Morgunblaðið - 21.01.1948, Blaðsíða 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
— FRA EYSTRASALTS-
SENNILEGA allhvass sunn-
an e3a suðaustan og jeljaveður.
LÖNDUNUM. — Sjá grein á
bls. 7. —
Fundir Arabaráðsins í Kairo
ÞES8I MYND var tekin af þingi forsætisráðherra hinna arábisku landa, sem komu saman til að ræða
ráðstafanir 03 mótmæíi gegn skiftingu Palestínu. Fáar fregnir hafa borist af áætlunum íundarins,
en frjettaritarar þykjast vita að rætt hafi verið um „dagsetninguna, er Palestína verði frelsuð úr klóm
Gyðinga". Fyrir miðri mynd, fremst, sjest Riad Bey el Sohl, forsætisráðherra Libanon og siðan
talið frá vinstri, kringum borðið: Azzam Pasha, aðalritari arabiska ráðsins, Djamil Mardam Bey,
Sýrland, E1 Nokrashi Pasha, Egyptalandi, Saleh Djabr, írak, E1 Rifai Bey frá Transjordaníu og Ali
et Ma’yad frá Yemea.
Mikið fjöimenni á
kvöSdveku Heim-
dsilar
Stuttbylgjuútvarp til út-
landa hefst 1. febrúar
MJÖG MIKIL aðsókn var að
kvöldvöku Heimdallar í Sjálf-
-stæðishúsinu s.l. sunmidag. Var
húsið eins þjettskipað fólki
eins og það getur frekast ver-
ið með góðu móti, og margir
urðu frá að hverfa, enda var
prýðilega til kvöldvökunnar
vandað.
_ Magnús Jónsson, ritstjóri
„íslendings'* á Akure.yri, sem
nú er staddur í bænum, ílutti
snjalla hvatningarræðu, og
var máli hans mjög vel tekið.
Þá var sýnd kvikmynd, en síð-
an var leikþáttur. Tókst hann
með ágætum vel, og var mönn-
um til mikillar skemmtunar.
Leikendurnir voru allir úr
Heimdalli. Að lokum var stig-
inn dans.
Kom greinilega fram á sunnu
daginn, hve miklum vinsældum
Heimdallur hefir aflað sjer
kvöldvökum sínum, sem eru
holar og góðar skemtanir.
ÚTVARPSRÁÐ hefur nú ákveðið að Ríkisútvarpið taki upp
stuttbylgjuútvarp til útlanda. Hefst það sunnudaginn 1. febrúar
næstkomandi. Verður fyrst í stað einungis útvarpað á íslensku
til íslendinga, sem búsettir eru erlendis. Mun það standa yfir í
hálfa klukkustund í senn og hefst kl. 3,15 'og verður þannig felt
saman við miðdegisútvarpið á sunnudögum.
Verður dagskrá stuttbylgju-
útvarpsins jafnframt útvarpað
á hinni venjulegu bylgjulegnd
útvarpsins og geta hlustendur
hjer heima því einnig hlustað
á það.
Útvarpað verður frjettayfir-
liti, stuttum þáttum og íslenskri
tónlist. Rætt hefur verið um að
Jón Magnússon, frjettastjóri
útvarpsins, hefði a. m. k. fyrst
í stað, umsjón með þessari
starfsemi.
Gerðar hafa verið ráðstafanir
til þess að íslendingar erlend-
is viti um, hvenær stuttbylgju-
útvarpið hefst.
Er vel farið að Ríkisútvarpið
skuli hafa tekið þesas starf-
semj upp. Mun hún mælast vel
fyrir, ekki hvað síst meðal
þeirra ísletidinga^ sem erlendis
búa. Til þess ber hinsvegar
nauðsyn, að ekki verði við það
eitt látrð sitja að útvarpa á ís-
lensku, heldur hafist handa um
útvarp á erlendum málum. —
Værj það áreiðanlega ein á-
hrifamesta landkynning, sem
þjóðin á kost á.
Samkomur hætta
klukkan 1 eftir raið-
nætti frá 1. februar
DÓMSMÁLARÁÐHERRA
hefir gefið út reglugerð um,
að öllum samkomum, dansleikj
um. sem haldnar eru í opin-
berum veitingahúsum, fjelags-
heimilum og öðrum samkomu-
húsum skuli hætt í síðasta lagi
kl. 1 eftir miðnætti frá 1. febr.
næstk.
Var ráðherra veitt heimild
með lögum frá 22. des. s. 1. til
að gera þessar ráðstafanir.
%----------------------------
Sigurður Skagiield
syngur í Dómkirkj-
unnni
SIGURÐUR SKAGFIELD óperu
söngvari, sem er nýkominn heim
eftir langa dvöl í Þýskalandi,
heldur kirkjuhljómleika í Dóm-
kirkjunni næstkomandi föstudag
kl. 8,30. Páll ísólfsson leikur und
ir á orgel og leikur auk þess ein-
leik, en á oboe leikur Andrjes
Kolbeinsson.
Skagíield ætlar að syngja verk
eftir Beethoven, Baeh, Hándel,
Hendelsohn, Rossini, Saint-
Saéns, Reger, Wolf, Gounod,
Brams og að lokum G, guð vors
lands, eftir Sveinbjijrn Svein-
björnsson.
Skagfield hefur fengið góða
dóma fyrir söng sinn erlendis.
T. d. er þess getið i tímari'inu
,,The Record Collector", sem er
tímarit hljómplötusafnenda, að
Sigurður Skagfield ’iafi skarað
fram úr einsöngvurunum í hljóm
plötu upptöku á 9. symfóníu
Beethovens, sem léikin er af
philharmonisku hljómsveitinni í
Hamboig undir stjórn Eugen
Pabst. En þar er þess einnig
getið tiJ fróðleiks, að Sigurður
Skagfield sje nemandi hins
mikla Wilhelm Herold.
Veriíð hafin í Eyjum
FYRSTI róðurinn á þessari
vertíð var farinn 1 dag af vjel-
bátnum Emmu.
Afli var mjög sæmilegur, um
4 tonn, þegar tekið er tillit til
þess að báturinn hafði mjög
stutta línuj eða 20 stampa.
Óveður hefur hamlað
veiðum á Halanum
síðan um jól
bar voru 23—30 logarar í gær
SÍÐAN UM jól hefur því nær látlaust óveður geisað á Halamið-
um. Hafa togararnir því lítt getað stundað veiðar þar Þegar
veiðiveður hefur verið skaplegt, var afli togaranna mjög
misjafn. Síðan um áramót hafa 10 eða 12 togarar flutt fisk á
Englandsmarkað. Hefur afli þeirra verið lítill og gamall. Era
þess dæmi að honum hafi verið fleygt er hann kom á markaðinn.
Verkamenn í Vest-
mannaeyjum kviiia
r
fyrir komu Aka Jak-
obssonar
ÁKI JAKOBSSON og Sigurður
Guðnason höfðu útivist harða og
langa í Eyjum úti fyiir skömmu.
Höfðu þeir fjelagar ærinn starfa
því þeim var farinn að fipast
línudansinn sumum „fjelag-
anna.“ austur þar að sögn.
Voru yfirheyrslur langar og
harðar og járnburðar krafist um
hugarfar og breytni hinna ó-
breyttu liðsmanna. Annað var
haft með í förinni að koma bar-
dagahug í mannskapinn og stóðu
vonir þeirra Áka til þess að fá
kommúnista-yfirráð á verklýðs-
fjelagsskap Eyjamanna, tR að
geta ráðið verkföllum, en þar
hafa sjálfstæðis- og alþýðu-
flokksmenn haft völdin. Kosn-
ingar innan verkalýðsfjelagsins
stóðu fyrir dyrum.
Þeir Áki fóru svo úr Eyjum,
að hjá aðaibroddunum höfðu yf •
irheyrslur, föstur og kárínur
nokkru áorkað að dómi Áka.
En kosningarnar í verklýðsf je
laginu fóru fram rjett á eftir og
voru talsmenn kommúnista þar
ærið stórorðir og sigurvissfr. —
Fanst þeim að vonum allir verka
menn skyldir til að glúpna fyrir
Áka og Sigurði.
En alt fór þetta á annan veg.
Listi kommúnista fjekk ekki svo
mörg atkvæði, að beir kæmu
neinum að í stjórn fjelagsins.
Á þann hátt þökkuðu sjálfstæðis-
verkamenn í Eyjum þeim Áka
þegjandi fyrir komuna og kvitt
uðu fyrir.
Þjóðviljinn er úrillur út af
þessum málalokum, og svalar
sjer helst á því að senda hnútur
.til Jóhanns Þ. Jósefssonar ráð-
herra. Hann er nú íátinn gjalda
þess hversu verkamenn í Eyjum
reyndust ótalhlýðnir við þá Áka.
Framlðfösían í Eyjura
skilaði 30 mllj. í eil.
gjaldeyri
V estmannaeyj um,
þriðjud. — Frá frjetta
ritara vorum.
í ÁRAMÓTAGREIN í viku-
blaðinu „Víðis“ hjer er þess
getið, að framleiðslan í Eyjum
hafi skilað árið 1947 um 30
mili. kr. erlendum gjaldeyri,
eða tæplega 10%'af heildarút-
flutningi þjóðarinnar.
Mest fæst fyrir frosin fiski-
flök, eða 8,2 milj. kr. Er salt-
fiskur með 6,6 milj.
— Bj. Guðm.
Aflahroturnar.
Aflahroturnar hafa jafnan stað-
ið mjög skamma stund. Skipin
hafa getað togað í nokkrar
klukkustundir, en svo hefur
skollið á rok og sjór tekið að
ýfast og hafa togararnir þá leit-
að vars. Þannig hefur það geng-
ið á Halamiðum síðan um jól.
Fiskurinnn settur í eitt skip.
í þessum stuttu aflahrotum
hefur aflinn yfirleitt verið
tregur. Hafa útgerðarmenn þá
tekið það ráð að slá afla tveggja
skipa saman til útflutnings'. —■
Þrátt fyrir þetta hafa flest
skipanna ekki fengið fullfermi.
Síðustu frjettir af Haiamiðum,
sem blaðinu bárust í gærkvöldi
eru þess efnis, að það hafi ver-
ið á takmörkum að hægt væri
að stunda veiðar þar i gær. Þar
voru þá milli 25 og 30 skip.
Flest þeirra hafa verið úti í
langan tíma. Afli þeirra í gær
var mjög misjafn Einn togar-
anna, Egill Skallagrímsson,
hafði fengið 13 poka af þorski
í tveim „hölum". Það má telj —
ast góður afli, þegar þcss er
gætt, að hjer var eingöngu um
þorsk að ræða.
Síðustu sölur.
Samkvæmt upplýsingum frá
Fiskifjelagi íslands, hafa fimm
togarar selt í Englandi síðustu
10 daga. Skipin voru flest með
gamlan físk, er seldist lágu
verði. Þessi fimm skip lönduðu
samtals 13,665 kitS', er seldust
fyrir um 660 þús. krónur. Tog-
ararnir eru þessir' Júní, sem
seldi í Grimsby 2295 kits, fyrir
6731 sterlingspund Hinir fjór-
ir seldu í Fleetv/ood: Júpíter
2708 kits fyrir 7734 pund, Ing-
ólfur Amarson 2708 kits fyrir
7734, Kári 3330 kits fyrir 9001
pund og Faxi 2624 kits fyrir
5706 stpd.
Á leiðinni til Englands eru
Akurey, Surprise, Vörður og
Kgldbakur. Akurey átti að selja
í gær. Þessir togarer höfðu allir
mjög langa útivist.
Kirhjusfræfi 6 ekki
enAirbygi
Á FUNDI bæjarráðs s.l. mánu-
dag, var m. a. rætt um endur-
byggingu hússins Kirkjustræti
6. En sem kunnugt er, eyði-
lagðist húsið í eldi 30. des. s.l.
Bæjarráð samþykti, að það
mundi ekki fyrir sitt leytí veita
samþyklci til þess að húsið yrði
endurbygt. Bæjarráð hefir áð-
ur samþykt að gefa ekki sam-
þykki til þess að húsið yrði end
urbygt. Bæjarráð hafði áður
samþykt að gefa ekki samþykki
sitt til þess að Kirkjust.ræti 4,
yrði endurbygt. f skipulagsupp
drætti að Miðbænum mun vera
svo ákveðið, að Tjarnargatan
eigi að breikka sem svarar
þessum tveim lóðum.