Morgunblaðið - 21.10.1947, Side 5

Morgunblaðið - 21.10.1947, Side 5
[ Þriðjudagur 21. olt. 1947 MORGUNBLAÐIÐ Ný og fultkomin mjólkurvinnslusiöð á Húsavík Frá írjettaritara vorum á Húsavík. MJÓLKURSTÖÐ Mjólkursam íags Kaupfjelags Þingeyinga á Húsavík tók til starfa s.l. föstu- dag, 10. okt. Mjólkurstöðin er í nýbyggðu steinhúsi, sem er 16xj 24 metrar að stærð. Bygging húsgins héfst í mars 1946 og er nú fullgerð og að ollu leiti vel frá gengið. Vjelar eru allar frá „Silkeborg Maskin- fabrik“, Danmörku, og úr ryð- fríu stáli. Þær eru drifnar með rafmagni, sem framleitt er með Lister Diesel rafstöð, 25 kwt. — Á klukkustund er hægt_að ger- ilsneiða 2000 ltr. af mjólk og væri því hægt að taka á móti um 12000 ltr. af mjólk á dag. — Framleiddar eru hínar venju- legu mjólkurafurðir svo sem smjör, skyr og mjólkurostur. •— Ker, sem nota á til íramleiðslu á mysuost er enn ókomið til landsins frá Noregi, en er vænt- anlegt á næstunni og verður þá hafin framleiðsla á mysuost. Af mjólkurost er nú framleitt um 200 kg. á dag, en nú er sá tími árs, sem minnst er um mjólk og má því telja að þetta sje lágmarksframleiðsla. Einnig j er töluvert af neyslumjólk selt hjer í bæinn. Húsið og öll tæki fullnægja fyllstu hreinlætis-; kröfum og sjerstaklega er vel komið fyrir afgreiðslu í mjólkur búðinni. Mjólkin kemur fram í foú ina í sjerstakt ker, sem er fnc J sjálfvirkum mæliútbúnaði, se: j fyrirbyggir að nokkur ó- hi cinindi geti komið i mjólkina, við, afhendingu hennar. Slíkt á- hsid við mjólkursölu mun ekki ve. a víða til í mjólkurbúðum hj • á landi. i c-kningar af húsinu og inn- kav.n vjela og allan undirbúning m i ’ .ursamlagsins annaðist mj :urfræðingurinn Sveinn Tr; r .'vason, ráðunautur Bún- aða • jelags Islands. Yfirsmiður við hísbygginguna var Kristinn Bj.nnason, múrarameistari, Hú .avík, en uppsetningu vjela annaðist maður frá Silkeborg, J( Rasmussen. J jólk til fjelagsins kemur úr ölli.m nálægum sveitum eða öilu fjelagssvæði Kaupfjelags Þing- eyinga. Það má telja þetta mikla foábót fyrir bændur hjer í sveit- «m, sem orðið hafa hart úti í sambandi við mæðiveiki og þeir orðið að breyta nokkuð til nm búnaðarhætti og aukið kúastofn inn. Forstöðumaður mjólkurstöðv- arinnar er Haraldur Gíslason, mjólkurfræðingur frá Selfossi. LONDON: —- Samkvæmt frjett- um frá New Delhi, skeði það fyrir nokkrum dögaim síðan, að brjálað- ur maður rjeðist inn í spítala nokk wrn, og myrti þar með hníf fjóra sjúklinga, cn særði 12. Logskorím peninga- skápnr EÍNS og skýrt var frá í sunnu dagsblaði Morgunbl. hafa 2 menn, Magnús A. Aðalsteins- son og Hörður L. Valdimars- son játað á sig hinn mesta fjölda innbrota. Þegar þeir rændu þennan peningaskáp, 2000 kr., notuðu þeir þá að- ferð við að komast í hann, að þeir logskáru hurðina og komust þannig að læsingu lians. Þessa mynd tók Axel Helgason rannsóknarl.maður SS-menn sakaðir um barnarán Núnberg í gærkvöldi. 1 DAG hófust rjettarhöld í máli 14 fyrverandi SS-manna, sem sakaðir eru um stríðsglæpi Er því haldið fram, að menn þessir hafi stjórnað skipulögð- um barnaránum, en með því hafi þeir viljað veikja þjóðir þær, sem nasistar rjeðust inn í auk þess sem átti að efla nas- istahreyfinguna með því að ala börn þessi upp sem nasista. Þvi er haldið fram, að börn- in í Lidice, sem Þjóðverjar eyddu, hafi verið meðal þeirra sem rænt var. — Reuter. Farþegar með Heklu frá Kaupm.h. til Rvíkur 16. okt. 1947: Turi Martensen, Victoria Kristjánsdóttir, Þorgerður Sig- fúsdóttir, Ragnheiður Ólafsd., Vasilio Venelintio, Ivan Pashin, Lúðvík Jóhannsson, Hulda Guð mundsdóttir, Poul Mikkelsen, Jytte Eiberg, Axel A. V. Mein- holt og frú, Hallbjörn Halldórs spn, Guðmundur Vilhjálmsson, Árni Kristjánsson, Hildur Ein- arsdóttir, Elsa Kristjánsdóttir, Oddgeir Pálsson, Dagbjört Sig- urðardóttir, Fridel Björnsson, Christian Ravngaard, Haukur Jacobsen, Inge Lise Kristensen og barn, Guðmundur H. Odds- son, Björn Hallgrímsson. Sjöfn Markússon, Þóra Þorvaldsdótt- ir, Elín Arnórsdóttir, Sigurlaug Arnórsdóttir, Matthías Einars- son og frú, Chrisíine Oberman, Steinunn Jónasson, Árni Tryggvason, Guster Barvolda, Lester Hetrade, Willy Black Nielsen, Guðrún Einarsdóttir, Lavritá^ Boeskov, S. Sörensen, G. R. Ólafsson. flUUiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiMiiiiimiQiiiiMiiiiimiiiviKiiiiirt* ! Eiaielg , 6' manna Buick 1941 í | prýðilegu lagi og með stór- Ium bensínskamti til sýnis og sölu við Leifsstyttuna í dag kl. 5—6. — Tilboðum sje skilað á sama stað. Mý® |®ppi Vil láta nýjan jeppa \ (keyrðan 2500 km.) í skift- f um fyrir nýjan enskan 4ra I manna bíl, ekki undir 10 1 E ha. — Tilboð sendist afgr. í | Mbl. merkt: „10—12 — I i 674“. § ; Handíðaskólinn settur Þingið (Framhald af bls. 2). þær dylgjur að flugvalJarnefnd in hefði verið kúguð af sjer til að skrifa undir skýrsluna. Kvaðst ráðherra sjaldan hafa heyrt meiri árásir á íslenska embættismenn en að þeir hafi látið hræða sig til að skrifa und ir gegn betri vitund. Jeg verð að segja, sagði ráð- herra, að þeir menn, er slíkar getsakir bera fram. hafa þá val- ið illa með skipun Erling Elling sen, ef þeir nú trúa honum til slíkra óhæfuverka. ViII Einar selja landsrjettindi? Ráðherra vjek að lokum að þeim ummælum Einars", að Is- lendingar hefðu íengið lítið í aðra hönd fyrir þennan samn- ing. Flugvöllurinn væri margra þúsund dollara ýirði sagði Ein- ar. ■ Þessi samningur, sagði ráð- herra, var gerður vegna hags- muna íslendinga, og gat því ekki komið nein landssala til greina eða sala á í'jettindum. Þetta tal E. O. er því af sama toga spunnið og kenning hans um það, að ef núverandi stjórn færi frá, þá mundum við fá hærra borgað fyrir afurðir okk- ar í Austur-Evrópu. Hann virðist því reiðubúinn að versla með rjettindi landsins, enda kom berlega í ljós hvaða hagsmunum hann þjónaði í um ræðunum um Parísarráðstefn- una. Áki var á sömu skoðun og stjórnin. Kommúnistar hafa ásakað stjórnina einna mest fyrir að hafa ekki þegar sett reglugerð fyrir Keflavíkurflugvöllinn. Stjórnin hefur haldið því rjetti- lega fram að nauðsyn sje að afla sjer fyrst nokkurrar reynslu um rekstur flugvallar- ins. Nú var það upplýst í gær að Áki var alveg á þessari skoðun, er hann var ráðherra, því að reglugerð um fluggjöld á Reykjavíkurflugvellinum var ekki sett fyrr en í mars s. .1 Engin yfirgangur. Flugmálaráðherra og forsætis ráðherra tóku einnig íil máls. Sagði forsætisráðherra m. a. að þetta fyrsta ár samningsins hefði sýnt, að íslenska ríkis- stjórnin hefði í fyrsta lagi haft þá aðferð að skýra og fram- kvæma samninginn á þann hátt er best hentaði ísl. hagsmun- um. í öðr.u lagi hefðu Bandaríkja menn ekki á neinn hátt sýnt yfirgang eða sýnt nokkurra við leitni- til að halda ekki samn- inginn. Umræðum var enn frestað. Farþegar með Heklu frá Rvík 17. okt.: Til Prestwick: Elin- borg G. Ferríer, Þórður Alberts son, John Leinster Hunting, Ronald Seahrook. Til Kaupmh.: Ingibjörg Jónsdóttir, Nikulína Einarsdóttir, Erling Bruun Madsen, frú og 3 börn, Speedy Larking, Tonny Henriksen, Svend T. Arneberg. Mikkelsen, Kristín Friðjónsdóttir, Jakob Sigurðsson, Stenum Falmen, Tage Paulsen, Olav Johan Hil- dal og frú, Þorvaldur Guðjóns son, Rafn Sigurðsson, Edith Elisa Brockdorff, Volker A. Lindeman. KENSLA í kennaradeildum og ‘myndlistadeild Handíðaskól- ans hófst s.l. laugardag. Kensla í síðdegis- og kvöldflokkum í ýmsum grenium, m. a. bókbandi, trjeskurði, teiknun, tækniteikn- un, skrautmálun, smíðum fyrir drengi o. s. frv. hefst í þessari viku eða jafnskjótt og lokið er öllum undirbúningi að kensl- unni. Svo sem kunnugt er, hefur skólinn nú aukið mjög við hús- næði sitt og tekið á leigu megin- hlutann af efstu hæðinni í hinu nýja húsi Egils Vilhjálmssonar h.f. við Laugaveg 118. Innrjett- ingu þessa húsnæðis er nýlolíið og er nú verið að ganga frá raf- lögnum. Vegna þess hve húsnæð ið var síðbúið gat skólastarfsem- in ekki byrjað 1. okt. eins og að undanförnu. — Eftir sem áður starfa nokkrar af kensluþeildum skólans í skólahúsinu á GrUnd- arstíg 2A. Myndlistadeildin og yfirleitt öll teiknikennslan flyt- ur í nýja húsið. Þar eru einnig þrjár stórar kenslustofur ætlað- ar hinni nýju handavinnudeild fyrir konur, — kennaradeild- inni, — og einnig síðdegis- og kvöldnámskeiðum í ýmiss konar handavinnu kvenna, sem ráðgert er að koma á, þegar er undirbún ingi er lokið. í ávarpi sínu til nemenda kenn aradeildanna, er þeir mættu í hinum nýju húsakynnum skól- ans í fyrsta sinni, gaf Lúðvík Guðmundsson slcólastjóri yfiriit um starf skólans á þeim 8 árum, sem liðin eru frá stofnun hans. Fyrsta deild skólans, sem stofn- uð var, var kennaradeildin, sagði hann. Það var fyrst og fremst þörfin á sjermentuðum kennur- um í verklegum greinum, sem hratt stofnun skólans af stað. — Fyrst var byrjað með deild fyrir smíðakennara. Tveimur árum síðar bættist teiknikennaradeild in við. Og nú hefst kenslan í þriðju kennaradeildinni, sem ætlað er að veita sjermentun þeim konum, sem ætla að gerast kennarar í handavinnu kvenna í barnaskólum landsins, gagn- fræðaskólum og húsmæðraskól- unum. Fyrsta árið byrjaði skólinn með 14 nemendur. Síðustu árin hafa nemendur verið hátt á 3ja hundraði. — Og nú munu þeir verða um f jögur hundruð. Fyrstu árin var húsnæði skól- ans í kjallara inni á Hverfisgötu. Þar var bæði lágt undir loft og gólfflötur lítill. Nú á skólinn hús eignina á Grundarstíg 2A, þar sem hann hefur starfað í fimm ár. Er það þriggja hæða stein- hús. Og hið nýja húsnæði, sem hann nú hefur tekið á leigu ér um 300 fermetrar. .... Vegna hinnar miklu aukn ingar á starfsemi skólans hefur kennaraliðið einnig verið aukið. í kennaradeildinni fyrir handa- vinnu kvenna kenna frú Elsa Guðjónsson, B. A., sem hefur verið ráðunautur skólans um síofnun þessarar deildar, og frú Ingibjörg Þórðardóttir, erí hún hefur sjerkennarapróf frá Sví- þjóð. Bóklegar námsgreinir kenn aradeildar kenna, auk frú Elsu Guðjónsson, þeir dr. Broddi Jó- hannesson, Bjarni Vilhjálmsson magister, Kurt Zier listmálari og Lúðvig Guðmundsson skólastj. Af nýjum kennurum á síðdeg- is- og kvöldnámskeiðum skólana hafa þessir verið ráðnir: Frú Greta Björnsson listmálari kenn ir skrautmálun, Karl Guðmunds- son útskurðarmeistari kennir trjeskurð á kvöldnámskeiði fyr- ir fullorðna, en frú Tove Ólafs- son myndhöggvari mun kenna trjeskurð á síðdegisnámskeiði fyrir drengi. Frú Ólafsson, sem kunnust er sem myndhöggvari, er einnig lærð í myndskurðar- list. Teikningu barna mun frú Sig- rún Guðjónsdóttir teiknikennari annast. Frú Sigrún lauk teikni- kennaraprófi frá Handíðaskól- anum fyrir tveimur árum en stundaði síðan framhaldsnám á listaháskólanum í Kaupmanna- höfn. Auk teikniflokka stálpaðra barna er nú í ráði að koma upp teikniflokki fyrir 5—7 ára göm- ul börn. Verður þeim bæði kent að teikna með blýanti og krít og að mála með vatnslitum. Tækniteikningu mun Hannes Davíðsson arkitekt kenna. Ung- frú Unnur Briem mun kenna leðurvinnu, en óvíst er hvertær sú kensla getur byrjað, þar eð enn hefur ekkí fengist erlendur gjaldeyrir til kaupa á efni því og áhöldum, gem pantað hafði verið. Gjaldeyrishömlurnar hafa víð ar komið óþyrmilega við Hand- íðaskólann. Hefur skólinn aðeins fengið gjaldeyrásleyfi til kaupa á litlum hluta þeirra kenslu- tækja og efnis, sem áformað hafði verið að kaupa og þörf var á vegna kenslunnar í vetur. .... Með þessu skólaári, sem nú fer í hönd, stofnun kennaradeiid ar kvenna og hinni miklu aukn- ingu húsnæðisins, hefur stærsta sporið verið stigið á starfsferli skólans, sagði 5,kólastjórinn i á- varpi sínu. Öll sjerkennarament unin í smíðum, teiknun og handa vinnu kvenna fer nú fram í húsa kynnum Handíðaskólans. Skól- inn hefur einnig tekið við allri teiknikennslu fyrir nemendur Kennaraskólans og æfingabekki hans, einnig smíðakenslu og kenslu í bókbandi. — Stúlkur Kennaraskólans fá líka kensli* í vinnustofum Handíðaskólans, en kennari þeirra er frú Arn- heiður Jónsdóttir, sem er fast- ráðin kennari við Kennaraskól- ann. HHHmillHlllni|iniini|IHHIIHIHlnillliinnmnni«„.M< | Tilboð óskast í nýjan | járnpall : \ = af vórubil, ásamt vjel- ; 1 sturtum. — Tilboð sendist j I afgr. Morgunbl. fyrir föstu- i I dagskvöld. merkt: „Járn- j | pallur — 676“. r<niu»«iirirnnnifP'U»t>liiiiHiiiiHiin)»tnnniii<(MMr ii;niiuB:mumi»n»iirr(UiiiiiiniHsiiiiiiiiikF.i;uniK«BMi c : | lm\ú fafalireinsyn | : : | og vinnufatahveinsun. j } EFNALAUGIN GYLLIR ! Langholtsveg 14 (Árinbjörn E. Kúld) *mMtimmiiMMiie»iiiiMiiimMMMMC»imiiitiiitine8a*{WMl AU GLY SING j ER GULLS IGILB Cj

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.