Morgunblaðið - 14.11.1947, Side 10

Morgunblaðið - 14.11.1947, Side 10
10 MORGVNBLAÐIÐ Föstudagur 14. nóv. 1947 mAnadalur háldóacja ej'tlr JjacL cJdondo n &• 55. dagur Þegar hún var komin inn í stofuna fleygði hún sjer í hæg- indastólinn og fór að hágráta. Hún heyrði alt sem fram fór í eldhúsinu. „Jeg verð hjer að minsta kosti þessa viku“, sagði kynd- arinn, „jeg hefi greitt húsaleig- una fyrirfram“. „Það er nú stryk í þeim reikn ing“, sagði Billy hægt og Sax- on heyrði að reiðin sauð í hon- um. „Ef þú vilt halda heilsu, þá skaltu hypja þig undir eins á burt hjeðan með alt þitt skran. Annars mun jeg fleygja þjer út“. „Já, jeg veit það að þjer eruð áflogahundur“, sagði Harmon. En meira fjekk hann ekki sagt. í sama bili heyrði Saxon að högg reið og samstundis heyrðist brothljóð í glugga. Svo heyrði hún stympingar og eftir litla stund að einhver valt nið- ur tröppurnar. Svo heyrði hún að Billy kom aftur inn í eld- húsið og fór að tína upp gler- brotin, Þar næst þvoði hann sjer og raulaði á meðan. Svo kom hann inn í stofuna. Hún þorði ekki að líta upp. Hún var bæði hrygg óg reið. Hann stóð þarna nokkra stund eins og hann vissi ekki hvað, hann ætti af sjer að gera. Að lokum sagði hann: „Jeg þarf að fara á fund í fjelaginu. Ef jeg kem ekki aft- ur, þá er það vegna þess að þorparinn hefir kært mig fyrir lögreglunni“. Hann opnaði hurðina, en staðnæmdist á þröskuldinum. Hún vissi að hann horfði á sig. Svo heyrði hún að hurðinni var lokað og hann gekk út. Hún áttaði sig ekki fyr en hún heyrði hávaða í börnum úti fyrir. Þá var komið kvöld. Hún þreifaði eftir lampa og gat kveikt á honum. Hún fór fram í eldhúsið, stóð þar og starði á matinn, sem aldrei var fram- reiddur. Vatnið í kartöflupott- inum hafði soðið upp og þegar hún lyfti lokinu af kom sterk brunalykt upp úr pottinum. Af gömlum vana þvoði hún pott- inn og hreinsaði og skar svo kartöflurnar í 'sneiðar og hugð ist steikja þær daginn eftir. Hún var eins og í leiðslu og í leiðslu gekk hún svo inn í svefn1 herbergið og háttaði. Hún var svo yfirkomin af þreytu að hún sofnaði þegar. Þetta var fyrsta nóttin síðan hún giftist að Billy var ekki hjá henni. Og um morguninn skyldi hún ekkert í því að hún skyldi hafa getað sofið, að hún skyldi ekki hafa legið andvaka alla nóttina af kvíða og hræðslu. Þá Varð hún þess vör að hún hafði verk í handleggn- um, einmitt þar sem Billy hafði tekið á henni. Hún fletti upp erminni og sá þá að handlegg- urinn var kolblár. Henni hnykti við, ekki vegna þess að maður- inn, sem hún elskaði skyldi hafa farið þannig með hana, lieldur vegna þess að augna- bliks snerting skyldi geta meitt hana svona. Hann var hræði- lega sterkur. Ósjálfrátt fór hún að hugsa um hvort Charley Long mundi vera jafn sterkur. Það var í rauninni ekki fyr en hún van komin á fætur og hafði kveikt upp eld, að hún fór að átta sig á því, sem gerst hafði. Billy hafði ekki komið heim — hann hafði því verið handtekinn. Hvað átti hún að gera? Atti hún að láta hann eiga sig, hlaupast brott og byrja nýtt líf? Það var frágangssök j að búa með manni, sem hag- aði sjer eins og hann hafði gert. Var það nú frágangssök? spurði hún svo sjálfa sig. Hann var þó maðurinn hénnar og hún hafði lofað að vera með honum í blíðu og stríðu. Ef hún hljóp frá honum þá var alt glatað. Hvað mundi móðir hennar hafa gert í hennar sporum? Hún mundi ekki hafa gefist upp. Hún þorði að horfast í augu við erfiðleikana. Og Saxon fanst að hún mætti ekki vera minni. Og þegar öllu var á bptninn hvolft þá var Billy góður eiginmaður, betri en nokkur annar, sem hún hafði haft spurnir af. Og nú rifjaðist upp fyrir henni ýmis- legt úr sambúð þeirra, hvað hann hafði verið nærgætinn og góður oft, og hvað hann hafði oft sagt það í einlægni að ekk- ert væri of gott fyrir hana. Rjett fyrir hádegi kom gest- ur. Það Bud Strothers, fjelagi Billys úr verkfallsverðinum. Hann sagði henni, að Billy hefði verið tekinn fastur og hann hefði neitað að setja trygg ingu, og hann vildi ekki fá lög- fræðing til að verja sig. Hann hefði verið dæmdur til að greiða sextíu dollara sekt, eða sitja í fangelsi í mánuð ella. Hann hefði bannað fjelöguih sínum að greiða sektina fyrir sig. „Hann er vitlaus“, sagði Bud. „Það er ekki hægt að koma vit- inu fyrir hann. Hann krefst þess að sitja af sjer sektina. Jeg ímynda mjer að hann hafi drukkið of mikið að undan- förnu og sje orðinn ruglaður út af því. En hann bað mig fyr- ir brjef til yðar. Hjer er það. Og ef þjer þurfið á einhverri hjálp að halda þá skuluð þjer láta mig vita. Við viljum allir hjálpa konunni hans Billy. Þjer eruð ein af oss. Hvernig eruð þjer stödd með peninga?“ Saxon sagði að hún þyrfti ekki á neinni hjálp að halda. Þá kvaddi hann og hún opnaði ekki brjefið fyr en hann var farinn. Það var á þessa leið: „Elsku Saxon. Bud Stroth- ers hefir lofað því að færa þjer þetta brjef. Þú skalt ekki vera óróleg mín vegna. Jeg ætla að taka út refslnguna, og jeg á hana skilið, eins og þú veist. Jeg tapaði mjer algjörlega, og nú iðrast jeg þess að jeg skyldi sleppa mjer. Þú mátt ekki koma að vitja um mig. Ef þig vantar peninga þá geturðu fengið þá hjá fjelagsstjórninni. Gjaldker- inn er ágætur maður. Jeg losna eftir mánuð. Og Saxon mín, þú veist að jeg elska þig og reyndu þess vegna að fyrirgefa mjer í þetta sinn — þú skalt ekki þurfa að gera það oftar. Billy“. Rjett á eftir komu þær Maggie Donahue og frú Olson til þess að hughreysta hana. Þær voru svo nærgætnar að þær mintust sem allra minst á óhapp Billys, og gáfu henni fremur í skyn að hún skyldi leita til sín, heldur en að þær byði henni hjálp beinlínis. Um kvöldið kom Jarnes Harmon. Hann var dálítið halt- ur, en Saxon fanst aö nann. reyndi að harka af sjer. Hún ætlaði að biðja hann fyrirgefn- ingar á meðferðinni en hann vildi ekki heyra það nefnt. „Mjer dettur ekki í hug að álasa yður“, sagði hann. „Þjer gátuð ekkert að þessu gert. Maðurinn yðar var ekki með öllum mjalla og vildi endilega deila illdeilum við einhvern, og það var aðeins mitt gamla ólán að jeg skyldi verða fyrir honum“. „En það er engin afsökun. . “. Kyndarinn hristi höfuðið. „Jeg kannast við þetta“, sagði hann. „Jeg var ekki betri hjer áður, þegar jeg drakk mig full- an. Mjer varð^mörg skyssan á þá. Nú sje jeg eftir því að jeg skyldi kæra hann, en jeg var fjúkandi reiður og það reið- ur og það reið baggamuninn. Síðan mjer rann reiðin hefi jeg iðrast þess“. „Það er fallegt af yður að segja þetta“, sagði hún. En henni lá þó annað á hjarta og hún vissi varla hvernig hún átti : að koma orðum að því. „Þjer -----þjer-megið ekki — — vera , hjer — — af því að hann er farinn“, stamaði hún. Nei. Það væri ekki sæm- andi“, Sagði hann. „Jeg ætla nú að ganga frá dótinu mínu og svo sendi jeg vagn eftir því klukkan sex,- Hjerna er úti dyralykillinn". ! Hún varð að neyða hann til þess að taka við þeim pening- um, sem hann hafði greitt í húsaleigu fyrirfram. Hann kvaddi hana svo með handa- bandi og bað hana að leita til sín ef henni lægi á. „Yður er það alveg óhætt“, sagði hann. „Jeg er kvæntur maður og á tvo syni. Annar þeirra veiktist — það er eitt- hvað í lungunum — og jeg varð að senda konuna með hann á hressingarhæli í Arizona. Járn- brautarfjelagið hjálpaði mjer að greiða kostnaðinn“. Þegar hann var farinn var hún að hugsa um hvernig á því gæti staðið að svona góður mað ur skyldi vera til í þessum bölv aða heimi. Drengurinn hennar ‘Maggie Donahue fleygði kvöldblaðinu inn til hennar. Þar var hálfur dálkur um Billy og það var ekki fallegt, sem um hann var sagt, Það var sagt, að hann hefði verið með glóðaraugu eft ir eldri áflog þegar hann kom fyrir dómarann. Blaðið lýsti honum sem óþokka, illinda- segg og áflogahundi, og það væri skömm fyrir verklýðsfje- lag hans að hafa hann í sínum hópi. Hann hefði játað það að hafa ráðist á alsaklausan mann og algerlega ófyrirsynju. Og ef þeir væri þannig allir vagn- stjórarnir, þá mundi heppileg- ast fyrir borgarfjelagið að leysa upp fjelagsskap þeirra og gera þá alla útlæga úr borginni. Að lokum sagði blaðið að hann hefði fengið alt of vægan dóm. Hann hefði að minsta kosti átt að fá sex mánaða fangelsi. En dómarinn hefði afsakað sig með því, að hann hefði ekki mátt dæma hann í sex mánaa fang- elsi vegna þess að öll fangelsin væri full af mönnum, sem hefði gerst sekir í óspektum síðan verkföllin hófust. GULLN! SPORÍNN 132. Framundan okkur var allhá hæð, og í áttina að henni stefndum við. Er við komum að hæðinni, sáum við að fimm óvinanna höfðu gefist upp við eltingaleikinn og stöðvað hesta sína. Þeir þrír, sem eftir voru, hjeldu áfram, enda þótt stöðugt drægi í sundur með okkur. Er við hófðum riðið framhjá hæðinni, komum við að grænni flatneskju, sem alþakin var örsmáum mýrarpoll-- um. Jeg sá, að hjer var hætta á ferðinni, en áður en jeg gæti aðvarað Delíu, hafði hestur hennar lent ofan í ein- um pollinum og byrjað að sökkva í fenið. „Kastaðu beislinu til mín!“ hrópaði jeg, um leið og jeg beygði mig íram í söðlinum og greip í tauminn. En í sama andartaki lenti hestur minn einnig í feninu og tók að sökkva. Vatnið skvettist yfir okkur, og jeg var búinn að gefa upp alla von, þegar hestarnir aftur fengu fastá jörð undir fæturna og bröltu upp á þurt land á ný. Aftur þeystum við af stað. Óhappið hafði auðvitað orð- ið þess valdandi, að óvinirnir höfðu dregið talsvert á okk- ur, en þó var jeg farinn að halda, að við ætlúðum að . sleppa, þegar Delía allt í ei«u hrópaði: „Ó, Jack, hesturinn minn er orðinn haltur!“ Og þannig' var því miður komið. Hesturinn var orð- inn draghaltur, og fyrir mig var ekkert annað að gera, en að taka Delíu á bak fyrir framan mig. Skömmu seinna komum við upp á toppinn á háum bakka, og er jeg leit niður fyrir mig, lá við að jeg hróp- aði upp yfir mig af gleði. — Fyrir fótum okkar lá Temple- heiðin, en vinstra megin við okkur sást ofan á þakið á kofa Jóhönnu. „Takist okkur að halda áfram í tíu mínútur enn,“ sagði jeg við Delíu, „erum við sloppin.“ Án frekari tafar riðum við niður bakkann, þeystum framhjá fjárhúsunum og húsarústunum og námum staðar íyrir framan kofa Jóhönnu. Við stukkum af baki, en um ieið komu tveir riddaranna í ljós uppi á bakkanum, og ]eg gat sjeð, að þeir höfðu komið auga á okkur. AUGLY SING ER GULÍS IGILBI — Má jeg ekki bjóða yður mjög græðandi og gott hármeð- al, sem eykur hárvöxtinn á undraverðan hátt. ★ — Heyrðu vinur, sagði held- ur tötralega klæddur maður við mann, sem átti leið um Hafn- arstræti, gefðu mjer tíkall fyr- ir kaffi. — Já, en kaffi kostar ekki nema 5 krónur. — Það veit jeg vel, var svar- ið, en jeg ætlaði að bjóða þjer með mjer. ★ Kona nokkur, sem var feitari en góðu hófi gegndi, áleit að fitan gæti mikið stafað af líf- erni hennar, en hún hafði verið mjög reglusöm um æfina. Læknirinn var einnig á sama máli, að lífernið gæti haft mik- il áhrif hvað holdarfar snerti. — Haldið þjer þá, sagði kon- an heldur dapurlega, að einasta ráðið til þess að jeg megrist sje að jeg leggist í óreglu. ★ Biðstofa læknisins var full. Allir stólar voru löngu upp- teknir og fjöldi manns stóð. Fyrst í stað var haldið þarna uppi fjörugum samræðum, en brátt fór flestum að leiðast bið in og dauðaþögn var í biðstof- unni. Loks stóð gamall maður á fætur og heyrðist segja um leið og hann gekk út: :— „Nei, þá held jeg að betra sje að fara heim og deyja eðlilegum dauð- daga“. ★ Breski líffræðingurinn dr. Julian Huxley, sem vinnur nú hjá United Nations Educational Scientific, and Cultural Organ- ization, hitti eitt sinn allþektan amerískan stjórnmálamann. — „Jeg er dr. Julian Huxley frá UNESCO“j kynti hann sig. „O, það gleður mig sannar- lega að hitta fulltrúa frá þess- ari fámennu þjóð, sem lagði þó syo mikinn skerf til sigurs hinna sameinuðu þjóða“, sagði st j órnmálamaðurinn. Ef Loftur getur þaS ehki — Þá hver?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.