Morgunblaðið - 20.06.1948, Side 6

Morgunblaðið - 20.06.1948, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 20. júní 1948. ! 6 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. I \JíLar óhri^ar: ÚR DAGLEGA LÍFINU Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.). Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði, innanlands, kr. 12,00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið. 75 aura með Lesbók. Forsetakosnin garn ar í Bandaríkjunum FORSETAKOSNINGARNAR, sem fram fara í Bandaiíkj- unum á komandi hausti verða stöðugt fyrirferðameira urn- ræðuefni heimsstjórnmálanna þesSTiær sem dregur þsim. Síðan borgarastyrjöldinni í Bandaríkjunum lauk hafa 1G forsetar farið þar með völd En að eins fjórir þeirra hafa verið úr flokki Demokrata. Það eru þeir Cleveland, Wiison, Roosevelt og Truman. En þessir menn hafa setið svo mörg kjörtímabil, að síðan 1868 hafa Demokratar farið með for- setavald í 32 ár, en Republicanar í 48. Á Ennþá er ekki endanlega vitað um hverjir verða fram- bjóðendur flokkanna við forsetakosningarnar í haust. Fyrir Demokrata er þó talið fullvíst að Thuman forseti verði i kjöri. Hefur hann lýst því yfir að hann sje reiðubúinn til þess að bjóða sig fram. En flokkáþing Demokrata, sem hald- ið verður á næstunni, mun taka endanlega ákvörðun um framboð flokksins. Innan flokks Demokrata hefur litt orðið vart átaka um val frambjóðanda. Mun það bó frekar snretta af því að flokkurinn hafi nú ekki mörgum mönnum A að skipa, sem líklégir sjeu taldir til þess að ná kosningu, en að Truman njóti þar óskoraðs trausts og fylgis. Meðal stjórn- málafrjettaritara í Bandaríkjunum er framboð Trumans talið svo að segja vonlaust. I hinum gömlu og rótgiónu fylgisríkjum Demokrata,. Suðurríkjunum, er fylgi hans talið að hafa þorrið verulega vegna afstöðu hans til kröfunnar um algert jafnrjetti svartra manna og hvítra. En Truman hefur heitið þeirri stefnu stuðningi sínum, Stefna hans í Palestínurnálunum hefur einnig valdið honum atkvæðatapi meðal Gyðinga, sem þrátt fyrir viðurkenningu Bandarikj- anna á stofnun Isr^elsríkis hins nýja, hefur fundist forset- inn hikandi og stefnureikull í deilunum um Palestínu. Það gerir einnig framboð Trumans nokkur veikara að Henry Wallace, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna hef- ur tilkynnt, að hann muni bjóða sig fram fyrir nýjan flokk, sem hann hefur stofnað. Almennt er að vísu gert ráð íyrir því að flokkur Walace fái sáralítið fyl^i. En hann mun þó draga nokkuð frá Demokrötum og þar með gera forsetaefni þeirra róðurinn þyngri. ★ Innan Repubiicanaflokksins hefur hinsvegar verið háð geysihörð barátta um forsetaefni flokksins. Væntanlega koma úrslit þeirrar baráttu í ijós í næstu viku. Á morgun hefst flokksþing Republícana í Philadelphia. — Koma þar saman rúmlega 1000 fulltrúar flokksins frá hinum 48 nkj- um Bandaríkjanna. Munu þeir ákveða frambjóðanda flokks- síns í forsetakosningunum í nóvember. 1 prófkosningum, sem fram hafa farið undanfarið irman flokksins mun Dewey, ríkisstjóri í New York ríki hafa fengið flest atkvæði. Næstir honum koma þeir Taft, öldungadeildar maður og Harold E. Stassen, fyrrverandí ríkisstjóri í Minne- sota. En það er talið nokkurn veginn víst að enginn þessara keppinauta um forsetaframboðið rnuni fá meirihluta á flokksþinginu. Þess vegna er talið koma til mála að enginn þeirra verði í kjöri, en flokkurinn freisti að samemast um einhvern af foringjum sínum, sem staðið hefur utan við hina hörðu átök um framboðið. Er það almennt rætt um Arthur Vandenberg, öldungadeildarmann og forseta öldimga deildar Bandaríkjaþings. Hann hefur þverneitað að vera í kjöri í prófkosningunum, en hefur lýst því yfir, að cf nauð- syn beri til muni hann gefa kost á sjer til framboðs til þess að sameina alla krafta ílokks síns. Hefur verið rætt um að Stassen, sem er talinn frjálslyndastur hinna þriggja keppi- nauta muni verða í kjöri, sem varaforseti, ef Vandenberg yrði boðinn fram. Dewey, sem bauð sig fram á móti Roose- velt við síðustu forsetakosningar, hefur hinsvegar lýst því yfir, að hann vilji ekki vera í kjöri sem varaforseti. ■ í nóvember-mánuði munu sjálfar forsetakosningarnar fara fram. Margt bendir til þess að í þeim velji lýðveldi Vesturheims sjer nýjan forseta og nýja stjórn. Feimnir og hræddir. ÞAÐ ER annars einkennilegt hvað íslendingar virðast stund um verá feimnir og hræddir á almennum samkomum, sagði maður, sem kom niður á Morg unblað í gær. Hann var að tala um söng þjóðkórsins á Arn árhóli 17. júní. Aðeins örfáar hræður tóku undir, hinir stein- þögðu, jafnvel „mældu út“ það fólk, sem dirfðist að opna munn inn.og syngja með. Þetta er hárrjett hjá mann- inum. íslendingar eru af ein- hverium ástæðum lafhræddir við að syngja á mannfundum, eða svo hefur að minnsta kosti hvað 'eftir annað komið í ljós á mjög leiðinlegan hátt. Þess er bannig skemmst að minn- _ast, hvað hressilega Norðmenn irnir sungu þjóðsönginn sinn rþegar þeir komu í heimsókn- ina á Snorrahátíðina og hvað raddirnar voru sorglega fáar, þegar átti að syngja íslenska þjóðsönginn. Ilversvegna neituðu íþrótta- menn? Daglega lífinu hefur borist alllangt brjef, þar sem rædd er neitun íþróttamanna um að taka þátt í skrúðgöngunni 17. júní Brjefritarinn segir — og rjettilega mun mörgum þykja —1 að það sje ekki nærri því nógu góð afsökun hjá frjetta- mönnunum, að þeir hafi ekki getað tekið þátt í göngunni vegna skorts á íþróttabúning- um. Þetta er dagur allrar þjóð- arinnar, segir hann, og þrátt fyrir alit búningsleysið áttu íþróttamenn að ganga undan í því að setja svip á þjóðhátíð- argönguna. Hreinlætisvikan dugði ekki. HREINLÆTISVIKAN okkar Reykvíkinga dugði ekki. Á miðvikudag var bærinn hreinn og til mestu fyrirmyndar — á föstudagsmorgun voru göturn- ar. í miðbænum yfirfullar af skrani. Það voru Reykvíkingar sjálfir, sem svona skyldu við bæinn sinn o» einkum var Arn arhólstúnið iila útleikið. Mað- ur, sem gekk þar framhjá snemma á föstudagsmorgun segir að hóllinn hafi verið al- hvítur til að sjá — þakinn alls- konar brjefarusli. Þeir hafa áreiðanlega haft nóg að gera, sorphreinsunar- mennirnir. Þarfur fjelagsskapur. FN NÚ HEFUR verið stofn- að fielag hjer í bænum, sem einmitt ætlar að starfa að því að auka fegurð hans. Hjer er sannarlega þarfur fjelagsskap- ur á ferðinni og beir eiga þakk- ir skilið, sem að honum standa. Aðaijivatamenn þess, að fje- lag betta var stofnað. munu haía verið þeir Jón Sigurðs- son borgarlæknir og Ragnar Jónsson forstjóri, en það voru þeir. ásamt borgarstjóra, sem boöuðu til stofnfundarins. Það væri óskandi að þetta fjelag næði tilgangi sínum — að auka fegurð bæjarins og áhuva al- menninsrs fyrir því menningar- starfi. Ekki yeitir af. • Slæmar heimsóknir. MAÐUR UTAN af landi hef ur skrifað Daglega lífinu og kvartað yfir ..slæmum heim- sóknum“. Hann segir að tals- vert hafi b'orið á því í bæn- um. sem hann býr í, að fólk komi í skyndiheimsóknir í flug vjel og kaupi ýmiskonar vör- ur, sem nú er orðinn skortur á í.Reykjavík og raunar víða annarsstaðar. Þannig hafi einn komið fyrir skömmu og keypt hvorki meira nje minna en 20 túpur af tannkremi. Svona heimsóknir eru slæmar, segir maðurinn, og ættu að leggjas.t sem bráðast niður. • Bjuggust við að tapa. ,.ÍÞRÓTTAUNNANDI“ skrif- ar langt brjef um knatúnyrnu hjerna. Hjer eru glefsur úr því; ,,Og svo var það hvern'" Sví arnir. fóru með reykvíska úr- valsliðið — liðið, sem við Reyk víkingar töldum með þvi sterk ast.p. sem við gátum stillt fram, og liðið, sem kunnugur sagði að Svínrnir hefðu verið búnir að sætta sig við fyrirfram að tapa fvrir með .3:1, eftir leiki þeirra við Fram og Víking. Hvernig í ósköpunum gat leikurinn þá endað 5 : 0? Er þetta dæmi þess að öll hugsun, kraftur, dugn- aður og geta reykvískra knatt- spvrnumanna fari út í veður og vind. er beir koma saman í úr- valslið? Og sje það svo, hverju má bá búast við af blessuðum oiltunum okkar á móti finnska landsliðinu, eftir að hafa sjeð þá fá eins herfilega útreið á móti 2. deildar sænsku knatt- spvrnuliði?“ Svona spyr ..íþróttaunnand- inn“ og jeg geri ráð fyrir að svarið ,;sje að ílestir hallist að bví, að við hljótum að liggja í því fvrir Finnunum — eftir útreiðina í síðastl. viku. MEDAL ANNARA ORDA . . . . ■ ,i Þing 6?ðinoa í Monlreux Eftir frjettaritara Reuters í Genf. UNDANFARIÐ hafa blóðug- ir bardagar geisað í Palestínu og enda þótt nú sjeu liðin þrjú ár síðan heimsstyrjöldinni seinni lauk, þá eru enn þúsund- ir Gyðinga, sem urðu að flýja heimkynni sín. heimilislausir. Þann 27. júní n. k. munu full- trúar 8 milj. Gyðinga, hvaðan- æfa úr heiminum, halda fyrsta alheimsþing Gyðinga í Montr- eux, síðan stríðinu lauk. • • MERKASTA MÁLIÐ. Á ÞlNGI þessu verður m. a. rætt éitt merkasta málið í sögu Gyðinga undanfarin 2000 ár — myndun fyrstu stjórnar Israel. Þingið, sern stendur yfir í 10 daga, mun að öllum líkindum skora á Gyðinga, hvar sem er á hnettinum, að hefjast handa til þess að hjálpa hinu nýstofnaða Gyðingaríki — með því að senda þangað peninga og menn og stuðla á annan hátt að fram- gangi þess. Fulltrúarnir, sem þingið sækja, eru 350 að tölu og þeir segjast vera fulltrúar Gyðinga frá 64 löndum, af öllum trúar- bragða- og stjórnmálaflokkum. Allsherjarþing Gyðinga var haldið í fyrsta sinn árið 1936. En frumdrög þess voru í raun rjettri lögð miklu fyrr — eða á friðarráðstefnunni 1919, þeg- ar Gyðingar sendu þangað full- trúa sína frá Evrópu, Banda- ríkjunum, Palestínu og Kanada. Þessir fulltrúar urðu tals- menn Gyðinga á fundum Þjóða bandalagsins og þeir áttu hug- mvndina að því, að efnt. yrði til funda Gyðinga, þar sem mætt ir væru fulltrúar Gyðinga, víðs vegar um heiminn. Fyrsta alheimsþing Gyðinga var haldið í Genf i ágúst 1936 og sóttu það 280 fulltrúar frá 33 löndum. • • FJÖGUR VANDAMÁL. Á OÐRU alheimsþinginu, sem hefst í Montreux 27. iúní n. k. verða aðallega til umræðu fjög- ur vandamál I. Palestína: Þinginu hefir þegar verið fiestað tvisvar sinn- um í von um að aðstaða Gyð- inga í Palestínu skýrðist. Þeg- ar Gyðigar lýstu yfir stofnun Israel, varð málið augljóst og gert er ráð fyrir að þingið muni lýsa yfir eindregnum stuðningi sínum við hið unga ríki. Ætlað er, að þingið muni skora á Gyð- inga um gjörvallan heim að hjálpa kynbræðrum sinum í Palesíínu. Þingið mun einnig endur- ckoða aðstöðu Gyðinga arinars staðar í heimínum, vegna at- burðanna í Palestínu. Stofnun Israels-ríkis hefir orsakað gagn gerða breytingu á högum Gyð- inga, hvar sem er í heiminum. II. Fióttamenn: í styrjöldinni var 6 milj. af þeim 7,5 milj. Gyðingum, sem í Evrópu dvöldu ■ tortímt. Enn eru þúsundir Gyð- inga í Evrópu heimilislausir. I Búist er við, að þingið krefjist þess, að 250 þús. G-yðingum, sem enn dveljast í búðum fvrir vega laust fólk víðsvegar í Evrópu, verði leyft að fara þegar í.stað til þess lands. nem þeir-æskja eftir. — Sjálfir segja Gyðingar, að meginhluti þessa vegalausa fólks, muni vilja flytjast til Palestínu. • • KYNÞÁTTAHATUR. III. Gyðinga-ofsóknir: Búist er við því, að þingið muni gefa I út mikilvægar yfirlýsingar vegna þeirra Gyðinga-ofsókna, sem hafnar hafa verið að nýju, jafnvel í Ivðræðislöndum. 1 Það er Gyðingum sjer í lagi mikið . áhyggjuefni, að í Bret- landi skuli flckkur eins og sá, er Sir Oswald Mosley stjórnar, vera leyfður, en hann fer ekki ’ launkofa með það, að hann berst ge?n Gyðingum og hvet- ur aðra til þess að gera slíkt hið sr.ma. Vaxandi andúð á Gyðingum í Brndaríkiunum — en þar eru nú alls 5 millj Gyðiríga — og end.urvakning Oyðinga-ofsókna fasistanna í Italíu eru önnur dæmi um nýja öld kynþáttahat- hntu-rs. sem nú virðist ganga vfir veröldina, og stjórnmála- flrvkar munu standa á bak við. Enn meir aðkallandi er samt Framh. á bls. 8.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.