Morgunblaðið - 21.10.1947, Side 12
12
tfíORGV ISBLAÐIÐ
Þriðjudagur 21. okt. 1947
Ludvig Storr fimtugur
Fimm mínúfna krossgáfan
I DAG er Ludvig Storr,
konsúll, fimmtugur.
Fyrir rúmum aldarfjórðungi
síðan kom hann hingað til
lands ókunnugur íslenskri
tungu og íslenskum staðhátt-
um. I heimalandi sínu hafði
hann kynnst íslenskri stúlku,
Elínu, dóttur Sigurðar heitins
Björnssonar, brunamálastjóra,
og varð hún síðar kona hans.
Ludvig Storr hikaði hvergi við
að flytjast noður yfir hafið og
reisa þar bú, enda hafði hann
trú á landið og sjálfan sig. Fyr
ir 3 árum varð hann fyrir
þeirri miklu sorg að missa
þessa ágætu konu sína eftir
nærri aldarfjórðungs hamingju
samt hjónaband.
Storr byrjaði verslun í Reykja
vík, reyndar í smáum stíl til
að byrja með, en með óþreyt-
andi elju sinni og miklum hæfi
leikum framkvæmdamannsins
tóks honum á fáum árum að
gera verslun sína þá stærstu í
sinni grein hjer á landi. Ludvig
Storr er enn ungur að árum, en
starfsferill hans allur færir
okkur heim sannanir fyrir
ágæti einstaklingsframtaksins,
þar sem það má njóta sín.
Ludvig Storr hefur látið fje
lagsmál mikið til sín taka.
Þannig er hann einn aðalstofn
andi Roteryklúbbs Reykjavík-
ur ásamt Knud Zimsen fyrv.
borgarstjóra og sinn ómetan-
lega þátt á hann í útbreiðslu
rotaryhugsjónarinnar hjer á
landi. Fíann stendur og framar
lega í fjelagsmálum landa
sinna hjer á landi og lætur öll
mál varðandi Island og Dan-
mörku mikið til sín taka.
Ludvig Storr er einn af mörg
um Dönum, sem hjer eru bú-
settir og hafa tekið ástfóstri við
Island. Hann hefur eignast hjer
marga vini, enda er hann með
afbrigðum vinsæll ekki síður
meðal Islendinga en landa
sinna. Hug sinn til íslenskra
iðnnema sýndi hann glöggt er
hann á 25 ára afmælisdegi
verslunar sinnar s.l. mánuð gaf
stórfje til styrktar þeim við
framhaldsnám í Danmörku.
Jeg tel, að Ludvig Storr sje sá
danskfæddur einstaklingur hjer
á landi, sem mest hefur unnið
að því að efla vináttubönd Is-
lands og Danmerkur og marg
an misskilninginn hefur hann
leiðrjett milli þessara frænd-
þjóða. Hann er tvímælalaust
Minningarorð um
Jarjfriiði Jónsdóttur
einn af fremstu fulltrúum*
sinnar þjóðar hjer á landi enda
sýndi danska ríkisstjórnin skiln
ing sinn á hæfileikum hans og
dugnaði með þvi að skipa hann
danskan ræðismann hjer á
landi fyrir nokkrum árum.
Vinir hans færa honum í
dag sinar bestu árnaðaróskir.
A. G.
- Kínverska sýningin
Framh. af bls. 11
fyrstu sýn kann manni ef til
að finnast, að sýningargripirnir
fylli ekki vel sal listamannskál-
ans. En það sem þá vantar í
stærð, bæta þeir upp í fínleik
og margbreytileik og fáum mun
endast sá tími sem þeir hafa til
ráðstöJunar til að skoða vand-
lega alt, sem verðskuldar það,
því að það er fjölmargt. Og alt
speglar það anda hinnar æva-
gömlu kínversku menningar. —
Ekkert efni er of fínt, engin
vinna of tímafrek, þegar skapa
á fallegan hlut, ná háleitu
marki. Kínverjar drekka te úr
bollum, sem eru litlu stærri en
fingurbjargir, en drykkurinn
er þá gerður með þeirri fyrir-
höfn og hótfyndni, að vestræn-
um mönnum með klunnalegri
smekk, finnst hlægilegt. En í
raun og veru er hið sama sýni-
legt í listiðnaðinum, ágæti og
fullkomnun hlutarins er fyrir
öllu, fyrirhöfnin er aukaatriði.
Reykvíkingar mega vera frú
Oddnýju þakklátir fyrir að hafa
flutt þessa gripi til íslands. —
Hún hefur dvalist langdvölum
í Kína, og henni hefur tekist
betur en flestum öðrum að
kynna hið nýja land sitt fyrir
þeim, sem heima sátu. Vonandi
líða ekki aftur 10 ár áður en
henni verður kleift að sýna
safn sitt næst.
Krisfján Ekljárn.
SKYRINGAR
Lárjett: — 1 maka — 6 kven
maður — 8 forsetning — 10
tónn — 11 brotnar — 12 stai-
ur — 13 eins — 14 á handlegg
— 16 skemmast.
Lóðrjett: — 2 hvíldi — 3 L-
land — 4 frumefni — 5 hnapp-
ur — 7 líkamshluti — 9 húo-
fletta — 10 draup — 14 drukk-
ur — 15 ónefndur.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárjett: — 1 kista — 6 stó
— 8 ok — 10 K. A. — 11 fell-
ing — 12 aa — 13 án — 14 áin
— 16 errið.
Lóðrjett: — is — 3 stillir —
4 tó — 5 rofar — 7 fagna — 9
K. E. A. — 10 kná — 14 ár —
15 ni.
— Meðal annara orða
Framh. af bls. 8
ekki hafa gerst sekir um sann-
anlega glæpi.
OLÍA — írak hefur tilkynt
Bevin utanríkisráðherra, að
landið muni rjúfa verslunar-
sambandið við Breta, ef þeir
styðji tillöguna um að gera
Palestínu að sjálfstæðu Gyð-
ingaríki.
Bretar fá megnið af olíu
sinni frá írak.
Talið er, að olíulindir þær,
sem teknar hafa verið í notkun
í Bandaríkjunum til þessa,
verði þurausnar fyrir 1960.
Olíuþörf Rússlands fer vax-
andi, en rússneska olíufram-
leiðslan hefur minkað um einn
fjórða síðan 1939.
Enn er ekki vitað, hversu
mikil olía er í jörðu í Norð-
ur íran, en sagt er, að Stalin
vildi gjarnan komast að því.
Marshall utanríkisráðherra,
hefur lofað íranstjórn stuðningi
Bandaríkj anna, ef svo færi, að
erlent herveldi rjeðist á landið.
EYÐUBLÖÐ
I fyrir húsaleigusamninga, i
i fást hjá l
l Fasteignaeigendafjelagi i
\ Reykjavíkur
Laugaveg 10.
Harmafregnin lýstur oss æ-
tíð óviðbúin.
Þegar mjer var tjáð, að Jar-
þrúður Jónsdóttir væri látin,
fannst mjer það of óskiljanlegt
til þess að það gæti verið 'satt.
Það samrýmdist ekki rökum
skynseminnar, að hún, sem ein
mitt um þessar mundir var að
hefja hugþekkt lífsstarf, væri
hrifin burt á þessari stundu.
Jarðþrúður Jónsdóttir var
fædd og uppalin á Ólafs-
völlum á Skeiðum, dóttir hjón
anna Guðríðar Jóhannsdóttur
og Jóns Brynjólfssonar. Svo
sem kunnugt er, stendur að
þeim hjónum báðum dugnaðar
og gáfufólk, og hlaut Jarþrúð
ur mikið af einkennum • ættar
sinnar í vöggugjöf. Hún var
mjög vel greind, vel að sjer
um marga hluti og sjerlega
skemtileg í viðræðum. Störf
sín vann Jarþrúður mest heima
í foreldrahúsum og á heimilum
ættfólks -síns, en auk þess
fjekkst hún talsvert við hjúkr
unarstörf. I sambandi við þau
störf kom fram sú mild og
hjartagæska, sem henni var eig
inleg, þegar í hlut áttu sjúkir
og bágstaddir. Þessir þættir
skapgerðar hennar voru ekki
öllum vel ljósir, vegna þess, að
viðhorf hennar til lífsins var
blandið dálítilli kaldhæðni sem
hún þó ljet elcki hvað síst bitna
á sjálfri sjer.
Nú hafði Jarþrúður flutt fyr
ir fullt og allt frá gamla heim-
kynninu sínu og stofnað sitt
eigið heimili í Vestmannaeyj
um, en þar verður hún jarð-
sett í dag. Sjálfsagt hefði henni
tekist að gefa sínu eigin heim-
ili þann blæ gestrisni og hress
andi glaðværðar, sem einkendi
liana sjálfa og sem hún var al
in upp við og vafalaust hefði
þekking hennar á húsmóður-
störfum, natni hennar og
hjartagæska notið sín vel inn-
an veggja hennar eigin heim-
ilis. En skyndilega var það
stöðvað, starfið, sem hún virt
ist vera að byrja, og þótt víða
komi maður í manns stað, þá'
er enginn til að taka við þar
sem hennar starfi sleppli.
Hún Jarþrúður hefir kvatt
æskuheimilið sitt. Móðir henn-
ar getur litið með ánægju til
þeirra stunda, er hún fjekk að
hlúa að henni þar síðastliðið
sumar, og ástvini sínum hefir
hún skilið eftir til umönnunar
litlu stúlkuna þeirra, sem kost
aði hana lífið.
.Tarþrúður .Tónsdóttir hefir
lokið lífsstarfi sínu. Hún dóttir
hennar lifir og mun varðveita
minninguna um móður sína og
hún mun gefa þeim gleðina
aftur, sem í dag eru syrgjandi.
Rannveig Þorsteinsdóttir.
- lingversko kosn-
Framh. af bls. 9
jafnaðarmaður, sagði af sjer og
sakaði innanríkisráðherrann,
sem er kommúnisti, um, að hann
þindraði sig í að láta kosninga-
svikarana svara til saka. Allir
hinir jafnaðarmannaráðherrarn-
ir sögðu af sjer með honum. —-
Svo vel vildi til, að formaður
Jafnaðarmannaflokksíns, Szaka-
sits, varð veikur. Smábænda-
flokkurim, sem var afargramur
yfir óförunum, snerist þegar
gegn foringjunum, þar á meðal
Dinnyes, forsætisráðherra, og
krafðist, að þeir yrðu reknir úr
flokknum. Til svo mikilla óeirða
kom á þessum fundi, að Ortyary,
menntamálaráðherra, Smá-
bændaflokksmaður, bað um
vernd stjórnmálalögreglunnar,
sem kommúnistar ráða yfir, og
fekk hana.
Afurðaverð iand-
Framh. af blá. V
afurða. Þetta hafa þeir ekki
gert með orðum heldur verk-
um. Nú geta bændur sjeð hve
alvaran hefir verið mikil og
hvernig er háttað heilindum og
heiðarleik þessara manna. Það
sanna þær tölur sem hjer hafa
verið birtar. Þar er dómur
reynslunnar á fyrsta ári. Senni-
lega batnar ekki síðar.
Jón Pálmason.
Falsaðir bankaseðlar.
STOKKHÓLMUR: Nýlega fann
sænska lögreglan á manni, sem
kom flugleiðis frá París, falsaða
sterlingspnndaseðla, sem höfðu ver
ið keyptir í banka í Palestínu.
X-9
f TOO BAD TH/.T X DOK'T BAVE
ONE OF Tm05£ THROATJ <S£AF-0PEKA
TO PARRGT '’SCALPEL"
! AND AFTER MB
W
MA'TEN'T DONE AN A/WP
5INCE LEFTV LOöAN S70PPED
A $H0TöUN$LU6' MV HANDÍ-
ARE 6HAK!Nó.„H/V,.-M . A
5»UTURE WfTl-l 6CALlOP^]
Effir Robert Sform
^ ALLRIöHT, UVER-LIPe-
TAKE A DEEP DRA6...BREATNE
DEfPLV.... DEEPLV... THAT'6-
lT...BREAT8e 0£f
VJHERE ARE THE ^
AERlAL PHOTOS OF
THIE> VICINITV? /MU&T j
BE M0KS CABIN$ IN
THE£E HIU6J C
Maðurinn (hugsar); Jeg hefi ekkert fengist við
læknisstörf, síðan Lefty Logan varð fyrir skotinu.
Jeg er skjálfhentur. •— (Upphátt) Jæja, Kalli. ■—
Dragðu djúpt að þjer andann. Alveg rjett . . . . En
meðan þessu fer fram halda Phil og Bing áfram
Co£t. 1946, King Fcaturcs Syn<ficaU‘,lnc:i Worft^ight^rescrvctl.i
leitinni. Bing segir: Kalli er ófundinn enn. •— Phil:
Það hljóta að vera fleiri kofar hjerna í hæðunum.