Morgunblaðið - 30.12.1947, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagyr 30. des. 1947
tovóutiÞlftMfc
Útp.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Frsmkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.).
Frj ettaritstj óri: Ivar Guðm undsson
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjalá kr. 10,00 á mánuði innanlands,
kr. 12,00 utanlands.
í lausasölu 50 aura eintakið. 75 aura með Lesbók.
Feigðarboði
■, *
HINAR TRYLLTXJ árásir blaðs kommúnista á ríkisstjórn-
ina og þó fyrst og fremst utanríkisráðherra, Bjarna Bene-
diktsson, nú um hátíðimar, sýna greinilega að þeir eru
orðnir hræddir um að herferð þeirra gegn hinum nýju lögum
um dýtríðarráðstafanir muni mistakast. Kommúnistar hafa
sjeð að almenningur í landinu hefur tekið þessari löggjöf
með skilningi á því vandamáli, sem henni er ætlað að hefjast
handa um lausn á.
Þetta eru kommúnistum mikil vonbrigði. Þess vegna skrifa
þeir blað sitt þannig nú, að engu er líkara en gjörsamlega
óðir menn stýri pennanum.
Setningar eins og „heiftardraumar og ofbeldisáform
Bjarna Benediktssonar“, „óþokka- og óhappastjórn Bjarna
Benediktssonar“ og fleiri þvílíkar setja nú daglega svip sinn
á forystugreinar blaðsins.
Halda kommúnistar virkilega að „rökræður“ af þessu tagi
skaði ríkisstjómina eða einstaka ráðherra hennar?
Hvaða fólk er það í þessu landi, sem ekki hefur djúpa
fyrirlitningu á slíkum baráttuaðferðum ? Ekkert, að undan-
teknum nokkrum ofstækisfullum öfgasnápum, sem hafa vist-
ráðið sig hjá hinum alþjóðlegu skemmdarverkasamtökum
kommúnista.
Islensk stjórnmálabarátta hefur oft. verið hörð og návígið
markað svip hennar. En hið brennandi ofstæki og haturs-
hugur er þó órafjarlægt íslensku lunderni. Þeirri staðreynd
verður ekki breytt. Henni fá hinar trylltu áróðursgreinar
kommúnistablaðsins ekki kollvarpað.
Þær hafa engin áhrif önnur en þau að gera þjóðinni það
enn ljósara en áður, hverskonar menn kommúnistar eru og
þær eru jafnframt ótvíræður feigðarboði fyrir flokk þeirra.
Lífskjör íslensku þjóðarinnar hafa breyst og batnað ef til
vill hraðar en nokkurrar annarrar smáþjóðar. En þau hafa
gert það vegna þess að hún leit raunsætt á hag sinn og vann
markvíst að því að skapa sjer pólitískt- og f járhagslegt sjálf-
stæði. Baráttan fyrir hinu fjárhagslega sjálfstæði, einstakl-
inganna og þjóðarheildarinnar stendur nú sem hæst. Frá
þátttöku í henni má enginn ábyrgur þjóðfjelgsborgari sker-
ast úr leik.
Uíhverji óhrij-ar:
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Ekki viðbúnir.
„VERTU viðbúinn", eru ein-
kunnarorð skátanna, en það er
óliklegt að það sje mikið um
skáta meðal þeirra, sem fram-
leiða ,og senda á markaðinn
dagatöl, vasabækur og þess-
háttar.
Það kemur varla fyrir, að
slíkt sje tilbúið fyrir áramót.
heldur er það siður — ósiður
— að vera að píra þessu út
fram eftir öllum janúar og
jafnvel fram á vor.
Það er eins og hvíli einhver
álöj yfir þessari framleiðslu
og það sje alveg nau^synlegt,
að da^atalið sje aldrei tilbúið
um leið og nýja árið gengur
í garð.
•
Margs að gæta.
EN HVAÐ sem dagatali hins
nýja árs líður þá er hitt víst,
að almenningur þarf heldur
ekki að „vera viðbúinn" núna
um áramótin. Það ér nú fyrst
og fremst eignakönnunin, sem
allir tala um, en fáir skilja.
Það-er ekki svo lítið stúss við
það allt, að tína fram aurana
úr handraðanum, sokkunum og
hvar sem þeir nú annars hafa
verið geymdir og labba með
þá niður í banka. Og nauðsyn-
legt er að hafa alla aurana með
þegar farið er að skifta, því
það má ekki gera nema einu
sinni.
' Og svo er það skömmtunin
og stafróf hennar, sem þarf að
læra. Skattauppgjör og sitthvað
eina. Það er hætta á að menn
fái höfuðverk af fleiru en löng
um vökum á gamlárskvöld að
þessy sinni.
•
Nýir peningar.
Á MORGUN ganga nýir pen-
ingar í gildi. Hvernig þeir eru á
litinn vita ekki nema fáeinir
trúnaðarmenn.
Það eru aðeins fimm og tíu
króna seðlar, sem verða í gildi
af gömlu peningunum fvrstu
dagana og er ætlast til að þeir
verði að mestu notaðir milli
manna til mjólkurkaupa og
sem ferðapeningar í strætis-
vögnum.
Annars er það nauðsynlegt
að kynna sjer allar hinar marg
brotnu reglur til þess að menn
verði ekki fyrir tjóni.
•
Gamlárskvöld.
TVEIR helgidagar fara nú í
hönd, gamlársdagur og nýjárs-
dagur. Á gamlársdag er það
venja hjá mörgum að gefa sjer
lausan tauminn og skemta sjer
vel og lengi. Hjer í bænum,
sem víða annarsstaðar vilja
þessar svokölluðu skemtanir
fara út í öfgar. Einkum þar sem
margt fólk safnast saman.
Leiðinlegast er þegar til
skrílsláta kemur á götum úti.
Það eru pinkum unglingar, sem
ekki kunna sjer læti, sem
standa fyrir þeim.
Minnst hefir verið á íkveikju
æðið. sem er stórhættulegt og
mesta mildi, að ekki skuli hafa
hlotist slys af. Það þarf að
koma í veg fyrir slíkar „skemt
anir“ og ættu allir góðir borg
arar og leggjast á eitt til að
aðstoða við að hindra þau læti.
•
Sýnishorn af göml-
um seðlum.
HUGSANDI skrifar eftirfar
andi um gömlu peningaseðl-
ana, sem nú verður farið að
innkalla:
„Eins og flestum mun kunn
ugt, er vani að brenna þeim
seðlum, sem teknir eru úr um-
ferð. og býst jeg við, að sú
eigi að verða raunin á um þá
seðla, sem nú á að fara að inn-
kalla.
Nú er það svo með mig og
íleiri, sem jeg hefi átt tal við,
að okkur langar til að eiga
sýnishorn af gömlu seðlunum,
til minningar um liðið tímabil
í sögu þjóðarinnar, en höfum
ekki efni á að taka frá sitt ein-
takið af hverjum seðli til þess
ara hluta.
•
VilJ selja gamla
seðla.
„NÚ vil jeg koma með þá
tillögu, að bankarnir taki ffá
nokkuð magn af seðlum,
stimpli þá ógilda og selji þá
síðar vægu verði til þeirra, sem
geyma vildu þá til minningar.
Þessir seðlar hafa um langt
skeið verið mikill þáttur í dag-
legu lífi þjóðarinnar og undir
þeim hefur oft og tíðum ver-
ið komið, hverjum augum
menn litu til morgundagsins.
Einnig vil jeg að sýnishorn af
þeim verði látin á Þjóðminja-
safnið. Enn mætti athuga hvort
ekki væri markaður fyrir þá
hjá myntsöfnurum erlendis, og
væri gaman að því ef maður
sæi þannig krónuna okkar
breytast í erlendan gjaldeyri.
eftir að við. værum hættir að
geta notað seðlana sem gjald-
miðil.
Minjagripir.
„ÞÁ MÁ enn benda á, að
gömlu seðlarnir eru vandaðir
bæði að efni og frágangi og *
mætti ef til vill nota þá til að
framleiða minjagripi til að
selja útlendingum. Jeg álít
verðgildi gömlu seðlanna sem
eldsneyti afar rýrt samanbor-
ið við það, sem hægt væri að
gera úr þeim með þeim að-
ferðum, sem áður hafa verið
mörgum merki hagsýni á und-
anförnum árum, verði notaðir
á sem hagnýtastan hátt, þeg-
ar þeir hafa misst gildi sitt sem
raunhæfur gjaldmiðill".
MEÐAL ANNARA ORÐA ....
—---J EftirG.J.Á. ]-——-—---- ■ - --
Yíirsjón Ríkisútvarpsins
TÍMINN gerir í gær að umræðuefni herfilega yfirsjón, sem
Ríkisútvarpið hafi undanfarið gert sig sekt um. Þar hafi
hvað eftir annað verið sagt frá því að „nýsköpunartogarar“
hafi komið til landsins, farið á veiðar eða selt afla sinn.
Þetta hefur valdið Tímamönnum miklu ergelsi, svo miklu,
að nú heimtar blað þeirra að þetta ólukkans orð verði gert
útlægt úr Ríkisútvarpinu, verði framvegis alls ekki nefnt þar.
Margt er skrýtið í kýrhausnum, segir gamalt íslenskt mál-
tæki. Mörgu skringilegu hafa Timamenn fundið upp á í þófi
sínu gegn þeirri nýsköpun íslenskt atvinnulífs, sem rikis-
stjóm Ólafs Thors lagði grundvöllinn að. En þessi ásökun á
hendur Ríkisútvarpinu er þó hvað spaugilegust.
Það, sem í henni felst er ekki fyrst og fremst óvenjulega
bamalegur hugsunarháttur, heldur ótvíræð viðurkenning á
því að sú stjómarstefna, sem rjeði kaupum nýsköpunartogar
anna inn í landið, sje vinsæl með þjóðinni. Þess vegna vill
Tíminn láta útvarpið hætta að tala um nýsköpunartogara,
þess vegna er þetta orð eitur í beinum mannanna, sem áttu
„hugsjónina”, mannanna, sem vildu bíða með skipakaup í
Englandi þangað til engin skip var hægt að fá þar.
Ef þeirra ráðum hefði verið fylgt hefðu engin ný skip
komið til landsins. Og þá þyrftu Tímamenn heldur alls ekki
að angrast við það nú að heyra útvarp og blöð skýra frá
komu nýsköpunartogaranna.
En þess mega Tímamenn vera fullvissir, að þótt Rikis-
útvarpinu yrði skipað að hætta að nefna þetta orð, þá
myftdi íslenska þjóðin ekki gleyma því. Til þess hefur hún
bundið alltof miklar vonir við það og til þess á hún of mikiö
undir því komið að því merkilega umbótastarfi, sem hafið
var fyrir forystu Sjálfstæðismanna, verði fram haldið.
Einkennilegt veðurfar um jólin
ALLIR TALA um veðrið, á
Mark Twain að Hafa sagt, en
enginn gerir neitt við því. Þetta
er að vísu ekki með öllu rjett
nú í dag — vísindamennirnir
eru farnir að gera árangurs-
góðar tilraunir til að búa til
regn — en víst er þó að eng-
inn getur komið nókkru tauti
við veðrið. sem nú gengur yfir
ísland og hluta af Evrópu,
Bandaríkjunum og Kyrrahafi.
í New York virðist ennþá
allt yera í öngþveiti eftir snjó-
komuna miklu fyrir helgin?
og á Philipseyjum mun ver:
um stórtjón að ræða eftir stór-
felldan fellibyl. En ennþá e:
óvitað um manntjón.
• •
•kezstebssr-
FROST UM ALLT
LAND
Hjer heima hefur frostið genf
ið yfir land allt. Klukkan ell-
efu í gærmorgun var mest fros'
mælt á Hæli í Hreppum, eð;
þrettán stig. Á sama ííma vai
frostið sem hjer segir á eftir-
töldum stöðum: Reykjavík í
stig. Síðumúla 11, Stykkishólm
9, Kvígindisdal 10, Bolungar-
/ík 9, Gjögri 10, Blönduósi 8.
liglunesi 10, Akureyri 10,
Irímsey 10. Raufarhöfn 10,
Tólum 11, Fagurhólsmýri 7,
Kirkjubæjarklaustri 10, Vest-
mannaeyjum 10 og Þingvöllum
11 stig.
• •
K VEIN STAFIR
Flestir hjerna fyrir sunnan
að minsta kosti hafa kveinað
Og kvartað. Viðkvæðið er, að
þessi skolli sje óþolanlegur,
ekki síst um jólin, þegar varla
nokkurt farartæki var fáan-
legt. Og skemtistaðirnir — til
Mannhæðar háir skaflar hindra
umferð í norð-austur Banda-
rílijunum.
dæmis kvikmyndahúsin —
prðu fyrir barðinu á þessu upp
átæki veðurguðanna, eða að
minsta kosti er það vitað, að
sum kvikmyndahúsanna voru
því nær galtóm síðastliðinn
laugardag.
Annará hafa þessir veður-
drotnarar hagað sjer í meira
lagi furðulega undanfarna
daga. Samtímis því sem New
York búar brjótast um á hæl
og hnakka í mannhæðarháum
mjósköflum, berast þær frjett
r, að menn í suðvestur hluta
Bandaríkjanna sjeu að drepast
ir hita.
• •
STÓRFLÓÐ
En fleira er einkennilegt við
oetta veðurfar. í dág berast
’oær fregnir, að ofsarok hafi
irandað nokkrum skipum við
’trendur Evrópu, auk þess sem
’.teypiregn og stórflóð mun
iafa sjcð fyrir fleiri manns í
S'rakklandi. í gær klukkan þrjú
'iermdu fregnir að þrjár stór-
ir þar hefðu flætt yfir bakka
úna og að borg ein í Elsas.
bar sem flóðin eru verst, væri
því nær einangruð.
• •
ALLAR TEGUNDIR
Á öllu þessi er sýnilegt, oð
hátíðisdagarnir hafa haft upp
Frh á bls. 8.