Morgunblaðið - 30.12.1947, Blaðsíða 1
84. árgangur
301. tbl. — Þriðjudagur 30. desember 1947
ÍMloldarprentsmiðja h.f.
Stjórnarherinn gríski heldur Konitsa
Innköllun
skiptimyntar
FJARMALARAÐUNEYTIÐ
hefir ákveðið að fresta innköll-
un smámyntar um óákveðinn
tíma. Stafar þetta af því, að
myntsláttan í Englandi hefir
gengið ver, en gert var ráð fyr-
ir svo að smámynt er ekki kom-
in til landsins til þess að hægt
sje nú að kalla inn einnrar og
tveggja krónu pem'nga, 10 eyr-
inga og 25 eyringa og kopar-
myntina.
Þá hefir einnig verið ákveðið
að fresta innköllun einnrar
krónu seðla.
Manila í gærkveldi.
ENNÞÁ er saknað 34 af Jar-
þegum og skipshöfn danska
skipsins Kína, sem fórst hjer í
hvirfilvindinum mikla í fyrra-
dag. Veðrið skall á meðan fár-
þegar voru að borða jólamat-
inn í matsal skipsins. Veður
þetta var hið versta, sem kom-
ið hefir í Filipseyjum í síðast-
liðin 13 ár.
Einn af þeim sem bjargað var
Valdimar Hjernum frá Kaup-
mannahöfn, sagði við blaða-
menn að það síðasta sem hann
sá var að skipstjóri skipsins.
Olufsen, hefði staðið í brú hins
sökkvandi skips. Hjernum sagð
ist halda "að hann hefði farið
í hafið með skipi sínu. Síðustu
fregnir herma þó að skipstjór-
anum, konu hans og tveimur
af skipshöfninni hefði verið
bjargað af amerískum Catalina
flugbát og flutt á spítala í
Santo Thomaso. Kína var 1923
smálestir. — Reuter.
„Hofoðborg heimsins"
r
Ottast um vjelbát frá
Djúpavogi
ÓTTAST er um afdrif vjelbátsins ,,Björg“, sem fór í róður frú
Djúpavogi á annan jóladag, en ekkert hefur spurst til síðan. —
Björgunarflugvjel frá Keflavíkurflugvelli leitaði í gær á stóru
svæði, þar sem talið var að báturinn gæti verið, en sá ekkert til
hans. —
Sennilegt er að 4—5 manns
hafi verið á bátnum, en um það
var ekki hægt að fá nákvæmar
upplýsingar í gær sökum þess
að símasambandslaust er við
Austfirði. Var ekki einu sinni
hægt að afgreiða skeyti til og
frá Austfjörðum í gær.
Vjelbáturinn Björg er 20 smá-
lestir og ætlaður á línuveiðar út
af Hornbjargi.
Slysavarnafjelagið auglýsti
eftir bátnum á sunnudag og í
gær fjekk fjelagið björgunar-
flugvjel frá Keflavíkurflugvelli
til að leita að bátnum, eins og
fyr segir.
Uppreisnarmenn fá stöð-
ugt liðsauka frá Albaníu
. AÞENA í gærkvöldi.
Einkaskeyti til MBL. frá Reuter.
EFTIRLITSNEFND SiÞ. flaug í dag yfir hjeruðin kringum Kon*
itza, borgina við landamæri Albaníu, en þangað braust þrjú þús.
' manna grísk stjórnarherdeild snemma í dag til þess að aðstoða
herdeild þá, sem hefur verið innikróuð þar síðan á aðfangadags-
kvöld. Gríski uppreisnarherinn nemur um 10 þús. manns í norð-
austur Grikklandi og um 7 þús. á víð og dreif um Makedoní,
sagði Vlaehos, yfirmaður upplýsingarskrifstofu gríska stjórnar-
hersir.s. Hann sagði og að 25% af þeim, sem berðust með upp-
reisnarmönnum hefðu komist inn í landið ólöglega frá leppríkjum
Rússa, sem liggja að Grikklandi, og þaðan hefðu þeir bæði vopn
og æfingu.
Unnið er nú af kappi að því að hreinsa til á lóðum þeim, þar sem
aðalbækistöð Sameinuðu þjóðanna verður í New York. Byggingar
S. þ. verða hinar glæsileguslu og koma til með ao standa við East
River. Myndin hjer að ofan sýnir húsastæðið.
Þrettán Arabar drepnir í
Jerúsalem
Leigufaifreiðar Gyðinga teknar úr umferð
JERÚSALEM i gærkvöldi.
Einkaskeyti til MBL. frá Reuter.
ÖLLUM leigubifreiðum Gyðinga var bannaður akstur á götum
Jerúsalem í dag, eftir að sprengju hafði verið kastað úr bifreið
á hóp Araba, sem voru að fara inn í strætisvagn. Þrettán Arabar
biðu bana, en fjöldi særðust. Þetta skeði á Damaskusverslunar-
torginu og lágu líkin á víð og dreif um torgið, innan um ávextina,
sem verið hafði verið að versla með. Skothríðardrunur heyrðust
frá elsta hluta borgarinnar, og biðu bæði Arabar og Gyðingar í
rniklum æsingi eftir meiri hefndum og blóðsúthellingum. Bryn-
varðar bifreiðar óku stanslaust um götur borgarinnar til þess
að koma í veg fyrir frekari óeirðir,
Arabar hyggja á hefndir.
Tveir breskir lögregluþjónar
voru skotnir til bana þegar þeir
reyndu að stöðva æðisgenginn
hóp Araba, sem ruddust úr
gamla borgarhlutanum og kröfð
ust hefndar á sprengjuárás Gyð-
inga. Óeirðir geisa nú víða um
borgina og hefur bæði her og
lögregia verið kölluð út.
Alger vinnustöðvun á
skrifstofum.
Svo til öll vinna heíur stöðv-
ast í almennum pósthúsum borg
arinnar, þar sem bæði Gyðingar
og Arabar hafa neitað að koma
til vinnu, nema þeir hafi vopn-
aða fylgd. Á öðrum opinberum
skrifstofum varð líka svo til al-
gjör vinnustöðvun.
Vopnaðir menn með hjálma á
höfði og í stríðsbúningi rjeðist
á vopnabirðastöð nálægt Jaffa
og stálu þaðan bæði rifflum og
hríðskotabyssum og öðrum vopn
um í dag. Einn breskur hermað-
ur var drepinn, en tveir særðust
er þeir reyndu að stöðva ránið.
„Frjáls stjórn" kommúnista.
Aðalmarkmið uppreisnar-
manna var að ná borginni Kon-
itza til þesss að geta sett á stofn
„frjálsa stjórn“, sem þar hefði
aðsetur sitt, en mjög auðvelt
myndi vera að verja borgina
sökujn legu hennar. Uppreisn-
armenn hafa gert margar árang
urslausar tilraunir til þess að
ná borginni á .sitt vald. en
stjórnarherirnir hafa jafnan
hrakið þá til baka.
Markos stjórnar
uppreisnarhernum.
I gær barðist stjórnarherinn
við mjög sterkan uppreisnarher
vestur af Konitza. Fjekk upp-
reisnarherinn sífelt liðsauka
frá Albaníu en varð samt ekk-
ert ágengt en misti margt
manna. Uppreisnarmenn halda
enn stöðu sinni í fjallshlíðun-
um kringum Konitza og segja
fangar að Markos sem fyrir
nokkrum dögum stofnaði
„frjáísu stjórnina“, stjórni
sjálfur herjunum.
Stuðningur Albaníu
aiþjóðlegar afleiðingar.
Búist er við að uppreisnar-
menn muni nú fara mjög hall-
loka þar sem stjórnarhernum
hefir tekist að brjóta vörn
þeirra og stöður á bak aftur á
nokkrum stöðum. Mannfall er
nú mikið hjá uppreisnarhern-
um og notar stjórnarherinn
flugvjelar gegn þeim. Gríska
stjórnin hefir látið þess getið
að stuðningur Albaníu við upp-
reisnarherinn hljóti að hafa al-
varlegar afleiðingar frá alþjóð-
arsjónarmiði. ■
Wallace segist ætla að bjóða
sig f ram við f orsetakjör
CHICAGO í gærkvöldi.
Einkaskeyti til MBL. frá Reuter.
HENRY WALLACE, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna,
sagði í ræðu hjer í dag, að hann myndi bjóða sig fram sem forseta
við næstu forsetakosningar í Bandaríkjunum, en þær verða 1948.
'Wallace sagði, að hann myndi hvorki verða frambjóðandi Repu-
blikana eða Demokrata, heldur sjálfstæðs, fljálslynds flokks. —
Kvað hann stefnu Truman stjórnarinnar lítið öðru vísi en stefna
Republikanaflokksins og myndu báðar leiða til stríðs.
Verkamenn á móti Wallace. ‘
Ekki er búist við að hann
njóti mikils fylgis hjá Demo-
krötum hvorki meðal verka-
mannasambandanna eða fyr-
verandi fylgismanna Roose-
velts enda kunnur af sleikju-
hætti sínum við Rússa og aðra
vinstri menn. Alment er búist
við að þessi yfirlýsing Wallace
auki mjög fylgi Trumans.
Truman sigraði Wallace.
Það var Harry Truman sem
sigraði Wallace 1944 þegar
báðir vildu verða varaforset-
ar og eyðilagði þannig vonir
Wallace til þess að vérða for-
seti þegar Roosevelt ljest 1945.
Var þá Wallace þegar kunnug-
ur fyrir aðdáun sína á komm-
únistum og þótti jafnvel hætt
að Roosevelt tapaði ef Wallace
hefðf verið í boði sem varafor-
seti.
Jarðskjálfti
Manilla í gærkvöldi.
ALLSNARPUR jarðskjálf
varð á eyjunni Luzon í gær o
urðu miklar skemdir á jarð
skjálftum. Ekki var kunnug
um mannslát þegar síðast frjel
ist — Reuter.