Morgunblaðið - 14.12.1947, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 14. des. 194/
í 2
Undirbúitingi að virkjun
heifavatnsins í Mosfelisdal
verður hraðað
Titlaga borgarsfjóra í bæjarráði
ÖLLUM NAUÐSYNLEGUM undirbúningi að hagnýt-
ingu heitavatnsins í Mósfellsdal, verður hraðað eins og föng
eru á. Bæjarráð ræddi þetta mál á fundi sínum s. 1. föstudag
og bar borgarstjóri fram svohljóðandi tillögu er samþykt var
með samhlióða atkvæðum bæjarráðsmanna:
„Bæjarráð samþykktir að fela hitaveitustjóra að hraða
sem mest öllum undirbúningi undir hagnýtingu heita
vatnsins í Mosfellsdal fyrir Hitaveituna, og heimilar
borgarstjóra og hitaveitustjóra að fá þá aðstoð til þess
verks, sem þeir telja nauðsynlega1'.
Forstjóri Hitaveitunnar, Helgi
Sigurðsson verkfræðingur,
hafði sent bæjarráði brjef, þar
sem hann gefur lýsingu á stað-
háttum og gerir grein fyrir laus
legri áætlun um framkvæmd
verksins.
3 km. vatnsæð.
Helgi Sigurðusson 'leggur
mesta áherslu á, að hraðað verði
byggingu dæluhúrs við Reykja-
hlíð og steypt verði renna fyrir
vatnsæðina frá Reykjahlíð að
Reykjum.^Telur forstjórinn að
leiðin, sem til greina komi, að
farin verði, sje um Skamma-
skarð, yfir Skammadal og að
Reykjum. Leiðin er 3 km löng
,og liggur í um það bil 115 til
120 metra hæð þar sem hæst er.
Erfiðleikar.
Dælurnar við dælustöðina
við 'Reykjahlíð, þurfa að vera
gerðar fyrir helmingi meiri
þrýsting en ella, vegna þess,
hve leiðslan liggur hátt. — Þá
víkur forstjórinn nokkuð að
þeim pípugerðum, er þarf til
virkjunarinnar. Bendir hann á,
að afgreiðslufrestur þeirra sje
yfirleitt mjög langur. — Nokk-
uð víkur hánn og að gjaldeyr-
iserfiðleikum í sambandi við
kaup á nauðsyníegum dælum
til dælustöðvarinnar og öðru
efni.
Ohcppilegur tímí.
Eins og fyr segir, þá eru þess
ar áætlanir Helga Sigurðssonar
mjög lauslegar. Endanlegar
áætlanir og mælingar og ann-
að, er erfitt að gera um þetta
leyti árs. Þá er nauðsynlegt fyr-
ir Hitaveituna að fá verkfræð-
ing til þess að vinna að þess-
um framkyæmdum, því eins og
er, er Helgi Sigurðsson einn
verkfræðingur Hitaveitunnar.
En hann hefur eins og gefur að
skilja í mörgu öðru að snúast
og því ekki mögulegt fyrir
hann að beina starfi sínu ein-
göngu'að þessum virkjunaráætl
unum.
Boranirnar.
A þessum sama fundi var
rætt um boranirnar í Mosfells-
dal. Þar á Reykjavíkurbær nú
rúml. 40 sekl. í borholum sem
undanfarið hafa verið gerðar
þar.
Komið hafði til mála, að einjj,
boranna þaðan yrði fluttur aust
ur að Sogí til borana þar
vegna jarðvegsrannsókna í sam
ban.di við bygging neðanjarð-
arorkuvers þar.
i Bæjarráð samþykkti á þess-
um f.undi sínum, að fela hita-
veitustjóra, að láta gera bor,
er keyptur var af setuliðinu,
nothæfan, en svo verður þessi
bor sendur að Sogi. Verður því
hægt. að vinna að fullum krafti
við boranirnar í Mosfellsdal,
eins og að undanförnu.
Borað hjá Korpúlfs-
stöðum.
Ennfremur samþykkti bæj-
arráð, að hefja skyldi borun
eftir heitu vatni við Korpúlfs-
staði, með einum bor. Skammt
frá bæjarhúsunum er dálítil
heitavatnsuppspretta, með 16
gráðu heitu vatni.
Síld veíðisf á Klepps-
vík í herplnót
LÍTIL veiði var í Hvalfirði
í gær, enda var á kalsa veður.
Nokkur skip komu þaðan og
voru sum þeirra með fullfermi
eftir tveggja daga útivist. En
eins og kunnugt er hefur veð-
ur hamlað veiðum síðustu daga.
í gærkveldi voru komin hing
að til Reykjavíkur 5 skip með
um 4300 mál síldar.
Nokkur skip fóru inn á
Kleppsvík í gær, en þar hefur
síld veiðst vel í landnætur að
undanförnu. Fagriklettur var
meðal þeirra skipa sem þang-
að fóru. Hann einn mun hafa
fengið sæmilega veiði þar. Var
sagt_að hann hefði náð einu
sjerlega góðu kasti. Hin skipin
fengu mjög lítið eða ekkert.
Annars voru frjettir áf veiði
þaðan mjög óglöggar í gær-
kveldi. Sjá mátti Ijós á nokkr-
um skipum og virðist það benda
til þess að einhver veiði hafi
verið.
Skipin sem komu í gær voru
þessi: Andvari RE með 1000
mál, Hvítá 650, Helgi 1500,
Sigrún AK 400 og Helga RE
750. —
Handbók iim logsuðu
og rafmagnssuSu
komln út
LANDSSAMBAND iðnaðar-
manna heíir hafið útgáfu á
handbókum fyrir iðnaðarmenn
og er hin fyrsta þeirra þegar
komin út. Það er handbók í log-
suðu og rafmagnssuðu.
Aðalsteinn Jóhannsson hefir
þýtt bókina og samið ög stuðst
við ýms erlend heimildarrit, er
fjalla um þetta eíni. Bókin er
um 130 bls. að r.tærð og skift
í 12 meginkafla: Logsuða og
logskurður, Logsuðuaðferðir,
Suða á járni og stáli, Suða á
öðrum málmum, Rafmagns-
suða, Ljósboginn, Suðutækin,
Elektrónur, Rafmagnsskurður,
Logsuða eða rafmagnssuða?,
Varúðarreglur og Töflur og
suðublöð.
Deilf á dylgjur
JÓN HJALTASON, stud. jur.,
hefur nú birt ræðu þá, er hann
flutti á „stúdentaráðsfundinum,
sem útvarpað var“ og lætur
fylgja nokkuð mörg orð til undir
ritaðs, vegna greinarinnar: Há-
skólastúdentar og 1. des., sem
birtist í Mbl. 30. nóv. s.l.
Jón neitar því að hafa minnst
á deilumál meðal stúdenta í út-
varpsræðu sinni og gefur í skyn,
að hann hafi eingöngu minnst á
ályktanir stúdenta. En svo að
helsta dæmið sje tekið, þá segir
Jón í ræðunni, orðrjett skv. Tím-
anum: „Þessi dagur (þ.e. 1. des.)
á framvegis að verða baráttudag-
ur fyrir afnámi Keflavíkursamn-
ingsins, baráttudagur gegn því, að
hann verði framlengdur". — En
einmitt um þetta, hvort 1. des.
eigi að vera þessi baráttudagur,
hafa deilur staðið meðal háskóla-
stúdenta. Jón Hjaltason hefur
sjálfur tekið þátt í þessum deii-
um, béðið ósigur með skoðun
sína og fáum ætti því að vera
kunnara en honum að hjer er
ekki um ályktanir stúdenta að
ræða. Enda sá stúdentaráð á-
stæðu til , ekki síst eftir að Þjóð-
viljinn hafði notað ræðu Jóns,
sem stefnuyfirlýsingd ráðsins, að
lýsa því yfir, að það hefði enga
slíka ályktun gert.
Jón Hjaltason telur, að jeg hafi
„snúist“, breytt úm skoðun i
flugvallarmálinu frá því í fyrru.
Jeg lýsti því yfir á almennum
stúdentafundum í fyrra, bæði áð-
ur en jeg var kosinn í stúdenta-
ráð og eftir, að jeg væri með
flugvallarsamningsgerðinni og á
móti því, að gera 1. des. að bar-
áttudegi fyrir uppsögn hans. —
Sömu skoðun hef jeg enn.
Þá bregður Jón Hjaltason mjer
um að „finna hvöt hjá mjer. til a'ð
hagræða sannleikanum" í frá-
sögn minni um það, að stúdentn-
ráðsmenn höfðu ekki tækifæri til
að svara Jóni í útvarpinu, þar
eð aðeins 3 af 9 ráðsmönnum
voru viðstaddir, þegar sú ákvörð
un var tekin, að ræðu Jóns skyldi
útvarpað. Og til þess að sanna
þessa ósannsögli mína, segir Jón
orðrjett: „Hann (þ. e. núv. form.
stúdentaráðs) vissi um efni og
orðalag ræðunnar og ennfremur
allir stúdentaráð'smenn og enginn
þeirra fundmælti staf í“. Við fljót-
legan lestur virðist Jón hafa
stimplað mig sem ósanninda-
mann. Og á þennan fljótlega lest-
ur virðist Jón liafa treyst. En
undirritaður sagði í sinni fyrri
■grein orðrjett: „Stúdentaráðs-
menn höfðu áður heyrt ræðu Jóns
ásamt öðru efni, sem upphaflega
átti að mynda Uppistöðuna í fund
í stúdentaráði, er útvarpa átti. En
áður en kæmi til að ræða það
efni málefnalega, var því hafnað
af öðrum ástæðum".
Geta hjer allir sjeð, að jeg
tók skýrt fram í fyrri grein
minni það atriði, sem Jón reyn-
ir að láta menn trúa, að jeg hafi
dregið undan af ásettu ráði.
Jeg læt lesendur um að dæma
slíkan málflutning, sem Jón er
þarna staðinn að.
Jeg hef áður þekt Jón að því
að kjósa f’remur að kasta vafa-
sömu Ijósi á andstæðinginn með
persónulegum dylgjum en ræða
með rökum málefnin sjálf. Og
grein hans í Tímanum staðfestir
því miður þessar starfsaðferðir
hans.
' Jeg ætla svo ekki að gera neinn
samanburð, hvernig rjetti hvors
okkar um sig er varið til að taka
þátt í afgreiðslu mála í stúdenta-
ráði því, sem nú situr. En jeg get
aftur á móti ómögulega stilt mig
um að vitna í grein Jóns, þar sera
hann segir: „Jeg vil ljúka með
því að víta Geir Hallgrímsson. .
Maður skyldi halda, að það væri
páfinn sjálfur, sem talaði með
makt og miklu veldi. En ætli það
verði ekki svo, að af „vítum Jóns
Hjaltasonar" bíði enginn hneklci,
nema hann sjálfur.
Geir Hallgrímsson.
BEST Afí AJUGLfSA
t MORCTJNPJ. AÐINV
Frá Luciuhéiíð Norrænaf jelapns
SÆNSKÍ sendiherran, S. H. Poussette, heldur ræðu. Aðrir á mynd-
inni eru Stefán Jóhann Stefánsson forsætisráðherra og frú hans og
frú Inga Árnadóttir frú Villijálms Þ. Gislasonar skóiastjóra, sem
er Iengst til hægri.
; - VarMmdur m - dýr- j
iiarinálin. , \ j
Hefst kl. 2 e. h. í SjáHsfaSishuslnn.
LANDSMÁLAFJELAGIÐ Vörður efnir til fundar í dag í Sjálf-
stæðishúsinu og hefst hann kl. 2 e. h. Til umræðu verða væntan-
legar dýrtíðarráðstafanir ríkisstjórnarinnar og málshef jendur eru
ráðherrar Sjálfstæðisflokksins Bjarni Benediktsson og Jóhann Þ,
Jósefsson.
Ræff um V. H. í bæj-
arraði
Á FUNDI bæjarráðs er haldinn
var s.l. föstudag, var rætt um
tillögur þær er komið höfðu
fram í bæjarstjórn, varðandi
starfsemi Vetrarhjálparinnar.
Tillaga borgarstjóra, um að fela
Stefáni A. Pálssyni forstöðu
starfsins, var samþykt með 3
atkv. gegn 2.
Að atkvæðagreiðslu lokinni
ljet borgarstjóri bóka eftirfar-
and.i: „Um 12 ára skeið hefur
Stefán A. Pálsson haft með
höndum framkvæmdaStjórn
Vetrarhjálparinnar og gegnt því
i starfi með ágætum. Hefur ekki
með rökum verið fundið að þeim
störfum hans. Bæjarfulltrúar
hafa haft og hafa frjálsan að-
gang að öilu bókhaldi og starf-
semi Vetrarhjálparinnar. Mjer
virðast ekki liggja fyrir þær á-
stæður, er geri nauðsynlegar
breytingar á tilhögun undanfar-
inna ára.“
Jón Axel Pjetursson tók það
fram, að hann greiddi ekki atkv.
gegn tillögunni vegna þess, að
hann vantreysti forstjórn Stef-
áns, heldur vegna þess, að hann
taldi heppilegra að starfsemin
lúti stjórn fleiri manna.
Skáiar safna penlng-
um handa V. H.
VETRARHJÁLPINNI hafa?'nú
borist rösklega 200 umsóknir,
um íjárhagslega aðstoð.
1 gær byrjaði forstjórinn, Stef
án A. Pálsson að úthluta pen-
ingum til umsækjenda.
Söfnunarlistar eru nú byrjað-
ir að berast skrifstofu Vetrar-
hjálparinnar.
Á þriðjudaginn fara skátar
um Mið- og Vesturbæinn til f jár-
öflunar á vegum Vetrarhjálpar-
’ Unnið hefur verið að því að
ná samkomulagi milli stjórnar-
flokkanna um ráðstafanir í dýrtíð
armálunum og verður gerð grcirs
fyrir þeim samningaumleitunum
og hvernig þau mál horfa nú við.
Öllum almenningi er nú löngis
ljóst að knýjandi nauðsyn er fyrir
okkur íslendinga að komast út úr
þeirri dýrtíðarskrúfu, sem skapar
okkur yfirvofandi hættu í sam-
keppninni við aðrar þjóðir á er-
lendum mörkuðum og orsakar ör-
yggisleysi í fjárhagslífinu innan-
lands. Hitt hefur viljað brenna
við að mönnum verður á að
benda fyr á aðra en sjálfa sig3
þegar að því kemur að takast á
hendur óþægindi vegna nauðsyn-
legra dýrtiðarráðstafana. .En sa
hugsunarháttur má ekki verða
sterkari heilbrigðu mati og skiln-
ingi almennings á þeirri þörfa
sem nú er á því, að allir taki á
sig nokkrar byrðar til úrbóta J
vandamálum verðbólgunnar.
Eins og vanda er öllum Sjálf-
stæðismönnum heimill aðgangur
að þessum Varðarfundi meðaii
húsrúm leyfir.
Fjölbreyttur skemti-
hmdur Hvatar
á þriðjudegskvöM
SJÁLFSTÆÐISKVENNA-
FJELAGIÐ „Hvöt“ heldur á
þriðjudagskvöld 16. þ. m. kl.
8,30 síðasta fund sinn fyrir
þessi jól í Sjálfstæðishúsinu.
'Verður þar ýmislegt til skemt
unar, svo sem kvikmjmd frá
Heklu, frásaga um vestfirsk jól,
dregið verður í bazarhapp-
drætti fjelagsins, kaffidrykkjð
og að lokum dans.
Fjelagskonum er heimilt að
taka með sjer gesli. Allar sjálf-
stæðiskonur eru velkomnar
meðan húsrúm. leyfir.
Skemtifundir Hvatar eru allt
af skemtilegir og þarf ekki að
draga í efa að sjálfstæðiskonur
muni fjölmenna á þennan fund,