Morgunblaðið - 27.08.1947, Blaðsíða 5
Miðvikuclagur 27. ágúst 1947!
MORGVNBLAÐIÐ
5
SIGURÐUR GÍSLASON
KvöldskóSi K.F.U.M.
í DAG er til moldar borinn
Sigurður Gíslason lögreglu-
þjónn, sem andaðist í Lands-
spítalanum 13. þ. m., eftir langa
og þunga sjúkdómslegu.
Sigurður var fæddur 3. maí
1889 að Litla-Saurbæ í Ölfusi,
en þar bjuggu foreldrar hans,
Margrjet Sigurðardóttir frá
Gestshúsum á Álftanesi og
Gísli Þorvarðsson, Guðnasonar
bónda í Saurbæ, Gíslasonar
hreppsstj. í Reykjakoti, Guðna-
sonar (f. um 1716) bónda s. st.
Jónssonar. Bjó Guðni í Reykja-
koti á árunum 1740—1780 og
var þríkvæntur. Er fjölmenn
ætt frá honum komin og nefn-
ist hún Reykjakotsætt. Hefir
Guðni magister Jónsson rakið
hana að nokkuru í riti sínu:
Islenskir sagnaþættir og þjóð-
sögur, IV.
Foreldrar Sigurðar Gíslason-
ar brugðu búi eystra og fluttu
til Reykjavíkur vorið 1901. Var
Sigurður þá 12 ára og átti upp
frá því heima í Reykjavík.
Fram yfir fermingaraldur var
hann þó í sveit á hverju sumri,
t. d. mun hann hafa verið tvö
eða þrjú suraur í Efstadal í
Laugardal.
Sigurður þroskaðist vel, varð
snemma mikill vexti, þrekinn
og hraustur að afli; reyndi og
brátt á orku hans og dugnað.
Seytján ára gamall (1907)
.rjeðst hann til Hans pósts Hann
essonar. Stóð Hans þá á fert-
ugu, löngu þjóðkunnur og svo
harðfylginn sjer í ferðalögum,
að sagt var um hann, að allra
sinna ferða færi hann, þótt veð
ur og ófærð kyrsetti aðra
menska menn. Sýnir það best
traust og mat Hans pósts á Sig
urði, að kjósa hann svo ungan
sjer til fylgdar. Brást og Sig-
urður eigi því trausti og var
með Hans samfleytt 12 ár í póst
ferðum. í snjóa- og hríðavetr-
um þeirra ára, var það enginn
barnaleikur á stundum að:
brjótast yfir Hellisheiði. En
aldrei hlekktist þeim á, Hans
og Sigurði, þó að oft væri teflt
á það tæpasta áttu þeir jafnan
sigri að hrósa að lokum. — Sig-
urður kynnti sig vel í ferðum
þessum og eignaðist fjölda vina,
sem jafnan minnast hressilegr
ar framkomu hans, lipurðar og
góðvilja í öllu viðmóti, enda
var hann snemma hvers manns
hugljúfi, glaður og hýr í bragði
■og einhver sú. hlýja yfir svip
hans, að öllum leið vel í ná-
vist hans.
Sigurður hætti póstferðum
haustið 1919 og gerðist þá lög-
regluþjónn. En um þann þátt
ævi hans munu aðrir kunnugri
rita. Aðeins skal þess getið, að
lögreglustarfinu gegndi hann,
uns hann vorið 1946 varð að
leggjast í sjúkrahús og átti það
an ekki afturkvæmt. )
Sigurður kvæntist 17. mars
1927 Björgu Sigurðardóttur,
Björnssonar bónda í Hofstaða-
seli í Skagafirði og konu hans
Konkordíu Stefánsdóttur. Eign
uðust þau Björg og Sigurður
eina dóttur barna, Margrjeti,
efnisstúlku, sem nú fyrir
skömmu varð nítján ára.
* * *
Þó að Sigurður væri barn að
eldri, er hann flutti á mölina
lögregluþjónn
MINNINGARORÐ
Sigurður Gíslason.
í Reykjavík, gleymdi hann
hvorki uppruna sínum nje
gróðrarmátt moldarinnar. Mun
hann snemma hafa látið sig
dreyma um að tryggja sjer
land til ræktunar, sem næst
bæn.um. Fyrstu tilraunir hans í
þá átt fóru þó út um þúfur. En
fá.um árum eftir að hann gerð-
ist lögregluþjónn eða, um 1923,
tók hann á erfðafestu gamla
mógrafa-landspildu neðan og
austanhalt við Skíðabrautina
gömlu og hóf þegar að rækta
hana 1 frístundum sínum.
Nokkurum árum síðar fjekk
hann aukið einhverju við land-
ið svo að það mun hafa talist
um 10 dagsláttur. Þegar rækt-
un var langt komið ljet hann
reisa þar myndarlegt íbúðarhús
og þangað fluttist hann svo með
konu. sína og dóttur haustið
1932. Nefndu þau býlið Varma-
hlíð og undu þar vel hag sín-
um; höfðu þar stundum tvær
til þrjár kýr og alltaf nokkura
hesta, sem jafnan áttu hlýju og
nærfærni að mæta hjá hús-
bóndanum. Fagurt var í Varma
hlið á meðan húsið bar hátt
yfir umhverfið, og túnið, víð-
lent og vel ræktað, teygði sig
í áttina til borgarinnar. En nú
mun helmingur túnsins horf-
inn undir háreistar nýtísku
glæsibyggingar, sem eru í þann
veginn að gleypa Varmahlíð.
Þó mun hún eigi gleymast með;
öllu, því að hún hefir að nokk-
uru ráðið um nafngift hinn ým-
issu gatna þessa nýja borgar-
hverfis, sem kent er við hlíð-
arnar.
Sigurður var mikill dýravin
ur, og ljet mjög til sín taka, alt
varðandi bætta meðferð dýra.
í Dýraverndunarfjelagi íslands
var hann frá upphafi og í
stjórn þess frá 1929 og jafnan
endurkosinn síðan. Frá því
hann gerðist lögregluþjónn og
alt fram á síðustu ár, þykir
mega fullyrða, að hann hafi
með eftirliti sínu um meðferð
dýra, ekki aðeins í Reykjavík
og nágrenni, heldur og víðs-
vegar um land, unnið þeim
mólum svo mikið gagn, að vafa
samt verður að telja, hvort
nokkurum samtíðarmanni hans
hafi betur tekist.. Og í virðing-
ar- og þakkarskyni fyrir alt
hans mikla og óeigingjarna
starf í þágu dýranna, var
hann á síðasta aðalfundi Dýra-
verndunarfjelags íslands kjör-
inn heiðursfjelagi þess.
En Hestamannafjelagið Fák-
ur Var engu minna óskabarn
Sigurðar. Hann var einn af
stofnöndum Fáks og þegar í
öndverðu kosinn í skeiðvallar-
nefnd, og jafnan síðan á með-
an sú nefnd var við lýði og var
frá upphafi formaður hennar.
En er nefndin var lögð niður
og mönnum fjölgað í stjórninni ^
tók Sigurður þar sæti og hefir!
setið þar síðan uns hann var
kjörinn heiðursfjelagi á aðal-
fundi í vetur. Sigurður var frá
öndverðu mjög áhugasamur
fjelagi og fylgdi fast eftir öllu
því, sem verða mátti Fáki til
frama og auka hroður hans.
Árvekni hans, dugnaður og ó-
sjerplægni í hverskonar starfi,
sem varðaði Fák, var.rómað að
makleikum. Sem dæmi umj
traust það, sem borið vár til
Sigurðar, má nefna, að hann
var ræsir á kappreiðum Fáks
um 24 ára skeið. Þeir, sem
fylgst hafa með kappreiðum,
vita, að það er síður en svo, að
vandalaust sje að gera öllum
knöpum til hæfis. En svo vel
tókst Sigurði að leysa þann
vanda, að fljótt lægði þær öld-
ur, er stundum risu í bili, og
eftir því, sem knapar kyntust
honum betur varð þeim ljúfara
að hlíta stjórn hans og fyrir-
skipunum. Síðast var hann
ræsir á kappreiðunum 24. júní
1945 og gekk þá eigi heill til
skógar.
Jafnan var Sigurðuj sjálf-
kjörinn fararstjóri í öllum
skemtiferðum Fáksfjelaga og
farnaðist vel. Eiga samferða-
menn hans margar ljúfar end-
urminningar frá þeim dögum.
Og svo er einnig um aðra Fáks
fjelaga. Allir minnast hans
með hlýju og þökk .... Hann
var starfsglaður, traustur fje-
lagi og góður drengur.
Eigi fór það dult þeim, sem
eitthvað kyntust Sigurði Gísla-
syni í sambandi við hesta og
meðferð þeirra, að þar var
hestamaður. Ilann var hvort-
tveggja í senn: laginn reiðmað-
ur, svo sem margir hestar hans
báru vitni um og svo hitt, sem
ekki var minna um vert, hversu
nærgætinn hann var í allri um-
gengni við hesta sína og bjó vel
að þeim á allan hátt. Eigi er
ósennilegt, að Sigurður, er svo
ungur komst í kynni við jafn
mætan mann og hestavin, sem
Hans póstur var, hafi tekið
sjer hann til fyrirmyndar um
margt. Er það kunnara en frá
þurfi að herma, hversu Hans
ól hesta sína vel og ljet • sjer
ant um þá í hvívetna. En hins
má einnig geta, að svb virðist
sem það sje kynfylgja margra
Reykjakotsmanna að hafa mæf
ur á góðum héstum og kunna
með þá að fara.
Gísli hreppstjóri í Reykja-
koti (langa-langafi Sigurðar)
ÞESSI vinsæli skóli tekur
var alkunnur hestamaður á eins og að undanförnu til starfa
sinni tíð og átti jafnan góða L október og starfar vetrar-
hesta. Þó bar Reykjakots-Sóti langt. Skólinn er bæði fyrir
af þeim öllum, sakir frábærra pilta og stúlkur, er lokið hafa
vitsmuna og margra kosta. fullnaðarprófi í barnaskóla, og
Gísli gerði sjer títt um Sóta sinn mun hann, eins og áður, verða
og nefndi hann í gamni ,,Mon- starfræktur í byrjunardeildum
ser JIauð“. Grímur Thomsen, °g framhaldsdeild. Einskis inn-
sem frá æsku sinni á Bessastöð- tökuprófs er krafist, en fyrir
um mundi þá báða: Gísla og skólavist í framhaldsdeild
Sóta, telur „Monsér Rauð“ með ganga þeir nemendur, sem ver-
al þriggja nafnkunnra afburða ið hafa áður í byrjunardeildum
hesta, er margar sögur fari af; skólans. Námsgreinar erur
mefnir Grímur nokkur dæmi Kristin fræði. íslenska, dansa,
um vitsmuni Sóta og bætir við: enska, reikningur, bókfærsla,
„Rauður var mesta fjörskepna °§ auh þess er námsmeyjum
og gammur að vekurð“. Og skólans kennd handavinna. —
frægðarsögur af Reykjakots- Skólinn starfar bæði síðdegis og
Sóta hafa varðveitst alt til að kvöldinu. Siðdegis eru ívær
vorra daga. jbyrjunardeildir, sinn daginn
Síðasti reiðhestur Sigurðar hvor- en að kvöldlagi byrjenda
Gíslasonar heitir og Sóti, skag- deild fyrir drengi og framhalds
firskur, og fjekk Sigurður deildin, einnig sinn daginn
hann hjá tengdaföður sínum, hvor-
vorið 1926. Er Sóti allra hesta! Þessi skoli er miðaður við
mestur að vallarsýn, gæðingur Þa nemendur, sem vilja leita
mikill, skörungur í allri fram- síer hollrar og hagnýtrar
göngu og vekur óskifta athygli, fræðslu samhiiða starfi sínu.
hvar sem hann fer. Þótti jafn-.Lann hefir a undanförnum ára
an sópa að þeim, Sigurði og fuSum verið mjög eftirsóttur,
Sóta, í skemtiferðum Fáks og ekki einunSis af nemendum úr
fanst öllum gott að hlíta for- Reykíavik» heldur og úr öllum
ustu þeirra. Mjög var dátt með hygðarl°gum landsins. Skólinn
Sigurði og Sóta og taldi Sig- heful eins og áour ágætum
urður sig aldrei hafa kynst kennurum á að skiPa- Umsókn-
vitrara hesti. Fræg er orðin um um skolavisf verður veiff
heimsókn Sóta í vor að sjúkra- moffaka L- 15. september í
húsi því þar sem húsbóndi versluninni Visi (nýlenduvöru-
hans dvaldist, svo sem frá var búðinni) á Laugavegi 1, og er
sagt í Lesbók Morgur.blaðsins fáikl eindregið ráðlagt að
fyrir skömmu. (tryggja sjer skólavist sem fyrst,
Síðasta ráðstöfun Sigurðar því að vitað er> að aðsókn verð-
varðandi Sóta var sú, að hann ur mikl1 °S verður vafalausf
fengi að fylgjast með í skemti- je^ unnt að veifa °Hum þeim
ferð Fáksfjelaga. Var hún far-
in sunnudaginn 10. ágúst og
Sóti teymdur með. .Næsta mið-
vikudag andaðist Sigurður . .
Og í dag fær Sóti að fylgja
húsbónda sínum síðasta spöl-
inn.
E. E. S.
London í gærkveldi.
MIKIL flóð hafa verið í
Burma að undanförnu og hafa
um 100,000 ekrur orðið fyrir
skemmdum. Hætta er talin á,
að hrísgrjónauppskeran á 70
bús. okrum oyðileggist.
viðtöku, er um skólann sækja,
því að húsnæði hans er mjög
takmarkað. Verða nemendur
teknir í þeirri roð, sem umsókn
ir þeirra koma, og verða þeir
þá óhjákvæmilega afgangs, er
síðast’ir sækja.
Fólk er vinsamlega beðið að
athuga, að Kvöldskóli K.F.U.M.
verður settur miðvikudaginn
1. október kl. 8V2 síðdegis
stundvíslega í húsi K.F.U.M. og
K. við Amtmannsstí Eiga allir
umsækjendur um skólavist að
koma til skólasetningarinnar
eða aðstandendur þeirra, og svo
og þeir nemendur, sem skrif-
aðir kunna að hafa verið á bið-
lista vegna mikillar aðsóknar.
Verða þeir síðarnefndu þá tekn
ir í skólann, eftir því, sem rúm
leyfir, ef enginn mætir við
skólasetninguna fyrir hönd
þeirra nemenda, sem lofað
q hafði verið inntöku.
F'ljótvirkur
óviðjafnan-legur
Ofntögur x Bsa)
■■IIBIBfklllllfllllIlllilllllflllftVlllllllltVlllllltVfllffSIVVIIIItllVII
Sá sem fann
barnakerruna
sem tapaðist á Grettisgöt-
unni í gær er vinsamlega
beði-nn að skila henni á
Rauðarárstíg 31, ,gegn
fundarlaunum.
imfiiiimiMmiifimKitiimiMii
iRnanSandssímlðlin
yftr miljón áríð
Á ÁRINU 1946 voru send til
útlanda 110 þúsund símskyeti
frá ísalndi auk 984 skeyta er
erlendir hermenn sendu. Frá út
löndum komu hingað á árinu
rúmlega 106 þúsund símskeyti.
Símtöl við útlönd á árinu
1946 voru 4806. Tala innanlands
skeyta var 341,600 og símtala
1,046,200 og voru rúmlega 60
þúsund fleiri en árið áður.
Frá þessu er skýrt í skýrslu
Landsbankans fyrir árið 1946.