Morgunblaðið - 20.06.1948, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.06.1948, Blaðsíða 8
8 MQRGUNB LAÐIÐ Sunnudagur 20. júní 1948. —Fisksala Framh. af bls. 2. Eins og sjest af skýrslunni flutti ísland rr.eira af bolfisk- fiökum til Bandaríkjanna beld- ur én Kanada, síðastliðinn mars mánuð. Vörugæði. Því miður hefur nokkuð skort á, að vörugæði fiskjarins væru svo góð sem skyldi. Umbúðir eru oft heldur ekki eins góðar og glæsilegar og æskilegt væri. Mikil framför hefur orðið hjá frystihúsunum á þessu sviði á tveim síðustu árum, en stórt á- tak þarf ennþá til þess að koma þessu í gott horf. Yfirleitt þykir fiskurinn mjög góður, en gæta verður þess, að þótt vertíðarfiskur af milli- stærð sje góður matur, þá er horaður golþorskur að vorinu, allt annað en góð vara til fryst- ingar. íslenski freðfiskurinn er ennþá óflokkaður, og er nauð- synlegt að flokkun á fiskínum verði framkvæmd sem fyrst. Einnig þarf að haga því svo til, að flök af mismunandi stór- um fiski sjeu sett í tilheyrandi umbúðir, t.d. að flök úr smá- fiski sjeu sett i 1 lb. öskjur, en flök af stórum fiski í 10 Ib. öskj ur. Þær öskjustærðir sem eiga við fyrir Bandaríkjamarkað eru 1. 5 og 10 lbs. Framtíðin. Sölumiðstöð hraðfryst'hús- anna hefur átt því láni að fagna, að fá mjög gott fólk til að vinna markað fyrir íslenskan fisk í Bandaríkjunum. Sumir bestu og þekktustu miðlarar á frystum fiski hafa tekið að sjer dreif- ingu á íslenska fiskinum. Hjer er því á traustum grundvelli að byggja og heíur Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna unnið hjer mikið brautryðjandastarf. í framtíðinni er hjer um veru legan markað að ræða, ef þess er gætt, að hafa verðið sam- keppnisfært, mikil vörugæði, umbúðirnar vandaðar og glæsi- legar, úrvalið nóg og um fram allt, að fiksurinn sje allt af fáanlegur á markaðinum. (Fuflur kassi | að kvöfdi | hjá þeim, se».i auglýsa í ? MorgunblsA.nu. ■inmmmiiiifiiumxuuHHiMMMHMiiiMitiiiiimH Ur ýmsum átfum Alþýðublaðið segir um Kilj- an: „Rithöfundarfrægð hans leysir hann ekki frá þeirri skyldu að hlíta lögum almenns velsæmis." Svona harðar kröfur erum við farnir að gera til skáld anna. Skyldi Þjóðviljinn ekki telja þetta tilraun til andlegrar kúgunar? ★ Hjer koma nokkrar „fagrar raddir“ úr baðstofuhjali Tím- ans: „Úti um land er sumar- dagurinn fyrsti einkum hann sjálfur." .....,En það sem fyrst og fremst er ábyrgðar- hluti, er ekki að láta börnin fæðast, heldur að umgangast þau....“ Þó viðurkennir þessi uppeldisfræðingur að sá valdi miklu sem upphafinu veldur. Flestir leiðarar Tímans ganga út á það hvað kaupfjelögin í dreifbýlinu hafi skarðan hlut í innflutningnum. Samt er að- alinnihald frjettanna í þessum sömu blöðum hvað kaupfjelög- in hafi aukið verslun sína, fram- kvæmdir þeirra aukist og hagur þeirra batnað á allan hátt. „Þeir, sem hafa peninga í sveitunum eru barnakennarar" .... er blaði einu nýlega skrif- að norðan úr Þingeyjarsýslu. Nú er öldin önnur, en þegar Ólafur Kárason Ljósvíkingur var að segja börnum til í lestri, skrift og kristindómi. ★ Ungur Tímamaður skrifar í mesta vandlætingartón um þann áróður, sem sje að skifta þjóð- inni í kommúnista og ekki- kommúnista. Væntanlega vill greinarhöfundur í hvorugum flokknum vera, svo að líklega er hin pólitíska formúla fyrir þess- ari Tímasál eitthvað á þessa leið: y2 kommúnisti + ekki- kommúnisti = miðflokksmaður = Framsóknarmaður. Sveitamaður segir í blaðavið- tali: „í þeirra valdatíð (Ól. Th. og kommúnista) hófst hin ill- ræmda glingurs- og pjátursöld íslendinga." .... Ekki er þess getið hvort landbúnaðarvjelarn- ar, jepparnir, togararnir og strandferðaskipin tilheyri glingr inu eða pjátrinu. Svo er að heyra á bóndanum að öld þessi standi enn, þrátt fyrir ráðherra- dóm þeirra Eysteins og Bjarna. „Hann er þá víst á Hermanns- línunni þessi“ varð einum les- anda að orði. 3,812 miljónir til flotans. WASHINGTON — Bandaríska öldungadeildin hefur samþykkt 3,812 miljón dollara fjárveitingu til flotans. Atiræðisafmæli FRÚ KRISTJANA Bessadótt- dóttir á Siglufirði er áttræð í dag. Hún er fædd á Siglufirði þann 20. júní 1868, dóttir hjón- anna Bessa Þorleifssonar skip- stjóra og Guðrúnar Einarsdótt- ur. Á æskuárum fluttist Kristj- ana burt frá Siglufirði með foreldrum sínum, en settist svo að þar aftur með manni sín- um, Sigurjóni Benediktssyni járnsmið, og bjuggu þau þar síðan um 40 ára skeið. Sigur- jón andaðist fyirr þrem árum. Frú Kristjana hefur sjeð Siglufjörð vaxa upp og hún á mikinn auð minninga, sumar um harðindi og erfiðleika, en aðrar og miklu fleiri um gæfu og gengi, sem í ríkum mæli fjell þeim hjónum í skaut og með sanni má segja, að liafi verið endurgjald fyrir hin miklu störf þeirra og prúða framkomu. Samborgarar frú Kristjönu og allir aðrir, sem hafa kynnzt henni, geyma hlýjar minningar um hana, þær minningar eru bjartar og ljúfar eins og hún er sjálf, hin glæsilega heiðurskona, og margir senda henni í dag hug- heilar árnaðar- og blessunar- óskir, þar sem hún situr heima á fallega heimilinu sínu á Siglufirði. H. K. Sjð biljón dollara fekjoafgangur Washington. SNYDER, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, hefur skýrt frá því, að búast megi við að tekj- ur ríkisins umfram gjöld á fjár- hagsárinu, sem endar 30. júní, verði meir en ?jö biljón dollar- ar. Þetta verður mesti tekju- afgangurinn í sögu Bandaríkj- anna. 14,000 í hafnarverk- falli í London London í gær. HAFN AR VERKF ALLINU -heldur áfram í London, en það hófst fyrir sex dögum síðan. Verkfallsmenn eru orðnir yfir 14.000 og á fjöldafundi í morg- un ákváðu þeir að vísa á bug beiðni yfirvaldanna um að taka upp vinnu að nýju. Verkfallið hófst vegna brott reksturs 11 hafnarverkamanna. ■— Reuter. - fþróllir Framh. af bls. 3. Trausti Eyjólfsson, KR (200 m.), Haukur Clausen, ÍR (300 m.) og Reynir Sigurðsson, ÍR (400 m.). I bessari ágiskun um íslenska landsliðið er ekki reiknað með því að Orn Calusen verði með, þar sem hann hefir verið meiddur og hæpið að hann hafi náð .sjer til fulls um næstu helgi. — Sama er að segja um Kjartan Jóhannsson. Hann get- ur ekki verið með vegna las- leika. ■— Þorbjörn. — Meðal annara erða Framh. af bls. 6. sem áður að bæta aðstöðu þeirra 1. milj. Gyðinga, sem í Araba- rikjunum dvelja en kynbræður þeirra annarsstaðar segja, að þeir sjeu nú kúgaðir og frelsi sviftir, vegna atburðanna í Palestínu. I því skyni, að reyna að vinna bug á þessu vaxandi kynþátta- hatri víðsvegar um heim, er ætlað, að þingið muni senda bænabrjef til allra landa, þar sem farið verði fram á, að bann aðir verði fastistaflokkar og önnur samtök. er ala á kyn- þáttahatri og Gyðinga-ofsókn- um. IV. Þýski friðarsáttmálinn: Þingið mun að öllum líkindum fara fram á skaðabætur frá ,Þýskalandi fyrir að tortíma 6/1 af öllum Gyðingum Evrópu. Gyðingar í einu landi senda ekki fulltrúa á þing þetta, sem sje Rússlandi, en þar eru þeir mjög fjölmennir. Fulltrúar munu koma frá öllum hinum Aústur-Evrópulöndunum. For- stöðumenn þingsins, segja, að sambandið við Gyðinga í Rúss- landi hafi rofnað 1917 og síðan hafi reynst ókleift að fylgjast með aðstöðu þeirra þar í landi. Hjartanlega þakka jeg öllum þeim mörgu samstarfs- mönnum, ættingjum og vinum, fjær og nær, sem á 'j ýmsan hátt glöddu mig á 75 ára afmælinu minu þann » 17. júní. Ásrri- Gestsson. MATARSALT fyrirliggjandi. JJ^ed tjcmiáOFi CJo h.f. [| UUUÚRllllXnítMlii * BJUkSUOUUMPiæ BJIBJIB UO< AuglVsingar, sem birtast eiga í sunnodagsblaðinu í sumar, skulu eftirleiðis vera komn- ar fyrir kl. 6 á föstudögum. \h X«9 4 £ Efflr Roberf Storm §oæm. ‘IMÍ2Í*. ABOUT TM:- VVIUDA 51TUATI0N, PHIL! I OAW HER AT HEADQUARTEP'S’ TODAV — 5HE REMZmZF.'zD //,£ FR0/V) THAT FLORiDA JOl Bing: Já, það er leiðinlegt. Jeg sá Wildu á lögreglu- stöðinni í morgun. Hán mundi eftir mjer, frá því jeg kynntist henni í Florida-málinu. — X-9: Jeg reyndi að ná tali af henni, en hún mátti ekki vera að því að svara mjer. Bing: Mig grunar nú, að hún beri enn heitar tilfínningar til þín. Þú hefði’r átt að sjá, hvemig henni vöknaði um augu, þegar hún sá mig. — Á meðan. Maðurinn: Jæja, þá eru skrjóð- tilbúnir til sölu. Gullaldin: Ágætt, jeg mun í persónu fara á fund fyrsta kaupandans. Hún verið að heimta nýjan bíl, hvað sem það kost- . .aaW

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.