Morgunblaðið - 13.09.1947, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
pm skrúðgarða og
leikvelli bæjarins
Viðlal v;3 Sigurð Svelnsson ré$maÉ
FYRIR nokkru síðan átti
Morgunblaðið tal við Sigurð
Sveinsson garðyrkjuráðunaut
Reykjavíkurbæjar. En hann hef
ur yfirumsjón með' cllum skrúð-
görðum bæjarins og leikvöllum.
Sigurður sagði, að hann teldi
sumar þetta hafa verið eitt hið
versta sem komið hafi um
marga tugi ára. Og sagði hann
elstu menn ekki muna jafn sól-
arlítið sumar. Þetta hefur haft
mikil áhrif á allt jurtalíf í skrúð
görðum bæjarins. Hinn stöðugi
kuldi og hráslagalega veðurfar
hefur gert hinum viðkvæmari
jurtum mjög erfitt uppdráttar.
Garðarnir.
Eins og menn muna, skall
verkfall á í byrjun júní, en það
er einmitt sá tími, sem aðal-
gróðursetning sumarblóma í
skrúðgarða fer fram. Stóð verk-
fall þetta yfir í eir.n mánuð og
hafði þær afleiðingar, að skrúð
garðar bæjarins komust í al-
gera órækt. Tók langan tíma,
að koma þeim í sæmilega hirðu
á eftir. Stöðugar rigningar,
viku eftir viku, hjálpuðu til að
allt illgresi þroskaðist með ó-
venjulegum krafti. Útheimti því
arfahreinsunin mikla vinnu.
Sigurður sagði ennfremur, að
í sumar hefði verið mikill skort
ur á útplöntunarplöntum.
Um vöxt á trjám, sagði Sig-
urður, ■ hafa venð með besta
móti. Að sjálfsögðu hafði veð-
urfarið ekki góð ahrif á trjá-
plönturnar.
— Að hverju hefir verið unn-
ið mest í sumar. '
Mest áhersla hefur verið lögð
á viðhald garðanna og hirðingu
þeirra, ennfremur nokkra aukn
ingu skrúðgarða. Bærinn hefur
svo sem kunnugt er tekið að
sjér að endurskipuleggja skrúð
garð Kvennaskólans. Þá var
hópur manna er varn við stækk
un Hljómskálagarðsins.
Sigurður sagði, að við ættum
að leggja meiri áherslu á rækt-
un blómlauka, en gert hefur
verið. Þeir blómsíra snemma á
vorin, og á undan flestum öðr-
um blómjurtum, en við það
lengist sá tími, sem við höfum
verulegt yndi af skrúðgörðun-
um í Reykjavík.
upp leiktækjum fvrir börnin,
til þess að þau leiti síður á göt-
una, til leikja. Hjer er aðeins
um bráðabirgða ráðstöfun að
ræða.
Reynt hefur verið að fá efni
til girðinga um þá velli sem ó-
girtir eru. En efni til þeirra er
ófáanlegt, eins og sakir standa.
Nú hefir verið endanlega geng
ið frá barnaleikvellinum við
Háíeigsveg. I fyrra var það því
miður ekki hægt, vegna fram-
kvæmda á vegum Hitaveitunn-
ar, en hún ljet grafa skurð þvert
yfir völlinn. A þessum velli
verða byggð skýlí bæði fyrir
börnin og vallarverði, sagði Sig
ui'ður að jokum.
Umferðarbanni í
Delhi afijeff
New Delhi í gær.
UMFERÐABANNINU hef-
ur verið ljett af til bráðabirgða
i Delhi, og í dag hefur lífið í
borginni gengið sinn vani-
gang. Hefur fólkið gengið ó-
hrættum götur borgarinnar og
sjorvagnar ganga reglubundið.
En meðal Múhameðstrúar-
manna hópannu ríkir enn mik
ill ótti um að ofsóknirnar á
hendur þeim haldi áfram
næstu daga og eru þeir allir
þeirrar skoðunar að örugg til-
vera bíði þeirra aðeins, ef þeir
flýja til Pakistan. — Reuter.
Aukakojninearí
ié
Edinborg
London í gær.
AUKAKOSNINGAR fóru ný-
lega fram í einu kjördæmi Edin
borgar. Úrslit urðu þau, að
frambjóðandi Verkamanna-
flokksins Irwin var kosinn með
10827 atkvæðum. Frambjóð-
andi íhaldsflokksms hlaut 8874
atkvæði.
60% kjósenda á kjörskrá
neyttu kosningarrjettar síns.
—Reuter.
Merkileg og fögur
bók
Winston Churt-hill, formaSur
hreska íha'dsflokksins, hefur
undanfarið látið talsvert á
sjer bera á stjórnmálasviðinu,
eftir að hann náði sjer til
fulls eftir veikindi, sem hann
átti við að stríða um tíma. —
Hann hefur í ræðu og riti
veist nijög að verkamanna-
flokksstjórninni og Attlee,
forSætisráðherra, sem hann
einu sinni kallaði „sauð í
sauðagæru44. Hjer er ein nýj-
asta myndin, sem tekin hefur
verið af Churchill og er hanu
í einkennisbúningi ofursta.
„Helgi Helgason"
í Reykjavíkur-
höfn
STÆRSTA skip, sem smíðað
hefur verið í íslenskri skipa-
smíðastöð, liggur i höfn hjer í
Reykjavík. Skipið heitir Helgi
Helgason frá Vestmannaeyjum.
Eigandi þess er Helgi Benedikts
son í Vestmannaevjum.
M.s. Helgi Helgason er tæp-
lega 200 smál. að stærð. í sum-
ar var skipið á síidveiðum við
Norðurland • og fjekk tæp 8000
mál. Þetta er í fyrsta skipti
sem skipið kemur hingað til
Reykjavíkur. En hjer í Flóanum
er hugmyndin að reyna rek-
netaveiði.
Skipverjar láta vel yfir skip-
inu. Innrjettingar allar eru hin
ar ákjósanlegustu og skipið
sjálft hið besta sjóskip. Helgi
Helgason er byggður í Skipa-
smíðastöð Vestmannaeyja og
gerði eigandi hennar Brynjólf-
ur Brynjólfsson aliar teikning-
ar að skipinu.
Skipstjóri er Arnfinnur Jó-
hannsson frá Siglufirði.
Leikvellir.
Næst barst talið að leikvöll-
um bæjarins.
Um það mætti segja langt
mál, sagði Sigurður, en að þessu
sinni verður aðeins getið þess
helsta. í sumar hefur verið
unnið af fullum krafti við end-
urskipulagningu leikvallamál-
anna.
Gert er ráð fyrir að einn nýr
leikvöllur verði tekinn til notk-
unar á þessu ári, en það er leik
völlurinn við Framnesveg. Verð
ur mllurinn hinn ákjósanleg-
asti Á honum er vsrðskýli fyr-
ir vdlarvörð, þá eru skýli fyrir
börnin að leita í þegar veður
er vtfnt og snyrtiklefar. Þá hef-
ur í tveim braggabverfum í út-
hverfum bæjarins, verið komið
DR. Sigurður Nordal, próf,
hefur tekið það þarfa verk á
hendur að gefa út í einni heild
og eftir eigin handritum allar
þjóðsögur Skúla Gíslasonar,
prests að Breiðabólsstað, en
Skúli var eins og kunnugt er
mesti þjóðsagnafræðingur þjóð
arinnar og bera sögur hans,
sem Jón Árnason hefi^r eftir
hann í sínum þjóðkunna safni,
mjög af flestu öðru í því mikla
verki.
Dr. Nordal skrifar ítarlega
ritgerð um Skúla, manninn,
klerkinn og fræðimanninn og
er óþarfi að lýsa því hverjum
tökum hann nær á viðfangs-
efni sínu.
Halldór Pjetursson, listmál-
ari, hefur gert irábærilega fall
egar myndir í bókina.
Bandaríkin munu
hjáipa Penam
Teheian í gær.
BANDARÍSKI sendiherrann
í Persíu hefur lýst því yfir, að
Bandaríkin sjeu viljug á að
hjálpa Persum við nýbvggingu
landsins. Bendir þetta til þess,
að Persar muni á næstunni
ætla að taka dollaralán í Banda
ríkunum.
Sendiherrann sagði, að Banda
ríkin hefðu lítinn áhuga á að
skipta sjer af innahjandsmál-
um Persíu, en þegar annað ríki
væri að reyna að r.á öllum tök-
um á verslun og hagkerfi lands-
ins gætu Bandarikin ekki set-
ið hjá. — Reuter.
Laugardagur 13. sept. 194/j
rannsóknátollabandalagi
í VIÐRÆÐUM samstarf,-
nefndar Parísarráðstefnunnar
verið samþykkt að reyna skuli
hverja þá leið, sem miðað geti
að stöðugu og heilbrigðu fjár-
hagskerfi í Evvópu með það
fyrir augum að auka heildar-
viðskipti heimsins. til að ná
þessu markmiði, hefur verið
,r®tt um möguleika á stofnun
tollabandalags, eins eða fleiri,
í samræmi við grundvallar-
ákvæði frumvarps að fyrirhug-
aðri alþjóða-viðskiptastofnun.
Er það ljóst, að ákvarðanir um
stofnun slíks bandalags sje eigi
hægt að gera, án undangeng-
inna rannsókna.
Ríkisstjórnir Austurríkis,
Belgíu, Bretlands, Danmerkur,
Frakklands, Grikklands, Hol-
lands, Irlands, Islands, Itlaíu,
Luxemborugs, Portúgals og
Tyrklands hafa því komið sjer
saman um að setja rannsókn-
arnefnd í því skyni að athuga
þau vandamál, sem af slíkum
breytingum kynni að leiða, og
þær ráðstafanir, sem gera
þyrfti í því skyni að koma á
tollabandalagi milli allra þess-
arra ríkja eða einhverra þeii'rai
og þeirra ríkja annarra, sem
boðið verður að taka þátt í störf
um nefndarinnar. Ríkisstjórnir
Belgíu, Hollands og Luxem-
bourgs hafa tekið að sjer að
undirbúa málið og munu þær
senda öðrum ríkjum boð um
þátttöku. Verður boðað til
fyrsta fundar þegar er öðmm
ríkjum hefur verið gefinn kost
ur á að taka þátt í starfi þessu,
Mun rannskóknarnefndiri
leita sambands við bráðabirgða
tollanefndina, sem skipuð vcrð
ur í samræmi við alþjóðasamn-
ing um tolla og viðskipti, svo
og alþjóða-viðskiptastofnunina,
þegar hún tekur til starfa. —
(Frjett frá utaririkisráðuneyt-
inu).
7 íslendingar fá náms-
styrki frá sænska ríkinu
*
EINS og í fyrra veitti sænska ríkið, fyrir milligöngu Nor-
rænafjelagsins sænska, styrk til þess að kosta 100 nemendur
frá hinum Norðurlöndunum, við lýðháskóla í Svíþjóð. Sjö ís-
lenskum nemendum hefur verið boðið að njóta þessara kosta
kjara. . ,,, j
Umsóknarfrestur var til 1.
sept. og hefur Norrænafjelagið
lijer nú valið úr hópi umsækj-
endanna, sem voru 12, 7 nem-
endur, sem fá að njóta þessarr-
ar ókeypis skólavistar, ef þeim
verður veittur sá gjaldeyrir of
þeir þurfa til þess að geta kom
ist til skólans, sem þeir eiga
að dvelja í, en það mun vera
ca. 150,00 kr. sænskar á hvern
nemanda.
Þesir nemendur hafa fengið
skólavistina: .
Bryndís Þorvaldsdóttir, 19
ára, frá Blönduósi, nemandi
frá Unglingaskólanum í Vest-
mannaeyjum. Elías J. Jónsson,
18 ára, frá Bolungavík, neru-
andi frá Reykholtsskóla. Erling
ur Flansson, 21 órs, frá Reykja
vik, nemanda frá Laugarvatns-
skóla. Herdís Sigurðardóttir,
20 óra, frá Reykjavík, nemandi
frá Reykjaskóla í Hrútafirði.
Njáll K. Breiðdal, 25 ára, frá
Reykjavík, nemandi frá Laug-
arvatnsskóla. Jón Bjarnason,
26 ára, frá Lögbergi, nemandi
frá Núpsskóla í Dýrafirði. Sig-
riður Jóhannsdóttir, 24 ára,
frá Hveragerði, nemandi frá
Laugaskóla.
Einn nemandi til Finnlands
Þá liefur ríkistjórn Finn-
lands vcitt styrk fyrir skóla-
vist við lýðháskóla í Finnlandi
fyrir 12 neme.adur frá öllum
Norðurlöndunum og er einn
hjeðan frá Islandi. Hann heitir
Matthías Haraldsson, 18 ára,
frá Reykjavík, nemandi frá
Gagnfræðaslcóla Reykjavíkur.
1 fyrra voru 6 íslenskir nem-
endur á lýðháskólum í Sví-
þjóð með þennan styrk, og
voru þeir mjög ánægðir yfir
veru sinni þar, enda var þeim
tekið með ágætum. Nemend-
urnir munu fara utan með Dr.
Alexandrine þann 4. okt.
Mánadalur, ný fram-
haldssaga effir
Jack London
NÝ FRAMHALDSSAGA,
Mánadalur, eftir Jack London,
hefst í blaðinu í dag. Höfund-
urinn er svo frægurs að nafn
hans eitt er nægileg áminning
til allra lesenda blaðsins um
það að lesa söguna frá upphafi
til enda.
Jack London var fæddup
1876 og lifði mesta ævintýra-
lífi á unga aldri. Hann var á
sífeldu flökti fram og aftur og
stundaði laxveiðar, selaveiðar
og var gullnemi. Komst hann
þá í kynni við marga menn,
sem ljetu sjer ekki alt fyrir
brjósti brenna.
Árið 1900 kom út fyrsta bóls
hans og báru lýsingar hans svo
langt af öðru, sem þá hafði
þekst, að hann varð þegar fræg
ur. Upp frá því fjekst hann við
ritstörf og var bæði mikilvirk-
ur og velvirkur. Er alt ritsafd
hans um 50 bindi og hafa sög-
ur hans verið þýddar á flesfc
tungumál og farið sigurför um
allan heim.
Mánadalur er meðal bestq
bóka hans. Fylgist því með frá
upphafi. _j