Morgunblaðið - 14.11.1947, Blaðsíða 12
VEÐLRÚTLÍTÍÖ: Faxaflói
UMRÆÐUR um sterka ölið
Hjer birtist mynd af hinu nýkjörna Stúdeníaráði Háskóla íslands (talið frá vinstri): —
Ujálmar Olafsson, stud. phil. og Árni Halídórsson, stud. jur., fulltrúar Fjelags róttækra stúd-
enda. Jón Hjaitason, stud. -jur., frá Fjelagi frjálslyndra stúdenta, Jón P. Emils, stud. jur. (rit-
ráðsins), frá Fjelagi lýðræðissinnaðra sósíalista, Tómas Tómasson, stud. jur. (formaður
»áðsins), Víkingur H. Arnórsson, stud. med. (gjaidkeri), Bragi Guðmundsson, stud. polyt., Jón-
wfrGíslason, stud. theol. og Páll Líndal, stud. jur., allir frá Vöku, Fjel. lýðræðissinnaðra stúdenta.
2000 farfieiar féru um
fii¥ilerfliig¥ö!l s ohfóber
Vjelar frá M flugfjelögum lenfu á
vellinum á einum mánuði.
] OKTÓBERMÁNUÐI 1947 ferðuðust yfir 2000 farþegar um
Keflavíkurflugvöll á milli Evrópu og Ameríku, með samtals 73
millilandaflugvjelum. Hjeðan fóru 65 farþegar, en hingað komu
47 farþegar með þessum flugvjelum. Flutningur með vjelunum
var 33.582 kg. af farangrr og 15,234 kg. af pósti (samsvarandi
1.340.592 brjef, ef miðað er við 88 brjef í kílói). Þar af til ís-
lands voru 1.712 kg. af flutningi og 264 kg. af pósti.
14 fhigfjelög
Samtals 14 flugfjelög höfðu
bjer viðkomu, þar af vc-ru Ame-
rican Overseas Airlines og Scan-
dínavian Airlines System rneð
flestar viðkomur, eða 10 flugvjel
ai hvort. Flugvjelar frá eftir-
/a.randi flugfjelögum komu enrr-
fremur við á Kcflavíkurflugvelli
(tekið eftir fjölda flugferða):
Bfitish Overseas Airways Cor-
poration, Trans Canada Airlines
U. S. Air Transport Command,
í)cean Air Tradeways, Seaboard
& Western Airlines, Royal
Dutch Airlines (K.L.M.), Couth
Amencan & Far Eastern Air-
Imes, Skyways International,
Air France, Loftleiðir h.f. Sky-
v/ays Ldt., og einkaflugvjelar
notuðu ísland sem mikilvægan
viðkomustað í ferðum þeirra yf-
ir Atlantshafiðl
/ beinu, satnhatuli vffi
mr'rga flugvclli
Með þessum flugferðum var
Keflavíkurflugvöllur í beinu
sambanfli við flugvelli í Osló,
Kaupmannahöfn, Stockhólmi,
Amsterdam, París, Londón,
Piestwick, Shannon, Grænlandi.
Goose Bay (Labrador), Gander
og Stephenvillie (Newfound-
land), Sidney (Nova Scotia),
Montreal og New York.
24 ferðir milli
Reykjavíkur og Keflavíkur
í oíangreindum t ölum er ekki
tekið með ferðir flugvjelarinnar
,,090“, sem er Skymastervjel,
eign Iceland Airport Corpora-
tion, og notuð til flutninga á
starfsíólki og vörum milli New
York og Keflavíkurflugvaliar,
vegna reksturs flugvallarins og
í sambandi við bvggingarfram-
kvæmdir. Aftur á móti er þarna
talið með farþegar, póstur og
flutningur fiutt af 'U. S. Air
Transport Command, miili
Bandaríkjanna og Þýskalands,
til þess að halda uppi sambandi
við setulið Bandaríkjanna í
Þýskalandi.
Á sama tíma flaug Flugfjelag
íslands 24 ferðir milli Reykja-
víkur og Keflavíkur, og ennfr.
notuðu Keflavíkurflugvöllinn all
margii' íslenskar einkaflugvjel-
ar.
llruðurgjajirnar sýndar
LONDON: — Tíu dógum eftir
giftingu Elizabeth prinsessu og
Mountbattens, verður haldin sýn-
ing á brúðargjöfum þeirra í St.
Jamcs höllinni.
Rúmleya 100 bílar
með Salmon Knol
LEIGUSKIP Eimskipafjelagsins
Salmon Knot, kom hingað til
Reykjavíkur í gær frá New
York.
Á leiðinni hreppti skipið hið
versta veður, og var það um 15
sólarhringa á leiðinni.
Að þessu sinni flutti skipið
mikið af bílum og munu þeir
hafa verið rúmlega 100. Flest-
ir þeirra fara til Sambands ísl.
samvinnufjelaga, sennilega um
90. Þá fjekk Ræsir eina fimm
og Sveinn Egilsson 6. Kaupfje-
lag Árnesinga, f jekk einn mjólk
urbíla sinna, er sjerstaklega eru
smíðaðir með mjólkurflutninga
fyrir augum. Þá kom einn stór
slökkviliðsbíll, sem sennilega fer
suður á Keflavíkurflugvöll og
tveir stórir almenningsvagnar.
Þrjátíu bílar munu hafa verið
á þilfari skipsins og skemdust
nokkrir þeirra, sem í kössum
voru, er skipið f jekk á sig sjóa.
Sáttasemjarar skip-
aðir fyrir næsfu 3 ár
FJELAGSMÁLARÁÐUNEYT-
IÐ hefur skipað sáttasemjara í
vinnudeilum um næstu 3 ár, frá
10. nóv. 1947 að telja:
í fyrsta sáttaumdæmi: Torfa
Hjartarson, toilstjóra í Reykja-
vík, sem jafnframt er skipaður
ríkissáttasemjari í vinnudeilum.
Til vara: Valdimar Stefánsson,
sakadómara. í öðru sáttaum-
dæmi: Björn H. Jórisson, skóia-
stjóra, ísafirði. Tii vara: Eirík
J. Eiríksson, prest, Núpi, Dýra-
firði. í þriðja sáttaumdæmi:
Þorstein M. Jónsson, bóksala,
Akureyri. Til vara: Óskar J.
Þorláksson, prest, Siglufirði. í
f jórða sáttaumdæmi: Þorgeir
Jónsson, prest, Eskifirði. Til
vara: Kristinn Júlíusson, lögfr.,
Eskifirði.
Síldveiði fiéfif á ný í Hval-
Búisí vil að mikili fjðldi báta fari ú! í dag
RJETT fyrir myrkur í gærkvöidi, var komið mjög sæmilegí
veiðiveður í Kvalfirði. Skip voru þá komin .inn á fjörðinn og
var ekki annaö að sjá, en að skipin hefðu þá þegar hitt á síld.
Ef veður helst óbreytt, en Veðurstofan telur sterkar líkur til
þess, má búast við að hinn mesti fjöldi báta verði að veiðum
í dag*
^Akranes.
Reykvíkingur nær
10.300 feía hæð í
svifflugi
t GÆR náði ungur Reykvíking-
ur, Magnús Guðbrandsson, Ás-
vallagötu 52, 10.300 feta hæð í
svifflugu og er það næst mesta
hæð, sem íslendingur hefur náð
í slíkri flugu.
Magnús, sem var í listflugu
af enskri gerð, var dreginn á
loft hjer á Reykjavíkurflugvelli
og var flogið austur að Sand-
skeiði. Þar yfir var dráttartaug-
inni sleppt. Var hann svo á
sveimi yfir Sandskeiði og ná-
grenni í um það bil klukku-
stuhd. Síðan snarhækkaði hann
flugið og á pokkrum augna-
blikum hafði svifflugan náð
10.300 feta hæð. Þar uppi var
mjög kaít í‘veðri og settist ís-
ing á fluguna. Skyggni var mjög
gott og sá Magnús langt norður
í land. Hann var 5 klst. og 20
mín. í ferðinni og lenti íx Sand-
skeiði.
Mesta hæð sem náðst hefur
hjer á landi í svifflugu er um
12000 fet. Það var Hallgrímur
Jónsson, sem náði því í fyrra-
vetur hjer við Esjuna.
Mikil umferð flug-
vjela
MJÓG miki lumferð erlendra
flugvjela hefur lagt leið sína
um Keflavíkurflugvöll, bæði í
nótt er leið og í fyrrinótt.
Þá nótt komu við á Keflavík-
urflugvelli 12 flugvjelar. Voru
þær allar á leið vestur til Banda
ríkjanna. Komu þær frá Hol-
landi, Bretlandi og víðar að á
meginlandinu. í nótt er leið var
von á milli 5 og 10 flugvjelum.
Þessi mikla umferð liggur í
því, að flugvellirnir í Labrador
og Nýfundnalandi hafa verið
lokaðir'vegna veðurs.
Ukraina fær sæti
■ ■
í Oryggisráði
SAMKOMULAG náðist loks í
dag um kosningu fulltrúa í Ör-
yggisráðið í stað Póllands, sem
samkvæmt reglunum gekk úr
ráðinu, sem fastur meðlimur.
Ukraína var kjörin í stað Pól-
lands. Hafði 11 sinnum áður
verið atkvæðagreiðsla um full-
trúa Indlands og fulltrúa Ukra-
ínu,
Sturlaugur Böðvarsson út-
gerðarmaður á Akranesi, sagði
í viðtali við Morgunblaðið í gær
að því nær allir herpinótabát-
,ar þar, en þeir eru einir 11,
hefðu farið inn í Hvalfjörð.
15 skip.
Skömmu áður en dimma tók,
sagði Sturlaugur, að sjest hefði
til 15 skipa inni í Hvalfirði. —<
Skipverjar af sjö þeirra voru
þá þegar komnir í nótabátana.
Slíkt er sannarlega góðs viti.
Við hafnargarðinn á Akranesi.
Síldar hefir orðið vart rjett
við hafnargarðinn á Akranesi.
Tveir reknetabátar hafa lagt
net sín þar. Svanur heitir ann-
ar þeirra, í fyrradag fekk hann
170 tn. síldar í 25 net og í gær
120 tn. í 20 net. Það er mjög
óvenjulegt að síld gangi þangað
inn.
Reykjavik.
Þegar veður tók að batna um
nónbil í gær, fóru nokkrir bát-
ar hjeðan frá Reykjavík upp í
Hvalfjörð. Ekki höfðu neinar
frjettir borist af aflabrögðum
þeirra í gærkvöldi. Hinsvegar
frjettist, að Rifsnesið myndi
hafa. verið-búið að fá um 1000
mál síldar nokkru fyrir kl. 7.
Nokkuð af þessari síld fjekk
skipið í fyrradag. Um 500 mál
af henni fjekk skipið í einu
kasti.
Einn bátur kom hingað inn
í gærkvöldi og var það m.s.
Björgvin með um 700 mál.
40 skip.
Eftir því, sem næst verður
komist unji þátttöku í herpinóta
veiðunum, er bátafjöldinn nú
orðinn um 40. Stöðugt badast
fleiri og fleiri bátar við.
Ef Veðurstofan reynist sann-
spá, þá ætti í dág að vera sott
veiðiveður. Þegar í gærkvöldi
voru margir bátar að búa sig til
veiða og búast má við að með
morgninum fari meginhluti síld
veiðiflotans til veiða.
Síld í Skerjafirði.
I gærkvöldi bárust Morrun-
blaðinu þær frjettir, að síld
hefði sjest í Skerjafirði. Fróð-
ir menn telja þetta vel hafa get
að verið síld, því sennilega sje
hún komin inn í Sundin og
aðrar víkur hjer við bæinn.
Tyrkland biður um lán
LONDON: — Tyrkland mun fara
fram á það við alþjóðabankann,
að hann láni því 150.000.000 doll-
ara til framleiðsluframkvæmda.