Morgunblaðið - 25.01.1948, Page 5

Morgunblaðið - 25.01.1948, Page 5
■ ; ■ t 'II,- í ! ’ ■ í : : i i Sunnudagur 25. janúar 1948. MORGUNBLAÐIÐ Þórey Pálsdóttir húsfreyja á Reykhólum: Hundrað ára minning STÖRF húsmóðurinnar hafa aldrei verið talin til afreka, og húsmæðurnar í landinu sjaldan settar á bekk með afreksmönnum þjóðarinnar. Þó hygg jeg að líf og starf margra þeirra gæti til af- reka talist. Allt fram á fyrstu tugi þessar- ar aldar höfðu heimilin á íslandi fjölþætt hlutverk að vinna. Þá Var fátt um barnaskóla og kenn- ara, engin ellihæli, lítið um lækna og sjúkrahús, og þá var ekki hægt að hlaupa í búðir og kaupa nauð- synjar tilbúnar til neyslu. Allt kom þetta niður á heimilinu. — Hvert heimili var smásamfjelag. Þar voru framleiddar langflestar nauðsynjar heimilisfólksins og meira til. Þar voru börnin fóstr- uð og fædd, kennt að vinna og þannig undirbúnin undir eigin lífsbaráttu og þar áttu gamlir og sjúkir athvarf þegar orkan þvarr. Heimilin voru að vonum mjög misjöfn og ekki áttu öll börn gott í uppvextinum, síst þau munaðar litlu, nje h^ldur gamalmenni og aðrir, sem ekki voru færir að bæta úr eigin þörfum. En það Voru til heimili, sem leystu hlut- Verk sitt svo vel af hendi, að til fyrirmyndar var. Á slíkum heim- ilum var skjól fyrir bæði yngstu og elstu kynslóðina, og verkleg- og andleg menning fluttist þar frá einni kynslóð til annarar. Það var að sjálfsögðu fyrst og fremst verk húsmóðurinnar að gera heimilin að góðum dvalar- stað, enda gátu hæfileikar og mannkostir konunnar notið sín vel í þeirri stöðu. iiiiifiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiitt «*M*$x®x®x$3x®x$<$3x$x$<5>®^x®^x®x$<$x$x$x$><$x$x$x$.<$<$.<$.<$k$.<$kSx»<$x$3x®x$xSx$k$.<$«$.s Stúlka | óskast strax í hæga og i rólega vist, utan við bæ- f inn, sjerherbergi, hátt f kaup, mikil frí. Rafmagn, f vatn og sími er í húsinu. f Strætisvagnar í bæinn á i 15 mínútna fresti. — Til- f boð sendist blaðinu fyrir | 27. janúar, merkt: „Foss- f vogur — 138“. <iiiliiiiiiimiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiai -Vanur rennismiður óskast. —Þarf að geta unnið sjálfstætt. — Vjelaverkstæði Sig. Sveínbjörnssonar h.f. Sími 5753. Atvinna — Atvinna 'b-ASÍck Jeg held að ekki sje ofmælt, þó að Þórey á Reykhólum sje tálin hinn ágætasti fulltrúi hins besta meðal húsmæðra á sinni tíð, og Reykhóla-heimilið undir stjórn hennar og Bjarna, fóstra míns, hin mesta fyrirmynd, þar sem öllum þótti gott að vera. Þórey fæddist á Reykhólum í Reykhólasveit 24. janúar 1848 og hlaut í skírninni nafnið Þórey Kristin Ólína. Foreldrar hennar voru Páll Guðmundsson og Jó- hanna, systir Jóns Thoroddsens, skálds. Þórey ólst að mestu upp á Reyk hólum hjá Þóreyju, ömmu sinni. ■— Hún giftist um tvítugsaldur Bjarna Þórðarsyni, miklum at- orku-manni og mikilhæfum. — Varð hann seinna þjóðkunnur og 1 jafnan kendur við Reykhóla. — Bjarni var þá ekkjumaður. með 3 ung þörn. Hófu þau þá þegar búskap að Reykhólum, og til að byrja með var bústofninn ekki annar en kúgildi jarðarinnar. En Reykhólar eru mikil hlunn- indajörð og ungu hjónin skorti hvorki dug nje vitsmuni til að hagnýta jörðina og hennar mörgu gæði, enda voru þau frá fyrstu hjúa sæl. Á Reykhólum var svo Þórey húsmóðir í rúm 30 ár, og fæddist þeim hjónum 13 börn. Af þeirn komust 10 upp, og nutu öll meira og minna menntunar. Auk þess óist upp á Reykhólum fjöldi vandalausra barna, bæði með foreldrum sínum og munað- arlaus, og öllum reyndist þau sem bestu foreldrar. Má geta nærri hvert starf hefur hvílt á herðum þessarar konu. Jeg var smábarn á þessu heim- íli síðúátu ár nítjándu aldarinnar. J>á ,var oft um 50 manns í heimili á veturna. Þá voru börn tekin að til náms, því á Reykhólum var •®llt af íastur kennari. — Þessu fólki öllu varð húsmóðirin ' að skammta og oft man jeg efti því að hún fór út í snjóinn og þvoði sjer urn hendurnar til að lialda hita á þeim og forða þcim frá kuldabóigu. Á Reykhólum var komið fyrir svo að segja öllum höltum og ^^__í>óréy Pólsclóítir lömuðum. — Þarna vildi gamla fólkið vera í ellinni, þarna þótti líka mörgum hjónum gott að vera og mörg systkinin fóru þang- að í vinnumennsku og voru kannske 3—4 þar í einu. Eins var þar oftast nær eitthvað af svo kölluðu vandræðafólki, sem aðrir áttu bágt með að hafa. Jeg man líka, eftir er við komum hingað til Reykjavíkur, að það voru oft- ast einhverjir sjúklingar á heim- ilinu, þótt oft væri lítið húspláss- ið, enda heyrði jeg oft fóstru segja: „Þar, sem væri nóg hjarta- rúmið þar væri líka húsrúm“. — Aldrei heýrði jeg hana tala um að hún hefði gert neitt fyrir neinn, henni fannst hún aldrei gera meira en skyldu sína. Það má vel vera að fóstra mín hafi verið geðstór, það varð jeg þó aldrei vör við, en hún hafði sínar ákveðnu skoðanir, en var í allri framkomu hæglát og hljóð. Oft man jeg eftir að hún hafði þessi .orð yfir: Hver, sem yfirvinnur sjálfan sig, er meii;i en sá, sem yfirvinnur borgir, og allt af fanst mjer hún hljóðust þá hún var að vinna að ákveðnu marki. Hún átti líka mikinn og góð?.n maka og án hans heföi heldur ekki verið hægt að framkvæi ia allt það mikla starf, sem þau unnu saraan. Mann sinn missti hún 26. mai 1918. Gullbrúðkaup hefðu þau átt 4. júlí sama ár og þann dag hafði fóstra mín allt af þráð að fá að lifa, því hjónin kunnu vel að meta hvortjpinað, og töldu sig hafa verið miklar gæfumanneskj ur að hafa hitst og fengið að lifa saman. I 15 ár eftir iát manns síns hafði hún hjer matsölu, með að- stoð sinnar ágætu stúlku, Ingi- bjargar Guðmundsdóttur, sem var með henni í 40 ár. Þarna voru oft um og yfir 20 manns í fæði. Hún var þar eins og móðir þeirra allra. Maður sá oft eftir máltíðar að bæði piltar og stúlkur áttu eintal við mömmu. Jeg hygg að henni hafi þar oft verið trúað fyrir ýmsum leyndarmálum. En þarna voru þau líka vel geymd og oft góð ráð gefin af þessari spöku og heillaráðu konu. Hún uppskar líka mikið fyrir sína stóru fórnarlund. Hún lifði það, að sjá börn sín verða að góðu og merku fólki og meira ástríki og virðingu hef jeg ekki sjeð einni móður sýnt. Og viff, sem höfum notið henn- ar miklu og góðu mannkosta og móður umhyggju, rnunum blessa minningu hennar, svö lengi sem við lifum. S. Á. I Hraðfrystistöðina í Reykjavík h.f., Mýrargötu, vantar ? | nokkrar stúlkur. Gjörið svo vel að ta)a við verksjórann, I Henning Busk. —. Simi 5532. Eftirmiðdagsdansleikur verÖur aÖ IIÓTEL RITZ í dag kl. 3—6. — Hljómsveit Felzman. —- Strœtisvagnaferðir frá Jðnskólanurn• Hötel Ritz Auglýsendur afhugið! að ísafold og Vörður er vinsælasta og fjölbreytt- asta blaðið { sveitum lands ins. Kemur út einu sinni I ; í viku — 16 síður. Hvernig er vexfi og viðgangi kriifninnar lýs! í | Opinberunnarbókinnii Um þetta efni talar pastor Johannes Jénsen í dag kl. 5 - <| í Aðvent-kirkjunni (Ingólfsstræti 19). Allir velkomnir. @K$>®x$®<^$x$®K$^xSx$«»<$<$K$x$<$<$<gK$x$>®x®x$>3x$KS><$<$<$H$<$x§><$<$<S>^®xS>^x$®x®®<S>^. Eignaskifti Vil skifta <á góðri hæð i hýju hiisi á Melunum, og fá % í staðinn einbýlishús sem má %’era í uníoum. J’il greina kæmi einnig 5 herbergja íbúð, enda fylgi henni bilskúr. Tilboð merkt: , Eignaskifti“, sendist til Morgunblaðsins fvrir 30. janúar. <jK<>><íx$x$x5 < ®x$^<$<$^<$<$@x$<$<$<! <$x$k$<$<SxSx$x$x$<Sx$x$@x$<$<Sx$<$>®<Sws*s*SxS>^xSx$x$k$<Sk$@-®<$^x$3x$<$<$.<S>^<$<$x$^kSx$x$x$x$x@X$X$x$-$-$x$*$ | ... because thejre seamless FATNADUR Tyrknestti herir.n endurskipulagður ANKARA — Tyrkneski herinn hefur nú verið endurskipulagður og hefur mest af vopnum þeim, se mþeir nota verið keypt frá Bandaríkjunum. allskonar getum við útveg- að til afgreíðslu beint til leyfishafa frá DUNLOP RUBBER CO., LTD.,I> Footwear Division, Liverpool, England. Einkaumboðsmenn: Friðrik Bertelsen & Co., h.f., Hafnarhvoli- Sími 6620, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.