Morgunblaðið - 19.07.1947, Qupperneq 1
lé síður
34. árgangur 160. tl»l. — Laugardagur 19. júlí 1947 ísafoldarprentsmiðja h.f.
H. K. H. Olav krónprins.
Snorrahátíðin hefst í
dag með hátíðlegri
athöfn
SNORRAFIÁTÍÐIN hefst í dag með því að norsku gest-
unum verður fagnað á hafnarbakkanum, er þeir stíga hjer
á land.. Búist er við skipunum sem koma með hátíðagestina
á 'ytri höfnina um 7 leytið, en klukkan 10 f. h. munu skipin
sigla inn á höfnina. Fyrst fer herskipið Oslo, en á því er Olav
kfónprins. Þar næst kemur Trondheim og þá Lyra og síðast
Stavanger. Skipin leggjast öll að Grófarbryggju, tvö og tvö
sitt hvoru megin.
kynni við frændþjóiinn
sl@ndingum hugleikin
I í DAG ber hjer að garði hinn virðulega sta flokk erlendra gesta, sem nokkru sinni
hefur kcmiö að íslands strönd þar sem er Olav krónprins Norðmanna, með fríðu
föruneyti hans. íslendingar kunna að met a, hve mikil virðing þtjóðinni er sýnd með
heimsokn þessari. En tilefni ferðarinnar hingað er, sem kunnugt er, að hingað er
komin sú hin kærkomna gjöf, er rjettu lagi skyldi hingað færð á 700. ártíð Snorra
Sturlusonar. Fregnin um gjöfina, er varð að bíða í Noregi meðan á styrjöldinni
stóð, var hin hlýjasta vinarkveðja, sem nokkru sinni hefir borist frá Noregi hingað
til landsins.
Að sjálfsögðu hefði það aukið á ánægju okkar, ef við hefðum við þetta tækifæri
getað kynnst hinum ágæta forsætisráðherra norsku þjóðarinnar. En við skiljum að
sjálfsögðu vel, að maður sem hefir svo ábyrgðarmiklum störfum að gegna heima
fyrir getur haft eðlileg forföll frá því, að takast svo langa ferð á hendur.
Það er okkur vissulega mikil ánægja að svo margir og
mikilhæfir Norðmenn hafa sjeð sjer fært að yfirgefa
störf sín um tíma, til þess að gista land vort, og taka á
sig það erfiði, sem slíku ferðalagi er samfara. Við horfum
með ánægju til þessara heimsóknardaga sem nú fara í
hönd.
En ennþá meiri og innilegri er ánægja okkar íslend-
inga áð mega hugsa til þess, að þessi virðulega heimsókn
Olavs krónprins og annara Norðmanna, sem heimsækja
ísland í fylgd með honum í dag, mætti verða upphaf
að aukinni innilegri samvinnu milli Norðmanna og ís-
lendinga.
Fyrr á öldum, einmitt þeim er Islendingar lifðu blóma-
skeið sitt, átti íslenska þjóðin mest viðskifti sín erlendis
við Norðmenn. Segja má með sanni, að þau viðskifti urðu
um skeið báðum þjóðum til styrktar og vegsauka.
Það er ósk og von íslensku þjóðarinnar í dag, allra
flokka og stjetta, að þau kynni Norðmanna og íslendinga,
sem hjer er efnt til megi verða til sífeldrar ánægju báð-
um þjóðunum.
Svo mikið úrvalslið frá norsku þjóðinni hefir valist til
þessarar ferðar, að vart munu hug'sanlegir ákjósanlegri
fulltrúar Norðmanna til þess að auka bræðraþelið milli
þessara tveggja frændþjóða.
Norömenn
boönir velkomnir.
Klukkan 10,30 vcrða skipin
lögst við bryggjuna og þá býður
Ólafur Thors fyrverandi forsæt
isráðherra hina norsku gesti.vel-
komna með ræðu. Mun hann að
r-æðu sinni lokinni biðja alla við-
stadda að hylla Norðmenn með
ferföldu húrrahrópi, en Lúðra-
sveit Reykjavíkur leikur norska
þjóðsönginn.
Fc rmaöur Snorranefndarinn-
ar norsku, Johan E. Mellbye
fyrverandi ráðherra mun avara
með i-æðu, en að því loknu leikur
lúðrasveitin íslenska þjóðsöng-
inn.
Framh. á bls. 2
Danir iá ofíu Srá
Sovjefríklunum
Kaupmannahöfn.
DANIR munu nú mjög hráð
lega fá allverulegar birgðir af
olíu frá Rússum, en þeir voru
áður harðir keppinautar Rreta
og Bandaríkjamanna 'um olíu
sölu í Danmörku. Búist er við
fyrsta olíuskipinu frá Sovjét-
ríkjunum einhvern næstu daga
Mun það hafa meðferðis um
30,000 smálestir af bensíni,
steinolíu og hráolíu.
— Kemsley.
Gestirnir.
Hjer fara á eftir nöfn hinna norsku gesta, sem hingað
koma í dag.
Jens Chr. líauge
landvarnaráðherra.
BÍLAFRAMLEIÐSLAN
STÖÐVÁST
WASHINGTON: — A,vncriska
verksmiðjan General Motors. hef-
ur orðið að stöðva bílaframleiðslu
•sina um stundarsakir vegna skorts
á stáfi. 1S0.000 menn rnissa við
þetta atvinnu.
bfaðinu í dsg
eru m. a. þessar greinar:
ísland í augum Norðmanna
eftir Ilákon Shetelig próf.
bls. 5. Snorri Sturluson,
efíir Andrjes Björnsson
magister, bl. 8 og 7. Olav
Noregsprins, bls. 9. Grein
um Joh. Mellbye formann
norsku Snorranefndarinn-
ar, bis. 7. Listi yfir norsku
gestina á Snorrahátíðinni
bls. 1 og 11. Norskir blaða-
menn í boði B’aðamanna-
fjelagsins bls. 11.
Hans konunglega tign Olav,
krónprins Noregs.
Káre Fostervold, kirkju- og
mentamálaráðherra og frú
hans.
Jens Chr. Hauge, landvarna-
málaráðherra og frú hans.
Johan Egeberg Mellbye, fyr-
verandi ráðherra og formaður
norsku Snorranefndarinnar og
frú hans.
Jakob Lothe, forseti Lög-
þingsins.
Olav Oksvik, forseti Óðals-
þingsins og frú hans.
Hákon Shetelig prófessor,
Bergen, varaformaður norsku
Snorranefndarinnar.
Aðrir meðlimir norsku
Snorranef ndarinnar:
Framh. á bls. 11.