Morgunblaðið - 30.01.1948, Page 1
35. árgangur
24. tbl. — Fösíudaginn 30. janúar 1948.
Isafoldarprentsmiðja h.L
Vetrar-Olympíuleikarnir hefjast í St. Moritz í dug
Þessi mynd er frá St. Moritz í Sviss, þar sem Vetra r-Olympíuleikarnir hefjast í dag, en St. Moritz er
einn glæsilegasti og eftirsóttasti vetrar-íþróttastað ur heimsins.
Um þúsund þátttakendur
eru frá 28 þjóðum
Bandðríkjamenn, SvisslendinQar og Svíar
iíklegasiír !il mesira sigra
ST. MORITZ í gærkvöldi.
Einkaskeyti til MBL. frá Reuter.
FIMMTU VETRAR-OLYMPÍULEIKARNIR og þeir fyrstu, sem
haldnir hafa verið s.l. 12 ár, hefjast hjer í St. Moritz á morgun
(föstudag). Forseti Sviss, Enrico Celio, setur leikana kl. 10 (8
eftir ísl. tíma) í fyrramálið, en síðan hefst keppnin, sem stendur
yfir í tíu daga. Þátttakendur í leikunum eru um eitt þúsund frá
28 þjóðum, þar á meðal frá öllum stórveldunum að Rússum und-
anskyldum. Keppt verður í 20 greinum. •
Franska fjáriaga-
nefndin feSfir enn
■'*’ Þúsundir áhorfenda frá öllum
hlutum heims eru komnir hing-
að til þess að vera viðstaddir
leikana, en hjer er enn mikill
snjór og skíðalandið eitthvað
það fegursta er hugsast getur.
Þetta er í annað sinn, sem Vetr-
ar-Olympíuleikarnir eru haldnir
í St. Moritz.
1111 inllkoiiið skoð-
onafrelsi á opinber-
iii ¥ettvanii
Prófessor vi? Harvardháskóla ræðir
ai'nenn mannrjeHindi
LAKE SUCCESS í gær.
NEFND SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA, sem fjallar um ritfrelsi,
lijelt áfram umræðum sínum um mannrjettindi og skyldur í dag.
Mælti Zecharias H. Chafee, prófessor í lögum við Harvard-há-
skóla, með því, að ræddar yrðu á opinberum vettvangi allar
skoðanir, hvort sem þær væru hugsjónalegs eða stjórnmálalegs
eðlis.
London í gærkv.
BRESKIR íhaldsmenn hafa
sigrað í fyrstu aukakosningun-
um síðan verklýðsstjórnin tók
við völdum fyrir tveimur og
hálfu ári síðan. Fóru kosning-
ar þ>essar fram í kjördæmi í
Skotlandi, en úrslit urðu þau,
að f,'imbjóðandi íhaldsflokks-
ins fýekk 395 atkvæði fram yf-
ir verklýðsframbjóðandann.
Alls var kosið um fjóra
mer;. — Reuter.
stjómartillögu.
París í gærkvöldi.
FJÁRLAGANEFND franska
þingsins feldi í dag tillögu
stjórnarinnar um að kalla inn
alla 5.000 franka seðla, en
stjórnin telur að með því megi
klekkja á mönnum þeim, sem
aðallega hafa hagnað sinn af
verslun á svörtum markaði. Er
nú enn á ný allt óvíst um það,
hvaða endalok frumvörp stjórn
arinnar fá, en hún hafði meðal
annars gert sjer vonir um að
vinna fylgi sósíalista, með því
að koma fram með tillöguna
um innköllun 5.000 franka
seðlanna. — Reuter.
Löndin, sem senda keppendur
Löndin, sem senda keppendur
eru þessi: Argentína, Austur-
ríki, Bandaríkin, Belgia, Búlgar
ía, Bretland, Chile, Danmörk,
Corea, Finnland, Frakkland,
Grikkland, Holland, ísland, ít-
alía, Júgóslavía, Kanada, Liban-
.on, Liechenstein, Noregur, Pól-
land, Rúmenía, Svíþjóð, Sviss,
Spánn, Tjekkóslóvakía, Tyrk-
land og Ungverjaland.
Sviss — USA — Svíþjóð
Sviss og Bandaríkin hafa
keppendur í öllum greinum. —■
Gert er ráð fyrir að aðalkeppn-
in standi á milli þessara þjóða,
þótt hinsvegar sje vitað að Svíar
sjeu einnig mjög sterkir. Önnur
lönd, sem búast má við að standi
framarlega, eru Noregur, Finn-
land, Tjekkóslóvakía, ítalía og
Ungverjaland.
Mesti heiður íþróttamanns
Bretnr mega ekki
verðn háðir Rússum
Hugmyndir fasista
Tillaga Chafeés var sem
svar vjð framkominni tillögu
Jacobs M. Lomakin, fulltrúa
Rússa í nefndinni, þess efnis að
bánnað skyldi að birta á prenti
hugmyndir fasista, alveg á sama
hátt og stjórnir bönnuðu sölu
eða dreifingu eitraðra matvæla.
Villandi
Chafees kvað þennan saman-
burð villandi. --- Hann sagði:
„Stryknin verður aétíð stryknin,
í hvaða landi veraldar sem er.
Aftur á móti er litið á heftingu
málfrelsis, sem eitur í einu land
inu, en í öðru virðist það vera
eftirlætis rjettur“.
Hann kvaðst sjálfur hafa bar-
ist á móti tillögum, er bönnuðu
vissum mönnum að kenna við
bandaríska. skóla.
-----------------------•--------•
Hismið og' kjarninn
Hann sagði: „Við getum dæmt
um það fyrirfram, livað er eitur
og hvað er ekki eitur. En vjer
trúum því, að ef menn hafa næg
an tíma til ,þess að hugsa og
ræða málin, þá geti þeir skilið
hismið frá kjarnanum. Um hitt
veit jeg ekki, hvort kommúnism
inn sýnir sig að vera hismi eða
kjarni. En jeg vil, að menn fái
næg tækifæri til þess að komast
að því‘„
Alþjóífaherdeild til frnmkvœmda
Palestínuskiptinguna
Lake Success — Palestínu-
nefndin hefur skýrt þingi S. Þ.
frá, að ástundið í Palestínu fari
stöðugt versnandi og brýn nauð-
syn sje á alþjóðaherdeild til þess
að framkvæma skiftinguna, þeg-
ar Bretar fari.
Vansittart lávarður hvelur!!! bandaríkja
Vestur-Evrópu
LONDON í gærkvöldi.
Einkaskeyti til MBL. frá Reuter.
VANSITTART lávarður, fyrrverandi aðal-stjórnmálaráðunautur
bresku stjórnarinnar, flutti ræðu hjer í London í dag og lýsti
yfir þeirri skoðun sinni, að Bretar yrðu að sýna — ef slíkt reynd-
ist afgerlega óhjákvæmilegt — að þeir gætu í ár komist af án
viðskipta við Rússa.
Bandaríki Vestur-Evrópu
Vansittart flutti ræðu sína
fyrir verslunarráði Lundúna-
borgar. Tjáði hann sig eindregið
meðmæltan því, að stofnsett
yrðu bandaríki Vestur-Evrópu,
enda hefði slíkt átt að gerast
fyrir að minnsta kosti fimmtíu
árum síðan. Hugmyndin um
bandalag Evrópuríkjanna allra,
sagði lávarðurinn hinsvegar að
væri óframkvæmanieg næsta
mannsaldur.
Annars er mjög erfitt að segja
fyrir um, hverjir beri sigur
úr býtum í St. Moritz í hinni
hörðu baráttu tíu næstu daga.
En það er sá mesti heiður, sem
nokkrum íþróttamanni getur
hlotnast. að vinna gullafreks-
merki Olympíuleikanna og
hljóta lárviðarsveig.
Deilt um þátttöku USA í
íshockey
Undanfarið hefur staðið deila
um það, hverjir væru hinir
rjettu fulltrúar Bandaríkjanna
til þess að taka þátt í íshockey,
og hvort þeim vegna þess yrði
leyfð þátttaka í þeirri grein. —
Ekki var enn að fullu útkljáð
um þetta í dag, en vonir stóðu
til að úr því rættist. Hefur ör-
lítill skuggi hvílt yfir leikunum
vegna þessarar deilu.