Morgunblaðið - 11.11.1947, Síða 1
16 síður
34. árgangur 257. thl. — Þriðjudagur 11. nóvember 1947 ^ísafoldarprentsmiðja h.f.
Þjóðir Vestur Evrópu hafa athafnafrelsi
Vjelbáfi'r slranJar
á Isafirði
1 NORÐ-AUSTAN veðrinu í
íyrrinótt, strandaói m.s. Scerán
frá Siglufirði, i botni ísafjarðar.
Engan af áhöín skipsins sakaði.
Þegar veður tók að versna,
lögðu skipverjar Særúnu við
festar. Vegna jjess hversu botn-
inn þar er lítt grýttur, gat ank-
eri skipsins hvergi náð góSum
haldbotni og rak skipið undan
veðrinu upp í f jöruna. 1— Ekki
töldu skipverjar sig í neinni
hættu og hafa þeir síðan látið
fyrirberast í skipinu. Botninn er
leirkendur mjög.
Varðskipið A2gir er farið á
strandstaðinn og eru líkur tald-
ar góðar til þess að skipið náist
út mjög lítið skemt. Skipstjóri
á Særúnu er Jón Jóhannsson.
Eigandi er Sncrri Stefánsson.
Takmörkun fresfun-
arvalds bresku lá-
yarðadelldarsnnar
London í gærkvöldi,
HERBERT Mcrrison lagði í dag
í neðri málstofu breska þingsins
fram frumv., sem miðar að tak
mörkun frestunarvalds lávarða-
£
deildarinnar. Er til þess ætlast
í frumvarpinu, að frestunarvald
ið verði stytt úr tveimur í eitt
ár. .
Morrison sagði í framsögu-
ræðu sinni, að í rauninni væri
lávarðadeiidinni ætluð alt of
víðtæk völd. Sagði hann, að
deildin hefði að vísu ekki ollið
íhaldsmönnum neinum erfiðleik
um meðan þeir voru við stjórn
en afstaða hennar væri ekki hin
sama til verklýðsstjórnar.
Einn af fulltrúum stjórnar-
andstöðunnar talaði á eftir
Morrison.‘Hjelt hann því meðal
annars fram, að frumvarpið um
skerðinguna væri í raun og veru
byggt á röngum íorsendum enda
hefði lávarðadeildin ekki tafið
fyrir neinum þeim málum, sem
stjórnin hefði lagt fram.
Enginn vafi mun á því, að
frumvarp Morrisons verði sam-
þykt. — Reuter.
leyna eS samræma
flllögur sínar
Lake Success, N. Y.
í gærkvöldi.
NOKKUÐ mun nú hafa áunnist
við að samræma tillögur Banda-
ríkjanna og Rússlands um lausn
Palestínudeilumálsins. Sátu full-
trúar beggja þjóða á fundi í dag,
en samkomulagsumleitanir milli
þeirra hafa nú staðið yfir í
nokkra daga.
Hemlli Ellsabelar og Kounlballens
„Windelsham Moor,“ í Surrey, verður fyrst um sinn heimili
Elísafoetar Engiandspiiasessu og Philips Mountfoattcns éftir brúð
Itaup þeirra, en eins og áður hefur 'verið skýrt frá, brann höll
sú, sem upphaflcga hafði verið ráðgert að ungu kjónin byggju
í. Hjei er mynd af Windelsham Moor.
Nokkur ríki eru andvíg
endurreisn álfunnar
Marshall gerir grein fyrir hjálpar-
ástlun sinni
Washington í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
MARSHALL utanríkisráðherra, flutti í dag ræðu fyrir utanríkis-
málanefnd beggja deilda Bandaríkjaþings, og skýrði þar frá að-
stoð þeirri, sem kennd er við hann og ætlast er til að Bandaríkin
láti Vestur-Evrópu í tje. Gat utanríkisráðherrann þess meðal ann-
ars, að ætlur.in væri að gera sjerstakan samning við hverja þeirra
16 þjóða, sem á sínum tíma sendu fulltrúa á Parísarráðstefnuna
og aðstoðarinnar munu njóta. Mundu* sámningar þessir miða að
þvi, að hinni væntanlegu aðstoð yrði varið til sem nytsamlegastra
hluta.
Um 62 þús. má! síldar
haía veiðst tii bræðslu
Hingað fsárusf á sunnudag um 11 |ás. æél.
------r---
VEGNA norðanstorms í gær, fóru herpinótabátar ekki tii
eiða í Hvalfirði. A sunnudaginn vár hinsvegar óhemju veiði í
Hvalfirði og hinn mesti fjöldi skipa að veiðum, eða rúmlega 60.
Sem dæmi upp á veiðina á sunnudag, má getá þess, að vjelskipið
Helgi Helgason fjekk 1500 mál í þrem köstum á um það bil 5
klukkustundum. En hingað kom skipið með um 1900 mál. Nokk-
ur skip sþrengdu nætur sínar. A sunnudag bárust hingað til
hræðslu á Siglufirði um 12000 mál síldar.
Alls hafa nú aflast í Hvalfirði um 34 þúsund mál síldar. —
Reknetabátar munu hafa aflað vel í gær.
Ný ganga,
Skipstjórar á síldveiðiskip-
unum hafa skýrt svo frá, að
þeir teldu það skoðun sína, að
á sunnudag hafi ný mikil síld-
arganga hafist inn í Hvarfjörð.
Skipstjórinn á Helga Helgasyni
lóðaði nokkrum sinnum er
skipið var á leið hingað til
Reykjavíkur og taldist honum
svo til að hann hefði orðið var
við fimm síldartorfur. Sagði
hann þær hafa verið mjög
þjettar.
Á sunnudag komu síldveiði-
skipin er láta afla sinn í flutn
ingaskip norður til Siglufjarð
ar, með samtals um 12000 mál.
Nokkur skip urðu fyrir því ó-
happi að nætur þeirra sprungu
undan þunga síldarinnar og
mistu sum þeirra þannig góð
%
köst.
Hæstu skip.
Aflahæstu skip síldveiðiflot
ans í Hvalfirði er Fagriklettur
frá Hafnarfirði með um 4200
mál. Næst koma Rifsnes og
(Framhald á bls. 12)
Visktffasamningar
Sreta og Rússa
London í gærkvöldi.
ÁKVEÐIÐ hefur nú verið, að
taka upp að nýju samningaum-
leitanir milli Bretlands og Rúss-
lands um viðskifti þessara landa.
Var gerð tilraun til samkomu-
lags í sumar, en hún fór út um
þúíur.
Fullyrt er í Bretlandi að samn
inganefnd verði send til Moskva
nú um mánaðamótin, en ekkert
mun enn ákvcðið um, hverjir
verði í neíndiuni.
Bretar munu aðallega vilja
selja Rússum ýmiskonar vjelar,
en fá matvæli i staðinn.
-— Reuter.
Aukakostna&ur
NEW YORK : — Trygve Lie, aðal-
ritari S, þ., hefur tjáð frjettamönn
um, að það mundi að líkindum
hafa um mrlljón dollara aukakostn
að í för með sjer að halda næsta
alsherjarþing Sameinuðu þjóðanna
í Evrópu.
HIÐ nýja vitaskip,, Hermóð
ur, lagðist að Grófarbryggju
milli kl. 10 og 11 í gærlcvöldi.
Guðbjartur Olafsson hafn-
sögumaður, sagði blaðinu, að
sjer virtist Hermóður vera sjer
lega glæsilegt skip. Og það
sem jeg gat sjeð í fljótlegheit-
um, virtist vera mjög vandað,
sagði Guðbjartur.
Hermóður, er sem kunnugt
er eign Vitamálastjórnarinnar,
og er skipið bygt í Svíþjóð.
Á leiðinni hingað heim
hrepti skipið slæmt veður eink-
um er nær dró landi, en skip-
verjar ljetu mjög vel yfir því.
Eisn engin sljórnar-
myndun í Danmörku
Kaupmannahöfn í gær.
Einkaskeyti til Mbl.
TILRAUNIR til að mynda sam-
steypustjórn borgaraflokkanoa
og jafnaðarmanna, eða borgara-
lega meirihlutactjórn með íhalds
mhnnum, vinstriflokknum og
radikölum, hafa nú algerlega
farið út um þúfur. Strandaði
stjórnarmyndunin aðallega á
Suður-Sljesvíkur málinu.
Athugaðir eru nú möguleikar
á því, að íhaldsmenn og vinstri-
menn myndi minnihlutastjórn,
en ekki er búist við að það beri
árangur.
Liklegast er nú talið, að Hed-
toft Hansen myndi minnihlut.a-
stjórn, með eða án þátttöku radi
kala. — Páll.
LONDON: — Fulltrúar utanríkis-
ráðhcrrauna hafa enn ekki getað
koraið sjer saman um, hvaða lönd
eigi að fá að taka þátt í undirbún-
ingi friðarsamrir.ga við Þjóðverja.
Hjálp til sjálfshjálpar.
Marshall lýsti aðstoðaráætl
uninni þannig, að. ætlunin væri
í raun og veru að hún yrði
hjálp til sjálfshjálþar. Mundu
Bandaríkjalánin til hinna 16
þjó$a fara eftir getu þeirra til
endurgreiðslu, en aðstoðin ann
ars að mestu leyti koma fram
í vörulánum. Þó mundu pen-
ingálán koma til greina, þar
sem Bandaríkin gætu ekki lát
ið í tje þær vörur, sem helst
væri óskað eftir.
Andvígir endurreisn.
Marshall vjek nokkrúm orð-
um að Parísarfundinum, og á-
kvörðun þjóða í Austur-Evrópu
um að senda ekki fulltrúa á
ráðstefnuna. Sakaði hann and-
stæðinga hjálparframlagsins
um að vilja ekki endurreisn Ev
rópu, en sagði um þær 16 þjóð
ir, sem tjáðu sig fúsar til að
þiggja hjálpina, að sýnilegt
væri, að þær hefðu athafna-
frelsi og gætu farið þær leiðir,
sem þeim þóknaðist.
Stefna að endurreisn.
Bandaríski utanríkisráðherr
ann sagði og, að þrjár af vold-
ugustu bandamannaþjóðunum
hefðu sett sjer það takmark,
að vinna saman að endurreisn
Evrópu, en sýnilegt væri, að
ein stórþjóð ætlaði að fara aðr
ar leiðir-.
Onnur hjálp.
Auk aðstoðar þeirrai', sem
Marshall fer nú fram á að
Bandríkjaþing veiti Evrópu-
þjóðunum, tjáði hann fundi ut
anríkisnefndanna í dag, að
hann mundi biðja um aukafjár
'veitingu til að standa straum
af hernámskostnaði Bandaríkj
anna, auk þess sem nauðsynlegt.
mundi að ljá Kínverjum nokkra
aðstoð.
(Framhald á bls. 12)