Morgunblaðið - 27.01.1948, Page 1
Bandaríkiamenn iara irá Íialíu
HER BANDARÍKJAMANNA er nú allur farinn frá ítalíu. Síðasti
flokkurinn, sem fór var kvennasveit, sem sjest hjer á myndinni á
leið um borð í skín,
varh
• •
Rætt verður um fjárhags-
áætlun og framkvæmdir
Reykjavíkurbæjar
LANDSMÁLAFJELAGIÐ VÖRÐUR efnir til fundar i
Sjálfstæðishúsinú í kvöld og hefst hann kl. 8,30.
Rætt verður um fjárhagsáætlun Reykjavíkurbæjar 1948
og fjárhagsafkomuna síðastliðið ár.,
Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri, flytur framsöguræðu.
á fundinum. Er öllum Sjálfstæðismönnum heimill aðgang-
ur á meðan húsrúm leyfir.
Það er ekki lan«t síðan haldn^
ir voru fundir í Varðarfjelag-
inu, þar sem bæjarmálefni voru
sjerstaklega rædd Fer vel á því
nú að taka fjárhagsáætlun
Reykjavíkur á dagskrá Varðar-
fundar um það leyti, sem bæj-
arstjórn er að fást við af-
greiðslu fjárhagsáætlunar árs-
ins.
Fjárhagsáætlunin hefir þegar
verið tekin til fyrstu umræðu í
bæjarstjórn og gerði borgar-
stjóri þá ítarlega grein fyrir
tekjum og gjöldum bæjarsjóðs
síðastliðið ár ásamt helstu fram
kvæmdum bæjarfjelagsins.
Rekstursafkoman var ágæt,
reksturshagnaður um 14 milj.
á árinu. Gjöldin hafa yfirleitt
ekki farið fram úr áætlun, en
tekjuliðir miklir.
Annan fimmtudag verður
fjárhagsáætlunin tekin til síð-
ari umræðu og afgreidd á fundi
bæjarstjórnar.
Á Varðarrfundinum í kvöld
verða frjálsar umræður að lok-
inni ræðu borgarstjóra.
Sýrlendingar hanna
kominúnistaflokjkinn
Sýrlenska stjórnin hefur bannað
koœmúnistaflokkinn, lokað skrifstof-
um hans og bannað útgáfu kommún-
ista blaðsins þar í landi.
Tyrone Power
dæmdur III að
borga fyrv. konu
sinni 50 þús dollara
Los Angeles í gærkvöldi.
FRANSKA kvikmyndaleik-
konaji Annabella, sem gift var
Tyrone Power vann í dag sam-
þykki hæstarjettar Kaliforníu-
ríkis um að hún fengi fimtíu
þúsund dollara frá honum á
ári. Tyrone Power og Anna-
bella voru gift í mörg ár og
þótti hjónaband þeirra hið ham
ingjusamlegasta í Hollywood,.
en eins og kunnugt er þá er
flest öruggara þar en hjóna-
bönd. Hann hefir síðan verið
kendur við ýmsar af leikkonum
Ameríku og síðast við Lana
Turner, en hún hefir nú tekið
saman við annan. — Reuter.
Gyðingar dæmdir.
JERÚSALEM — Síðan skipt-
ing Palestínu var ákveðin hafa
fjórir Gyðingar verið dæmdir
fyrir æsingar og hlutu allir lífs-
tíðarfangelsi.
Lækkun frankans hindrar
ekki Hlarshalláætiunina
™ Segir Schuman
*
Ottast að önnur Evrópu-
ríki fari að dæmi Frakka
Bsrlín í gærkveldi.
SKÝRT hefur -s-erið frá því
hjer í Berlín, að útflutningur
bresk-bandaríska hernáms-
svæðisins s. 1. á*- til annarra
landa hefðj nurnið 55 miljón
sterlingspundum. Á sama.tíma-
bili ljet bandaríski herinn Þjóð-
verja fá ýmiskonar vörur —
meðal annars bifreiðar og vjel-
ar — fyrir 59 miljón dollara.
íraks ræðir vfö
stjórn sína
Bagdað í gærkveldi. •
FULLTRÚI íraks sem undir-
ritaði samninginn við Breta sem
ekki ennþá hefir verið viður-
kendur af íraksstjórn er nú
kominn til Bagdad til þess að
skýra frá samningnum. Ræddi
hann í dag við stjórn sína og
landsstjórann. Ekki er enn
kunnugt um afstöðu stjórnar-
innar. — Reuter.
Semja Danir og Bret-
ar bráðlega!
London í gærkveldi.
JOHN Strachey matvælaráð-
herra Bretlands sagði í dag í
þinginu að von væri að bráð-
lega myndu Bretar og Danir
undirskrifa samninga um inn-
kaup á smjöri og gvínafleski.
Danska samninganefndin hjelt
heimleiðis í dag frá London til
þess að ræða við stjórn sína.
ijegar hann var spurður hvort
það myndi ekki seinka málum
að Bretar gætu ekki sent Dön-
um eins mikið af járni og stáli
eins og þeir þyrftu, þá sagði
hann að ef Danir fengju allt
sem þeir krefðust þá væri ekki
nóg afgangs til þess að flytja
til annarra mikilsverðra kaup-
enda. — Reuter.
Áframhaldandi foHyr á
amerískum kvikmyndum
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTI
Bretlands hefur gefið út tilkynn
ingu þess efnis að það standi
ekki til að lækka toliinn á inn
flutningi, amerískra kvikmynda
en hann nemur nú 75%. Segir
þar að ástæðan fyrir toliinum
sje að Bretland vanti dollara en
ekki sú að það sje verið að
reyna að hjálpa breskum kvik-
myndaiðnaði.
París í gærkveldi. —
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
ÁKVÖRÐUN FRÖNSKU stjórnarinnar um lækkun frankans,
hefur vakið miklar umræður og gágnrýni víða um heim og þó
sjerstaklega í Englandi og Frakklandi. Robert Schuman, for-
sætisráðherra Frakklands, hjelt ræðu í dag og svaraði þá ýms-
úm ásökunum sem beint hefur verið að stjórn hans. Talsmaður
bandarísku stjórnarinnar átti samtal við blaðamenn í dag þar
sem hann sagði að ef þessi ákvörðun stjórnarinnar misheppnað >
ist þá yrði framkvæmd Marshalláætlunarinnar mjög erfið. Kvað
hann hættuna liggja í því, að önnur lönd Evrópu kynnu að fara
að dæmi þeirra og lækka gengi sitt og skapa þannig samkeppni
í gengislækkun. Ef þeim tekst aftur á móti að hefta hina óeðli-
legu dýrtíð þá myndi það hjálpa f járhagsáætluninni.
Bretar handlaka þrjá
Þjóðverja fyrir út-
gáfu leyniblaðs
Flensborg í gærkveldi.
BRESKA öryggislögreglan
hjer tók þrjá Þjóðverja sem
sakaðir eru um útgáfu leyni-
blaðs, fasta í dag Eru menn
þessir sakaðir um að hafa skrif-
að grein þar sem krafist er að
Flensborg og Suður Schleswig
sjeu innlimuð í Danmörku.
Blað þetta hjet „Ríkisblað
Suður Schleswig", og var því
útbýtt meðal áhrifamanna þar
en þeir neituðu að hafa nokkuð
verið riðnir við útgáfu þess.
Blaðið gat þess í grein sinni að
bráðlega yrðu undirritaðir
samningar um innlimunina og
að Pakenman hernámsmála-
ráðherra Breta hefði þegar
undirritað þá. — Reuter.
Áita falla í Palesfínu
Jerúsalem í gærkvöldi.
ALLRÓSTUSAMT hefir ver-
ið hjer í dag og voru óeirðir
víða um Palestínu. í Jerúsalem
voru tvær sprengingar og særð
ust tveir breskir hermenn. í
annað skiftið sprengdu Gyð-
ingar tómt geymsluhús í loft
upp, en enginn hlaut bana.
Gyðingar fleygðu sprengju í
strætisvagn og særðust tólf
Arabar, en einn dó litlu síðar.
I norður og suður Palestínu
kom til óeirða og er talið að í
alt hafi átta manns farist og
fjórtán særst. í dag var byrjað
að flytja konur og börn sendi-
herra erlendra ríkja burt til
öryggis svo og starfsmenn er-
lendra sendisveita. — Reuter.
Jafnvægi franskra fjármála
nauðsynleg Marshall-
áætluninni.
Schuman sagði í ræðu sinni,
að ráðstöfunin um að lækka
gildi frankans myndi ekki
hindra framkvæmd Marshall-
áætlunarinnar og að Frakkar
myndu halda áfram að hafa
fjárhagslegt samstarf við Banda
ríkin og vinalönd sín í Evrópu.
„Kjarni Marshalláætlunarinnar
og fjárhagsáætlunar okkar eru
þau sömu og jafnvægi í frönsk-
um fjármálum er nauðsynlegt
framkvæmd hennar“.
Ósamkomulag við Sir
Stafford Cripps.
Hann kvaðst hafa komist að
gagnkvæmum skilningi við Sir
Stafford Cripps er hann var í
París 23. jan., en ósamkomu-
lagið varð um framkvæmdir.
Hann kvað þeim Frökkum sem
ættu erlendan gjaldeyri sem
ekki hefði verið settur í banka
nú hafa tægifæri til þess að
koma þeim löglega í franska
peninga.
i
Breska pundið ekki lækkað. ^
Sir Stafford Cripps fjármála
ráðherra Breta hjelt' ræðu í
þinginu í dag, þar sem hann
ræddi ákvörðun Frakka. Sagði
hann að þessi ákvörðun væri
mjög bagaleg fyrir allar þjóðir
Evrópu og að alt yrði gert til
þess að breska pundið yrði ekki
lækkað.
Erlendar innistæður
yfirfærðar.
Schuman benti á það í ræðu
sinni að þeir Frakkar, sem ættu
innistæður í erlendum bönkum
hefðu nú tækifæri til þess að
yfirfæra þær í franka, því að
annars ættu þeir það á hættu
að fje þeirra yrði gert upptækt.