Morgunblaðið - 29.10.1947, Blaðsíða 1
i
34. árgangur
246. tl»l. — Miðvikudagur 29. október 1947
ísafoldarprentsmiðja h.f.
SÓSIALISMINN HEFIR LAMAÐ BRESKU
Þeir stsrku í bresku stjórninni
ÞJÓÐINA segir Churchill
Þjóðnýtingin hefir ger-
STERKU MENNIRNIR í ríkisstjórn Breta sjást hjer saman á myndinni. Þeir eru talið frá
vinstri: Bevin utanríkisráðherra, Strachey birgð amálaráðherra, Attle forsætisráðherra og Dalton
Óeirðir á götum Par-
ísar og í franska
þinginu
PARÍS í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgbl. frá Reuter.
RÚMLEGA 200 manns voru handteknir í París í kvöld, eftir
óeirðir, sem urðu í Etoile-hverfinu. Þar hafði verið boðað til
fundar til að ræða um ,,þær þjóðir, sem eru undirokaðar af Sov-
jet-Rússlandi“. Kommúnistar fjölmenntu 'fyrir framan fundar-
staðinn og ljetu þar illum látum. Meðal annars var hrópað: ,,I
iangelsi með de Gaulle“.
Lögreglan skerst í leikinn.
Lögreglan skarst í leikinn og
notaði kylfur til .að dreifa
mannfjöldanum. Urðu talsverð
ar óeirðir. Blaðaljósmyndarar
höfðu komið sjer upp ljósaút-
búnaði til þess að geta tekið
myndir af mannfjöldanum, en
lögreglan rjeðist einnig á þá
og barði með kylfum. Borgar-
stjórinn í París hefir látið í
ljósi ánægju sína yfir hve lög-
reglan stóð sig vel í þessum
átökum.
Fundurinn var ekki haldinn.
Mikii átök í þinginu.
í þinginu ætlaði alt um koll
að keyra í dag er verið var að
ræða trausttillöguna á Rama-
dierstjórnina. Náðu lætin há-
marki sínu er bingflokksformað
ur kommúnista byrjaði að tala
og skamma .stjórn Ramadiers.
Hann sagði að kommúnistaflokk
urinn myndi ekki greiða atkv.
með traustyfirlýsingu á stjórn-
inni, en hánn gat þess ekki hvort
hann myndi sitja hjá við at-
kvæðagreiðsluna, eða greiða at-
kvæði á móti stjóminni.
Þingmaður úr einum af hægri
flokkunum reyndi að komast
upp að ræðustól til þess að
leggja í Duclos, en þingverðir
gátu stöðvað hann áður en hann
komst leiðar sinnar. Ætlaði þá
alt að fara í bál í þingsalnum.
Sprengjutilræði
mss-
Norðmenn flytja út
niðursuðu fyrtr 100
miljónir
NORÐMENN hafa það sem
af er þessu ári flutt út niður-
soðnar fiskafurðir fyrir 100
miljónir króna og er það met í
útflutningi á niðursuðuvörum
þar í landi.
Norðmenn hafa lagt mikla
áherslu á að koma niðursoðnu
fiskmeti á erlendum markað og
hvorki sparað til þess fyrirhöfn
nje auglýsingar i væntanlegum
markaðslöndum. Þeir flytja
mikinn hluta af niðursuðuvör-
um síniun til Bandaríkjanna.
fókst hrapalega
ÚTVARPSUMRÆÐURNAR í
gærkvöldi um frumvarp Sig-
fúsar Sigurhjartarsonar um að
gera skömmtunarseðlana að
innkaupaheimild fyrir verslan
ir, urðu kommúnistum mikil
vonbrigði.
Stjórnarilokkarnir eru ráðn
ir í að framkvæma þá stefnu,
sem mörkuð er í lögunum um
fjárhagsráð, að láta þá. sitja fyr
ir innflutningsleyfum, sem
bestum verslunarkjörum ná í
vörukaupum til landsins.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins í umræðunum, þeir Ingólf-
ur Jónsson og Jóhann Hafstein,
gerðu glögga grein fyrir stefnu
Sjálfstæðisflokksins í verslunar-
málunum. Flokkurinn teldi hags
munum almennings best borgið
með því að frjáls samkeppni
ríkti milli f jelagsverslana og ein
staklingsverslana um innflutn-
inginn til landsins.
Fyrir Framsóknarflokkinn töl
uðu Eysteinn Jónsson og Skúli
Guðmundss., fyrir Alþýðuflokk-
inn Emil Jónsson og Finnur
Jónsson, en Sigfús fyrir komm-
únista.
Skipbrohmennimir
SKIPBROTSMENN af hollenska
olíuskipinu Mildrid, sem strand-
aði vestur á Snæfellsnesi á
mánudagsmorgun, eru væntan-
legir til bæjarins í dag.
Öllum líður þeim vel, enda
hafa íbúarnir á Sandi hlúð að
þeim eftir bestu getu. — I gær-
kvöldi átti flugvjel að sækja þá,
en hún gat ekki lent sakir myrk-
urs.
samlega mistekist
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
WINSTON CHURCHILL, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í breska
þinginu hjelt langa ræðu í neðri deild í dag og deildi þar fast á
stefnu bresku stjórnarinnar fyrir stefnu hennar í landsmálum
yfirleitt og þjóðnýtingaráform hennar sjerstaklega. Sagði hann
að stjórninni hefði gersamlega mistekist að stjórna landinu og
hún hefði sannað, að þjóðnýting og höft geta ekki blessast á
friðartímum.
Kommún-
istar stór-
tapo í
Danmörku
ÞEGAR blaði'ð fór í pressuna
í gærkveldi var atkvæðataln-
ingu í Danmörku komið það.
langt, að hægt var að fá nokk-
urn veginn heildarmynd af því,
hverniig úrslit kosninganna
yrðu.
Jafnaðarmenn juku fylgi sitt
all mikið, en nær eingöngu á
koslnað kommúnista.
Líklegt var þð talið, að þeir
fengju ekki hreinan meirihluta
á þingi.
Kommúnistar fengu hina
hraklegustu útreið. í Mörgum
kjördæmum mistu þeir yfir
helming atkvæða sinna frá
fyrri kosningum.
Vinstri menn, flokkur Krist-
cnsens forsætisráðherra, juku
einnig fylgi sitt mjög, svo lík-
legt var talið að þeir myndu
halda áfram að vera í stjórn,
annaðhvort einir eða með öðr-
úm flokkum.
Hægri menn biðu mikinn ó-
sigur og fylgi radikala fór
nvinkandi. — Smáflokkurinn
Retsforbundet jók fylgi sitt.
í blaði kommúnista í gær-
kveldi var kvartað undan því
hve eindregin andstaða allra
flokka hefði verið gegn þeim í
kosningaharáttunni.
* Örbirgðinni jafnað niður.
Churchill var að svara frum-
vörpum stjórnarinnar, er komu
fram í hásætisræðu konungs,
við setningu þingsins á dögun-
um. Hann sagði, að sósíalism-
inn væri sú stefna í stjórnmál-
um, sem gerspilti. Þessi stefna
jafnaði örbirgðinni niður á alla
jafn auma.
Þjóðnýting stjórnarinnar
hefði algerlega mistekist og
bresku ríkisstjórr.inni hefði
tekist, að leiða bresku þjóðina
inn í jarðgöng og mætti ham-
ingjan vita, hvort þjóðinni auðn-
aðist nokkurn tíma að komast
aftur út í dagsljósið.
Prenluifu fnlska dollaraseðla
MARSEILLE: — 12 glæpamenn
voru handteknir nýlega íyrir að
prenta falska dollaraseðla. — Alls
höfðu verið prent.aðir 5,800.000
dollarar. — Við frekari rannsókn
lögreglunnar fundust fjórar aðrar
prentsmiðjuf, sem prentuðu fals-
aða peninga.
Fyrst að framleiða fyrir
þjóðina.
Churchill sagði það rjett vera,
að breska þjóðin þyrfti að
flytja út vörur á erlendum
markaði. En verkamannastjórn
in hefði tekið það ráð ,að flytja
allt út, áður en farið væri að
hugsa um þarfir þjóðarinnar
sjálfrar. í Bandaríkjunum væri
þetta gert með öðrum hætti. —
Þar væri fyrst hugsað um að
framleiða handa þjóðinni en
síðan fyrir erlendan markað.
Og þannig ætti það að vera, að
sjá þjóðinni fyrst og fremst
fyrir nauðsynjum og síðan að
flytja út það, er afgangs væri
handa öðrum.
Einstaklingsframtakið
drepiS
Verkamannastjórnin væri að
drepa einstakl.íramtak bresku
þjóðarinnar og þar með að lama
framfaravilja hennar. Það hefði
verið einstaklingsframtakið,. er
hefði hafið bresku þjóðina upp
til valda og virðingar, en nú
væri verið að draga hana niður
með sósíalisma, þessari stefnu,
sem alt eyðilegði og færði til
baka. Sósíalisminn væri hin
dauða hönd á framfarir, fram-
leiðslu og vellíðan þjóðarinnar.
Skapað blóðbað í Indlandi
Churchill veittist mjög að rík-
Framh. á bls. 2