Morgunblaðið - 21.01.1948, Blaðsíða 2
2
MORGVTSBLAÐIÐ
Miðvikudagur 21. janúar 194$
Stuttur leiðurvísir til ritstjóru
Alþýðubluðsins
Á SUNNUDAGJNN var birt-
ist hjer í blaðinu stuttorð á-
bending til ritstjóra Alþýðubl.,
um það, að honum' væri fyrir
bestu að kynna sjer rannsóknir
þær, sem fram hafa farið á
Hitaveitunni, áður en hann
hjeldi áfram á r.ð skrifa um
málið. Því í Alþýðublaðinu dag
inn áður hafði einhver skrifað
inn málið ,,eins og álfur út úr
hól“.
í stað þess að taka leiðbein-
ingunni, heldur ritstjóri blaðsins
uppteknum hætti, og birtist í Al-
þýðubl. í gær önnur grein, af
sama tagi og á laugardaginn. —
Lengur verður ekki hlífst við að
fletta ofan af fáfræði Aþýðubl.-
ritstjórans í þessu máli.
Hann byrjar vandlætingarlest-
ur sinn, með því að segja að bæj
aryfirvöldunum og hitaveita-
stjóra hafi verið óijúft „að láta
reynstuna sjer að varnaði verða“
og því hafi möguleikarnir til
skemda á hitaveitukerfinu ckki
verið teknir ti! athugunar fyr en
í mars s.I.
Þessi ummæli ein sanna, að
ritstjórinn veit lítt um hvað hann
er að tala og hann hefur ekki
einu sinni kynt sjer ræðuna sem
borgarstjóri hjelt á síðasta bæj-
arstjórnarfundi og birtist hjer í
blaðinu s.l. föstudag.
Þá’r er skýrt frá þvi, sem raun-
ar hver einasti maður víssi, sem
nokkurn hug hefir haft á því, að
kynna sjer rekstur hitaveitunnar
að rannsóknarnefnd sú, sem héf-
ur haft málið með höndum, hóf
starf sitt í mars 1916, en ekki í
marsmánuði s.l. Þessi ummæli
ritstjóra Alþbl. leiða í ljós, að-
í heilt ár hefir hann ekkert vit-
að hvjið var að gerast í þessu
rannsóknarmáli, eða ekki viljað
vita það, eða hann hefir mist úr
eitt ár æfi sinnar og yfirleitt ekki
fyígst með því, sem gerðist í
kringum hann.
Slíkir menn ættu að. varast í
lengstu lög að tala um seinlæti
eða áhugaleysi hjá öðrum.
Þegar ritstjórinn heíir svo
fært sönnur á í grein sinni, að
hann hafi ekki vitað að rann-
sóknir stóðu yfir frá því'í mars
1946, til jafnlengdar næsta ár hef
ur hann upp raust sína og segir.
„Því er ekki að neita að það
má undarlegt heita, að þctta mál
skuli ekki hafa verið tekið fyrr
upp til alhugunar“.
Sannleikurinn er sá, að undir
eins og nokkur grunur heyrðist
um það, að hitaveituvatnið gæti
orsakað skemdir í veitukerfinu,
voru pípulagningamenn spurðir
um það, hvers þeir hefðu orðið
áskynja. En þó margir þeirra
hefðu ekki orðið þess varir, að
urn hættu fyrir kerfið gæti ver-
ið að iæða, þá voru strax fengnir
hinir færustu menn til þess að
taka að sjer fullkomna rannsókn
málsins.
Ritstjóri Alþýðublaðsins -talar
um, að einhverjir dularfullir
„sumir“ hafi viljað eyða þessu
rannsóknarmáli. Hann ætti að
reyna að benda á þessa menn, og
beina skeytum sínum þangað. —
Ellegar viðurkenna að þar sem í
öðrum greinum þessa máls, vaði
hann reyk.
Og enn segir hann: Að nefndin,
sem tók að sjer rannsóknirnar
hafi „ekki verið tiltakanlega
skjótvirk“. Með þessum ummæl-
um sannar hann enn, að hann
hefir enga • þekkingu, eða
kunnleik á því, sem hjer er um
að ræða. Rjett áður nefnir hann
í grein sinni, að menn þurfi í
þessu máli að „notfæra sjer
reynsluna". Sem og að sjálfsögðu
hefir veríð, og verður gert. En
svo gersamlega fávís er hann um
það hvernig reynslan verður not-
uð í þessum efnum, að hann held
ur að rannsókn sem þessi, taki
ekki langan tíma. Rjett eins og
þcir sem hafa rannsóknma með
Að kynna sjer málin áður
en hann skrifar
höndum, geti tekið vatnið til yf-
irheyrslu og spurt:
„Ætlar þú að skemma píp-
urnar eða ofnana í Hitaveit-
unni?“
En því miður er ekki hægt að
hafa þessa aðferð Stefán Pjeturs-
son'við rannsóknir á þvi, hvort
hitaveituvatn skemmir leiðslur
með rennsli sínu í ár eða ára-
tugi.
Þá segir ritstjórinn, að krefjast
beri þess, af forráðamönnum
hitaveitunnar, að þeir geri við-
unandi grein fyrir þvi, hvernig
á því stendur, að máli þessu hafi
ekki verið ineiri gaumur gefinn.
Þetta segir hann, sem sannanlega
hvorki fyr nje nú hefir gert sjer
nokkurt far um að kynna sjer
málið.
Forráðamenn hitaveitunnár
hafa gefið þessu máli fullan gaufn
frá upphafi, einsog fram kom í
ræðu borgarstjóraris á fimtudag-
inn var. Eins og. allir vita sem
hafa kynnt sjer nokkuð aðgerðir
í málinu.
En komið hefir á daginn aftur
á móti að það er til of mikils
mælst við ritstjóra Alþýðublaðs-
ins að hann gefi því nokkurn
gaum, að vita, um hvað hann er
að tala, þegar hann ræðir um
málefni Hitaveitunnar.
í 12 mánuði vinna hinir fær-
ustu menn að rannsóknum á hita
veituvatnini^, án þess ritstjóri
þessi hafi um það frjett. En þeg-
ar skýrsla kemur frá þeim, eftir
vel unnið starf, þá botnar rit-
stjórinn ekkert í því sem þar er
sagt, svíkst um að lesa skýrsl-
una, áður en hann fer að skrifa,
#
Danlr og Brelar
koma ijer samait um
imjörverð
Einkaskeyti frá frjeltaritara
Mbl. í Kaupmannahötn.
VIÐSKTPTANEFNDIR Dana og
Breta hafa komið sjer saman
um verð á dönsku smjöri, sem
fíutt verður til Englar.ds. Áðui
hafði náðst samkomulag um
verð á reyktu fleski. Það er því
búist við að útflutningur Dana
á smjörí og reyktu svínafleski
,hefjist á ný til Englands og
að verslunarsamningur verði
gerður milli þessara pjóða.
Um magn útflutnings frá
Danmörku er talið að fari eftir
því hvað Bretar treysta sjer til
að láta í móti, en það er einkum
vefnaðarvara og stálvörur, sern
Danir sækjast eftir. Er haldið
áfram samkomulagstilraunum
um þessi atriði.
Smjörverði og vbrði á reyktu
svínakjöti er haldið leyndu fyrst
um sinn, en talið er að ekki hafi
verið gengið til fulls að verð-
kröfum Dana. — Páll.
Málflulningi lokið
í GÆR lauk í Hæstarjett.i munn
legum málflutningi í máli rjett
vísinnar og valdstjórnarinnar
gegn „brennumör.nunum sjö“.
Eins og þegar hefir verið skýrt
frá, er þetta eitt umfangsmesta
mál, sem komið hefur fyrir
Hæstarjett. Dómsdagui hefur
ékki enn verið ákveðinn.
um hana og leiðir í Ijós, full-
komna vanþekkingu á aðalatrið-
um málsins.
Þegar manninum er, með fá-
einum orðum bent á, að hann
skuli kynna sjer málið nokkuð,
áður en hann skrifar meira, þá
heldur hann áfram í forherðing
vanþekkingarinnar, segir að
Morgunblaðið hafi „farið útúr
jafnvægi“ og „skyni gæddir
menn“ muni ekki taka þær leið-
beiningar alvarlega, sem vikið
var að honum hjer, að hann
skyldi lesa skýrslu rannsóknar-
nefndarinnar áður, en hann
hjeldi áfram að skrifa um hana
og draga af henni rammskakkar
ályktanir.
Engir- af starfsmönnum Morg-
unblaðsins hafa ástæðu
lil að fara út úr jafnvægi, þó
ritstjóri Alþýðublaðsins haldi á-
fram að skrifa um mál, er hann
sannanlega hefir ekkert kynnt
sjér.
En því. verður ekki haggað
með frekari skrifum frá hans
hendi, að hann h’afi, það sem aí
er, ritað um störf og álit rann-
sóknarnefndarinnar eins og álfur
út .úr hól, svo hin fyrri ummæli
Morgunblaðsins sjeu hjer ítrek-
uð.
Annars er það hægt, hvenær
sem vera skal, að rekja afskifti
Alþýðublaðsins, og Alþýðuflokks
ins af undirbúningi og fram-
kvæmd Hitaveitunnar, ef ske
kynni, að einhverjir sjeu farnir
að gleymaþyí, hvar það mál væri
komið, og hvernig, ef stefna Al-
þýðuflokksins hefði fengið að
ráða í því máli.
„Hamarinn" efiir sr.
Jakob Jónsion lelk-
inn á Akureyri
Akureyri, þriðjud.
Frá frjettaritara vorum.
LEIKFJELAG Akureyrar er
farið að æfa nýtt leikrit eftir
sjera Jakob Jónsson, og er nú
fullskipað í hlutverkin.
Leikrit þetta nefnist „Ham-
arinn“ og er í fjórum þáttum.
Gerist það nú á dögum og fer
fram í litlum kaupstað, eða
þorpi út á landi. Leikstjóri' er
Jón Norðfjörð. - H. Vald.
VIII fækka hirð Brefa
konungi
London í gærkvöldi.
RONALD Chamberlain, sagði í
ræðu í dag í neðri málstofunni
að það bæri að fækka hirðinni
og þeim mönnum sem þægju op-
inbert fje vegna tignarstaða
sinna. Chamberlain sem er þing
maður verkamannaflokksins
nefndi þetta í sambandi við um-
ræður þær, sem nú fara fram
um hækkun launa Elisabetar rik
isarfa og hertogans af Edinborg
manns hennar. Kom fram frum-
varp þess efnis fy.rir jól að
hækka laun hennar frá 15.000
sterlingspundum upp í 40.000
pund og veita manni hennar 10
þús. pund á ári. Ekki vanst þá
tími til þess að afgreiða frum-
varpið og er það nú aítúr á dag-
skrá. — Reuter.
Bridgekeppnin:
Gunnar Pálison og
Torfi Jéhannsson
efstir
EFTIR fjórðu umferð í tví-
menningskeppni Bridgefjelags-
ins standa -leikar þannig, að
Gunnar Pálsson og Torfi Jó-
hannsson eru efstir með 479V2
stig, en þeir voru í fjórða sæti
áður.
Næstir eru Einar B. Guð-
mundsson og Sveinn Ingvarsson
með 478y2 st., en 3. Skarphjeð -
inn Pjetursson og Einar Ágústs-
son með 466 stig. 4. Benedikt
Jóhannsson og Stefán Stefáns-
son’450 st., 5. Guðm. Guðmunds
son og Brynjólfur Stefánsson
437V2, 6. Gunngeir Pjetursson
og Zophonías Pjetursson 437 st.,
7. Örn Guðmundsson og Sigur-
hjörtur Pjetursson 431, 8. Lárus
Pálsson og Árni M.. Jónsson 425
st., 9. Kristján Krist.iánsson og
Árni Daníelsson 408y2 st., 10.
Jóhann Jóhannsson og Guðm.
Pálsson 408, 11. Jón Guðmunds-
son og Gunnar Guðmundsson
401, 12. Helgi Eiríksson og Tóm-
as Jónsson 388%, 13. Guðm. Ól-
afsson og Helgi Guðmundsson
38114 st.., 14. Þorlákur Jónsson
og Guðí. Guðmundsson 379%,
15. Ásbjörn Jónsson cg Ingólfur
Isebarn 379 st. og 16. Jón Þor-
steinssor. og Róbert Sigmunds-
son 369% st.
Fimmta og síðasta umferðin
verður spiluð n.k. su.nnudag, og
verður baráttan um efsta sætið
auðsjáanlega mjög hörð.
Frjálilyndl söfnuö-
urinn í Reykjavík
afhendir gjafir
SÍÐUSTU STJÓRN Frjálslynda
safnaðarins í Reykjavík var fal
ið á síð^sta aðalfundi safnaðar-
ins, er safnaðarslit voru ákveð-
in, að sjá um afhendingu á gjö.f-
um til eftirtaldra aðila og hefur
það nú verið framkvæmt þann-
ig:
Gjöf til Barnaspítalasjóðs
Hringsins kr. 70.678.52 ásamt
vöxturri af verðbrj. kr. 2.620.00,
og fylgir gjöf þessari sjerstök
skipulagsskrá, um að gjöf þessi
verði sjerstakur sjóður er heiti
Minningarsjóður Frjálslynda
safnaðarins í Reykjavík.
Gjöf til Sálarannsóknarf jelags
íslands kr. 70.678.52. Gjöf til
Stóruvatnshornskirkj usóknar
kr. 15.000.00. Einnig var Frí-
kirkjunni í Reykjavík afhent
minningargjöf um starfsemi
safnaðarine í kirkjunni árin
1941—1946.
Þar með er öllum eignum safn
aðarins ráðstafað.
Ennfremur var kvenfjelag starf-
andi innan safnaðarins og var
eignum þess ráðstafað þannig:
Gjöf til fyrirhugaðs blindra-
heimilis kr. 25.000.00. Gjöf til
fyrirhugaðrar vöggustofu Thor-
valdsensfjelagsins kr. 17.247.65.
Leopold Belgíukonungur
í Vesfur Indíum
Lissabon í gærkvöldi.
LEOPOLD konungur er nú í
Lissabon á leið til Vestur-Indiu
þar sem hann ætlar að dvelja
sjer til skemtunar. Ekki hefur
ennþá verið ákveðið, hver verða
örlög hans sem konungs Belgíu,
en hann hefur dvalið í útlegð í
Svisslandi síðan stríðinu lauk.
Smfórllkiilaui bær
vegna hráefnaskorfs
EKKERT viðbit fæst nú í bæn-
um. Langt er síðan smjör hef-
ur verið á markaðnum og smjöi’
liki er nú senn á þrotum í öll-
um verslunum. — Ástæðan til
smjörlíkisskortsins er, að ekki
tókst að fá hráefni í tæka tíð og
eru smjörlíkisverksmiðjurnar nú
stöðvaðai1.
Þetta er í fyrsta sinn í 25 ár,
sem ekki hefur tekist að ná í
hráefni til smjörlíkisgerðar í
tæka tíf til þess að framleiðslan
gæti haldið áfram viðstöðulaust.
Öll stríðsárin tókst verksmiðjun-
um að hafa nægjanlégar hráefna
birgðir, þótt oft gengi erfiðlega
að ná þeim.
Hefur reynst erfiðara eftir
styrjöldina að afla hráefna til.
smjörlíkisgerðar og hafa þó verk
smiðjurnar gert alt, sem í þeirra
valdi stendur til þess. — Maður
hefur verið í Ameríku frá smjör
líkisverksmiðjunum íslensku til
þess að reka á eftir. Hefur Thor
Thors sendiherra veitt stuðning
sinn í málinu. Var treýst á, að
verRsmiðjurnar vestra myndu
senda hráefnin með síðustu ferð
eins og lofað hafði verið, en það
brást og var borið við, að löndin
í Mið-Evrópu þörfnuðust þeirra
birgða er fyrir hendi lágu. En
nú er fullvíst að hráefni komi
til smjörlíkisgerðar með næsta
skipi og munu verksmiðjurnar
taka þá strax til staffa við fram
leiðsluna.
Ekki skorti gjaldeyrisleyfi nje
yfirfærslu að þessu sinni. Smjör-
líkisverksmiðjurnar munu nú
hafa hug á, að afla sjer nægjan-
legra lnáefnabirgða hví sýnilegt
er, að lítið ætlar að rætast úr
með feitmetisskortinn í beimin-
um fyrst um sinn.
Iðnaðuriitn dregif
laman á Akureyri
Akureyri, þriðjud.
15. JANÚAR kom stjórn Iðn
rekendafjelags Akureyrar sam
an á fund til að ræða um ástancl
það, er skapast hefir í mestum
hiuta iðnaðarins hjer á Akur—
eyri, sem orsakast hefur af hrá
efnaskorti síðastl. ár-
Sumar verksmiðjur hafa þeg-
ar hætt störfum og aðrar neyð
ast til þess innan skamms*. ef
ekki rætist úr þessum vandræð
um. Vonir manna við skýrslu-
söfnun þá, sem Fjárhagsráð
ijet fara fram í byrjun nóvem-
bermánaðar síðasfl. hafa alger-
lega brugðist. Þar var m. a.
óskað eftir upplýsipgum um
minnstu hráefnaþörf til árs-
loka 1947, en ekki er vitað um
eitt einasfa fyrirtæki hjer á
Akureyri, sem fengið hefir svar.
Lýsti stjórn Iðnrekendafje-
lagsins megnri óánægju yfir
því aðgerðarleysi, sem virðist;
ríkja í þessum máium hjá þeim
aðilum, sem með innflutnings-
og gjaldeyrismlá fara. Iðnrek-
endum á Akureyri eru þó vel
íjósir þeir örðugleikar, sem viö
er að etja í gjaldeyrismálum
þjóðarinnar, eiris og sakir
standa, en skilja hinsvegar ekkí
hina algeru þögn varðandi inn-
flutningsmál iðnaðarins. .
— H. Vald.
Kominn fram
MAÐUR sá er rannsóknarlög-
reglan lýsti eftir fyrir nokkrum
dögum, Jón Magnússon, Kjart-
ansgötu 5, er korninn fram.
Hann hafði allan tímann ver-
ið í húsi kunningja síns suður í
Fossvogi.