Morgunblaðið - 11.09.1947, Blaðsíða 1
16 siður
34. árgangux 205. tlil. — Fimmtudagur 11. september 1917 Íaaíoldarprentsmiðja h.í
Kominn skriður á Marshalláætlunina:
yrsia um a
toðarþörf Evrópulanda
'í JI>AG klukkan fjöguf, hefst
í 'Afþingi'Shúsinu ráSstefna sú
ei\' ríkisstjórnin hefur boðað
fujltrúa atvinnuveitenda og
launþega til. Svo sem kunnugt
er. skal ráðstefnan fjalla um
þser 'leiðir er farnar skulU, til
þess að tryggja arðbævan at-
vinnurekstur í landinu og önn-
ur aðsteðjandi vandamál.
Þau fjelagasamtök, er senda
eiga fulltrúa til ráðstefnunnar
hafa nú valið fulltrúa sína.
Fulltrúi Vinnuveitendafjelags
íslands verður Eggert Claessen
framkvæmdastjóri þess. Frá
Bandalagi starfsmanna ríkis og
bæja Lárus Sigúrbjörnsson for-
maður. Frá Fjelagi ísl. iðnrek-
enda Kristján Jóh. Krístjáns-
son formaður. Frá Landssam-
bandi iðnaðarmanna Tómas
Vigfússon byggingameistari.
Frá Landssambandi ísl. útvegs-
manna Olafur B. Björnsson íor-
seti bæjarstjórnar Akraness.
Frá Launþegadeild Verslunar-
mannafjelags Reykjavíkur Guð
jón Einarsson formaður. Frá
Alþýðusambandi Islands Lúðvíg
Jósefsson alþm. Frá Sjómanna
fjelagi Reykjavíkur Sigurjón Á.
Olafsson alþm. Frá Stjettasam-
bandi bænda Sverrir Gíslason
formaður og frá Farmanna og
fiskimannasambandi íslands
Þorsteinn Árnason skrifstofu-
stjóri.
Dómkirkjan í Skara
brennur
Stokkhólmi í gærkvöldi.
I DAG skeði sá atburður, að
ein elsta og fegursta kirkja
Svíþjóðar brann til kaldra kola.
Þetta var dómkirkjan í
Skara á Vestur-Gautlandi.
Bygging Skara-dómkirkju
hófst á 11. öld, en var vígð ár-
ið .1151. -—■ Er mikill skaði að
eyðileggingu hennar. — Reut-
er.
Sofoulis er fasfur
í sessi
Aþena í gærkveldi.
GRÍSKA þingið samþykkti í
dag með 279 atkvæðum trausts
yfirlýsingu til handa stjórnar
Themistocles Sophoulis forsætis
ráðherra. Við atkvæðagreiðsl-
una var 281 þingmaður við-
staddur. — Reuter.
Ungur píanósniilingitr
Þessi mynd er af Þórunni litlu Jóhannsdóttur. Hún hefur
fyrir löngu síðan vakið mikla eftirtekt fyrir snilli sína á
píanó. Nú ætlar hún að halda hljómleika hjer í hænum, þá
fyrstu. — Frjett um hljóndeikana er á 16. síðu.
Staðhæfingum Vishinskys hnekt
Rússneskar konur fá ekki að fara fi!
breskra elginmanna sinna
LONDON í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
EINN AF talsmönnum breska utanríkisráðuneytisins hef-
ur nú svarað þeirri staðhæfingu Vishinskys, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Rússa, að segja megi að mál rússnesku kvennanna,
sem giftar eru breskum borgurum og fá ekki að *fara til manna
sinna, og 15,000 „rússneska“ flóttamanna á breska hernáms-
svæðinu í Þýskalandi, sjeu ákaflega lík. Heldur Vishiskv því
fram, að flóttafólkið fái ekki að hverfa heim tií sin.
Vilja ekki fara heim
Talsmaður utanríkisráðu-
neytisins bendir á í þessu sam-
bandi, að fólk þetta komi fiá
landsvæðum, sem ekki hafi til-
heyrt Rússlandi fyrir 1939. —
Vilji Bretar ekki í neinu aftra
því frá að snúa til fyrri heim-
kynna sinna, en þeir muni
lieldur ekki neyða það til að
hverfa heim. En það sje ein-
mitt það, sem þessir 15,000
„Rússar“ vilji ekki gera.
Vekur athygli
Mál rússnesku kvennanna,
sem ekki fá að fara til eigin-
manna sinna, hefur vakið
mikla athygli viða um heim. —
Reuter.
Fa>r lögregluvernd
London: Breska lögreglan verndar
nú bandaríska flugmanninn Reginald
Gilbert, sem sagt er að hafi komið
upp um fyrirætlanir Gyðinga að
varpa dreifibrjefum yfir London.
Hjálparnauðsynin verður stöðugt
meira knýjandi
WASHINGTON í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
Á FUNDI með blaðamönnum í dag skýrði- Marshall, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, frá því, að fyrir lok næstkomandi
októbermánaðar mundi hann hafa fullgert skýrslu um þörf
Evrópu fyrir bráðabirgðaaðstoð. Kvað hann bandaríska utan-
ríkisráðuneytið staðráðið í, að taka þegar til athugunar bráða-
birgðahjálp fyrir lok þessa árs, til þess að koma í veg fyrir
hungur það og kulda, sem annars væri óumflýjanleg afleiðing
ástancjsins í EvrópulöndUm.
---------------------------<8
Kalta fær nýja
stjórnarskrá
La Valetta í gær.
LANDSSTJÓRI Malta gaf í
dag út tilkynningu um nýja
stjórnarskrá fyrir eyjarnar,
sem innifelur sjálfsforræði
þeirra. Vou mikil hátíðahöld
þar í dag. — Gengu flokkar
manna um götur La Valetta,
og húrrahóp kváðu við. —-19
fallbyssuskotum var skotið í
sambandi við hátíðahöldin.
Malta fær sjálfsforræði í öll-
um innanlandsmálum, en Bret
land mun annast landvarna-
mál og utanríkismál.
Nýja stjórnarskráin gengur
endanlega í gildi 26. sept. —
Reuter.
| Hófa að sprengja 1
I upp sendiráðs- j
byggingu
Cairo í gærkveldi.
Einkaskeyti til Mbl. \
I frá Reuter
| BRESKA sendiráðinu í |
1 Cairo barst í kvöld óundir ;
; ritað brjef, þar sem hótað f
I er að sprengja sendiráðs- f
f bygginguna í loft upp, ef f
= ákvörðun Oryggisráðsins í f
= deilumáli Breta og Egypta f
1 yrði ekki hinum síðar- f
| nefndu í hag.
i I brjefinu er auk þess f
| sagt, að aðrar hj'eskar f
1 byggingar — þar á meðal f
i hús Shell olíufjelagsins — f
: muni verða eyðilagðar f
f með sprengjuárásum.
f Egypsku lögreglunni var f
: þegar gert aðvart, og ör- f
| yggisvörðum við ofan- i
I greind hús hefir verið fjölg i
f að — Reuter.
iiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuii
Skjót hjálp nauðsynleg.
Marshall fór ekki dult með
það, að það væri skoðun sín,
að Evrópa yrði að fá aðstoð
Bandaríkjanna fyrir áramót.
Sagði hann það ekkert leynd-
armál, að nokkur lönd þörfn-
uðust þessarar bjálpar sem
allra skjótast. Síðar mundu
þessi sömu lönd svo aðstoðuð
við endurreisnarstörf sín.
Bráðabirgðaaðstoð kvað Mars
hall fyrst mundi verða látna í
tje við þau lönd, sem hefðu
gert hvað þau gætu til að bjarga
sjer sjálf.
Nákvæmar upplýsingar.
Frjettamenn eiu yfirleitt
þeirrar skoðunar, að loforð
Marshalls um skýrslu yfir að-
stoðarþörf Evrópu standi í sam-
bandi við þá kröfu Vandenbergs
öldungardeildarþingmanns, að
Bandaríkjaþing fái sem ná-
kvæmastar upplýsingar, áður
en það taki til óspiltra mál-
anna.
Geta ekki borgað vörurnar.
Álitið er, að ummæli banda-
ríska utanríkisráðherrans um
„hungur og kulda“ sýni það, að
aðaláhyggjuefni utsnríkisráðu-
neytisins standi í sambandi við
þá staðreynd, að sýnt sje, að
margar Evrópuþjóðir muni inn
an skamms ekki geta greitt
fyrir hveiti það og kol, sem
þær fá. Hafa Bretar þannig þeg
ar hætt við kaup á allmiklu af
kornvöru, og ítalir segja, að svo
kunni að fara, að þeir hafi ekki
efni á að greiða fyrir kol þau,
sem þeir eiga að fá í október-
mánuði.
Kynna sjer ástandiS
Washington: Meðliœir fjárveit-
inga- og hermálanefnda Bandarikja-
þings eru lagðir af stað flugleiðis til
að kynna sjer ástandið í efnahags-
og hernaðarmálum fjölmargra landa,
— Á 37 daga ferðalagi munu þeir
koma við í Irlandi, Þýskalandi,
Austurriki, Italíu, Grikklandi, Tyrk-
landi, Iran, Egvptalandi, Tripoli,
.Tunis, Svisslandi og Bretlandi.