Morgunblaðið - 28.12.1947, Blaðsíða 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
ALLHVASS og stundum
hvass norðan. - — Víða skýjað,
hætt viö éíjum.
FJELAGI KONA — Skáld-
saga eftir Kristmann GuÓ-
mundsson. — Sjá grein á bls. 7.
Vetramki nasiu
daga
ÞAÐ má búast við að vetrar-
ríki verði um land alt næstu
daga. En líkur eru til þess, að
draga muni úr veðurhæðinni,
en ekki mun draga úr frost-
unum.
Um land. alt er norð-norð-
austan átt, með 6—8 vindstig-
um. Frostið er 11—12 stig með
ströndum fram, en 14—16 stiga
gaddur í innsveitum norðan-
lands og sunnan. Mest frost
mældist í gær 16 stig á Gríms-
stöðum á Fjöllum. Á Akureyri
voru 13 stig, í Reykjavík 11
stig og hefur ekk; mælst svo
mikið frost á þessum vetri. Á
Þingvöllum voru í gær 14 stiga
frost.
í gær var snjókoma um Vest-
ur-, Norður og Norðaustur-
land, en víðast hvar þurrt veð-
ur um Suðurland-
fær de Soio-
bifreið í jólagjöf!
EKKI er enn vitað hver það er
sem hreppt hefur De Soto happ •
drættisbifreið íþróttafjelags
Reykjavíkur en væntanlegá verð
ur vinningsnúmerið tilkynt í
dag eoa morgun.
Ástæðan til þess að það hefur
ekki verið gert enn er, að í gær-
kvöldi höfðu ekki ennþá borist
Jfullnaðarskil utan af landi og
því ekki fullvíst um selda miða
og óselda.
Formaður ÍR skýrði blaðinu
aftur á móti svo frá í gær, að
alt benti til þess að hægt yrði
að tilkynni númerið í dag eða á
morgun.
MaÓur slasasf á skíð-
um
Á ANNAN dag jóla fótbrotn-
aði maður við Skíðaskálann. —
Hann var á skíðum, er slysið
vildi til.
Sjúkrabíll var sendur aust-
ur til þess að sækia manninn
og gekk flutningurinn ágæt-
lega. Maðurinn er heitir Grjet-
ar Árnason til heimilis að Ljós-
vallagötu 30. Hann var flutt-
ur í Landsspítalann. Þar var
búið um brotið og hann síðan
fiuttur heim til sín.
Þjófar sap nióur fallegusfu
fyrurnar á Þingvöllum
FYRIR ÞESSI jól hafa verið unnin óvenjuleg og óafsakanleg
skemdarverk i trjáreitunum á Þingvöllum og við Rauðavatn. Á
báðum þessum stöðum hafa ránsmenn eyðilagt trjáplöntur að
manni virðist til þess að fá sjer þar þiófstolin „jólatrje".
Vegna þess, hve mikill hörg-
ull var fyrir þessi jól á greni-
greinum til heimilaprýði, ljek
skógræktarstjóri grisja furu-
lundinn á ÞingvöUum. En með
grisjun þessari vinst það, að
beinvöxnustu og íallegustu trjá
plönturnar fengu meira rúm og
geta dafnað betur.
Var grisjunin gerð snemma í
desember. En þegar starfsmenn
skógræktarinnar komu austur
aftur rjett fyrir jólin, þá sáu
þeir að í millitíð höfðu menn
verið þar á ferð, og sagað ofan
af fallegustu og beinvöxnustu
furunum. Hafa þessir menn
fengið sjer þar furustofna allt
að 2—3 metra á hæð, en með
því líka eyðilagt fallegustu trjá
plönturnar í lundinu.
Nokkru fyrir jólin hafa og
plöntuþjófar heimsókt furureit-
inn við Rauðavatn og klippt þar
greinar af hinni kræklóttu
fjallafuru og tekið eða klippt
niður bæði sitkagreni og Cim-
brafuruplöntur, cr þar voru,
ungar og litið vaxnar, en hefðu
orðið að fallegum trjám, hefðu
þær fengið að vera í friði.
Nokkur von mun vera til
þess, að haft verði upp á þjóf-
um þeim, sem þarna hafa verið
að verki.
Nepfunus kemur
ídag
TOGARINN Neptúnus, sem er
stærstur nýsköpunartogaranna,
er væntanlegur til Hafnarfjarð-
ar í dag.
Eigendur hans er hlutafjelag-
ið Júpíter í Hafnarfirði. Ein-
kennisstafir skipsins eru GK—
361.
Neptúnus er bygður í Aber-
deen og er hann talsvert ólíkur
þeim nýsköpunartogurum, sem
komið hafa til þessa, bæði er
hann burðarmagnsmeiri og
smíði hans er frábrugðin fyrri
skipum.
Skipstjóri er Bjarni Ingimars
son, er áður var á Júpíter. —
Fyrsti stýrimaður er Gísli Jóns
son og fyrsti vjelstjóri Guð-
mann Hróbjartsson.
15 þúsund sóffu
skömfunarbækur
sínar
í GÆR hófst úthlutun skömt-
unarbókanna fyrir fyrsta
skömtunartímabil ársins 1948.
Afhending bókanna fer fram í
Miðbæjarskólanum.
I gær komu fáir til að vitja
skömtunarbóka sinna, aðeins
um 15,000 manns. Má vera að
veður hafi átt sinn þátt í því.
I dag, sunnudag, verða bæk-
urnar afhentar frá því kl. 10—
12 á hádegi og 1,30—10 síðd..
Nauðsynlegt er, að þeir, sem
ekki hafa vitjað bóka sinna,
komi í dag. Þeir, sem'koma því
ekki heldur við í dag, fá skömt
unarbækurnar ekki afhentar
fyr en eftir áramótin.
Kyiknar í síidarmjöli
hjá SR
Erfiöleikar á geymslu
THjðlSÍflS.
Á ANNAN í jólum-varð þess
vart, að kviknað var í mjöl-
sekkiastæðu í mjölgeymslu-
húsi SRJI-verksmiðjunnar á
Siglufirði. Brunaliðið var þeg-
ar kallað á vettvang og tókst
að ráða niðurlögum eldsins áð
ur en hann breiddist út til
muna. Hinsvegar varð þess
víða vart í mjölgeysluhúsinu
að farið var að hitna í mjöl-
inu. Varð því að flytja mikið
af mjöli úr þessu húsi í þann
hluta mjölskemmunnar miklu,
sem enn stendur uppi, en þar
er illgerlegt að geyma mjöl
vegna snjófoks inn í húsið með
skörum þess og hættu á vatns-
flóðum ef hlánar.
Eru SR á Siglufirði illa.stadd-
ar með mjölgeymslur og hætta
hefir’ orðið framleiðslu í verk-
smiðjunum í bili nema.í dr.
Pauls-verksmiðjunni, þar til út
skipun getur farið fram. Er von
á þremur skipum í næstu viku
til að taka um 5000 tonn af
síldarmjöli.
Hitinn í síldarmjölinu í SRN
verksmiðjunni er talinn standa
í sambandi við breytinguna á
mjölblæstri verksmiðjunnar
milli kranalofts og mjöl-
geymsluhúss, og breytingu á
kyndingu á þurkofnurn hennar,
er gerð var s.l. sumar.
SLÖKKVIIJÐ bæjarins, var að
eins kallað út tvisvar sinnum
um jólin.
Á aðfangadagsmorgun var
það kallað inn í Laugarnes
íbúðarbragga. Var bragginn
orðinn alelda er slökkviliðið
kom og brann bragginn til
ösku. í honum bjó einsetumað-
ur og mun hann ekki hafa átt
miklar eignir í skálanum. — í
hitt skiptið var slökkviliðið
kallað að Hafnarstræti 17, og
er skýrt frá þeim bruna á öðr-
um stað hjer í blaðinu.
316 hafa failið
Jerúsalem í gærkvöldi.
OPINBERLEGA var skýrt frá
því hjer í Jerúsalem í dag, að
vitað væri að 316 hefðu látið
lífið í Palestínu þá 27 daga, sem
nú eru liðnir frá því Sameinuðu
þjóðirnar tóku ákvörðun um
skiptingu Palestínu.
Flestir hinna föllnu eru Arab-
ar og Gyðingar, en 11 voru þó
meðlimir breska hersins og lög-
reglunnar. — Reuter.
10 sítrónulegundir
Sítrónurnar komu í verslanir
fyrir jólin. Þær eru hollur á-
vöxtur, fjörefnarikur og þykir
auk þess bragðbætandi. Þá eru
sítrónusneiðar notaðar niikið tíl
þess að skeyta matarföt. Hjer á
myndinni sjást mismunandi að-
ferðir að skreyta með sítrónum.
r
Islendingar í jélairíi
í Haliingdai
Nesbyen á aðfangadag.
TUTTUGU og tveir íslend-
ingar eyða jólaleyfi sínu í Hall
ingdal.
Jólaleyfi bessu var komið í
kring fyrir milligöngu Krj^t-
ins Einarssonar.
íslendingar biðja allir að
heilsa heim með bestu jóla-
og nýjársóskum.
— Skúli.
Hafnarsfræfi 17
skemmisl í eldi
TIMBUHÚSIÐ Hafnarstræti 17
skerodist mikið í eldi í fyrri-
nót, er eldur komst í það frá
áföstu bakhúsi, en þar urðu
eldsupptökin.
Þegar slökkviliðið kom. var
nokkur eldur í bakhúrinu, en
því gekk fljótlega að ráðs nið-
urlögum hans. — Þar urðu þó
nokkrar skemdir. I þessu húsi
er sögð hafa verið rekin spiia-
stofa og þegar slökkviliðiðs-
mennirnir komu, voru þar spil
á borðum og nokkrar vínflösk-
ur.
Milli .þilia í bakhúsinu, er
stoppað með marhálm og læsti
eldurinn sig eftir hálminum og
í Hafnarstræti 17.
Slökkviliðið beitti nú siöng-
um sínum að Hafnarstræti 17,
en slökkvistarfið bar var nokk-
urum erfiðleikum bundið —
Þetta er nokkuð gamait hús og
innrjettingar allar óheppiieg-
ar undir slíkum kringumstæð-
um. Á efri hæð hússins, eru
þrjár tanniækningastofur og
skemdist ein þeirra mikið, en
tækjum tókst slökkvilíðsmönn-
um að bjarga lítt skemdum. —•
Þetta var tannlækningastofa
Viðars Pjeturssonar. Þá urðu
miklar skemdir í skrifstofu urn-
boðsversiun Þorsteins Bern-
harðssonar. í þessu húsi er r,g
rammaverslun og urðu þar
nokkrar skemdir. Minni skemd
ir urðu í matstofunni Gullfoss.
Á efstu hæð hússins búa
nokkrar stúlkur, en þar urðu
engar skemdir. Slökkvistarfið
tók um það bil þrjá tíma. Rok
var af norðanstan og 10 til 12
stiga gaddur.
r r
ávarp fi! Islendinga frá
sfjérn Landgræðslusjóðs
SAMTÍMIS atkvæðagreiðslunni um stofnun lýðveldis á íslandi
vorið 1944 var Landgræðslusjóður stofnaður. Verksvið hans er
hvers konar landgræðsla og gróðurvernd, en aðalhlutverk hans
skal þó vera að klæða landið skógi.
Eins og öllum er kunnugt er gróðurlendi íslands nú aðeins
helmingur þess, sem það var á landnámsöld. Samfara skerðingu
gróðurlendisins hafa iandkostir gengið mjög til þurðar fyrir illa
nauðsyn og óhyggilega meðferð.
Landkostir munu enn rýrna verði ekki tekið fyrir uppblástur
og áframhaldanda Iandspjöll með stærri átökum en hingað tii,
samfara skipulagðri uppgræðslu og skógrækt.
Landgræðslusjóður var stofnaður með almennum samskotum
um lar.d alt, og söfnuðust þegar kr. 130 þúsund, eða um 1 króna
á hvert mannsbarn. Síðar hefur sjóðnum bættst fje fyrir atbeina
víðsýnna manna, og var hann orðinn nærri kr. 400 þúsund í árs-
Jok 1946. En betur má ef duga skal til þess að sjóðurinn verði
starfi sínu vaxinn.
Stjórn Landgræðslusjóðs hefur undanfarnar vikur gengist fyrir
söfnun í sjóðinn, og hafa ýmsir lagt talsvert fje af mörkum, ýmist
með rausnarlegum gjöfum eða með því að gerast styrktarmenn
sjóðsins með árlegu tillagi.
Jafnframt því að þakka þessar gjafir vill stjórn Landgræðslu-
sjóðs beina þeirri áskorun til allra þjóðhollra íslendinga að minn-
ast skuldar sinnar við landið, annað hvort með nýjársgjöfum í
sjóðinn eða með því að gerast styrktarmenn hans með árlegu til-
lagi.
Gjafir má senda á skrifstofu sjóosins, Klapparstíg 29 í Reykja-
vík, eða tilkynna þær í síma 3422.
’STJÓRN LANDGRÆÐSLUSJÓÐS,
Einar G. E. Sæmundsson, Hákon Bjarnason, Haukur Jörundsson,
H. J. Hólmjárn, Hermann Jónasson, Runólfur Sveinsson,
Valtýr Stefánsson.