Morgunblaðið - 07.01.1948, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 07.01.1948, Qupperneq 8
8 MORGL’ NBLAÐIÐ Miðvikudagur 7. janúar 1948. Fimm mínútna krossgálan SKÝRINGAR Lárjett: — 1 skemtistaður — 6 stafirnir — 8 forsetning — 10 drykkur — 11 fiskur — 12 eins — 13 titill — 14 hár — 16 á fótum. Lóðrjett: — 2 tónn — 3 tó- bak — 4 tenging — 5 flýti — 7 kvenmannsnafn — 9 ílát — 10 fugl — 14 fangamarlc — 15 tónn. Lausn á síðustu krossgátu Lárjett: — 1 kista — 6 svo .— 8 aá — 10 sá — 11 trefill — 12 ii — 13 ók — 14 ala — 16 salta. Lóðrjett: — 2 is — 3 svæfill — 4 to — 5 gatið — 7 fálki — 9 ári — 10 sló — 14 aa — 15 at. — Meðal annara orða Frh. af bls. 6. — Og er þetta ekki í raun og veru_stórfurðulegt? Er það ekki óskiljanlegt. að þessa fjársjóðs okkar íslendinga sje ekki bet- ur gætt en svo, að veiðiþjófarn ir stunda ekki iðju sína einir, heldur blátt áfram eru í hóp- um á fengsælustu miðunum? • • Flugvjelar. Einhverntíma síðastliðið ár, var tilraun gerð til að nota flugvjel til landhelgisgæslu, og þótti gefast vel: Síðan hefir ekkivfrá henni heyrst. En væri ekki reynandi að taka þetta upp að nýju? Nú er það svo að vísu, að á- hafnir flugvjela geta lítið gert annað en gengið úr skugga um, hvort þetta og þetta skip sje að veiðum innan landhelginnar. Ekki geta þær stöðvað skipin og beir útlensku gætu að sjálf- sögðu oftast komist á óhultan stað áður en eitthvað yrði að gert. En væri það þó ekki nokk ur bót í máli, ef við gætum sýnt þessum mönnum, að við fylgdumst með ferðum þeirra? Og gæti þetta ekki með tím- anum og með stækkandi varð- bátaflota orðið til þess, að þeir hefðu lítinn tíma til að láta greipar sópa um dýrasta fjár- sjóðinn okkar? Olympíufarar keppa á skíðamóti á Akur- eyri Akureyri, mánudag. SKÍÐAMÓT Olympíufara 1948 var haldið á Akureyri 4. jan. Kept var í boðgöngu fimm manna sveita. Voru í annari sveitinni Reykvíkingar og Sigl firðingar og Akureyringar í hinni. Gangan fór fram á göt- um bæjarins og hófst og lauk á Ráðhústorgi. Sveit Reykvíkinga og Sigl- firðinga sigraði, hafði tímann 58,45,0 mín. Sveít Akureyrar hafði tímann 60,20,0 mín. — í sveit Reykvíkinga og Siglfirð- inga voru: Haraldur Pálsson, SfS, Jónas Asgeirsson, Skíða- borg, Asgeir Eyjólfsson, Ar- manni, Guðni Sigfússon. ÍR og Hafsteinn Þorgeirsson, IR. í stökkkeppni í Miðhúsa- klappa-brautinni var keppt í einstaklingskeppni og sveita- keppni (þriggja manna sveitir) Reykvíkingar og Siglfirðingar voru sameinaðir gegn sveitum frá hverju Akureyrarfjelag- anna. I sveitakeppninni sigraði Knattspyrnufjelag Akureyrar, hlaut 1218 st. Önnur var sveit Rv-Sf með 1116 st., 3. sveit Mentskólans á Akureyri með 1055 st. í sveit KA voru Sig- urður Þórðarson, Guðm. Guð- mundsson og Hákon Oddgeirs- son. I einstaklingskeppni var Haraldur Pálsson fyrstur, stökk 27,5 m og hlaut 430 st. 2. Sig- urður Þórðarson, KA, 425 st. og 3. Guðm. Guðmundsson, KA, 412 st. Lengsta stökk átti Jón- as Ásgeirsson, 29 m. — Veður var sæmilegt og áhorfendur all- margir — H Vald. Tanberg bersf í New York á fösfu- daginn New York í gærkv. SÆNSKI hnefaleikameistarinn Olle Tanberg berst við amer- íska hnefaleikarann Jocy Max- im n.k. föstudag í Madison Square Garden í New York. Hnefaleikasjerfræðingar í Bandaríkjunum álíta að Maxim muni veitast frekar ljett að vinna Tanberg, enda er hann nú einn snjallasti hnefaleikari heimsins og muni t. d. nálgast það, að vera jafningi Joe Wal- cott, sem var nærri búinn að vinna heimsmeistaratitilinn af Joe Louis. — Reuter. Fáránlegar spurn- ingar í viðfali úl- varpsmanns við skipbrotsmennina Hr. ritstjóri. ÞAÐ var vel til fundið hjá Ut- varpinu að eiga viðtal við skip- brotsmennina af mb ,,Björgu“, sem björguðust á síðustu stundu á svo óvæntan og dásamlegan hátt. Hinsvegar voru sumar þeirra spurninga, sem frjetta- maður útvarpsins lagði fyrir skipbrotsmenninga svo fárán- legar að til stór vansa er fyrir Utvarpið. Frjettamaðurinn margþýfg- aði skipbrotsmennina um hvort þeir hefðu ekki skemt sjer með an á hrakningunvm stóð, og þegar hann fekk það svar end- urtekið að mennirnir hefðu ekki gert það, spurði hann hvort mennirnir hefðu ekki sagt hvor öðrum sjómannasögur. Þá ljet frjettamaðurinn það ekki koma fram í viðtalinu, sem sjómennirnir höfðu þá skýrt Slysavarnafjelaginu frá, að tog arar þeir, sem ekki sintu um að aðstoða skipbrotsmennina þrátt fyrir neyðarmerki þeirra, voru erlendir. Með því að láta þessa ekki getið, er ekki kast- að óverðskulduðum grunsemd- um um stór vítavert athæfi, að íslenskum sjómönnum. Verður að krefjast þess, að þetta verði leiðrjett. Samtal þetta var auðsjáan- lga mjög illa undirbúið af hálfu Útvarpsins og allt með þeim'blæ, sem ósamboðin, er hinni dásamlegu björgun þess- ara manna. Útgerðarmaður. Rannsóknamefnd Sþ lil Kóreu New York í gærkv. KÓREUNEFND Sameinuðu þjóðanna lagði í dag af stað áleiðis til Kóreu, en þar á hún að undirbúa það, að kosningar geti farið fram í landinu fyrir 1. mars n.k. Eftir kosningarnar gera menn sjer vonir um, að hægt verði að mynda ábyrga stjórn, og að Bandaríkin og Rússland að því loknu flytji heim heri sína. Aðeins átta af níu nefndar- mönnum eru með í förinni, þar sem Ukraina hefir ákveðið að hafa engin afskifti af Kóreu- nefndinni, í samræmi við af- stöðu Rússa. — Reuter. K n attspym uf jelag Akureyrar 26 ára Akureyri, þriðjudag. KNATTSPYRNUFJELAG Ak- ureyrar verður 20 ára 8. jan., en það var stofnað 8. janúar 1928, af 12 ungum mönnum á Akureyri. Fyrstu stjórn fjelagsins skip- uðu: Tómas Steingrímsson, for- maður, Jón Sigurgeirsson rit- ari og Helgi Schiöth gjaldkeri. Áliðnum 20 árum hefir KA iðkað flestar íþróttir, sem stundaðar eru hjer á landi. — Fjelagatalan er nú 473. Stjórn KA skipa nú Halldór Helgason, formaður, Jóhann Indriðason. Björg Finnbogadótt ir, Ófeigur Eiríksson, Einar Ein grsson, Sigurður Steindórsson og Árni Árnason. — H. Vald. Breska sfjórnin heidur fund London í gærkvöldi. ATTLEE forsætisráðh. Breta hjelt fund með ráðuneyti sínu, að Downing Street 10, í dag. Er þetta fyrsti fundurinn síðan þingið fór í jólafrí, og ræddu ráðherrarnir um framleiðsluút- lit fyrir 1948. —Reuter. Austurríki og Banda- ríkin undirrita bráðabirgðalán SAMNINGAR um bráða- birgðalán frá Bandaríkjunum voru undirritaðar hjer í dag milli Austurríkis og Banda- ríkjanna. Fyrir hönd Austur- ríkis ritaði Leopold Fidl forseti en fyrir hönd Bandaríkjanna ritaði Geoffry Keyes hershöfð- ingi, undir samninginn. Fá nú Austurríkismenn þegar send kol sykur og ýmiskonar matvöru. —Reuter. llllllllllltVIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIVIIIIIIIHllHlft 3> Til sölu eru | § iyrsits I bindin, sem út hafa komið | af útgáfu Fornritafjelags- f ins af Islendingasögunum, | ásamt Sturlungu í tveimur | bindum, gefin út í Kaup- | mannahöfn 1906. Þrjú ai | bindunum (Egilssaga, Lax | dæla og Grettissaga), eru | í vönduðu skinnbandi, en | hinar í kápu. Tilboð send- | ist afgr. Mbl fyrir 10. þ. i m. merkt „Fornritin"—205 i IIIIIIIIHIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIH - Knaltspyrnumenn Frh. af bls. 5. vara þar í landi. SkósmiAurinn var í fyrstu afar önnum kafinn og hinn þurrasti á manninn — og Ijet ótvírætt í ljósi að hann hefði ekkert efni til viðgerðar. Þeir Albert ákváðu því að réyna annarsstaðar, og hjeldu áleiðis út úr vinnustofunni, en er þeir voru í þann veginn að komast út úr dyrunum, var eins og skósmið urinn tæki all-snökkt viðbragð, varð eitt ljómandi bros og kall- aði á eftir þeim í hinni mestu hrifningu: „Heyrðu vinur, þú ert þó ekki íslendingurinn Guð- mundsson, sem leikur með Nancy?“ Er Albert svaraði spurn ingunni játandi var ekki að orka neinum tvímælum, að Guðbjörn og hann voru drifnir aftur inn í vinnustofuna og endaði vera þeirra þar með því að skósmið- urinn hafði látið sækja alla fjöl- skyldu sína og helstu nágraima til að sýna þeim Albert. Skórnir fengu hina bestu viðgerðir og Ai- bert fekk eigi að láta neinn miða nje eyrir fyrir viðgerðina. illllllllllllllllllMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII’l { Bílamiðlunin : j Bankastræti 7. Sími 7324. f j er miðstöð bifreiðakaupa. I aiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiviiiimiiK i Afgreiðum flest gleraugna | | rerépt og gerum við gler- 1 Churchill snýr aftur til London PARIS: — Churchill er nú alveg búinn að ná sjer eftir kvefsótt þá sem hann fekk nú á dögunum og fór frá Morocco áleiðis til London í dag. I sugu. | Augun pjer nvilið með gleraugum frá TÝLI H.F. = Au hurstræti 20. *- i « V ÍW ÍW Eflir U*' -n Storm ^ 0AKS8ADE, OHlO! NICE UTTLE T0WN....W0NDER H0W i'LL LIKE IT VWEN I'M READV T0 LEAVE — IF I'/A AgLE TO LEAVE! „__. /Horninö * ‘>)M W Au N16HT LONö.r OH, PHlL! DREAMED TMAT PHlL KEPT * WHEREVER VOU A-5KINÖ ME TO A1ARR.V HlÁI.. ARE, WAlT FOR I WANTED TO $CREAM BUT I $H00K MV HEAD ! ONLV A DREAM COULD MAKE ME Morguninn eftir er Wilda komin til Oakshade í Ohio og hugsar um hvort hún muni kunna við sig þar í þessari litlu borg og hvenær hún leggi af stað heim ef hún kemst af stað heim, svo segir hún við sjálfa sig: I alla nótt dreymdi mig að Phil væri að biðja mín og mig langaði að kalla „já“, en svo bara hristi jeg höfuðið, aðeins í draumi hefði jeg getað gert það. Ó, Phil, hvar sem þú ert þá bíddu eftir mjer.... bíddu. Á þessu augiicu.uú i lestinni, kallar lestarstjórinn: Næsta stöð er Oakshade. Phil segir: Þar fer jeg út.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.