Morgunblaðið - 24.08.1947, Síða 12
VEÐURÚTLITIÐ. Faxaflói
REYKJAVIKURBRJEF á
SUÐ-AUSTAN stinnings-
kaldi. — Rigning.
190. tbl. — Sunnudagur 24. ágúst 1947.
Húsnæði Bæjar-
Veðuraihugunarskip
bókasainsins
Á FUNDI bæjarráðs, sem hald
inn var s.l. föstudag, var sam-
þykkt að fela húsameistara
Reykjavíkurbæjar og forstöðu-
manni Bæjarbókasafnsins, aí’,
gera tillögur um úrlausn hús-
næðismála safnsins.
Fyrir einum tveim árum síð-
an, var um það rætt í bæjarráði,
að heppileg úrlausn þessara
mála, væri að byggja eina hæð
ofan á Austurbæjarskólann, er
safnið skyldi hafa samastað i.
1 þessu skyni var Sigurði Guðr
mundssyni, arkitekt, falið að
gera teikningu að þessari hæð.
Ekki komst þetta mál lengra,
því ýmsir annmarkar komu í
ljós, og var horfið frá þessum
framkvæmoum.
Bæjarráði er hinsvegar fylli-
lega ljóst, að við þann húsakost,
er Bæjarbókasafnið nú hefur við j
að búa, er ekki hægt að búa öllu j
Iengur. Vonandi verður bráðlega
sjeð fyrir enda þessa máls, með
skipun þessara tveggja manna.
Fii!ltníafundur Nor-
rænu fjeiaganna
FULLTRÚAFUNDUR Nor-
rænu fjelaganna allra hefst 31.
ágúst í Hindsgavlshöll, aðsetri
Norræna fjelagsins í Danmörku.
Enginn fulltrúi fyrir Norræna
f jelagið hjer mun geta farið hjeð
an að heiman til þess að mæta
á fundinum, en Tryggvi Svein-
björnsson, sendiráðsritari í
Kaupmannahöfn mun mæta fyr-
ir fjelagið. Formaður mótsins
verður Bramsnæs, bankastjóri
danska þjóðbankans.
Fál! Steingríms-
son fyrrverandi
ritstjóri fátinn
Bretar hafa svokölluð veðurskip á 13 mismunandi stöðum
á Atlantshafi til aö gera veðurathuganir og senda veður-
fregnir til samtals 8 landa. Á myndinni sjest eitt þessara
skipa. í»au cru útbúin öllum fullkomnustu tækjum tíl veð-
urathugana og aihuganír frá þessum skipum eru mjög
þýðingarmiklar fyrir fiugsUmgöngur uni Atlantshafið. — Á
neðri myndunum sjest til vinslri flughelgur, scm sendur er
upp í háloftin til aíhugana þar, en tií hægri er radar-mastur
skipsins.
íslenskur ræis-
maður í Sfokk-
SVENSKA Dagbladet skýrir
frá því s.l. mánudag, að bráð-
lega muni verða útneíndur ís-
lenskur ræðismaður í Stokk-
hólmi. Það sje Seth Brinck, for-
stjóri, sem muni taka það starf
að sjer.
Hann er forstjóri fyrir skipa-
útgerð Saléns.
Hann hefur haft talsverð við-
skipti við Islendinga og sýnt á
margan hátt áhuga fyrir mál-
efnum íslands.
Engin síldveiði
Frá frjettaritar vorum
LÍTIL sem engin veiði hefur
verið s.l. sólarhring.
Sjö skip hafa komið hingað
með nokkurn slatta, sem allt
hefur farið til söltunar. Engar
frjettir um veiði höfðu borist til
Siglufjarðar skömmu áður en
blaðið fór í pressuna.
Síldveiðiflotinn var því nær
allur úti á miðunum og var
dreyfður mjög. Veður var sæmi-
legt fram eítir degi í gær, en
um nónbil var komið kul.
Maður sfasasS við
PÁLL Steingrímsson, fyrr-
verandi ritstjóri, andaðist í fyrri
nótt á heimili sínu hjer í bæn-
um, 68 ára aö aldri.
Hann hafði átt við langvar-
andi vanheiisu að búa.
200 FÓRUST
CODIZ — Opinberar tölur
Tj'i fa nú verið birtar á Spáni í
sambandi við sprenginguna
miklu í Cadiz á dögunurn. Nærri
CHIFLEY, forsæíisráðherra
Ástralíu hefur tilkyrnt, að á-
kveðið hafi verið að banna
rjómaenyslu í landinu. —
Framvegis verður rjóminn not
aður til smjörgcrðar handa Bret
um, en með því er vonað að hægt
í GÆRMORGUN slasaðist
maður við vinnu sína í c-imtúr-
blnustöðinr.i við Elliðaár.
Maðurinn, sem slasaðist heit-
ir Páll Gunnarsson og mun
eiga heima c.ð Hverfisgötu 114.
Var hann að vinna á lítilshátt-
ar upphækkún, cr hann f jell of-
an af hcnni. Rakst höfuð hans
í járnbita og hlaust af mikill
skuröur, ennfremur fjekk hann
lítilsháttar heilahristing cg eitt-
200 Ijetu lííið, 250 særðust hættu verði að auka smjörútflutning hvað meiddist hann á fótum.
lega og um 5,000 hlutu meiri til Bretiands um 5,000 kassa á Páll var fiuttur í Landsspítal-
eða minni meiðsli. ári. — Kemslcy. ann.
„Hóimsberg“ brann og sökk ú
Grímsey í gærmorgun
---------- !
5 el'a 6 síiilveifiskip hafa farisl í sumar
V
ENN EITT síldveiðiskipið fórst við Norðurland í gærmorg-<
un. Það var m.s. Hólmsþerg frá Keflavík. Eldur kom upp í
skipinu og mátti ekki tæpara standa, en að áhöfn skipsinaj
yrði bjargað yfir í annað skip.:
ÚtboSsíýsing neðri
fðssa tilbúin næsfa
vor!
Á SÍÐASTA fundi bæjarráðs,
er haidinn var á föstudag, var
Íögð fram skýrsla Steingríms
Jónssonar, rafmagnsstjóra, um
för hans til Norðurlanda. nú ný-
lega til viðræðna við sjerfræð-
ínga um undirbúning fyrirhug-
aðra virkjunar neðri fossa í
Sogi.
I þessari ferð sinni ræddi raf-
magnsstjóri við A. B. Berdal,
verkfræðing í Oslo. Gerði hann
frumvarp að samningi við Ber-
dal, þar sem m.a. er svo gert
ráð fyrir, að Berdal gangi end-
anlega frá útboðum um bygg-
ingu virkjunarinnar, á sama
hátt og gert var er Ljósafoss-
stöðin var byggð. Gert er ráð
fyrir að þessari útboðslýsingu
Beradls verði lokið næsta vor,
og þá mætti fara að vænta til-
boða í verkið.
Bæjarráð samþykkti, að fela
borgarstjóra og rafmagnsstjóra
að athuga nánar væntanlegan
samning við Berdal.
Ókeypis skélavfsf í
Finnlandi og Svíþjóð
FYRIR skömmu barst Nor-
ræna fjelaginu brjef frá Nor-
ræna fjelaginu í Finnlandi, þar
sem tilkynnt er að finnska ríkið
hafi veitt f je til þess að kosta 12
nemendur frá hinum Norður-
löndunum í lýðskóla í einn vet-
ur. Þeir íslendingar, sem vildu
sækja um þessa skólavist þurfa
að senda umsóknir sínar til rit-
ara Norræna fjelagsins hjer,
Guðl. Rosinkranz, fyrir 5. sept.
Umsóknunum þarí að fylgja af-
rit af skólaskírteini frá hjeraðs-
skóla, ásamt meðmælum skóla-
stjóra.
Eins og áður hefur verið
skýrt frá hefur 100 ungu fólki
frá öilum N orðurlöndunum ver-
ið boöin ókeypis skólavist við
lýðskóla í Svíþjóð næsta vetur
og er umsóknarfresturinn út-1
runnir.n 1. september. Umsóknir !
sendist til ritara Norræna fje-l
lagsins. 7 nemendur geta fengið |
þessa ókeypisskóíavist frá ís-
landi.
Svara ekki
SEOUL: Rússar hafa ennþá ekki
hirt um að svara mó'mælaorðsend-
ingu, vegna handtöku þriggja
bandariskra hdrmanua.
Þetta gerðist um kl. 8,30 í
gærmorgun norður við Grímsey,
Þar var Hólmsberg að veiðum,
ásamt fleiri skipum er eldurinn
braust út.
Upptökin í vjelarúmi.
Eldurinn kom upp í vjelarúmí
og varð þar allt því nær alelda \
einni svipan Einn maður mun
hafa verið þar niðri á vakt og
komst hann upp án þess að hann
sakaði.
Árangurslaust
slökkvistarf.
Skipshöfnin gerði nú tilrauní
til þess að kæfa eldinn í vjela-
rúmi skipsins, en hann magnað-
ist svo á skömmum tíma, að ekkí
var við neitt ráðið og varð skipS
höfnin að yfirgefa skipið í
snatri. Báðum nótabátunum var
bjargað, svo og nótinni, en skip-
verjar munu hafa misst fatnað
og annað sem þeim tilheyrði.
Björgunin.
Það var m.s. Sjöstjarnan frá!
Vestmannaeyjum, er kom mönn
unum til hjálpar. — Munu þeig
verða fluttir til Siglufjarðar og
var búist yið þeim í gærkvöldi,
Engin síld mun hafa verið x
skipinu er þetta gerðist.
Skipið. ,
Hólmsberg var eign hlutafje-
lagsins Hólmberg í Keflavík,
Það var rúmar 62 lestir brúttö,
Byggt 1920, en endurbyggt 1943,
Um nokkurn tíma vay það í ferð
um milli Akraness og Reykja-
víkur.
Höfðingleg gjöf fil
Dvalarbebnilis
sjésnanna
D V ALARH EIMILI aldraðrá
sjómanna, hefur nýlega borist
höfðingleg gjöf frá frú Þorgerði
Jónsdóttur, Selvogsgötu- 8 í
Háfnarfirði.
Gjöfin var andvirði eins her-
bergis í væntanlegt dvalarheim-
ili, 10 þús. kr. Þessa gjöf síná
geíur frú Þorgerður til minning-
ar um mann sinn Aðal'ojörn
Bjarnason, skipstjóra. Mælist
frú Þorbjörg til þess að herbergi
í heimilinu verði látið berá
nafn æskuheimilis Aðalbjarnar,
Knarrarhöfn. Ætlast hún tii
þess að Borgfirðingar eða Hafn-
firðingar skuli hafa forgangs-
rjett að herbergi þessu.
Sjómannadagsráðið hefur beð
ið lVIorgunblaðið að færa fru
Þorgerði sínar bestu þakkir.