn og konur, sem eiga í ríkum mæli þá göfug- mannlegu kend, að kasta sín- um eigin hagsmunum fyrir borð til þess að bjarga og hjálpa með bræðrum sínum og þó það sje fjarri mjer að gera lítið úr eða vantreysta okkur Eyfellingum, þá verð jeg að draga í efa að við hefðum verið þess umkomn- ir að taka jafn höfðinglega á málunum, sem þessu, ef Mýr- dælingar hefðu þurft á slíkri hjálp að halda. Fyrir þessa miklu hjálp og stórmannlegu göfuglund biðjum við Eyfellingar þann guð sem hrífa mun sveit okkar og hjerað úr þeim dauðans og eyðilegg- ingar hramm, sem gripið hefur það um stund, að launa Mýr- dælingum með hagsæld og blessun sinni. Hann blessi ykk- ar frjósama hjerað og láti tvö grös gróa þar sem áður var eitt. Óg um fram allt láti hann börn ykkar og niðja erfa í rik- um mæli það hjarta þel, sem þið hafið nú sýnt. A ustur-Eyfeliingur. til Isafjarðar Frá frjettaritara vorum á Isafirði. TÓNLISTARKÓRINN kom til ísafjarðar með Esju á mið- mikudagsmorgun. Söng kórinn í Alþýðuhúsinu um kvöldið. Á söngskránni voru ættjarðarlög, lög úr óperum, tvísöngs- og ein- söngslög. Einsöngvarar voru Gunnar Kristinsson, Þórunn Þorsteins- dóttir og Svava Þorbjarnar- dóttir. Á eftir söng Sunnukórinn á ísafirði og Tónlistarfjelagskór- inn sameiginléga, þessi lög: Söngheilsan, eftir Hándel, Ljúf- ar ljósar nætur, eftir Jón Lax- dal, Sunnudagskvöld, ^ eftir Áskel Snorrason og Vor, eftir Jónas Tómasson. Undirtektir áheyrenda voru með ágætum og varð kórinn að syngja nokkur aukalög. Hús- fyllir var og urðu margir frá að hverfa. Á fimmtudagskvöld endurtók kórinn söngskemmtun sína einnig við ágætar viðtökur. ■— Stjórnandi kórsins er dr. Victor Urbansehitsch. Bæjarstjórn ísafjarðar hafði á fimmtudag boð inni í I.O.G.T. húsinu og fluttu þar ræður: Sigurður Bjarnason, forseti bæjarstjórnar, Þorsteinn Sveins son, sem er fararstjóri kórsins og Ólafur Magnússon, forstjóri. Síðan var ekið í bifreiðum um nágrenni bæjarins og hjelt kórinn heimleiðis um nóttina með Esju. Var Isfirðingum mikil ánægja að komu þessara góðu gesta. — MBJ. LÆKNASTJETTINNI hefur stundum verið brugðið um tóm- læti og afskiptaleysi, þegar um skipan almennra heilbrigðis- eða annarra . nauðsynjamála hefur verið að ræða. Hvort slíkt ámæli hefur við rök að styðjast, skal ekki lagður dómur á hjer, en hitt er víst, að oft hafa lækn- ar lagt gott til slíkra mála, en ekki æfinlega hlotið undirtektir að sama skapi. Tvö stórmál af þessu tagi hafa verið ofarlega á baugi síð- ari árin hjer í Reykjavík: Sjúkrahúsaskorturinn' og ó- fremdarástand mjólkurmál- anna. Þau eru dagleg vandamál lækna hjer í bænum og sjúk- linga þeirra, enda klingir oft í eyrum læknanna viðkvæði sem þetta: en því látið þið læknarn- ir ekkert til ykkar taka í þess- um málum? Þið hafið þó besta aðstöðuna til að heyja þar góða baráttu. Nú er það svo um mjólkur- málið, að Reykvíkingar hafa ár- um saman kveinað og kvartað undan hinni ljelegu neyslumjólk og hafa læknar sannarlega verið með í þeim söng. Samt hefur engu fengist um þokað, og er mjólkurmálið þó eitt af stærstu heilbrigðismálum bæjarins, en öll meðferð mjólkurinnar með þeim endemum, að ekki verður um deilt. Óheilnæm neyslumjólk kemur harðast við börnin, og er hún einkum hættuleg korna-börn- um og þeim, sem vanheil eru. Á næringu þessarra barna, og þá fyrst og fremst mjólkinni, veltur oft hvort sigrar, líf eða dauði. Framleiðsla kúamjólkur handa börnum krefst því sjer- stakrar nákvæmni í allri með- ferð, frá því að hún kemur úr spenanum og þar til barnið fær hana. Þar eð sýnt þótti að engra endurbóta í þessum efnum var að vænta frá hálfu opinberra valdhafa, ákvað all-stór hópur reykvískra lækna að heíjast sjálfir handa um framkvæmdir til nokkurra úrbóta. Fyrir hálfu öðru ári mynduðu þeir hluta- fjelag í þeim tilgangi að stofn- setja og starfrækja kúabú. — Skyldi þar eingöngu framleidd barnamjólk og eftir þeim fyrir- mælum, sem um slíka mjólk gilda. Jörðin Laxnes í Mosfells- sveit var valin, og á síðastliðnu sumri var aðallega byrjað á framkvæmdum þar. Hafa fjós og heyhlaða síðan verið reist ásamt nauðsynlegum húsakynn- um til mjólkurvinnslu. Tæki hafa verið i.tveguð og nýrækt hafin. Bústoínin hefur smám saman verið aukinn, og í Lax- nesi eru nú liðlega 50 kýr. Er þegar svo komið málum, að þar er nú framleidd heilsusamleg barnamjólk, sem daglega er flutt til bæjarins til dreifingar þar. Þetta byrjunarstarf hefur vit- anlega ekki gengið fyrir sig fyrirhafnar- og erfiðleikalaust. Kaup á bústofni og tækjum, fólkshald og byggingaíram- kvæmdir — allt hefur þetta boðið upp á næga erfiðleika. En stjórn fjelagsins hefur sýnt fádæma dugnað í lausn þessa vanda og sjerstaka ósjerplægni, þegar á það er litið, að þessir læknar voru fyrirfram störfum hlaðnir. Enn er margt ógert í Lax- nesi. Gagnrýninn gestur getur hæglega tínt margt til og talið upp, sem betur mætti fara. Sje hann góðgjarn, gerir hann það á sama hátt og væri hann stadd- ur í hálfbyggðu húsi. Búið allt er enn í smíðum. Fjárhagurinn reyndist erfið- ur þrándur i götu. Kaup á jörð og bústofni, nýrækt og bygg- ingar kosta mikið fje á þessum tímum. Hlutafjeð hrökk ekki til, og var þá leitað til manna utan læknastjettar um aukið fjármagn. Með því móti fjekkst nægilegt fje til áframhalds. En þörfin fyrir barnamjólk er rík í þessum bæ. Hálft hundrað kúa nær skammt til að fullnægja þeirri þörf, jafnvel þótt ekki væri sjeð fyrir mjólk handa öðrum en ungbörnum og þeim sem sjúk eru. Hjer þarf því enn að koma til aukinna átaka og það að verulegu marki. Við læknarnir vorum ekki allir bjartsýnir á þetta fyrir- tæki í upphafi. Búrekstur hefur ekki verið talinn neinn gróða- vegur hjer á landi. Það mætti , því augljóst vera, að við gerum þetta ekki í gróðaskyni, heldur af löngun til þess að koma upp vísinum að verulegum endur- bótum í mjólkurmálunum. — Okkur voru ýmsir erfiðleikar ljósir fyrir fram og bjuggumst jafnvel við andúð eða f jandskap. Einkum óttuðumst við í byrjun, að stjórn mjólkursamsölunnar mundi ekki reynast okkur hlið- holl. Þetta fór þó á annan veg og mættum við þar ekki öðru en skilningi og tilhliðrunar- semi. Aftur á móti gerðum við ekki ráð fyrir, að bæjarbúar myndu taka þessu tiltæki okkar öðru vísi en vel, enda mun al- mennt sú hafa raun á orðið. En síðustu dagana hefi jeg orðið var nokkurra kaldyrða í garð Laxnessbúsins. Er auðvelt að rekja þá andúð til eins dagblað- anna hjer, sem síðustu dagana hefur varið all-miklu rúmi til lastmæla um búið. Um hvatir blaðsins til þess- ara skrifa er mjer ókunnugt, en tilgangurinn er augljóslega sá, að spilla fyrir því að áfram verði haldið á þeirri braut, sem læknarnir hafa lagt út á. Mörgu þjóðnýttu máli hefur verið hrundið í framkvæmd af einstaklingum eða hópi ein- staklinga, en hið opinbera tekið við, aukið og rekið síðan. — Þannig hefur það þrásinnis verið um ýms mannúðar- og heilbrigðismál. Líkt mætti gjarna fara um það mál, sem hjer hefur verið rætt. Liðlega tuttugu læknar bindast samtök- um um að stoínsetja og starf- rækja kúabú til framleiðslu barnamjólkur. Ekkert væri eðlilegra en að bæjarfjelagið gengi ir.n í slíkan búrekstur eða yíirtæki hann með öllu, og það því frekar sem bæjarstjórnin virtist á síðastliðnum vetri full áhuga á því að hrinda af stað endurbótum í mjólkurmálunum. Einungis með því að hið opin- bera gángist í málið, getur þetta komið að almennum notum, en með því er tilgangi þeirra náð, sem til stofnuðu. Laxnes er vel í sveit sett hjer í næsta nágrenni bæjarins. — Jörðin er að vísu of lítil fyrir stórfeldan búskap, en það yrði líka hvaða önnur jörð sem væri. Jeg sje ekkert því til fyrirstöðu, að fleiri nærliggjandi jarðir yrðu teknar til þessarrar not- kunar, enda hægur nær, þar- sem Reykjavíkurbær á þegar nokkrar jarðir í Mosfellssveit og Kjalarnesi. Landamerki má þurrka út. Möguleikar til hey- öflunar eru þarna nærri óþrjót- andi og næg sumarbeit, ef ekki er einskorað við einn jarðar- skika. Starfið er þegar hafið í Laxnesi. Þar og þaðan á að færa út kvíarnar, uns nægilegt magn hollrar barnamjólkur er fengið. Þá er stigið fyrsta og mikil- vægasta sporið í þá átt að koma mjólkurmálunum í rjett horf. Þeir hljólð e$ reyna þefla aftur LANDBÚNAÐAR sjerfræð- ingur Tímaliðsins og yfir tölu meistari Páll Zophoníasson ráðunautur, alþingismaður, ríkisskatta hagfræðingur m. m. skrifaði mjög fróðlega grein í Timann 30. maí s. I. Sýnir hann þai' fram á það, með sinni alkunnu rökvísi og reikningslist, að það hafi orðið mikill gróðavegur fyrir bænda- stjettina þegar hið vísa Bún- a,arþing samþykkti það haustið 1944, að gefa eftir 9.4% af því verði landbúnaðar afurða, sem heimilt var að reikna með sam- kvæmt sexmanna nefndar sátt- málanum. Þetta kemur mjög í mótsögn við það sem forkólfar Selíoss hreifingarinnar og aðrir bænd- ur hafa í fáfræði sinni haldið fram. Vjer erum líka sannfærð ir um að Tímamenn yfirleitt taka mikið meira mark á Páli, eins og þeir eru vanir að gera. Gildir það ekki einasta kjós- endur hins góða kjördæmis Norður-Múlasýslu heldur Tíma liðið yfirleitt. Nú hefir formað- ur Búnaðarfjelags íslands og forseti Búnaðarþings yfirstjórn landbúnaðarmála. Má því gera ráð fyrir, að brátt verði farið að ráðum Páls Zop. og sá gróða vegur bænda reyndur af bún- aðarþingi, að gefa eftir helst árlega 9.4% af því verði land- búnaðar afurða, sem talið yrði af öðrum rjettmætt að reikna með. Þetta er því líklegra sem telja má víst að P. Z. verði ann að hvort í hinu nýja framleiðslu ráði landbúnaðarins eða þá aðal ráðgjafi þess. Er það mjög heppi legt að svo auðfengin gróða- lind skuli hafa fundist og munu margir annara stjetta menn óska bændum til ham- ingju með þessa snjöllu upp- finningu Páls, ekki síst þegar það fylgir, að gróða bændanna á að íylgja, almennur þjóð- fjelagsgróði samkvæmt grein- inni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.