Morgunblaðið - 07.01.1948, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.01.1948, Blaðsíða 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói: AUSTAN kaldi, viða ljctt- sk ý j að._____________. Skipverjar á Lappland ÞESSI mynd var tekin að Hótel Borg: að loknu hófi því er SVFÍ hjelt skipverjum af þýska togaranum Lappland í þakklætisskyni fyrir björgun þeirra á sægrörpunum fjórum frá Ðjúpavogi. Tveir íslendingar eru á myndinni lengst til hægri í aftari i-öð. Fjórði maður til vinsíri, í íremri röð, er skipstjórinn á Lappland. Ljósm. Mbl.: Ólafur K. Magnússon. ni á veitt viðurkenniii! Þeim hefnr borist margar géðar gjafir RÍKISSTJÓRNIN heíur veitt skipshöfninni á þýska togaranum Lappland 7000 krónur í viðurkenningarskyni fyrir björgun skips- hafnarinnar á m.b. Björg frá Djúpavogi. Þá var hverjum manni a togaranum afhentir skömtunarseðlar, til kaupa á helstu nauð- synjum. Þjóðverjunum hefur nú borist margt góðra gjafa frá íólki hjer í Reykjavík og Hafnarfirði. Ejitar Hunksgaard látinn EJNAR MUNKSGAARD hinn víðkunni og merki bóka- útgefandi í Kaupmannahöfn, ijest í gær. Skeyti barst hingað seint í gær frá dóttur hans. til Sigurð- ar Nordal prófessors, um frá- fall hans. Nánari atvik eru bláðinu ekki kunn þegar þetta er ritað. Ejnar Munksgaai'd var Islend ingum mjög vinveittur, og hafði með útgáfu sinni stuðlað mjög að því að umheimurinn fenji kunnleik á íslenskum fræðum. Hann r.aut hjer mik- illa vinsælda, þó aldrei kæmi hann hingað til lands. Síld er um allan sjé SlÐASTA sólarhrir.g hefur verið góð veiði bæði í Hvalfirði og hjer rjett utan við Reykjavíkur- höfn. Síðasta sólarhring komu hingað 20 síldveiðiskip og voru þau með um 19500 mál síldar. Best gátu mer.n fylgst með veiði þeirra skipa er vont með nætur sínar hjer á Rauðarárvík inni í gær. Þar tóku sum hæstu skipin í flotanum fullfermi á skömmum tíma. — Sama er að segja um Hvalfjörð, en veiðin rn un þó hafa verið mest í Ijósa- skiptunum. Mikil síld er nú um allan sjó segja sjómennirnir. En nokkuð er hún tekin að megrast. í gærkvöldi var lokið við að lesta True Knot, en hann tók síld af Framvellinum og nokkuð úr síldveiðiskipum. Þá sem endra nær var unnið að lestun þýsku togaranna. Skipin sem komu í gær voru þessi: Þorsteinn EA með 650 mál, Helga RE 300, Elsa 250, Svanur AK 700, Síldin, Hafnar- firði 1200, Vöggur 650, Keflvík- ingur 450, Jón Þorláksson 600, Víðir Ak 700, Blakknes 1300, Víðir SU 800, Keilir AK 650, Fróði & Bragi GK 550, Rifsnes 1400, Sigurfari Ak 850, Fagri- klettur 1350, Helgi Helgason 1250, Sidon 1000, Hafdís 150 og Gunnvör með 700 mál. í gær bauð Slysavarnafjelag íslands skipverjum á „Lapp- land“ og sægörpunum frá Djúpavogi til hádegisverðar að hótel Borg. Þar voru meðal gesta Jóhann Þ. Jósefsson fjár- málaráðherra og F.ysteinn Jóns- son mentamálaráðherra. I þess- ari veislu bárust hinum þýsku sjómönnum, sem eru 14, mai’g- ar góðar gjafir. Að Hótel Borg. Hófið að Hótel Borg hófst með þvi, að Guðb.iartur Ólafs- son' forseti Slysavarnafjelags- ins, bauð gesti velkomna. Þá tók til máls Jóhann Þ. Jósefs- son fjármálaráðh. og mælti hann bæði á íslensku og þýsku. í ræðu sinni samgladdist hann skipverjum af „Björg“, með hina giftusamlegu björgun þeirra. Þá gat hann þess, að samkvæmt tilmælum Slysa- varnafjelagsins, hefði ríkis- stjórnin á fundi sínum í gær- morgun samþykt að afhenda fjelaginu 7000 krónur í pening um, er skifta skyldi meðal hinna 14 þýsku sjómanna. Þá hefir ríkisstjórnin ákveðið að hver maður á þýska togaranum skuli fá skömtunarmiða að verð gildi 300 kr., til kaupa á helstu nauðsynjum. Sr. Jakob Jónsson formaður slysavarnadeildarinnar^ „Ing- ólfur“, talaði næstur. Ávarpaði hann hina þýsku sjómenn og tilkynti þeim að deildin myndi afhenda hverjum þeirra ull- arpeysur og sokka. Eysteinn Jónsson mentamála ráðherra mælti fyrir hönd Sig- urðar Jónssonar formanns á mb „Björg“. Þakkaði hann Slysavarnafjelaginu fyrir þann þátt, er það átti að björgunar- tilraunum og þær góðu viðtök- ur, er fjelagið hefði veitt skip- brotsmönnunum. Þá færði hann skipshöfninni á ,,Lappland“ þakkir fyrir þær góðu viðtökur er Sigurður og fjelagar hans urðu aðnjótandi á skipi þeirra. Að lokum mælti frú Rann- veig Vigfúsaóttir form. Kvenna deildar Slysavarnafjelagsins í Hafnarfirði. Hún tilkynti í ræðu sinni að Kvennadeildin í Hafn- arfirði myndi gefa skipverjum á „Lappland" 1000 krónur. Aðrar gjafir. Ymsar aðrar góðar gjafir hafa borist til Þjóðverjanna. I skrifstofu Slysavarnafjelagsins hafa borist um 4000 kr. í pen- ingum frá almenningi hjer í bænum. Verslunin Álafoss hef- ur gefið þeim 14 txllarpeysur og Kvennadeild SVFI hjer í Rvík hefir gefið hverjum manni einn gjafaböggul. Skipstjóri þakkar. Áður en þessu samkvæmi lauk, þakkaði skipstjórinn á „Lappland“, Theodór Henning, hinar framúrskarandi góðu við tökur, er hann og skipsfjelagar hans hefðu fengið hjer í bæn- um. Færði hann ríkisstjórninni þakkir, svo og SVFÍ og bað hann tíðindamann blaðsins, að færa öllum bæjarbúum þakkir sínar. Við getum ekki komið orðum að þakklæti okkar. Við höfum ekkert gert. Það var skylda okkar, sem sjómanna, að bjarga nauðstöddum fjelögum. Þegar jeg kem heim til Brem- erhaven, mun jeg skýra blöðum þar frá móttökunum hjer. Vera má, að það geti orðið til þess, að auka kynni og skilning milli Þjóðverja og íslendinga, sagði skipstjórinn. Kensluflugvjel hrapar niður á Elliðavaín Flugmaðurinn slapp því nær ómelddur í GÆRDAG hrapaði tveggja manna flugvjel niður á ísilagt Ell- I iðavatn. Einn maður var í flugvjelinni og slapp hann lítið meidd- | ur. Ilann heitir Guðmundur Guðmundsson til heimilis að Bók- hlöðustíg 6. Flugvjeln eyðilagðist með öllu. Alfadans og brenna á sunnudag AÐ KVÖLDI n.k. sunnudag ætla skátafjelögin hjer í Reykjavxk að efna til álfadans og brennu á íþróttavellinum. Ætla skátarn ir að vanda til brennunnar eftir bestu föngum. Hlaðinn verður stór bálköst- ur og ljóskösturum komið fyrir, er lýsa eiga upp svæðið, sem álfadansinn fer fram á. Gert er ráð fyrir, að 200 til 300 skátar, stúlkur og piltar taki þáft í álfa- dansinum. Verða þeir klæddir allskonar búningum í gerfum ,,Grýlu“ og „Leppalúða", jóla- sveina og annara. Að sjálfsögðu verður Álfakongurinn og drottn ing hans og með þeim frítt föru neyti. Enn hefur ekki verið á- kveðið hver skuli vera Álfakóng urinn, en eflaust verður það söng maður góður. Lúðrasveit Reykja víkur leikur fyrir dansinum. Skátarnir ætla að haga dans- svæðinu á vellinum þannig, að sama verður hvar fólk stendur á áhorfendasvæðinu, því allir eiga að sjá jafnvel. Ekki er að efa að bæjarbúar muni fjölmenna á brennuna, því liðinn eru nú mörg ár síðan fallegur álfadans uæq i jafq ;áo[s Jnjaq euuajq 3o um. Skipverjar af Björg þakka SKIPVERJAR á m.b. Björg frá Djúpavogi, sem þýski togarinn Lappland bjargaði, hafa beðið blaðið að færa skipverjunum á þýska togaranum þakkir sínar. Ennfremur þakka þeir Slysa- varnafjelaginu, skrifstofustjóra þess, Henry Hálfdánarsyni og forseta þess Guðbjarti Ólafssyni, svo og Eysteini Jónssyni ráð- herra og öðrum þeim er greitt hafa götur þeirra hjer í Reykja • vík. Þeir fjelagar fara sennilega heim í dag. 230 vistmenn á Elli- beimilinu VISTMENN á Elli- og hjúkr unarheimilinu Grund voru 230 um síðustu áramót, 168 kon- ur og karlmenn. Á sama tíma í fyrra voru þeir alls 223, en árið áður 174. Á síðasta ári komu 85 nýir vistmenn á heimilið, en 41 fór þaðan og auk þess dóu 37. — Á árunum frá 1935—1947 hafa alls 1178 vistmenn komið á Elliheimilið. Stálframleiðsla Breta eykst LONDON: — Stálframleiðsla fer nú ört vaxandi í Bretlandi og framleiddu þeir um 14,174,000 tonn árið 1947. ■^Sást úr annari flugvjel Flugtuminn á Revkjavíkur- flugvelli, f jekk í gær um kl. 2.30 tilkynningu frá Grummanflug- vjel frá Loftleiðum. er var á leiS til Vestmannaeyja, þess efnis, að til flugvjelar sæist á Elliðavatni og myndi hún hafa hrapað. Flugumferðarstjórinn gerði sjúkraliðinu þegar aðvart og frá slökkviliðinu á flugveJlinum var sendur bíll. í æfingaflugi Guðmundur Guðmundssoni stjórnaði flugvjelinni og var í æfingaflugi er þetta óhapp vildi til. Hann hefur svonefnd „solo- rjettindi". Yfir ísilögðu Elliða- vatni mun hann hafa flogið frek ar lágt. Hefur hann svo mist stjórn á flugvjelinni og hún hrapað niður á ísinn. Flugvjel- in kom á hliðinni niður á ísinn og kastaðist svo ein 60 fet áfram en stakkst þá á nefið á ísinn, og stöðvaðist. Komst sjálfur úr flugvjelinni Guðmundur kost sjálfur út úr flugvjelinni og gekk heim að bænum Elliðavatni. Hann hafði hlotið skurð á höfði og senni* lega snert af heilahristing, því mjög kvartaði hann um höfuð- verk. Sjúkrabíllinn, sem sendur var, flutti Guðmund í sjúkra- hús. Var þar gert að sárum á höfði hans og síðan var hann fluttur heim til sín. Flugvjelin eyðilagðist Um flugvjelina er það að segja, að hún er talin alveg ó- nýt. Vængir hennar brotnuðu og skrokkur, hjólaútbúnaðurinn brotnaði undan henni. Flugvjel þessi var af Tiger Moth gerð, tvíþekja, eign flugskólans Cum- ulus hjer í bæ. Einkennisstafir hennar voruu TF — A. B. C. Orsök þessa slyss var verið aði rannsaka í gær. Mikið gos í Heklu HÚSFREYJAN að Ásólfs- stöðum skýrði MorgunblaðinU frá bví í gær í viðtali, að þrjú undanfarin kvöld hafi verið óvenjulega miklir eldar i Heklu, og hafi þeir verið einna mestir í fyrrakvöld. Mest virðist gosið nú verá í suð-vestur öxl fjallsins. —- Mikla gufumekki leggur nú upp af gígunum, sem gosixl eru í. Undanfarið hefur lítið bor- ið á hraunrensli, þegar horft er til fjallsins frá Ásólfsstöð- um. En i þessum síðustu gosr um sjer nú aftur á glóandi hraun. Engar drunur hafa heyrst til Ásólfsstaða frá fjall- inu. Milli jóla og nýjárs urðþ heimamenn á Ásólfsstöðum stundum varir við smávegis jarðhræringar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.