Morgunblaðið - 31.01.1948, Síða 2

Morgunblaðið - 31.01.1948, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 31. janúar 1948» ! « Hindrunin d síldarflutn- ingum liður 1 heildar- Ishockey ekki lengur Olympíuíþrótt dformum kommúnista Frá fyrsfa Fyrirmæli um að draga úr framleiðslunni FYRIR NOKKRU var það haft eftir einum af helstu kvenskór- ungum í liði komrnúnista, úr hópi þeirra, sem höfðu við orð, að menn yrðu að drekka kaffi úr kristalvösum, að þá færi í hönd þýðingarmiklir dagar. Þetta var skömmu fyrir Dags- brúnarkosningarnar og ljet konan svo, sem úrslit þeirra mundu hafa mikil áhrif í íslenskum stjórnmálum. Þó ekki vegna þess, að neinar líkur væri til þess, að gamla stjórnin fjelli, því að til þess væri engir möguleikar og slíkt dytti engum í hug, eins og sakir stæði. Heldur mundu úrslit kosning- anna þvert á móti valda straum- hvörfum í íslenskum stjórnmál- iim, vegna þess að þar mundi koma fram svo mikil fylgisaukn- ing kommúnista frá síðasta stjórn atkjöri. Æ-íSáiS Vonir kommúnista brugðust. Raunin varð öll önnur en hin orðvara kona hafði sagt fyrir. Svo sem fyrirfram var vitað vegna afskiptaleysis og skorts á samvinnu meðal andstæðinga hentiar, varð gamla stjórnin að vlsu ofan á. En fylgi hennar stóð svo að segja í stað, þar sem at- kvæðamagn andstæðinga hennar jókst mjög verulega frá því, sem verið hafði. Eftir á er að vísu, eins og geng- tir, deilt um hvor hafi raunveru- lega unnið á. Sú deila er óþörf. Augljóst er það, sem mestu máli ekiptir, að hinar glæstu vonir, eem kommúnistar höfðu gert sjer um gífarlega fylgisaukningu, brugðust gjörsamlega. Verkamenn andvígir vinnustöðvun. Um eina staðreynd ber og öll- tim saman, sem kynntust hug verkamanna við þessar kosning- ar eða þekkja hann annarsstaðar frá. Hún er sú, að yfirgnæfandi meiri hluti þeirra er eihdregið andvígur öllum vinnudeilum og vinnustöðvunum. Dagsbrúnarstjórnin sannfærð- ist áreiðanlega um þetta við kosningarnar. Ráðamenn hennar hafa þessvegna ákveðið að fresta, a.m.k. um sinn, þeirri miklu yinnustöðvun, sem kommúnista- foringjarnir á Alþingi boðuðu við umræðurnar um dýrtíðarlög- in í miðjum desember. Með þessu er þó ekki sagt, að horfið sje frá fyrirætlun þeirra. Hitt mun sanni nær, að einungis sje beðið betra færis. Sannast þá enn, að þó að konungur vilji sigla, hlýtur byr að ráða. Fyrirmælin að austan Nú er það að vísu svo, að allar vinnustöðvanir eru kommúnist- um harla kærar, þ.e.a.s. í öðrum þjóðfjelögum en þeim, þar sem þeir ráða sjálfir einir öllu. — Vinnustöðvanirnar eru aðeins einn þáttur í því að veikja það þjóðfjí ’ag, sem kommúnistar hafa ásett sjer að splundra. Eins og sakir standa bætist Önnur veigamikil ástæða við hina alrnennu löngun kommúnista til vinnustöðvana. Hún er fyrirskip- unin að austan um að vinna á móti Marshalláætluninr.i með öll- um ráðum. • Ákefð íslenskra kommúnista í að hlýða þessu allsherjarboði kom glögglega fram í frumhlaupi Einai's Olgeirssonar, þegar hann flutti íillöguna alræpridu á fýrstu dögum þingsins í október síðast- liönum. Síðan hafa fyrirmælin austrænu um skemmdarstarf gegn endurreisnar áformunum í Vestur-Evrópu orðið enn skýrari ag ákveðnari. rsögli Pollits. Uti um heim vakti yfirlýsing enska kommúnistaforingjans Harrys Pollits, sú er hann gaf rjett fyrir jól, mikla athygli. Þá ljet Pollit uppi, að aukning á framleiðslu Stóra-Bretlands hjeð an í frá yrði ekici til góðs fyrir breska verkamenn, heldur yrði hún aðeins utanríkismálastefnu Bandaríkjanna til framdráttar. Þar af leiðandi mundu ensku kommúnistarnir vinna á móti allri aukningu í framleiðslu lands síns. Nú vita það allir, að bresku þjóðinni ríður á engu meira en mikilli framleiðsluaukningu. Inn- flutningurinn er þar mun meiri en útflutningurinn og algjör bjargarskortur og eymd blasir við, ef þessu er ekki hægt að koma á rjettan kjöl. Sú ætlun kommúnista, að koma í veg fyrir framleiðsluaukningu þegar svo stendur á, nálgast því mjög bein fjörráð við þjóðina alla. Útflutninginn verður að auka. í þessu gegnir mjög svipuðu máli um íslendinga og Englend- inga. Á síðasta ári varð stórkost- legur halli á utanríkisviðskiptum okkar. Ef lífskjörum almennings á ekki að stórhraka frá því, sem nú er, ríður á, að útflutningurinn sje verulega aukinn. Það verður ekki gert, nema öll færi sjeu notuð til að auka framleiðsluna og nýta hana til fulls. Jafnvel kommúnistar viður- kenna, að verðlag afurðanna hafi á síðastliðnu ári orðið hærra en menn fyrirfram gátu gert sjer rjettmæta von um. Kommúnistar hafa og ætíð hamrað á því hversu útflutningsverðmætin væri mikil. Hefur ekki dulist, að það hefur verið í því skyni gert, að reyna að koma í veg fyrir, að varlega yrði farið. Svo seint, sem um miðjan des- ember, sagði Brynjólfur Bjarna- son í útvarpsumræðunum frá Al- þingi, að útflutningur á árinu 1947 yrði a.m.k. 350 milljónir króna. Þegar til kom náði útflutn ingurinn ekki 300 milljónum, og er það mikið minni upphæð en þarf til að halda við núverandi lífskjörum þjóðarinnar og standa undir eðlilegum aukningum í at- vinnulífinu. Ef fullkomið vandræða-ástand á ekki að skapast á landi hjer, verður þess vegna með öllum ráð um að auka útflutningsverðmæt- in á þessu ári. Skortir hreinskilni kommúnista- foringjans enska. I orði kveðnu láta kommún- istjir enn eins og þeir vilji vinna að þessu og svívirða aðra fyrir, að þeir sýni ekki nógu mikinn dugnað í þessum efnum. — Því miður er þctta einber hræsni hjá þessum háu herrum. Þá skortir hreinskilni hins enska flokks- bróður síns, Pollits. til að segja berum orðum þao, sem þeir meina. Sem sje, að þeir vilja nú umfram alt draga úr framleiðslu og útflutningi landsmanna. Þessi hulda fyrirætlun þeirra kemur ekki af mannvonskunni einberri. Þvert á móti þykjast þeir með henni vera að þjóna hugsjón sinni. Þeirri, að greiða fyrir sigri kommúnismans í heim inum. Síðasta fyrirskipunin að aust- an er sú, að þetta verði urn sinn best gert með því að draga úr framleiðslu landanna í Vestur- Evrópu. Kommúnistarnir á ís- land eru jafnákafir að fylgja þessu boði og flokksbræðurnir í Englandi. Munurinn er sá einn, að hinir ensku austanverjar eru opinskárri en íslenskir skoðana- bræður þeirra. Stöðvun síldarflutningannna sýnir glöggt hvað þeir vilja. Enginn skyldi þessvegna ætla, að kommúnistar væri horfnir frá víðtækum vinnustöðvunum hjer á landi nú á næstu mánuðum strax og þeir sjá sjer færi til. En meðan þeir treysta sjer ekki til slíkra stórræða sýna þeir hug sinn í málum, sem í fljótu bragði sýnast umfangsminni en hafa þó mikla þýðingu. í ljósi þess, sem nú hefur verið sagt, er til dæmis auðskilin hindr un sú, sem Dagsbrúnarstjórnin lagði á greiða síldarflutn- inga hjeðan til Siglufjarðar. — Viljinn til algerðrar stöðvunar er fyrir hendi. Máttinn vantar til hertnar í bili. Kommúnistar láta það máttleysi þó ekki verða til þess, að þeir sitji auðum hönd- um. Þeir halda áfram að grafa og grafa. Reyna fyrst að koma illu af stað um síldarflutningana í öruggri trú á það, að með því skapist smám saman jarðvegur- inn fyrir hin meiriháttar skemd- arverk, sem sje þau að lama allt framleiðslukerfi landsmanna. Enginn skyldi efa, að með þessu verður kommúnistum nokkuð ágengt um stund. Meiri þýðingu hefur þó hitt, að fleiri og fleiri fá opin augu fyrir því, hvers eðlis starf kcmmúnistanna er, og þess vegna munu þeir aldrei ná sjálfu lokamarki sínu, því, að koma Islandi undir ein- ræði hins alþjóðiega kommún- isma. Aðalfundur sjúkra- sjéðs verslunar- manna í FYRRAKVÖLD var hald- inn aðalfunúur Styrktarsjúkra sjóðs verslunarmonna. Á fundinum voru á dagskrá venjuleg aðalfundarstörf og kosning stjórnar. Var hún öll endurkosin, en hana skipa: Helgi Helgason, verslunarstjóri hjá Jez Zimsen, formaður, Guð mundur Þórðarson hjá Sölu- sambandinu, gjaidkeri, Helgi Bergs, forstjóri Sláturfjelags- ins, ritari og meðstjórnendur þeir Sigurjón Jónsson verslun- arstjóri hjá G. Zoega og Christi an Zimsen lyfjafræðingur. Á s.l. ári var veitt úr sjóðn- um milli 17 og 13 þúsund kr. Á s.l. irausti va.rð sjóðurinn 80 ára. 10 BandaríkjaRienn farasf í flugsSysi Wiesbaden í gærkveldi. BANDARÍSK Dakota her- flugvjel rakst í dag á fjallshlíð nálægt Dione við frönsku Alp- ana. Allir innanborðs fórust, en það voru fjórir liðsforingjar og sex hermenn. — Reuter. St. Moritz í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reutera FORSETI SVISS setti Vetrar-Olympíuleikana hjer í dag, eftir að þátttakendur hinna 28 þjóða höfðu gengið inn á leikvanginn undir fánum landa sinna. Síðan flutti forseti svissnesku Olympíu- nefndarinnar ávarp, en. þá sór foringi íþróttamanna. Olympíu- eiðinn og Olympíueldurinn var kveiktur. Að setningarhátíðinni iokinni, en hún var mjög hátíðleg, hófst svo sjálf keppnin. ■4S a enda um vrslunar- FUNDUR atvinnurekenda á sviði versiunar og iðnaðar verð ur haldinn í Sjáifstæðishúsinu þriðjudaginn 3. febr. kl. 13.30 að tilhlutun Verslunarráðs Is- lands. Það er gert ráð fyrir því, að fundinum verði eigi lokið fyrr en fimtudaginn 5. febr. Til fundarins er boðið öllum þátttakendum og sjergreinafje lögum innan vjebanda þess, sem hafn versun eða iðnað að atvinnurekstri. Dagskrá fundaiins er: Viðskipta- og gjaldeyrismál. Verðlagsmál. Skattamál. Skömmtunarmál. Útf lutnin gsverslunin. Eins og þessum málum er nú komið, telja áðurgreindir aðil- ar, að eigi verði lengur við þau unað, nje hægt að láta und ir höfuð leggjast að taka þau til rækilegrar meðferðar á fjöl mennum fundi aðila þessara. Það er búist við því, að fund- arsóknin verði mikil. íshockey ekki Ólympíuíþrótt. Opinberlega var tilkynt í St, Moritz í dag eftir að Alþjóða Olympíunefndin (CIO) hafði setið á fundj í fjórar klukku- stundir, að nefndin hefði ákveð ið að afnema íshockey seré. Ólympíuíþrótt, Ennfremur er tilkynnt að CIO hafi lýst því yfir að nefndin skoðaði Alþjóða íshockeysambandið ekki lengur sem æðsta aðila íshockey- íþróttarinnar. E,innig ljet nefnd in í ljós óánægju sína yfir því, að svissneska Olympíunefndin, sem sjer um leikina, skyldi leyfa að leikur í íshockey færi fram 1 dag á milli Bandaríkja- manna og Svisslendinga. „Best að pakka og fara heim“. Er frjettaritari Reuters spurði Burghley lávarð, sem er fulltrúi Breta í CIO, um álit. hans á þessari ákvörðun nefnd arinnar, kvað hann mjög leið- inleyt, að þetta skyldi hafa komið fyrir, „en jeg held, að CIO hafi gert það sem rjettast var“, bætti hann við. „Mjer skils’t að þetta þýði, að við eig- um að pakka n,iður og fara heim“, sagði einn meðiimur Alþjóða íshockey sambandsins, er hann var spurður um skoð- un sína á málinu. Ingimundur Gesls- son endurlosinn form. Hreyfils AÐALFUNDUR bifreiðastj.- fjel. Hreyfils var haldin í fyrra kvöld og var mjög fjölsóttur. Auk venjulegra aðaifundar- starfa, skýrslu formanns og reikningar fjelagsins, en fjár- hagur þess er nú mjög góður, fór fram stjórnarkosning. Ingi- mundur Gestsson var endurkos inn formaður með 165 atkvæð um. Bergsteinn Guðjónsson, sem einnig var í kjöri sem formaður, hlaut 80 atkvæði. Stjórn fjelagsÍFjS skipa að öðru leyti, frá deild sjálfseign- armanna Halldór Björnsson. Frá vinnuþegadeild, þeír Magn ús Einarsson, Hverfisgötu 102 og Magnús Einarsson, Mjóú- hlíð 14, og frá strætisvagna- deild Ólafur Jónsson. Á fundinum skýrði gjaldkeri frá því að ágóði af bílahapp- drætti fjelagsins hefði farið langt fram úr áætiun en ágóð- anum verður varið til töku um ferðarkvikmyndar. Þar sem all- verulég fjárhæð verður af- gangs við kostnað kvikmyndar innar ákvað fundurinn að stofna skildi 2 sjóði, húsbygg- ingasjóð, sem fær 70% og vinnudeilusjóð, sem fær 30%. Loks var svo samþykt að mál- funda og fræðslufjel. bílstjóra skylai fá kr. 1000 í styrk á ár- inu og ennfremu.r að hækka fjelagsgjöid úr kr. 75,00 í kr. 100,00. Stór dagur fyrir Sviss. Annars var þessi fyrsti dag- ur 5. Vetrar-Ólympíuleikanna stór sigurdagur fyrir Sviss. Eft ir fyrstu umferðirnar í tveggja manna sleðakepninni, sem fran? fór í dag, skipa þeir tvö fyrstu sætin, og í íshockey unnu þeir Baidaríkjamenn með 5 : 4. Tjekkóslóvakía—Ítalía 22:3. I öðrum íshockey leikjum í dag vann Kanada Svíþjóð með 3:1, Pólland vann Austurríki eftir mjög jafnan leik með 7:5, og loks vann Tjekkoslóvakía Ítalíu með 22:3. Er hægt að> iíkja þeim ieik við viðureign kattar við mús, svo mikla yfir- burði sýndu Tjekkarnir. 20 þús. hafa safnasl fil björg- unarflypjelar ALLS HÖFDU Slysavarnafjt? laginu borist 20 þús. krónur'í gær til kaupa á b.'örgunarflug- vjel. Stærstu gjaf.i-nar voru frá Kvennadeildinni á Akranesi er gaf 4 þús. kr, og kvennadeild- inni í Bíldudal barst tilkynn- ing um 2 þús. kr. gjöf. Auk þess hefir fjöldinn allur af smærri gjöfum borist. Þá heíir sala kortanna af málverki Eggerts Guðmunds- sonar af björguninni við Látra bjarg gengið rnjög vel, en all- ur ágóðinn rennur til björg- una rf lugvjelarinnc r.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.