Morgunblaðið - 21.10.1947, Síða 8

Morgunblaðið - 21.10.1947, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 21. okt. 1947 Útg.: H4 Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigíús Jónsson Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgSarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Ami Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsíngar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlands, kr. 12,00 utanlands. 1 lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Leabók. Vei tin ga valdi ð og Háskólinn í LÖGUM og reglugerðum um Háskóla íslands er þess- ari æðstu menntastofnun landsins mörkuð nokkur sjer- staða. Háskólanum er veittur rjettur til þess að hafa veruleg áhrif á val vísindamanna, sem starfa eiga í þjón- ustu hans. Mun það hafa vakað fyrir löggjafanum er þessi ákvæði voru sett að í því fælist mest trygging fyrir stofnunina að sjerfræðingar hennar á hinum ýmsu svið- um hefðu úrslitaáhrif á val nýrra kennara er þangað rjeðust. Var sú skoðun og í samræmi við það, sem tíðk- aðist við háskóla annara þjóða. Þessvegna voru sett í reglur Háskóla íslands ákvæði um það að ekki mætti veita embætti við stofnunina nema að meirihluti þar til skipaðrar dómnefndar úrskurðaði umsækjanda hæfan til þess að gegna starfinu, og að leitað hefði verið álits hlut- aðeigandi háskóladeildar. Hvernig hefur nú þessi ótvíræði vilji löggjafans verið framkvæmdur af þeim, sem með veitingavaldið hafa far- ið á hverjum tíma? Það er ómaksins vert að athuga það. Árið 1936 losnar prófessorsembætti við lagadeildina. Deildin .eggur til að efnt verði til samkeppni um em- bættið. Hvað gerist þá? Ráðherra virðir óskir deildarinnar að vettugi en skipar mann til starfans án þess að nokkur samkeppni fari fram. Árið eftir losnar embætti við guðfræðideildina. Dómnefnd er skipuð og samkeppni fer fram. Dómnefndin mælir með ákveðnum umsækjanda, sem þótti hafa gert verkefni sínu 1 vímælalaust best skil að áliti hinna sjerfróðu manna. Hver er afstaða veitingavaldsins að þessu sinni? Ráð- herran neitaði að hlíta tillögum dómnefndarinnar en skip- aði annan mann í embættið. Nokkrum árum síðar losnaði aftur embætti við guð- fræðideildina. Deildin mælti með því að ákveðnum manni yrði veitt það. Ráðherran veitti það öðrum manni. Fjórða og síðasta dæmið um framkvæmd veitingavalds- ins á vilja löggjafans um sjálfsákvörðunarrjett Háskól- ans er frá s. 1. sumri. Þá er það prófessorsembættið við læknadeild og jafn- framt yfirlæknisstaða við Landsspítalann, sem losnar. Deildin mælir með því að ákveðnum umsækjanda verði veitt starfið. En enn fer sem fyrr. Ráðherran veitir embættið öðrum manni þvert ofan í tillögur deildarinnar. Þessi saga, sem hjer hefur verið rifjuð upp er sönn og rjett. En þetta er ljót saga, sem ber raunalegan vott um hróp- lega misbeitingu hins æðsta valds. Hið pólitíska veitingavald hefur með þessu atferli lýst siálft sig dómbærara til þess að dæma um hæfni manna til vísindastarfa en þá menn, sem gert hafa slík störf að lífsstarfi sínu. í slíkri framkomu felst frekleg móðgun við alla mennt- un og sjerþekkingu. Og það sætir hinni mestu furðu, hve þjóðin hefur tekið mildum höndum á henni. Hjer er ekki aðeins um það að ræða, hvort Háskólinn, æðsta menntastofnun þjóðarinnar, eigi að njóta þess rjett- , ar, sem honum hefur tvímælalaust verið áskilinn. Málið er miklu stærra. Á yfirleitt að hlíta tillögum sjerfróðra manna ú þeim sviðum, sem sjerþekking þeirra og mennt- un nær til? Hið pólitíska veitingavald hefur svarað þeirri spurn- ingu neitandi að því er Háskólann varðar. Fyrir það á það skilið þungan áfellisdóm. Þánn dóm verður þjóðin .einnig að kveða upp ef veitingavaldinu á ekki í fram- Uðinni að haldast uppi sá sjálfbyrgingslegi hrokagikks- háttur, sem einkennt hefur framkomu þess gagnvart Háskóla íslands undanfarin ár. DAGLEGA LlFINU Framsagnarlist. ÞAÐ ER í rauninni undar-' legt hve við íslendingar höfum lagt litla stund á ffamsagnar- list og hvað við eigum fáa lista- menn, sem kunna að lesa upp, eða hafa lagt þá list fyrir sig í fullri alvöru. Við eigum lista menn, sem hafa varið til þess hálfri æfi sinni, að geta túlk- að fyrir okkur Bach á orgelið eða Beethoven á slaghörpuna,' én það er ekki til íslendingur, sem kann að lesa upp kvæði Jónasar Hallgrímssonar, eða Einars Benediktssonar, svo dæmi sjeu nefnd. Það er eins með kvæði og nótur, áð ef þeim er ekki gefið líf í flutningum, þá missa þau mikið af sínu listagildi. • Langt nám og erfitt. ÞEGAR ÞAÐ kemur fyrir, einstaká sinnum, en altof sjald an, að það koma fram fyrirles- arar í útvarpinu, sem kunna að lesa upp, sem hafa lagt sig eftir að kynna sjer sjerein- kenni þess, sem þeir ætla sjer að lesa og flytja eftir því, þá er talað um þenna viðburð 1 marga daga. Svo sjaldgæft er það, að hjer sje lesið verulega vel upp í útvarpi eða af ræðú- stóli. Flutningur Lilju Eysteins í útvarpið í fyrra opnaði fyrir mönnum nýjan heim. En Ein- ar Ól. Sveinsson prófessor, sem undirbjó lesturinn fyrir flutn- ing í útvarpið þurfti að hafa meira fyrir því, en að rjetta hendina upp í bókaskáp eftir Lilju og hlaupa með hana nið- ur í útvarp á síðustu stundu. Bak við þenna flutning lá langt nám og erfitt, heilabrot og hug leiðingar. • Ævistarf. ÞJÓÐ, eins og við íslending ar, sem eigum skínandi bók- mentaperlur, ættum einnig að eiga framsegjendur, eða upp- lesara, sem geta túlkað fyrir hlustendum sínum hugsanir skáldanna og leitt þá inn í töfraheima. Svo að segja hvert manns- barn á landinu kannast við borðsálminn lians Jónasar Hall grímssonar, en fáir hafa skilið hann til hlýtar fyr en þeir heyrðu og sáu Göggu Lund fara með hann af þeirri snilld, sem henni einni er lagið. Nokkrir Islendingar hafa gert sjer það að æfistarfi, að geta orðið túlkendur meistara tón- anna. En því ekki að leggja það fyrir sig að túlka Jónas, Einar Ben., Matthías Jochumsson, Tómas Guðmundssön og aðra meistara í orðsins list. Það er líka æfistarf fyrir einn.mann og það er veglegt takmark. « Fyrir ofan garð og neðan. HVERSU oft heyrum við ekki og sjáum að góð skáldverk fara fyrir ofan garð og neðan í útvarpi vegna þess að þau eru illa flutt og stundum sjáum við að miðlungsskáldskapur hríf- ur allan hlustendahópinn vegna þess, að vel er flutt. Helgi Hjörvar bljes lífi í Bör Börs- son svo þjóðin hreifst með. En fluttar hafa verið skáldsögur í útvarpið, sem eru mikið bet- ur ritaðar og skemtilegri en Bör, en sem hlustendur hafa ekki haft neina ánægju af eða notið vegna flutningsins. íslendingar eiga að leggja meiri rækt við túlkun orðsins listar, því í bókmenntunum eigum við gnægtabrunn, sem aldrei þrýtur, eins og aðrar þjóðir eiga tónverk, sem veita unað og ánægju. • Tilkynningar til sjó- farenda. BRJEFRITARI, sem kallar sig „strandamann“, en sem jeg veit, að talar ekki fyrir hönd Hornstrendinga, heldur hinna, sem ferðast á sjónum meðfram ströndum landsins, skrifar á þessa leið um tilkynningar fyr- ir sjófarendur: „Jeg vildi mega beina þeim tilmælum til hlutaðeigenda að tilkynningar um hafís, tundur- dufl og aðrar siglingahættur og tilkynningar um nýja vita og breytingar á öðrum, sjeu, auk þess að vera birtar á ís- lensku, einnig birtar á ensku með lestri veðurfregna og um loftskeytastöðvar landssímans, en á þann hátt má telja víst að þær berist öllum þeir er þær varðar. Skipaútgerð ríkis- ins hefur birt ís og tundur- duflatilkynningar' á báðum tungumálunum í útvarpinu, en það er ekki nóg. Vitað er að erlendir sjómenn hlusta yfir- leitt aldrei á ísl. útvarpið, nema þegar veðurfregnir eru lesnar kl. 01.00 og 10.10“. /• • Skip í hættu. „SAMA ER að segja um aug lýsingar eftir bátum er ekki hafa náð landi. Slíkar tilkynn- ingar ætti ætíð að senda á báð- um tungumálunum um viðkom andi loftskeytastöð Landssím- ans á 182 og 600 metra öldu- lengd, auk þess með veðurfregn unum. Geta má þess að á ensk um togurum er að jafnaði sjald an hlustað á 182 og 600 m. öldu lengd, heldur halda þeir góð- an vörð á 140 metrum og nú orðið við veðurfregnirnar kl. 01.00 og 10.00. Er því nauðsyn- legt að hægt sje að ná til þeirra á þessum öldulengdum ef líkur eru til að einhver þeirra gæti veitt aðstoð. Víða við strendur landsins eru erlend skip, sem vegna stöðu sinnar *gætu í mörgum tilfellum veitt skjótari aðstoð en þau íslensku, sem ef til vill eru lengra í burtu, aðeins ef þau fengju upplýsingar um það á rjettan hátt. Að lokum vil jeg spyrja: Hvenær mega sjófar- endur við strendur landsins bú ast við miðunarstöðvaþjónustu frá landi, t. d. við Faxaflóa? Slík tæki munu ekki kosta meira en einn ekífi-lúxusbíir'. f MEÐAL ANNARA ÖRÐATT. . |-----f fiir G. ]. A. |-—------- 59 þúsund flóttamenn mm hehn MINNISMERKI — Fyrir' skömmu síðan var í Aabenraa, Suður-Jótlandi, afhjúpað minn ismerki 135 flugmanna banda- manna. Meðal þeirra, sem graf- settir eru í kirkjugarði þarna, er ungur Kanadamaður. Fyrir 25 árum síðan yfirgaf Dani nokkur jóskan bóndabæ, þar sem foreldrar hans bjuggu. Hann fór til Kanada og gift- ist þar. Eitt barna hans gekk 1940 í kanadiska flugherinn, og eftir að hafa notið kennslu í Kanada, var hann sendur til Bretlands. í loftárás á Þýskaland varð flugvjel hans fyrir skotum og fjell logandi til jarðar í Dan- mörku — á landareign afa hans, sem hann aldrei hafði sjeð. • • VÖRUSÝNINGU HÓTAÐ — Tjekkneska stjórnin leggur nú mikla áherslu á aukinn útflutn ing og endurbætta framleiðslu. Telur stjórnin vöruvöndun oft og tíðum ekki nógu mikla og að einstaka útflutningsfyrir- tæki blátt áfram skaði álit landsins út á við. írak hótar honum öllu illu, ef Bretar styðja kröfur Gyðinga. Til að fá úr þessu bætt, hef- ur aðstoðarverslunarmálaráð- herrann hótað því að efna til vörusýningar, þar sem aðeins gallaðar vörur verði sýndar — ásamt nöfnum fyrirtækja þeirra, sem framleiða þær. STIKLAÐ Á STÓRU — Rúss ar hafa þegar fengið 98.000 tonn af vjelum og verksmiðju tækjum frá Vestur-Þýskalandi .... Bandaríkjamenn aðstoða nú ítali á ýmsan hátt við að endurreisa skipasmíðastöðvar þeirra, en margar þeirra ger- eyðilögðust 1 sþrengjuárásum í styrjöldinni .... Rússland hef ur í dag meir en 4,000,000 manns undir vopnum. 1939 voru um miljón manns í rúss neska hernum .... Breska stjórnin hefur ákveðið að láta ítali fá 200 Spitfire flugvjelar. e • FLÓTTAMENN SNÚA HEIM — Um 50,000 spánskir flótta- menn, sem verið hafa í útlegð frá því borgarastyrjöldinni lauk_ munu hverfa heim til sín á næstunni. Tala þessi er bygð á umsókn- um þeim um heimfararleyfi, sem borist hafa spönskum ræð ismannsskrifstofum í Frakk- landi að undanförnu, en stjórn arvöldin á Spáni hafa heitið öllum þeim sakaruppgjöf, sem Framli. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.