Morgunblaðið - 18.07.1947, Page 6
6
M O R G tTKBí, ABI8
Föstudagur 18. júlí 1947
Útg.: H.f. Árvakur, Rf-ykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson
Auglýsingar: Ami Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlands,
kr. 12,00 utanlands.
í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók.
Krabbagangur
Þjóðviljans
EFTIR því sem lengra líður frá verkfallinu, eftir því
verður Þjóðviljinn langorður um það mál.
Um síðustu helgi var eytt miklu af dálka rúmi blaðs-
ins, til þess að reyna að færa sönnur á, að hin nýafstöðnu
verkföll hefðu að öllu leyti verið frá ríkisstjórninni
runnin. ,
Þessi langhundur Þjóðviljans sýnir best, hve verkföllin
hafa orðið óvinsæl meðal almennings. Annað sýna þessi
skrif ekki. Nema hvað þau eru ein af óteljandi sönnunum
þess, hve gersamlega kommúnistar telja að almenningur
sje dómgreindarlaus.
Meðan á verkföllunum stóð sagði Þjóðviljinn að útí
þau hefði verið farið, og þeim væri haldið uppi, til þess
að sanna þjóðinni að ekki væri hægt-að stjórna landinu,
án þess að erindrekar „hinna austrænu“ ættu sæti í
stjórn. Hjer væri ekki um að ræða kaupdeilu, í venju-
legri merkingu.
í augum kommúnista voru verkföllin því algerlega
pólitísk. Þeim var beint gegn ríkisstjórninni. Það var
þessvegna sem t d. stjórn Dagsbrúnar hjelt fund eftir að
Dagsbrúnarverkfallið hafði staðið vikum saman án þess
að minnast einu orði á það, að leggja ætti áherslu á, að
fá enda bundinn á verkfallið.
En svo þegar alt er um garð gengið, og kommúnistar
finna, hve verkamenn eru sáróánægðir yfir atvinnutjón-
inu er skrifað í Þjóðviljann, dálk eftir dálk, að það sje
ríkisstjórnin sem hafi komið allri vinnustöðvuninni á,
og því sje alt atvinnutjónið henni að kenna(!)
Niðurstaða Þjóðviljans er því þessi, wef niðurstöðu
skyldi kalla: Efnt hefir verið til verkfalla í landinu, til
þess að steypa núverandi ríkisstjórn af stóli Og það er
ríkisstjórnin sjálf, segir Þjóðviljinn, sem hefir gerst svo
ósvífin, að eiga upptökin að þessum verkföllum, til þess
að steypa sjálfri sjer, og reyna að leiða alþjóð fyrir sjón-
ir að ekki sje hægt að stjórna landinu, nema með því
móti, að hafa andstæðinga hennar með í stjórninni, menn
sem eru sannir að því, að þeir sitja á svikráðum, ekki
aðeins við núverandi ríkisstjórn, heldur við þjóðina í
heild sinni og sjálfstæði landsins.
Þetta er í fám orðum sá krabbagangur hugsunarinnar,
sem einkennir skrif Þjóðviljans um verkfallsmálin.
Minnismerki um
lýð veldisstofn unina
Á LANDSÞINGI Sambands ungra Sjálfstæðismanna,
sem haldið var á Akureyri í júnímánuði var gerð merki-
leg ályktun, sem þessi fjelagsskapur á þakkir skildar
fyrir að hafa vakið máls á. Ályktunin var þess efnis, að
sambandið beitti sjer fyrir því, að reistur yrði veglegur
minnisvarði um endurreisn lýðveldis á íslandi.
Þetta er sjálfsagt mál, sem allir Islendingar munu taka
vel í og sjá, að ekki er annað sæmandi, en að reisa slíkt
minnismerki, sem um aldur og æfi verði óbornum kvn-
slóðum íslands áminning og hvatning um þann glæsilega
áfanga í íslandssögunni er lýðveldið var endurreist.
Og þegar hefur það sýnt sig, að tillaga ungra Sjálf-
stæðismanna hefur fallið í góðan jarðveg. Á þingi íþrótta-
sambands íslands, sem haldið var í Haukadal nokkru eft-
ir sambandsþing Sjálfstæðismanna var samþykt tillaga,
þar sem gert er ráð fyrir að íþrqttasamtökin bjóði aðstoð
sína við tillögu þeirra.
Nú er þess að vænta, að fleiri fjelög og fjelagasambönd
Iýsi skoðun sinni í njinnisvarðamálinu og væntanlega
verður það á einn veg.
Og vel væri það, að einmitt æska landsins hefði for-
ystu í minnisvarðamálinu og þá bæði veg og vanda af því.
verji
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Happdrættis-
vinningar.
ÞAÐ LÍÐUR VARLA sá dag-
ur nú orðið, að ekki sje dregið
í þessu happdrættinu, eða hinu.
Happdrættismiðum er þrengt
upp á fólk, bæði af sölumönn-
um, sem láta menn ekki í friði
fyr en þeir hafa keypt miða, eða
með fagurgala og áróðri. Ár-
angurinn af öllu þessu verður
sá, að margir liggja með happ-
drættismiða í tugatali og botna
hvorki upp nje niður í hvað er
hvað.
Þegar svo loks er dregið í
happdrættunum koma smáklaus
ur unl það, hvaða númer hafa
komið upp, í blöðunum. Þeir,
sem ekki lesa blöðin þann dag-
inn geta ekki sjeð hvort þeir
hafa unnið eða ekki.
•
Ætti að birta í
Lögbirtingi.
ÞAÐ KEMUR víst fyrir oft,
að happdrættisvinningar eru al-
drei sóttir og stafar það vitan-
lega af því að eigandi miðans
hefur ekki sjeð að hans númer
hefur fengið vinning.
Það ætti að fyrirskipa, að birt
ir sjeu allir happdrættisvinning-
ar í Lögbirtingarblaðinu og auk
þess með auglýsingum, áberandi
auglýsingum í dagblöðunum.
í Lögbirtingarblaðinu væri
auðvelt að finna happdrættis-
númer. Næst þegar einhver sæk-
ir um (og þess verður víst ekki
langt að bíða) og fær leyfi til
að hafa happdrætti, ætti að gera
það að skyldu, að vinningarnir
verði birtir í Lögbirtingi. —
Best væri þó að neita um leyfið.
•
Önnum kafnar.
í GÆR kqm kona inn í mjólk-
urbúð hjer í bænum. Þar voru
fyrir tvær afgreiðslustúlkur í
hvítum sloppum og með hvíta
skýluklúta um höfuðin. Ekki
voru aðrir viðskiftavinir í búð-
inni en umrædd kona.
Afgreiðslustúlkurnar voru
báðar að lesa blöð, en litu ekki
við viðskiftavininum alllanga
stund, eða þangað til hún kall-
aði til þeirra. Konan, sem sagði
mjer þessa sögu, sagðist skilja,
in, en þetta fanst henni fullmik-
að fólk væri spent að lesa blöð-
ið af því góða, og kann svo fleir-
um að þykja.
•
Tómlæti af-
greirðslufólks.
En ÞAÐ eru ekki bara af-
greiðslustúlkur í mjólkurbúðum,
sem sýna viðskiftavinum tóm-
læti og alt að því ókurteisi. Það
er mjög álgengt, að fólk er lát-
ið bíða í verslunum eftir af-
greiðslu, þótt ekkert sje að gera
í búðinni og það er stundum
engu líkara, en að viðskiftavin-
irnir sjeu að gera afgreiðslufólk
inu ógreiða og ónæði með því að
versla við það.
•
„Ekkert dýrt á
íslandi“.
ÞAÐ KOM til mín kunningi i
gær, sólbrendur, bústinn og
hýr á brá. Hann var að koma úr
siglingu. (Hamingjan má vita,
hvar hann hefur fengið gjald-
eyrinn).
„Bannsett rugl er þetta sífelt
í ykkur, að hjer á landi sje svo
dýrt, að ekki sje hjer lifandi,“
sagði hann. „Það er hreint ekk-
ert ódýrara víða úti í löndum,
ef menn þurfa að kaupa sjer
gistingu og mat. Blessaðir hætt-
ið þið þessu væli.“
Jeg sel söguna ekki dýrari en
jeg keypti hana, en jeg verð að
segja það alveg eins og er, að
mjer fanst kunninginn alls ekki
billegur.
Islenskri sendi-
sveit hrósað.
„OG SVO er það annað, sem
jeg vildi að þú mintist á í blað-
inu,“ bætti sá nýsigldi við. „Mik
ið ágætisfólk er það, sem er í
sendisveitinni okkar í Stokk-
hólmi með Vilhjálm Finsen
sendiherra í broddi fylkingar.
Þetta fólk er sífelt á þönum fyr-
ir íslendinga, sem eru á ferða-
lagi í Stokkhólmi. Það er ekki
sá greiöi til, sem ekki er gerður
með glöðu geði. Það er munur
fyrir íslending, að koma í land,
þar sem við eigum slíka full-
trúa.“
Þessu trúði jeg betur en dýr-
tíðarsögunni, því jeg hef heyrt
svo marga segja það sama.
Getur beðið.
ÞAÐ LIGGJA hjá mjer nokk-
ur brjef um sundbaðstað fyrir
Reykvíkinga. Satt að segja hef
jeg ekki skap í mjer til að birta
þessi brjef eins og stendur og
vil heldur ekki ergja lesendurna
með því. Það eru víst flestir
búnir að fá nóg af vætunni, þótt
ekki sje verið að tala um sjóböð
í viðbót.
Sagan segir, að í Færeyjum
rigni svo mikið, að mönnum þar
sje hætt við lungnabólgu ef þeir
koma heim að kvöldi þurrir í
fæturna. — Ætli það fari ekki
að verða eitthvað svipað hjer á
Reykjanesskaganum ?
MEÐAL ANNARA ORÐA . ...
< • *■" "
Múftinn af Jerúsalem
Múftinn af Jerúsalem er vold-
ugasti maður Araba því að orð
hans eru Aröbum í Palestínu og
Norður-Afríku næstum því lög-
mál. Ævi hans hefur verið mjög
viðburðarík og er hann meðal
annars nú ásakaður fyrir stríðs-
glæpi, því að hann gekk í lið
með Hitler í heimsstyrjöldinni
og var hann eftir stríðið hafður
í varðhaldi í Frakklandi, en það-
an slapp hann til Egyptalands.
Hjer fara á eftir brot úr grein
um hann eftir George Bilainkin.
I augum 80 milljón Araba
virðist hann vera mjög áhrifa-
mikil og virðingarverð persóna.
Sumir spyrja: Verður múftinn
fyrsti þjóðhöfðinginn í nýju al-
Arabaríki, sem nær yfir Iraq og
Saudi-Arabíu, Sýrland, Egypta-
land og alla Norður-Afríku?
Þessi sterkasti foringi, sem
Arabar hafa átt um langt skeið
býr nú í stóru húsi í Egypta-
landi, á veislum Egyptakonungs
og egyptsku stjórnarinnar. Fyr-
ir utan húsið stendur egyptskur
hermaður, vopnaður byssu, til
þess að verja hann allri ásælni.
Múftinn hefur tvær stórar Rolls
Royce bifreiðar til umráða, og
auk þess tvo smærri bíla, svo
að auðsjeð er, að hann býr ekki
smátt.
Hvernig hann lít-
ur út.
Bilainkin segir frá því, þegar
hann heimsækir múftann og lýs-
ir öllu hinu mikla skrauti, scm
er þar á öllu. — Hann heldur
áfram:
Og svo gekk múftinn inn.
Hann hafði á höfðinu gullinn
imama, en svo heitir tyrkneska
höfuðfatið og var í síðum svört-
um kirtli. Hendurnar voru fram
úrskarandi hreinar og mátti sjá
að þetta var maður, sem aldrei
hafði difið hendi í kalt vatn. —
Augun voru djúp og virtust
stundum vera lítið eitt dapurleg.
Mjer fanst eins og þau skiftu
stundum lit, voru ýmist brún
eða gráblá. Hann talaði lágt en
vandaða frönsku, sem hann hef-
ur lært í háskólum í Cairo, Jerú-
salem og Konstantínópel. Hann
talar' svo hægt, að það mátti
heyra, að hann yfirvegaði hvert
orð áður en hann sagði það.
Hann sagði mjer, að hann
hefði komið til þessa húss í júní
1946. Áður hafði hann verið í
Egyptalandi 1937, en á milli
hafði hann ferðast víða, til Lí-
banon, Sýrlands, Persíu, Evrópu
síðast í Frakklandi uns hann
slapp þaðan.
Saga múftans.
Múítinn er sonur velþekkts
múhameðstrúarmanns, sem átti
heima í Jerúsalem. I heimsstyrj-
öldinni var 'hann liðsforingi i
tyrkneska hernum og eftir stríð-
ið tók hann upp fyrir alvöru bar
áttuna við Gyðinga, sem þá voru
farnir að flytjast til Palestínu
í stórum stíl. 1920 var hann
dæmdur í æfilangt fangelsi fyrir
að hafa valdið uppþoti í land
inu. En landstjóri Breta Sir Her
bert Samuel sýknaði hann og
næsta ár varð hann að viður-
kenna kosningu hans sem Múfta
af Jerúsalem.
Honum hlotnuðust miklar
nafnbætur á næstu árum. 1922
var hann gerður forseti múham-
eðstrúarbandalagsins og fyrir
hans starf tók Arababandalag
Palestínu upp sterka andstöðu
gegn Gyðingum í landinu. 1937
varð hann að lokum forseti
hæstaráðs Arababandalagsins.
Það er sagt, að hann hafi
stutt Rashjid Ali í upþreisninni
í Iraq 1941 og eftir það munu
Þjóðverjar hafa komið honum
til Evrópu. Er það sannað mál,
að hann gerðist samstarfsmaður
Hitlers í styrjöldinni, en líklega
verður hann aldrei dreginn fyrir
neinn dóm þrátt fyrir það, því
að hann hefur sterkari stoð en
svo, því að ef múftinn yrði færð-
ur fyrir stríðsglæpadómstól,
myndi allur hinn arabíski heim-
ur rjúka upp í reiði.
NÆG OLÍA FYRIR
BANDARÍKIN
WASHINGTON: — Olíusjer
fræðingar innanríkisráðuneyt-
is Bandaríkjanna hafa skýrt
Þjóðjarðanefnd öldungadeild-
arinnar svo frá, að í náinni
framtíð muni verða næg olía í
Bandaríkjunum, enda þótt
skortur kunni að verða á
henni á einstaka stað í vetur.