Morgunblaðið - 06.07.1947, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÖ
Sunnudagur 6. júlí 1947.
Þónýall Helga Pjeturss
ÞETTA er sjötta Nýallsbók-
in, sem út kemur, og hún kem-
ur á 75 ára afmæli höfundarins.
Mikil bók er þetta á fleiri en
einn mælikvarða og sýnir glögt
elju og áhuga hins aldraða vís-
indamanns. Bókin er rúmar 400
blaðsíður, prentuð á góðan papp
ír og frágangur allur hinn vand
aðasti.
★
Dr. Helgi hefur á einum stað
í Nýalls bókum sínum bent á
það, að menn skuli ekki kippa
sjer upp við það, þótt þeim finn-
ist endurtekningar í bókum sín-
um, því að altaf sje eitthvað
nýtt við það, húgsunin stöðugt
færð skrefi lengra. Þetta ættu
menn að hafa hugfast, því að
boðskapurinn í Þjóðnýal er hinn
sami og í fyrri bókunum, en
allar eru ritgerðirnar samdar í
því skyni, að gera ljósara það,
sem áður var sagt og fá menn
til að hugsa.
Hjer ber meira á því, en í
hinum fyrri bókum, hve bjarg-
fasta trú höf. hefur á því, að
hinni litlu ísl. þjóð sje ætlað
stærra og meira hlutverk en
stórþjóðunum. Og það er mest
á munum og veit jeg ekki hvort
einkennilegra er, hvert traust
dr. Helgi ber til íslensku þjóð-
arinnar, og það traustleysi, sem
íslenska þjóðin hefur. sýnt hon-
um. Hann hefur verið óþreyt-
andi í því að frægja hinn ís-
lenska kynstofn, og reyna að
koma honum í skilning um, að
hann sje þeim vanda vaxinn að
vera blysberi alheims. En vegna
þess kæruleysis, sem boðskap
hans hefur verið sýnt, mætti
ætla, ef hann væri sem aðrir
menn, að hann væri orðinn upp-
gefinn á því að hrósa þjóð sinni
og telja henni sem flest til
sóma. En hann er ekki eins og
aðrir menn. Það sjest best á því
hvað hann lætur sjer innilega
ant um það, nú á gamals aldri,
að koma hinni íslensku þjóð í
skilning um, að hún sje of
góð til þess að „fara í hund-
ana“, og að hún geti vel rækt
hina miklu köllun sína, sem
hann benti fyrstur á, en Adam
Rutherford seinna, og hafði
hann komist að þeim skilningi
eftir öðrum leiðum en dr. Helgi
Pjeturss.
★
Spámannlega komst Hannes
Hafstein að orði í aldamóta-
kvæði sínu:
íslenskir menn! Hvað öldin ber
í skildi,
enginn fær sjeð, hve feginn
sem hann vildi.
Eitt er þó víst, hún geymir
hel og hildi.
Hlífi þjer, ættjörð, guð í sinni
mildi.
Öldin er nú tæplega hálfnuð,
en hún hefur „geymt hel og
hildi“ framar en allar aðrar
liðnar aldir. — En „guð vors
lands“ hefur hlíft hinni íslensku
þjóð svo dásamlega, að það þarf
sálarsteingjörvinga til þess að
sjá það ekki og viðurkenna.
Dr. Helgi segir að íslenska
þjóðin muni verða farsæl, ef
hún ræki köllun sína. Og hann
boðar hina fegurstu tíma um
batnandi lífskjör og batnandi
land. Segir hann svo á einum
stað:
„Ef hin mikla stefnubreyting
tekst, og mannkynið kemst á
braut hinna sönnu framfara, þá
verða (um næstu aldamót) t. a.
m. engar fiskveiðar stundaðar
og heldur ekki sauðf járrækt, því
að engum manni mun þá koma
til hugar, að láta neitt sem er
úr dýraríkinu, inn fyrir sínar
varir. Menn munu þá hafa fund-
ið aðrar aðferðir og betri en nú,
til að hressa sig og næra. Gróð-
urrækt mun þá verða mikill at-
vinnuvegur íslendinga, að ó-
gleymdum iðnaðinum. En aðal-
undirstaðan undir velmegun
þjóðarinnar í þessu farsæla
landi, sem ísland þá er orðið,
verður þó risna og fræðsla í sam
bandi við hið mesta áhugamál
mannkynsins, sem þá verður,
sambandið við stjörnurnar.“
Mönnum kann nú að finnast
það fjarstæðukent að spá því,
að sauðfjárrækt og fiskveiðar
muni leggjast niður á Islandi,
og menn eigi að „Mfa á landinu"
sjálfu, þessu ófrjósama landi
hrauna og mela, jökla og sanda.
En ekki verður þetta jafn ótrú-
legt og í fljótu bragði virðist,
þegar litið er á hinar nýjustu
ræktunaraðferðir, þar sem ekki
er sáð í jarðveg heldur í vatns-
blöndu, sem inniheldur öll þau
næringarefni, sem jurtirnar
þurfa. Fæst við það margföld
uppskera á skemri tíma en áð-
ur og auk þess þarf svo langtum
minna land undir þessa ræktun,
að sagt er að rúmlega helmingi
fleira fólk, en nú er á Islandi,
geti lifað á 100 dagslátta landi.
Er sennilegt að þá fyrst komi
jarðhitinn á íslandi að fullum
notum, þegar sú ræktunarað-
ferð er tekin upp. Og um allan
heim mun verða gjörbreyting og
höfuðástæðan fyrir styrjöldum,
landvinningagræðgin, verður úr
sögunni, þegar þjóðirnar þurfa
ekki nema nokkurn hluta lands
síns til þess að geta lifað góðu
lífi.
★
Dr. Helgi hefur fundið að
heimsstefnurnar eru tvær, hel-
stefna og lífsstefna. Hann telur
helstefnuna ráðandi á jörðu
hjer, og mun víst enginn neita
því að svo sje á yfirborðinu.
Hann dregur þá ályktun af
þessu, að mannkynið sje komið
á glötunarbarm og muni farast,
ef ekki verður breytt um stefnu.
Margir fleiri spá nú hinu sama
og hefur handsömun kjarnork-
unnar ýtt mjög undir þær spár.
Og margir helstu vísindamenn
og vitmenn halda því fram að
nú sje örlagatrúar mannkyns-
ins.
Jeg trúi því ekki að mann-
kynið muni farast þótt úrslita-
trúar sje. Og styðst jeg þar ein-
mitt við kenningu dr. Helga um
stefnurnar tvær. Mannkynið er
,,úr óskapnaði sprottið" og það
er ekki svo ýkja langt síðan að
„vitöldin“ hófst hjer á jörð, þeg
ar mannkynið tók að gera grein
armun á rjettu og röngu. Þá
hefst baráttan milli lífstefnu og
helstefnu, og hefur hin síðar-
nefnda jafnan mátt betur. En
að sú barátta harðnar, sýnir
það, að lífstefnan veitir sífelt
öruggara viðnám, þangað til
kemur að því að hún sigrar. —
Þarf engan að furða þótt ærið
stórkostlegri viðburðir verði áð-
ur en að því kemur. En þeim
mun stórhættulegri sem þeir
verða, þeim mun skemra er að
bíða ósigurs helstefnunnar. Og
þótt mikið mannfall verði um
allan heim í þeim átökum, þá
mun mannkynið ekki líða undir
lok. Þar mun fara eins og segir
í Vafþrúðnismálum, að lifa
skulu:
Líf og Lífþrasir -— en þau
leynast munu
í holti Hoddmímis;
morgundöggvar þau sjer að
mat hafa;
þaðan af aldri alast.
Eða eins og stendur í Völuspá:
Upp sjer hún koma
öðru sinni
jörð úr ægi
iðjagræna.
Þá munu ósánir
akrar vaxa;
böls mun alls batna,
mun Baldur koma.
Og er ekki athyglisvert, ein-
mitt í sambandi við hina nýju
ræktunaraðferð, sem jeg gat
um, að sagt er að hið nýja mann
kyn skuli hafa morgundöggvar
að mat og þá muni ósánir akrar
vaxa?
Það er rjett, sem höfundur
bókarinnar „Human Destroy",
dr. Lecorute du Noiiy, segir, að
framvinda lífsins fylgir óskeik-
ulu náttúrulögmáli og leiti sí-
felt upp á við. En sú framvinda
stjórnast af verkum og andagift
fárra manna á hverjum tíma.
Skoðanir þeirra og kenningar
eiga oft langt í land að verða
viðurkenndar, en fylgi þær sann
leikanum, lífstefnunni, munu
þær sigra.
Jeg trúi því, að lífsspeki dr.
Helga Pjeturs muni sigra. Og
jeg trúi því að það verði á þann
hátt, sem hann sjálfur óskar, að
vísindin muni sanna höfuðkenn-
ingar hans. Hann hefur í bók-
um sínum sýnt fram á hvernig
það megi verða og hvers sje þá
að vænta. Þess vegna get jeg
tekið undir það sem sagt hefur
verið, að Nýallsbækurnar getur
enginn látið ólesnar sjer að
skaðlausu.
Árni Óla.
Stálu tönnum lávarH
arins
FÖLSKU tennurnar, sem stol
ið var frá Ismay lávarði um
daginn hefði hann síst viljað
missa af öllu, sem stolið var.
Alls tóku þjófarnir föt og skart-
gripi, sem metið er á 500 ster
lingspund.
Dóttir Ismays, Susan segir
frá því að hún og systir hennar
hafi flutt rúm sín út í garðinn
vegna hitans. Þegar þjófarnir
komu, segir hún,munu þei.r hafa
komið inn um garðinn, tekið þar
svæfla frá okkur systrunum án
þess, að við vöknuðum. Síðan
fóru þeir inn í húsið og notuðu
verin af svæflunum fyrir poka
til að bera alla þá muni, sem
þeir fundu í.
Fölsku tennurnar hans Ismay
lávarðar eru sagðar hafa verið
alldýrmætar og mikið gull í
þeim. — Kemsley.
Clark um Rússa.
Washington: — Mark Clark hers-
höfðingi, hefur haldið því fram í út-
varpsræðu, að Rússar í Austurriki
hafi gert olíubrunna upptæka og
jafnvel tekið eignamámi bandarísk-
ar vörui', en allt sje þetta í' beinni
andstöðu við Potsdamsamþykktina.
Minnin garorð um
Árna Sigurðsson frá Húsavík
ÞAÐ var hljótt og hávaða-
laust um andlát og jarðarför
Árna Sigurðssonar frá Húsa-
vík, en hann ljest á Elliheim-
ilinu Grund, 7. mars s. 1., 78
ára gamall. Þessi hljóðláti við-
skilnaður stakk að ýmsu leyti í
stúf við ævi Árna, sem öðrum
þræði bar svipmót gleðimanns-
ins og æringjans.
Árni var fæddur að Skógum
í Reykjahverfi, en þar bjuggu
forfeður hans í margar kyn-
slóðir. Móður sína missti Árni
ungur, og ólst hann upp með
föður sínum, fyrst í Skógum,
síðan á Hálsi í Köldukinn. Upp
vaxtarárin voru samfelld og
hörð barátta við skort og um-
komuleysi, og munu þá ýmsar
vonir hans hafa orðið úti, marg
ir draumar æskumannsins dag-
að uppi, þó að hann kyli ekki
á hjarta í þeirri viðureign.
Á tvítugsaldri vistaðist Árni
til Sigurjóns á Laxamýri, er
þá var mest höfuðbóí á Norð-
urlandi. Hann var enginn burða
maður, en verkhyggni hans og
lipurð hóf Árna þegar til nokk-
urrar virðingar í vistinni. Var
hann sauðamaður á vetrum, en
laxatekjumaður á sumrum. Á
Laxamýri kynntist Árni eftir-
lifandi konu sinni, Sigurlaugu
Jónsdóttur, hin ágætasta dugn-
aðar- og sómakona. Hófu þau
hjónin búskap sinn að Hálsi í
Köldukinn, og þar fæddist þeim
einkabarn þeirra, Lára, kona
Snæbjarnar Jónssonar, bók-
sala. En búskapurinn á Hálsi
var ekki langær. Fluttu þau þá
í húsmennsku að Laxamýri og
voru þar í nokkur ár, eða uns
þau fluttu til Húsavíkur, laust
fyrir aldamótin. Þar reisti Árni
hús og rak þar sjálfseignar-
verslun í mörg ár, en stundaði
jafnframt nokkurn búskap. Frá
1925 var hann bæjarpóstur á
Húsavík og hjelt því starfi, uns
hann fluttist til Reykjavíkur
1942. Dvaldi hann hjer, ásamt
konu sinni, á heimili dóttur
sinnar og tengdasonar þangað
til í febrúar s. 1., að hann tók
vist á Elliheimilinu, en þar Ijest
hann eins og fyrr segir.
Árni var maður fjölgáfaður
og listhneigður. Hann mundi
sennilega hafa „gengið skóla-
veginn“, ef hann hefði fæðst
50 árum seinna en raun var á.
Engum getum verður þó að því
leitt, hvað úr honum hefði orð-
ið, en víst má telja, að hann
mundi hafa fallið undir þá
manngerð; sem við nefnum nú
listamaður, bæði í gamni og al-
vöru. Hann var skáldmæltur
vel og bókgefinn, söngmaður
góður, orgelleikari, bjó yfir
næmri kýmnigáfu og mikill á-
hugamaður um þjóðmál, gleði
og mannfundamaður, undir-
hyggjulaus og greiðasamur, —
en enginn fjársýslumaður, enda
græddist honum aldrei fje.
Það er til marks um áhuga
Árna fyrir hljómlist, að þegar
hann var húsmennskumaður á
Laxamýri fargaði hann einu
kúnni sinni og keypti sjer orgel
fyrir andvirðið. Orgel voru þá
sjaldgæfur munaður, enda
þótti Sigurjóni bónda nóg um
þessa nýbreytni í búnaðarhátt-
um og mælti, er hann heyrði
Árna leika á hljóðfærið: „Fall-
ega baular hún kusa hans Árna
míns núna“. Er það síðan haft
fyrir orðtak þar um sveitir,
þegar menn vilja undirstryka
fyrirlitningu sína á gáleysis-
legri meðferð fjármuna.
En svona var Árni Sigurðs-
son. Þráin eftir gleðinni bar
fyrirhyggjuna alltaf ofurliði.
Er þau Árni og Sigurlaug
byrjuðu búskap sinn á Húsa-
vík varð heimili þeirra brátt
eitt aðalathvarf sveitamanna,
er þeir komu í kaupstai arferð-
ir til Húsavíkur. Mát i heita
svo að heimili þeirra hjó.ia væri
„opið hús“ í full 40 ár — og
höfðu þau því meiri ánægju af
gestum sínum sem þeir voru
fleiri. En oft var sungið og ort
og leikið dátt, það veit gamla
Gilsbakka-húsið, ef það mætti
mæla.
Þegar Árni flutti hingað suð-
ur var hann orðinn of rosk-
inn til að skipta um umhverfi.
Honum fór því eins og ef flytja
ætti gamalt trje úr skógi til að
gróðursetja það í listigarði.
Rótarskotin mundu sitja eftir
í skóginum hversu vel sem til
flutningsins væri vandað. Og
gamalt trje getur ekki lifað í
nýrri mold. Enda var hugurinn
ávalt norður á Húsavík, og
þangað var hann fluttur til
hinstu hvílu.
Með Árna Sigurðssyni er
genginn fyrir björg einn þeirra
ágætu manna, sem meta á-
nægju lífsins auði meira, — en
þó með fullri sjálfsvirðingu og
raunsæi eins og þessar Ijóðlín-
ur hans bera með sjer:
„Jeg veit það líður á minn
æfidag,
og um mig verður bráðum
kyrt og hljótt.
En eilífðin á ekkert sólarlag,
og enga kalda, myrka
vetrarnótt“.
Nú hefir hann lifað sínu
„myrku vetrarnótt11, og er
sigldur yfir í heiðríkju hins
eilífa dags.
S. B.
íkveikja í Aþenu
Aþenu í gær.
TVÆR stúlkur ljetu lífið og
20 borgarar særðust, þegar eld-
ur kom upp í dag í aðalbæki-
stöðvum breska hersins í Aþenu
Opinberlega er frá því skýrt,
að hjer hafi verið um íkveikju
að ræða og hafi eldurinn komið
upp samtímis á mörgum stöð-
um í húsinu.
Málið er í rannsókn.
— Reuter.
Ébúð
2—3 herbergi og eldhús
; óskast til leigu, helst á
I þitaveitusvæði. Mætti vera
j í. góðum kjallara. Tilboð
; óskast send afgr. Mbl.
I .merkt: „Fámennt — 105“
[ £grir þriðjudagskvöld.
!