Morgunblaðið - 02.11.1947, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 02.11.1947, Qupperneq 7
Sunnudagur 2. nóv. 1947 MOIIGU TSBT^AÐIÐ 7 R E Y K Síldin. SVO fór það, að síldin kom hjer inn í Flóann, svo um mun- ar, einsog í fyrra vetur, og er nú snögtum fyr á ferðinni held- ur en menn urðu við hana var- ir síðastliðið ár. Inni í ísafjarðardjúpi hefir nú um skeið verið mikil veiði, en ekki ýkja margir getað stund að hana. Þar hafa menn haft landnætur einsog tíðkaðist t. d. á Eyjafirði í upphafi síldveið- anna fyrir og um aldamótin. En síðan lagðist sú veiði niður að heita má, vegna þess, að síld- in breytti um göngur sínar. Nú hefir heyrst, að vestur í fjörðunum í Djúpi, hafi reynst vera svo mikil síld, að dregið hafi jafnvel verið fyrir hana að ósjeðu, og með því fengist góð- ur afli upp í landsteina. .i í Noregi. í NOREGI er altaf á hverj- um vetri veitt mikið í landnæt- ur, þegar á annað borð veruleg veiði er. Sagði mjer kunnugur maður nýlega, að þar tíðkaðist sú söluaðferð, að síldarkaup- menn kaupi síldina í sjónum þegar veiðimenn hafa lokað torfurnar inni í lásana. Sje þá áætlað hve mikil síldin sje sem innilokuð hefir verið, og komi seljandi og kaupandi sjer sam- an um verðið eftir ágiskun um það hvers virði aflinn sje sem er í nótinni. Þá er þáttur veiði- manna úti. En kaupendur hafi alla fyrirhöfnina, við að taka síldina upp, og áhættuna af því að veiðin kunni að sleppa úr lásnum ef nótin bilar áður en síldin hefir verið tæmd úr lásn um. Reynslan hefir kent mönnum þar að gera ýmsar ráðstafanir, til þess að tryggja sem best, að síldin sleppi ekki úr lásunum. Hafa síldarkaupmenn þeir sem taka á sig slíka áhættu, kafara við hendina, til þess að fara með nótinni, sem landföst er með síld, og líta eftir að hún lyki sem best um veiðina. Ljósaveiðí. VIÐ síldveiðarnar að vetrin- um er mælt að norskir sildveiði menn noti ljóskr/:tara. Beina þeir sterku ljósi á vissan stað á hafflötinn þar sem þeir telja líklegt, að síld sje í nánd í djúpinu, þó hún láti ekki á sjer bera í yfirborði. En reynsla er fyrir því, að síld leitar í ljós- ið. Þegar sjávarborðið hefir ver- ið lýst á þennan veg um stund, er athugað með lóðum frá smá- kænu, hvort síld sje komin svo nálægt yfirborði að hún sje tæk í herpinót. Og hún síðan hand- sömuð þegar hún er það nærri sjávarborði að það er hægt. Heyrst hefir, að tilraunir með þessa aðferð, sjeu nú að hefj- ast vestur í ísafjarðardjúpi. Sumar og vetur. NÆRRI má heita hlálegt, og þó ekki að því hlægjandi, ef svo á að vera ár eftir ár, að veiðiskip svo hundruðum skipt- ir, sjeu við síldveiðar á sumrin þegar síldveiði er treg fyrir Norðurlandi, en síðan komi mikil síld hjer upp að vestan- J A V í verðu landinu að vetrinum, en þá sjeu ekki útvegir að notfæra sjer þá veiði, nema að litlu leyti. Háskólasjóðir. í RÆÐU þeirri er Ólafur prófessor Láruson háskóla- rektor flutti við háskólahátíð- ina á laugardaginn var, hreyfði hann máli, sem menn þyrftu að festa sjer í minni. Hann benti á hve nauðsynlegt það er, fyrir vísindaiðkanir í landinu, að til sjeu gildir sjóðir í vörslum Há- skólans, sem styrki slíka starf- semi. Aðal stoð vísindaiðkana sem Háskólinn hefir haft við að styðjast í þessu efni, er Sátt- málasjóðurinn. Hann var upp- runalega ein miljón króna, hefði verið 1,400,000 ef í hann hefði ekki annað bæst, en þeir vextir hans, sem eiga að leggj- ast við höfuðstólinn. En með því að stjórn Háskólans rjeðist í að festa kaup á kvilxmynda- húsi fyrir fje sjóðsins er höfuð- stóllinn nú kr. 2,600,000. Ætti sjóðurinn með hóflegu mati á eigninni, að vera álíka verð- mætur nú, og miljónin var, þeg ar sjóðurinn tók til starfa fyrir 27 árum. Háskólanum hafa borist gjaf- ir er honum hafa verið af góð- hug gefnar. En það væri ekki nema sjálfsagt og eðlilegt, að sjeð verði svo um með sjer- stakri löggjöf, að velunnarar Háskólans og vísindaiðkana í landinu, gætu t. d. notið skatt- frjálst vaxta af eignum þeim, sem þeir hefðu ánafnað Háskói anum eftir sinn dag, eða ekki væri ýerið að skerð'a slíkar gjafir með sköttum til ríkisins. Það er sannarlega í þágu al- þjóðar, að æðsta mentastofnun landsins, fái með tíð og tíma þau fjárráð fyrir sig að Háskólinn geti örugglega tekið að sjer að kosta mikil og þarfleg vísinda- verk. Eitt slíkt er nú hafið fyr- ir nokkru, undirbúningur að útgáfu hinnar miklu rísinda- legu orðabókar yfir íslenska tungu. Allir þeir menn í landinu sem eiga ekki nána erfingja, eða þeir sem láta eftir sig mikil efni, ættu að hugleiða það í alvöru, hvort þeir teldu ekki eignum sínum best varið, eftir þeirra dag, með því að láta þær renna til styrktar þeirri vísindastarfsemi, sem Háskól- inn verður að. annast í fram- tíðinni. En það væri þá líka þeirra áhugamál, að erfðafje slíkt kæmi stofnuninni og vís- indastarfinu að sem fylstum notum, en yrði ekki skert með miklum skattgreiðslum. Umræðurnar um innflutninginn. KOMMÚNISTAR gerðu til- raun til þess í þinginu í þessari viku, að bæta sjer upp álits- hnekkinn af frammistöðu Ein- ars Olgeirssonar á dögunum, þegar hann heimtaði að fá að tala í útvarp um þátttöku Is- lendinga í Parísarráðstefnunni í sumar, en varð að gjalti fyr- ir framan til.jóðnemann. Átti Sigfús Sigurhjartarson að reyna að bæta flokknum það KURB tjón er hann hlaut af framkomu Einars og ræða í áheyrn alþjóð- ar innflutningstillögur þær, er Hermann Jónasson og Sigtrygg ur Klemensson fluttu í Fjár- hagsráði, og almenningi er kunn ugt um af blaðaskrifum. Sigfúsi Sigurhjartarsyni tókst ekki að rjetta hlut flokks síns. Honum tókst ekki að kveikja neina sundrungu meðal stjórn- arflokkanna einsog hann kvaðst hafa ætlað sjer, með útvarps- umræðum þessum. Honum tókst ekkert af því, sem har.n ætlaði sjer, nema það, að end- urtaka nokkuð af þeim blekk- ingum og vaðli í útvarpið, sem Þjóðviljinn flytur dagiega. Þráðurinn í ræðum þeirra þingmanna stjórnarflokkanna, sem þátt tóku í umræðum þess- um, var sá: Að mestu máli skifti í innflutningnum, að fylgt sje fram þeirri megin- reglu,- sem sett var í stjórnar sáttmálann, að þeir innflytj- endur, sem geta boðið bestar vörur fyrir lægst verð, eigi að fá að njóta sín sem best. Þetta er að láta frjálst framtak í út- vegun nauðsynjant'a, koma al- menningi í landinu að gagni. Hafi þeir sem stjórna inn- flutningnum þetta í huga, þá er fylgt þeirri grundvallarreglu í viðskiptum, sem mestu máli skiftir fyrir almenning, sem verður að búa við þau viðskipta kjör er verslun landsmanna býr honum. Kosningar og andstaða. VIÐ þingkosningarnar í Dan- mörku á þriðjudaginn var, fengu kommúnistar níu þingmenn kjörna. Fyrir þessar kosningar voru þingmenn kommúnista þar í landi 18. Við þessar kosningar fjekk kommúnistaflokkurinn 114,000 atkvæðum færra en hann f jekk fyrir tveim árum, er þingkosingar fóru þar fram. Formaður kommúnistaflokks- ins, er slíka útreið fjekk, Axel Larsen, Ijomst að orði x blaði sínu á þá leið, að ekki væri við öðru að búast, en flokkurinn biði ósigur. Því aldrei hefði nokkur flokkur í D.anmörku fengið eins samstilta andstöðu eins og kommxmistar við kosn- ingar þessar. Eftir því sem frjest hefur frá umræðum blaða þar, eftir kosií- ingarnar, er ekki mikið um kommúnista talað þar lengur. Menn skoða sem sögu þeirra sje lokið í landinu, eða að minsta kosti sje útilokað, að áhrifa þeirra gæti nokkurs að ráði, í dönskum stjórnmálum eftir þetta, á meðan þar fær að rikja lýðræðis stjórnarfar. Að vísu þóttust menn vita, að fylgi kommúnista færi mink- andi, áður en upp komst um end urreisn kommúnistasambands- ins. En eftir að auglýstar voru fyrirskipanir þær, sem kommún- istar hafa fengið frá yfirboður- um sínum, um að efna til skipu- lagðrar skemdarstarfsemi um gervalla Vestur-Evrópu, má geta nærri, að fylgi þeirra hrakar. Kosningarnar í Noregi, VIÐ bæjar- og sveitarstjórnar R JEF kosningarnar í Noregi á dögun- um mistu kommúnistar eftir 150 fulltrúa. Þar unnu allir hinir borgaralegu flokkar á. Jafnaðar menn urðu einnig fyrir nokkru tapi fulltrúa enda þótt atkvæða- tala þeirra væri hærri, en við síðustu kosningar. En þátttaka í kosningunum var mun meiri en hún hafði verið við síðustu'kosn ingar, og kom hin aukna þátt- taka fyrst og fremst borgara- legu flokkunum að gagni. í frjálslyndu sænsku blaði, þar sem rætt er um kosningarn- ar í Noregi, er komist að orði á þessa leið: Það er greinilegt, að ástandið í utanríkismálunum hefur gert það að verkum, að kommúnistar hafa tapað í kosningunum. Síð- an Sovjet-Rússar endurvöktu ,,Komitern“ hefur andstaðan farið vaxandi gegn hinum ,,f jar- stýrðu“ flokkum kommúnista í álfunni. En þeir flokkar fá aukið fylgi, sem halda uppi eindreg- innni andstöðu gegn kommún- istum. í Noregi hefur kjósendum vepið í fersku minni, afstaða norskra kommúnista til Sval- barðamálsins. Þá, sem ætíð endranær, sýndi það sig að leið- togar kommúnista eru viljalaus verkfæri í höndum þeirra manna, sem hafa stjórnartaum- ana í höndum sjer austur í Moskva. Þegar hagsmunir fóst- urjarðarinnar eru aðrir, en hags rounir Rússlands, þá eru komm- únistar ætíð hinir skeleggustu málflutningsmenn fyrir hinn rússneska málstað. I Noregi er mönnum orðið þetta fullkomlega ljóst, segir blaðið. Síðan hefur það sem sje kom- ið á daginn að danskir kjósendur eru eindregnari í því en Norð- menn að snúa baki við kommún- istum. Sama tóbakið. , ÞEGAR rætt er hjer á landi um ánauð kommúnista undir hið erlenda vald, verða þeir jafnan hljóðir við. Ekki er það opin- bert gert, að íslenska flokks- deildin sje í hinu ný auglýsta alþjóðabandalagi. Og má gera ráð fyrir, að ekki þyki vænlegt til fylgis fyrir kommúnista hjer, að nokkur auglýsing verði um það gefin. — En samstarfið er jafn víst hvort sem það er meira eða minna opinbert. Á fundinum í Varsjá, þegar kommúnistar auglýstu alþjóða- samstarf hinna „fjarstýrðu" flokksdeilda, eins og hið sænska blað kemst að orði, flutti ritari miðstjórnar kommúnistaflokks- ins, Shdanov, ræðu, þar sem hann sagði m.a.: Grundvöllur- inn fyrir stjórnmálastefnu Rússa, er skifting heimsins 5 tvær andstæðar samsteypur. ■— Það var mjög leitt að kommún- istaflokkar í sumum Evrópu- löndum, skyldu taka mark á upplausn ' alþjóðabandalags kommúnista, sem auglýst var árið 1943. Náin samvinna milli kommúnistaflokka allra landa er nauðsynleg og sjálfsögð". Ekki dettur Þjóðviljamönnum í hug að dylja það, að þeir sjeu þátttakendur í því nána sam- starfi, sem yfirboðarar þeirra telja „sjálfsagt og nauðsyn- legt“. Laugardagur 1. névember Fjárliagurinn. INNAN skamms koma fjár lögin til umræðu. Hefur fjár- málaráðherra nú fyrir nokkn* lagt frumvarpið fyrir þingið. Dregur nú að því, að kunnugt verði hvernig stjórnarflokkarn ir hugsa sjer að stýra eigi út úr þeim erfiðleikum, sem nú tefla atvinnuvegum landsmanna í fullkomna tvísýnu, og fjárhag þjóðarinnar í voða. Enn sem komið er, er það kommúnistaflokkurinn einn sem hefur ákveðna stefnu í því máli. Og fylgir henni fram með offorsi, eins og þeim „fjarstýrða- flokki“ er lagið. Stefnan er sú, í stuttu máli, að „gera allt v.U- laust, þar sem því verður við- komið“, eins og einn fylgis- manna kommúnista komst nð orði á dögunum. Stefnan. STEFNU sinni í atvir.nu- og f jármálum hyggjast kommúníst ar að koma fram hjer á landi, með því að láta verðbólguna fá að „njóta sín“ sem mest. Þegar gerðar eru ráðstafanir sem að því miða, að forða þjóð- inni frá því, að safna skuldum, þá segja kommúnistar að verið sje að búa til kreppu í landinu. Eins og hægt sje að telja nl- menningi trú um, að við, 1ÍUI eyþjóð út í reginhafi, geturn haldið áfram að veita okkur eitt og annað, sem stórþjóðir hafa orðið að neita sjer úm i mörg ár, og hafa ekki efni á enn í dag. Þegar stefnt er að því, að sam ræma verðlag á íslenskum af- urðum við afurðaverð keppi- nauta okkar, og forðast með því, að allar okkar afurðir verði ó- útgengilegar, en utanríkisversl- un okkar verði brátt að engu, og atvinnuleysi steðji að þegur verið er að reyna að forðast allt þetta, þá segja hinir forhertu kommúnistar hjer, eða eru látn- ir segja að verið sje að efna til atvinnuleysis meðal íslend- inga(!) En þegar það er öllum lýðura Ijóst, að kommúnistar flytja öfugmæli sín samkvæmt skip- un, og þeir eru með þessu að fylgja fyrirmælum húsbæn<la sinna um það að stöðva íslenskt atvinnulíf koma hjer.á allshe.rj- ar atvinnuleysi, og jafnvel a3 kippa fótum undan frelsi og sjálfstæði hins nýstofnaða íýð- veldis okkar, þá er ekki senni- legt að þeir vinni áformum sín- um fylgi. Menn geta að minsta kosti gert sjer fulla grein fyr- ir, hvar í flokki sem þeir standa, hver er tilgangur hinna íslensku kommúnistaforingja, hvað þeir ætla sjer, til að þóknast yfir- boðurum sínum. Framleiðsla og ' „fórnir“. ÞEGAR rætt er um ráðstaf- anir til þess að tryggja atvinnu og framleiðslu landsmanna, og verðlag afurða, sem geri þær söluhæfar, er oft talað um, að landsmenn þurfi að koma sjer saman um, að færa meiri eða minni fórnir. En jeg fæ ekki sjeð, að þnð sjeu nein fríðindi, sem menn Framh. á bls. Ð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.