Morgunblaðið - 27.06.1948, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.06.1948, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 27. júní 1948 ‘ 0 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.). Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritst.jórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Askriftargjald kr. 10,00 á mánuði, innanlands, kr. 12,00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið. 75 aura með Lesbók. Ræða Ólafs Thors 1 RÆÐU þeirri, sem Ólafur Thors, fyrrverandi forsætisráð- herra, formaður Sjálfstæðisflokksins, flutti við setningu Lands- fundarins á Akureyri og birtist hjer í blaðinu í gær er brugðið upp greinilegri mynd af stjórnmálaþróun síðustu ára. I þessari þróttmiklu yfirlitsræðu formanns Sjálfstæðisflokks- ins er í fyrsta lagi gert grein fyrir myndun nýsköpunarstjórn- arinnar, sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði forystu um að koma a laggirnar- Þar er á það bent að Framsóknarflokkurinn gerði haustið 1944 allt, sem hann gat till þess að koma i veg fyrir að þingræðisstjórn yrði mynduð enda þótt flokkurinn tæki þátt í undirbúningsviðræðum þingflokkanna um stjórnarmynd- un. Þegar hún hafði tekist hefði Framsóknarflokkurinn svo gert allt til þess að koma í veg fyrir árangur af starfi stjórn- arinnar. Foringjar Framsóknarflokksins hefðu sýnt nýsköpun atvinnulífsins fullan fjandskap enda þótt þeir þættust nú, þegar hin nýju atvinnutæki væru komin til landsins alltaf hafa haft áhuga fyrir að afla þeirra. ia*. ...,... ,, i * if« E^:ii^xB3roiracas!s» ★ Ólafur Thors gerði hinn stöðuga róg Framsóknarflokksins á hendur sjer og Pjetri Magnússyni nokkuð að umtalsefni. Auð- Sætt væri að þótt samstarf hefði tekist milli Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins um ríkisstjórn þá væri það ennþá aðal- ahugamál Framsóknarmanna að, svívirða leiðtoga Sjálfstæðis- manna. Hrakti hann ádeiluatriði Tímans á ráðherra Sjálfstæðis- flokksins í fyrrverandi ríkisstjórn lið fyrir lið. Það er vel farið að formaður Sjálfstæðisflokksins skyldi gera þessi mál að umræðuefni og gera þeim þar að auki eins góð skil og hann gerði í ræðu sinni. Sjálfstæðismenn gengu með full- um heilindum að samstarfi við núverandi stjórnarflokka eftir svik kommúnista við nýsköpunina. En margir af ráðamönnum Framsóknarflokksins hafa allt frá því að þessi stjórn var mynd- uð haft það áhugamál eitt að rægja Sjálfstæðisflokkinn og leiðtoga hans. Það hefur verið leið „milliflokksins“ til þess að skapa hinni borgaralegu samvinnu starfsgrundvöll. Þannig fer „milliflokkurirm“ að því að stuðla að friði og jafnvægi í þjóðfjelaginu- \Jilwerji óhrifar: ÚR DAGLEGA LÍFINU Heimsóknir. ÞAÐ ER GAMAN að taka á móti góðum gestum. — Það er mikið talað um íslenska gest- risni og hún hefur verið rómuð mjög,_ styndum að verðleikum, einkum áður fyr. Og það er ekki hægt að kvarta yfir. því, að ekki komi gestir til landsins í sumar. Iþróttamenn koma til að keppa við okkar menn og er .öllum almenningi mikil ánægja að. Listamenn í orðsins list og meira að segja heilir vísindamannahópar frá fjarlægum og nálægum lönd- um — rjett eins og fyrir stríð, þegar mestur áhuginn var fyrir gamla Einbúanum í Atlants- hafi. Vonandi. að vísindaáhug- inn sje þó ekki að þessu sinni af sömu rótum runninn og hann var hjá sumum þjóðum hjer áð- ur fyrr. Jú," það er gaman að taka á móti góðum gestum, en því að eins að það sje hægt að gera það sómasamlega, • Lítig upp á að bjóða. ÞVÍ MIÐUR höfum við lítið upp á að bjóða þeim erlendu gestum, sem að garði ber — fyrir utan það, sem náttúran veitir. Og þótt sumum kunni að þykja það ágætt, þáder ekki hjá því, að ferðamaðurinn vilji láta fara vel um sig, hafa nóg til hnífs og skeiðar og það fyr- ir skaplegt verð. Það væri að bera í bakka- fullan lækinn, að fjasa meira um gistihúsaskort og ljeleg veitingahús og frammistöðu. — En hvorttveggja vantar, ef við eigum að get?. talist menn með mönnum og viljum hæna að okkur erlenda íerðamenn í þeim tilgangi, að bæta gjaldeyrisað- stöðu okkar. Við eigum svo óendanlega langt í land í því, að geta boð- ið ferðamönnum upp á þau þægindi, sem sjálfsögð eru tal in í öðrum löndum. Sóttst eftir ferða- möiinum. í GÆR rakst jeg á auglýs- ingapjesa frá Ferðaskrifstofu ríkisins, sem prentaður er á ensku og mun fyrst og fremst ætlaður til áróðurs meðal þeirra Breta, sem vilja koma hingað í stutt ferðalög með „Esju“. Pjesinn er verulega smekk- lega úr garði gerður. Fyrsti aug lýsingapjesinr,, sem Ferðaskrif- stofan hefir gc-fið út, sem sæmi- legur getur talist að útliti. Það eru framför og sýnir um leið, að við viljum reyna að hæna að okkur ferðamenn. • Oheppilegar ýkjur. Á EINUM STAÐ í þessum pjesa rakst jeg á óheppilega setningu. Þar stendur eitthvað á þessa leið: „Skömmu áður en komið er til Vestmannaeyja, munuð þjer sjá (þ. e. þeir, sem koma með Esju frá Glasgow) hið fræga eldfjall Fléklu, sem nú gýs . . .“ Þetta er vitonlega ekki nema hálfur sannleikur. Það fer alveg eftir veðri, hvort þeir, sem koma á skipi upp að suður- strönd íslands sjá til Heklu. Og hitt er ósatt, að Hekla gjósi enn. Það verður ekkert gaman fyrir skipverja á Esju, nje full- trúa Ferðaskrifstofunnar, þeg- ar ferðafólkið fer að ganga eft- ir þessu loforði, sem prentað er í pjesanum, Menn verða að vara sig á villum eins og þessari, þegar þeir eru að hvetja ferðamenn til að koma til íslands. • Gamlar syndir • . . í ERLENDU blaði má lesa kvörtun yfir því, hve dýrt sje orðið að safna íslenskum frí- merkjum, sem þó sjeu einstak- lega eftirsótt meðal frímerkja- safnara. Og siðan er bætt við í greininni, að því miður sjeu mörg ísl. frímerki, sem í umferð eru, ekki eins mikils virði og af sje látið. Þannig sje það með frímerki, sem eru yfirstimpluð „í gildi“ og útgefin eru 1902. Blaðið segir, að áður fyr hafi menn getað sent inn heilar ark- ir af þessum frímerkjum og fengið þau stimpluð með „í gildi“ og að þetta hafi verið misnotað á hinn versta hátt. Sumir hafi smurt arkirnar með lími áður en þær voru yfir- stimplaðar og síðan þvegið lím- ið af er búið var að stimpla og þá hafi komið í Ijós allskonar afbrigði. Þá er farið nokkuð mörgum orðum um Alþingishá- tíðarf rímerkj asvindlið. Þannig k.on;a gamlar syndir niður á þeim, sem þær fremja aftur og aftur Það er augljóst, að skrif eins og þessi um frí- merkin, skaða okkur út á við, en verst er að það er ekki hægt að mótmæla þeim. • Olætin v‘ð samkomuhúsin. ÞAÐ ER ÓFÖGUR sjón að sjá unga fólkið við samkomu- hús bæjarins, þar sem dansleik- ir eru haldnir. Það er að vísu ekki neitt nýtt, að danselskir menn safnist saman fyrir utan samkomuhúsin. En það ber meira á þessum mannsöfnuði um hábjarta sumarnóttiná. Lögreglan virðist ekki hafa neitt við þennan æpandi mann- söfnuð að athuga og lætur sem vind um eyrun þjóta það á- kvæði lögreglusamþyktarinnar, að fólki sje óheimilt að safnast saman í hópa á götum bæjar- ins, án leyfis lögreglustjóra. MEÐAL ANNARA ★ En Sjálfstæðismenn hafa ekki verið uppnæmir fyrir þessum yinnubrögðum Framsóknarmanna. Þess vegna hafa hvorki ráðhdrrar Sjálfstæðisflokksins i fyrrverandi stjórn, nje ýmsir aðrir af leiðtogum flokksins hirt um að svara hinum stöðugu ádeilum á flokkinn og þá sjálfa. Baráttan gégn kommúnistum og upplausn í þjóðfjelaginu hefur að þeirra áliti verið þýðing- armeira. * Ólafur Thors gerði hömlur þær, sem nú gilda í viðskipta- og atvinnulífi þjóðarinnar nokkuð að umtalsefni. Hann kvað höftin og bönnin að vonum mælast illa fyrir. Væri fram- kvæmd þeirra og að sumu leyti ábótavant. Yrði að leggja áherslu á að kippa þvi i lag- En meðan skortur væri á gjald- ,eyri gæti orðið erfitt að ljetta hömlunum af. „En“ sagði Ólafur Thors, ,,ekki mega þessi bönd standa Stundinni lengur en nauðsyn býður, enda fer nú saman að við reyrum allt í bönd en aðrar þjóðir keppast við að höggva á yiðjarnar og eru margar komnar langt áldiðis. Þetta verður öð vera áfrávíkjanleg stefna og krafa okkar Sjálfstæðismanna þótt aðrir stjómarflokkar vilji, og hafi alltaf viljað bönn og höft, vegna banna og hafta, og alveg án nauðsynja —“. ★ Undir lok ræðu sinnar komst Ólafur Thors að orði á þessa leið: ,,Við Sjálfstæðismenn megum ekki gleyma stefnu okkar, nje nokkru sinni láta niður falla baráttuna fyrir henni. Allra síst þegar svo er komið, að jafnvel sjálfir þjóðnýtingarmenn og bannmenn í nágrannalöndunum rísa nú hver á fætur öðrum gegn fyrri stefnu sinni, vegna fenginnar reynslu um skaðsemi hennar í framkvæmd. En þetta er nú staðreynd". Undir þessi ummæli formanns síns munu Sjálfstæðismenn Um allt land áreiðanlega taka. Lífil í Prag er dapurlegt. Frá frjettaritara Reuters í Prag. LÍFIÐ hjer í Prag hefur þessa dagana fátt eitt gott ?.ð bjóða borgaranum. Sjer til ánægju hefur hánn sumarsólina, Volt- avafljót — og ekki ýkja margt annað. Stjórnmáladraugurinn hefur tekið til við að ofsækja hljómlist hans, íþróttir, kvik- myndahúsin og jafnvel verslun argluggana. Þar sem Pragbúinn áður fjekk að virða fyrir sjer skyrtur og skó, rekst hann nú á myndir af stjórnmálamönn- um og línurit yfir Áætlunina. Hvert sem hann fer og hvað sem hann lítur á, kemst hann ekki hjá því að reka sig á þá staðreynd, að þau öfl hafa ætíð ásótt Prag, sem hann fær ekki ráðið við. Byggingar stí 11 bor gar1 rmar kemur frá Vín. Umferðar- reglurnar, sem hann hefur tek ið í notkun á götunum sínum, koma frá Berlín. Andlitin í versl unargluggunum eru andlit mann anna í Moskva. • • ERLENDIR DROTTNARAR Húsin hans, margar af venj- um hans, flést hinna þjóðfjelags legu, efnahagslegu og stjórn- málalegu vandamála hans eru arfleyfð þess tímabils, er erlend ir drottnarar rjeðu ríkjum í Prag. Svo er nú enn komið. Hinn óbreytti borgari í Prag er dapur þessa dagana. Flest bendir til þess, að hann sje hæði andlega og líkamlega þreyttur. Á götum úti virðist I ann skeita lítið um umferðina, hvort sem hann er gangandi eða í ein hverju farartæki. Oft gengur þetta svo langt, að engu ei lík ara en hann sje að reyna að fremja sjálfsmorð. Pragbúinn þarfnast sköromt- unarseðla fyrir öllum matvæl- um og öllum klæðnaði. Kjöt- skammturinn er örlítill, en þó er eins og sumt fólk — „vísst“ fólk — fái allt það kjöt, sem það óskar eftir. Óbreyttur borgari fær aðeins eitt egg á mánuði, stöku sinnum tvö; þó sýnist sumt fólk hafa nóg af eggjum. • • BRAUÐ OG SÚPA Óbreytti borgarinn li.fir nest á brauði, kartöflum og súpu. Þó er hægt að greiða eitt, tvö eða þrjú hundruð krónur á veitinga húsum fyrir ágæta máltið, þar sem gnægð er af kjöti, eggjum, osti, kökum og góðu innfiuttu víni. En aðeins ,,visst“ fólk hef- ur efni á að koma á þessa staði. Á veitingahúsum óbreytta borgarans er aðalrjetturinn fisk ur (sje fiskurinn steiktur, verð ur hann að láta feitiskömmtun arseðla af hendi) eða síld frá Norðurlöndum. Ódýrari veitinga húsin eru ekkert sjerlega hrein- leg. Glös og diskar bera þess oft merki, að þvotturinn hefur ekki verið sem bestur. • • FATNAÐARSKORTUR En matvælavandræði óbreytta borgarans eru lítið verri en fatn aðarskorturinn. Hann fær þann ig aðeins að kaupa eitt par af skóm átjánda hvern mánuð. — Og þó virðist sumt fólk hafa alveg nóg af fötum. Það er ekkt ert óalgeng sjón fyrir þann ó- breytta að sjá fallegar konur og velklædda menn koma út úr stór um veitingahúsum og hverfa inn í stórar einkabifreíðar. „Vissa“ fólkið er þarna onnþá á ferðinni. • • FER TIL BÆNDANNA Óbreytti borgarinn grípur stundum til þess bragðs að taka sjer ferð á hendur upp í sveit til að afla sjer matvæla. En þetta er ekki hættulaust. í fyrsta lagi geta eftirlitsmenn komist á snoðir um, að einhver bón.linn selji Pragbúanum matvæli. Bóndinn fær þá að svara til saka fyrir framkvæmdanefnd sveitar sinnar. í öðru iagi vero ur borgarbúinn að hætta á, að leitað verði á honum á heimleið inni. Lögreglan heíur um helg ar eftirlit með umferðinni til Framh. á bls. H.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.