Morgunblaðið - 25.01.1948, Síða 12
V.
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
ALLIIVASS austan, — skýj-
og sumstaðar dálítil snjókoma.
REYKJAVÍKURBRJEF ei á
bls. 7. —
Skjéta á Gyðingabifreiðar
Þessi mynd sýnir á áhrifamikinn hátt ástandið, eins og^þaS nú er
i Palestínn. Arabarnir á myndinni hafa sem sje tekið sjer fyrir
hendur, að skjóta á þær bifreiðar Gyðinga, sem aka frá Jerúsalem
til Hadassah-sjúkrahússins og Gyðlngaháskóians á Scopusfjalli. I
fjarska sjest Jerúsalem.
Átroðningur skautafólks
í Hljómskálagarðinum
kostar bæinn 15 þúsund
krónur í ár
Þúsurtdir trjápiantna eyðilagðar
EINS og Reykvíkingum er kunnugt, hefur skautasvell bæjarbúa
á undanförnum vetrum verið á Syðri-Tjörninni. — Hafa ferðir
skautafólksins því legið um Hljómskálann, en vegna átroðnings
hafa árlega verið eyðilagðaj- þar þúsundir trjáplantna.
--------:-----------
45 (lúsund mái
biðu löndunar
GÍFURLEG veiði var í Hval-
firði í fyrrinótt og fram undir
hádegi í gær, en þá tók að
hvessa. Hingað til Reykjavík-
ur bárust í fyrrinótt og -í gær
26.300 mál með 31 síldveiði-
skipi. í gærkveldi var talið að
nær 40 skip biðu löndunar hjer
Logn var á Hvalfirði í fyrri-
nótt og fram undir hádegi. Stóð
síldin þá á 7 til 13 faðma dýpi.
í>ar voru þá milli 30 og 4Q. skip
að veiðum, en það voru 31 skip
sem komu með 26300 mál, sem
fyrr getur um.
50 þús. niál á Framvöliinn.
í fyrrinótt og í allan gærdag
og í nótt var unmð að afferm-
kigu skipa sem settu' síld til
Igeymslu á Framvöllinn. Var tal
ið í gærkvcldi að þangað væru
nú komin nær 50 þús. mál
í gærkveldi var byrjað á að
lesta Banan, en þá biðu um 40
skip löndunar með um .45.300
mál síldar.
Skipin sem komu.
Þessi skip komu s. 1. sólar-
hring: Heimir GK með 600 mál,
Óðinn og Ægir 1050, Víðir 7í0,
Keflvíkingur 350, Ingólfur og
Geir goði 600, Bjarnarey 1400,
Haukur I. 1200, Bragi og Fróði
1000, Sigurður ST 950, Farsæll
800, Gunnvör 1300, Mummi 780,
Helgi \TE 750, Edda 1900, Andey
700, Ingólfur Arnarson 500.
Freyja RE 850, Skíði 900, Slvar
NK 1050, Kristján EA 1100,
Huginn I. 400, Skógarfosss 300,
Þorgeir goði 800, Huginn II. 700
Aðalbjörg 350, Vilborg 200,
Victoria 1200, Björn GK 500,
Helgi Helgason 1700, Freydis
800 og Vonin 850 mál.
BúnaSarfjeL. sækir um
loó
BÚNAÐARFJELAG ÍSLAND3
hefur sótt um lóð til bæjarráðs
fyrir væntanlega skrifstofubygg
ingu. Bygging þessi mun verða
hin veglegasta.
Á fundi bæjarráðs s.I. föstu-
dag, en fyrir fundinum lá þetta
erindi Búnaðarfjelagsins, var
samþykkt að vísa málinu til
skipulagsmanna.
Ræktunarráðurautur bæjar-
ins hefur skrifað bæjarráði um
þetta mál, og vnr brjef hans
lagt fram á fundi bæjarráðs s.T.
föstudag.
Fer á skautum um
trjábeðin.
Ræktunarráðunautur segir í
brjefinu, að það sje bersýni-
legt að skautafóikið láti sjer
ekki nægja að leika listir sínar
á svellinu, það fpr á skautun-
um yfir trjábeðin og skerast þá
trjáplönturnar í sundur. A þenn
an hátt hafa þúsundir trjá-
plantna eyðilagst’á vetri hverj-
um.
30 þús. á tveimur árum.
Ræktunarráðunautur telur
að eyðilegging þessi kosti í ár
bæinn hvorki meira nje minna
en 15 þús. kr., miðað við núver-
andi verðlag á t,'iáplöntum og
vinnu. Eyðileggingin á s. 1. vetri
varð bænurn jafnkostnaðarsöm.
Skautasvellið flutt.
í brjefi sínu tii bæjarráðs
leggur ræktunarráðunautur til
að skautasvellið verði lagt nið-
ur á Syðri-Tjörninni og það
haft á Nyðri-Tjörninni. Enn-
fremur telur hann að gera megi
gott skautasvell á Vesturvelli
við Framnesveg. Telur hann að
aað svell megi gera með litlum
tilkostnaði.
Gainali pcningur fundinn
LONDON — Silfurpeningur, eitt
pund, hefur nýlega fundist í Skot-
landi. Peningur þessi gilti á dögum
John Baliol Skotakonungs og er frá
13. öld.
„Frá úllöndum”
í útvarpinu
KOMMÚNISTAR fárast nú
mjög yfir því að ýmsum blaða-
mönnum, sem ekki eru í flokici
þeirra hefur undanfarið verið
falið að flytja í Ríkisútvarpið
hin vikulegu yfirlitserindi „Frá
útiöndum“. Þannig lætur Þjóð-
viljinn í gær gremju sína yfir
þessu bitna á ívari Guðmunds-
syni, ritstjóra, og deilir jafn-
framt á meirihluta útvarpsráðs
fyrir að hafa fellt tillögu komm-
únista um að víta útvarpserindi,
er Ivar flutti um fyrrgreint
efni fyrir nokkru.
Það.er rjett að fulltrúi komm
únista í útvarpsráði flutti slíka
tillögu, en hún hlaut aðeins at-
kvæði hans eins.
Það cr hinsvegar hreinn upp
spuni, sem Þjóðviljinn hefur
eftir fulltrúa kommúnista í Út
varnsráði, að erindaflutning-
ur ívars Guðmundssonar fram-
vegis þurfi að takast til sjer-
stakrar umræðu í Útvarpsráði
áður. Undanfarna mánuði hafa
ýmsir blaðamenn skipst á um
að flytja þennan þátt og mun
svo verða framvegis, að því er
blaðið hefur frjett,
Kómmúnistar hafa hinsveg-
ar með árásum sínum á þátt-
inn „Frá útlöndum“ sýnt það
greinilega, að þeir una því illa
aá bar skuli ekki stöðugt vera
rekinn kommúnistiskur áróður
eins og stundum hefur hent
Þjóðverjum finnst
íslenska síldln
sælgæti
ÞJÓÐVERJUM líkar ísienska
síldin, sem verið er að flytja til
Þýskalands þessar vikur, af-
bragðsvel. Hún hefur líka komið
sjer vel því um þessar mundir
er mikill fiskiskortur í landinu.
Þannig fórust Carl Witt frá
Haraborg, sem kom hingað
með einum þýsku togaranna,
sem eru í síldarflutningunum.
orð er blaðið hafði tal af hon-
um. Hann var sendur hing-
að á vegum þýska innflutnings-
firmans Arthurs Kösers & Co.,
en það hefur umsjón með síldar-
innflutningnum til hernáms-
svæðis Breta, fyrir hönd her-
námsstjórnarinnar. Fyrirtæki
þetta flutti fyrir stríð íslenska
síld til Þýskalands.
Hvernig er þessi síld verkuð
áður en húri kemur á markað-
inn?
Hún er öll seld reykt. Einum
degi eftir að henni hefur verið
landað í Þýskalandi, er búið að
reykja hana og þá er hún tilbúin
til neyslu.
Fer til ítuhr-hjeraðanna
Hvar er hún aðallega seld?
Mest af henni hefur undan-
farið verið sent til Ruhr-hjerað-
anna. Er hún eins og aðrar mat-
vörur, skömmtuð og á hver mað
ur rjett á einum skömmtunar-
miða einu sinni í mánuði.
Fólkinu finnst þessi síld
mesta sælgæti og það veit að hún
kemur frá íslandi. Hefur veriö
skrifað um þennan innflutning í
þýsk blöð.
23 skipsfarmar af henni hafa
þegar verið sendir til Þýska-
lands.
Carl Witt fór með togara til
Þýskalands í gær.
Gasfjelög Breflands
þjéðsiffi
London í gærkvöldi.
ÞEGAR • gasfjelögin bresku
verða þjóðnýtt verður þeim
skipt í tólf umdæmi og emn yfir
maður yfir hverju og æialfor-
stjóri fyrir þeim. Nú eru um eitt
þúsund einkagasfjelög í Bret-
landi og verður þeim borgað
yfir 100 millj. punda, fyrir að
láta af hendi fyrirtæki sín. —
Reuter.
ísfirðingafjelagið j
minnisf „sólar- j
dags" ísfirðinga
í DAG er „sólardagur“ ísfirð-
inga. Þann dag sjest sólin á ísa-
firði, ef bjartviðri er.
Það er siður á ísafirði að
minnast sólardagsins með svo-
kölluðu sólarkaffi. Hefur ísfirð-
ingafjelagið hjer í Reykjavík
tekið þann sið upp að halda
þennan dag hátíðlegan með árs-
hátíð sinni. Verður hún háð í
kvöld í Sjálfstæðishúsinu og
verða þar til skemmtunar ræðu-
höld fyrir minni ísaf jarðar, ein-
söngur, tvísöngur, söngur viði
gítarundirleik o. fl.
Á FIMMTUDAGSKVÖLD var
tefld 5. umferð í meistaraflokki
á Þórsgötu 1. Allar skákirnar1
voru biðskákir.
Á föstudagskvöld var 6. um-
ferð tefld á sama stað. Úrslit
urðu: Árni Snævarr vann Guð-
jón M. Sigurðsson, Bjarni Magn-
ússon vann Hjálmar Theodórs-
son (fjárv.), Sigurgeir Gíslason
vann Svein Kristjánsson. Jafn-
tefli gerðu Baldur Möller, Árni
Stefánsson og Kristján Sylverius
son, Jón Ágústsson. Biðskákir
urðu hjá Benoný Benediktssyni,
Steingrími Guðmundssyni, Guð-
mundi Ágústssyni og Eggert
Gilfer.
Biðskákir verða tefldar í dag
kl. 2 í samkomusal Alþýðubrauð
gerðarinnar við Vitastíg. 1. og 2,
fl. tefla umferð annað kvöld kl,
8. —
--- ♦ ^ ^ 1
„ÞrófSor" rill skipu-
leggja vðruflutn-
inga með bílum
VÖRUBÍLASTÖÐIN Þróttur
hefir sent bæjarráði brjef þess
efnis, að nauðsynlegt sje að sett
verði lög um skipulag vöruflutn
inga með bílum. Brjefið var lagt
fram á fundi bæjarráðs á föstu
dag.
I þessu brjefi segir m. a. að
miklu fleiri menn stundi akst-
ur vörubíla. en þcrf er á. Með
heppilegu skipulagi segja Þrótt
armenn, mætti stórlega fækka
þeim mönnum er nú annast
vöruflutninga með bílum, en
flytja þó sama magn og áður*
Kommúnistar hafa kjör-
skrána aðeins fyrir sig
! ■■■■ — ■ 1
Neifa ðSrum nm sS sjá hana
STJÓRNARKOSNING í vrekamannafjelaginu Dagsbrún hófst í
gær og heldur hún áfram í dag. Það vakti mikla athygli meðal
fjelagsmanna er kosningin hófst, að þá höfðu kommúnistarnir í
stjórn Dagsbrúnar neitað fulltrúum Alþýðuflokksins um kjör-
skrá fjelagsins. En jafnan mun það vera siður, þar sem menn
telja að rjettlæti eigi að ríkja, að fulltrúar allra framboðslistanna
sjeu látnir hafa sömu aðstöðu í því efni. Fullyrða má, að þessi
frekja kommúnista mælist illa fyrir meðal fjelagsmanna, enda
verður hún tæplega skýrð á annan hátt en þann, að kommúnistari
í fjelagsstjórninni ætli sjer að hagnast á órjettlæti þessu á kostn-
í að hinna frambjóðendanna. Það er segin saga, að aukið ofbeldi
jær kjörorð kommúnistanna hvar sem þeir eru að verki.