Morgunblaðið - 03.07.1948, Blaðsíða 12
12
MORGUDIBLAÐIÐ
Laugardagur 3. júlí 1948-
Snorrnlíkneskið
Framh. af bls. 9.
stjóra. Hafa þtir haft hiria á-
gætustu ferð um Noreg.
Um kvöldið hafði Kaare
Fostervoll, kirkju- og kennslu-
málaráðhei ra, boð inni fyrir
hönd norsku ríkisstjórnarinnar
á Flörjrestauranten. Þar bauð
Boyesen, skrifstofustjóri, gesti
velkomna í naíni ríkisstjórnar-
innar, en Fostervoll, ráðherra,
mælti fyrir kouungi Noregs og
forseta íslands.
Jónas Jónsson svaraði >æðu
Fostervolls með ræðu, Sem
hann stefndi sjerstaklega til rík
iserfingjans, sem fulltrúa allrar
norsku þjóðarinnar. — Starfið
fyrir því að reisa Snorra minn-
ismerkið varð sigur fyrir Nor-
eg á íslandi, sagði hann. ilann
minntist á norsku förina til ís-
lands í fyrra og kvað það hafa
verið mikinn viðburð, er fulltrúi
hinnar norsku konungsættar
heimsótti sögueyjuna. Við vilj-
um lýðveldi á íslandi, hefði
hann sagt, — en íslendingar
vilja konungdæmi í Noregu
„Kæru gestir og frændur .
Næstur tók rikiserfinginn til
máls og þakkaði formann. ís-
lensku Snorranefndarinnar ræð
una. „ísland hefur gert söguna
að lifandi staðreynd í hugum
Norðmanna", sagði hann. „Það
var einkum úr sjávarbyggðum
vesturlandsins, sem landnáms-
mennirnir fóru til íslands,
stofnuðu þar þjóðfjelag og
hreinræktuðu lagasetninguna,
sem var heilög af því að hún
var viðurkennd af öllum frjáls-
um mönnum. Gagnvart lögun-
um voru allir iafnir. Það tókst
að stofna rjettarríki án annars
framkvæmdarvalds en boðorðs
laganna. Þar höfum vjer dæmi
um hreinræktaðasta fjelagslega
sjálfsagann, sem sagan herm-
ir frá . . . Þjer eruð kærir gest-
ir og írændur. Við gleðjumst.
yfir því að íslenska þjóðm er
alfrjáls þjóð í sínu eigin landi.
Vjer óskum yður heilJa og ham
ingju í starfinu fyrir ísland og
vonum að samstarfið milli
landanna megi aukast, bóðum
til gagns og gieði“, sagði krór,-
prinsinn að lokum.
Boyesen, fulltrúi ríkisstjórn-
arinnar mælti fyrir minni
Björgvinar og á eftir tók Helgi
Hjörvar til máis og skýrði frí
því, að útvarpið til íslands
hefði tekist að óskum, og þakk-
aði norska ríkisútvarpinu fyrir
hjálpina. Vakti það fögnuð að
ísl. útvarpshlustendur skyldu
fá færi á að fylgjast með af-
hjúpunarathöfninni.
Nú tók til máls fuiltrúi ís-
lensku ríkisstjórnarinnar.
Bjarni Ásgeirsson, ráðherra, og
bar fram kveðjur til norsku rík-
isstjórnarinnar. „Stórt haf skil
ur þjóðir okkar, sama hafið,
sem Norðmenn kalla No''ske-
havet, en íslendingar Islands-
haf, en aldrei verður það svo
breitt að góðar hugsanir og
minningar komist ekki yíir. f
Noregi finnst í«lendingum, sem
þeir standi á helgri fold. Við
deilum ekki framar um hver
eigi Snorra. Öll Norðurlönd,
allur siðmennfaður heimur 4
hann. Andi hans hefur svifið
yfir Noregi á timum erfiðleika
og velgegni",
Kynnisför um Bergen
Morguninn eftir var kynnis-
för farin um Björgvin undir
leiðsögn Sheteligs prófessors og
aðstoð þeirra húsameistaranna
Konow Lund og Kristian Bjerk-
nes og Wenche Sloman, safns-
varðar við Bergens Museum. —
Var safnast við Bergenhus,
haldið þaðan inn Bryggjuna
sögufrægu og í Kauphallarhús-
ið, en þaðan á Bergens Museum
og forngripadeitdin skoðuð þar,
en síðan voru myndasöfnin tvö
skoðuð: Bergens Billedgalleri
og Rasmus Meyers Samlinger.
Hátíðinni lýkur
Að því loknu hjelt bæjar-
stjórn Björgvinar boð á Bristol,
en um kvöldið var hátíðasýning
í leikhúsinu — Den Nasjonale
Scene. Hófst hún með því að
frú Martha Glatvel-Prahl sagði
fram hrífandi inngangsljóð, en
kand. Hákon Hamre mælt'
nokkur ávarpsorð á íslensku —
Næst hófst leikurinn, „Naar
den ny vin olomstrer“, eftir
Björnson, en á milli þátta voru
kveðjur fluttar frá Norsk-ís-
lenska sambandinu og Norræna
fjelaginu.
Síðasti þáttur þessarar hátíð-
ar, sem bæði veður og forstöðu
menn höfðu hjálpast að að gera
svo minnisverða og fallega. var
svo siglingin suður á Mostur,
með viðkomu á Fitjum. Var
staðið við á Fitjum á suður-
, leið og sagði oddvitinn þar frá
staðnum í stuttum fyrirlestri.
En á Mostur flutti Andrees
Fleischer biskup ræðu í hinni
frægu kirkju þar — elstu
kirkju Noregs.
Sk. Sk.
Jón Þorsteinsson íþrótta-
kennari fimmtugur
JÓN Þorsteinsson íþrótta- j
kennari og íþróttafrömuður er ^
fimmtugur í dag. Hann hefir í;
rúman aldarf jórðung verið einn j
mikilvirkasti íþróttakennari
þessa lands, og munu þeir íá-
ir, sem jafnstór hópur æsku-
fólks hefir leitað til og notið
tilsagnar í líkamsmennt, en
hann. Enda hafa ekki margir
lagt eins mikla rækt við starf
sitt og sýnt eins óþrjótandi
dugnað og Jón Þorsteinsson.
Nægir þar að benda á íþrótta-
hús það, er hann reisti 1935,
sem enn er eitt mesta íþrótta-
mannvirki lanasins.
Jón Þorsteinsson hefír aðal-
lega lágt rækt við fimleika og
glímu, og er það mikið honum
að þakka, hve íslenska giíman
hefir komist aí'iur til vegs. Ilef-
ir hann unnið ötullega að því,
að hún skipi þann sess er henrii
ber sem þjéðaríþrótt íslend-
inga.
Jón hefir farrð í margar ferð-
ir til annarra landa með fim-
leikaflokka og glímumenn, og
hafa þær ferðir ávalt tekist
með prýði.
Jón er strangur kennari og
heldur uppi miklum aga, en öll-
um nemendum hans þykir vænt
um hann, því hann er drengskap
armaður mikíll. Hann hefir
verið óþrjótandi að brýna fyrir
mönnum hin hollu áhrif sannr-
ar líkamsmenntar.
í dag á þessum tímamótum í
æfi Jóns Þorsteinssonar munu
þeir margir, sem senda honum
hlýjar kveðjur, og þakka hon-
um þann mikla skerf, sem hann
hefir lagt til þess að ala upp
heiibrigða og hrausta íslenska
æsku. — Þ. G.
Frú Brunborg komin
kvikmynd
til sölu.
Vesturbrú 2
Hafnarfirði.
4UGLÍÍHJSG
ER GU LLS I G II. Dl
FRÚ GUÐRÚN BRUNBORG
frá Oslo, sem undanfarin sum
ur hefir ferðast um landið og
sýnt norskar kvikmyndir, þar
á meðal hina ágætu norsku
kvikmynd „Englandsfarana“,
or nýkomin til landsins. Að
þessu sinni hefir hún „Eng-
: landsfarana“ með og auk þess
■ kvikmynd, sem nefnd er „Nor
egur í litum“. Er það 16 m.m.
kvikmynd með tali, sem tekin
hefir verið af þeim Per Höst
og Jan Wikborg- Myndin sýnir
Nore’g frá Oslo til Lofoten og
stendur sýningin yfir í 80 mín
útur. Kvikmynd þessa mun
frúin sýna lijer í sumar, en
hygst fyrst að frumsýna hana
hjer í Reykjavík. Annars mun
hún haga ferðum sínum likt
og áður-
50 þús. kr. sjóður.
Sjóður sá, sem frú Brunborg
stofnaði við Osloarháskóla til
minningar um son sinn, Olav,
sem ljest í þýskum fangabúðum
er nú orðinn 50 þúsund krónur.
Ur sjóði þessum á að styrkja
íslenska og norska stúdenta.
Annan sjóð hefir frúin stofnað
sem ætlaður er norskum stud
entum, sem vilja leggja stund
á nám á íslandi. Sá sjóður er
nú orðinn 30,000 krónur is-
lenskar.
Norskur stúdent fær
2000 kr. styrk.
1 ár hefir frú Brunborg veitt
2000 króna styrk til norsks
stúdents sem lcemur til Tslands.
Var það ákveðið af Osloarhá-
skóla, að þann styrk skyldi
hljóta Ivar Hernes og ætlar
hann að leggja stund á jarð-
fræðirannsóknir hjer á landi,
einkum eldfjallarannsóknir.
Það hefur verið ákveðið, að sýna „Dauðadansinn“. eftir Strindberg
cnn einu sinni og verðui sú sýning á sunnudagskviild. Er þetta gert
vegna mikillar aðsóknar og f jölda áskorana. En ekki verður hægt
að sýna leikinn nenia í þetta eina skipti. Mogens Wieth fer til
Kaupmannahafnar á þriðjudagsmorgun. í kvöld heldur Norræna
íielagið Reumerts-hjónunum kveðjusamsæti að Borg og er óllum
heimill aðgangur. Á mánudag heldur danski sendiherrann og frú
Brun kvölboð fyrir Reumerts-hjónin og Mogens Wieth og er því
ekki um annan dag en sunnudaginn að ræða fyrir þessa síðustu
sýningu. —
Tjekkar flýja enn
London — 21 Tjekki komu ný-
lega í flugvjel til Manstonflug-
vallarins í Englandi. Talsmaðui
flóttamannanna skýrði frá þvl
að þeir hefðu „lánað“ vjelina,
sem þeir komust undan í.
BERGUR JONSSON
Málflutningsskrifstofa
Laugavcg 65. Sími 5833.
Heimasími 9234.
X-9
ák
aaaww"
, CM/.R.O.l
.Cl‘U ELCCO PKTÚCLCí.Cj
V.'.UU TAKÍ IIÍS WtÚS
A:co Tl-AK...
mr- j
N-VGU
JL5T S'AiD
X V.A5
RBFnJLélýgJ
T W0MEN AOAHRS
6RAPE-EYEfc!
V0d DON'T ’hAVÍ T0
B£ A /MATlNcE
/WOeUL, IP YOU'RE
Ai V/rihr* i u
operator! A ^wJwm
Mm
4
6
Efilr loberf Sform
BEÖIDE5. \
TH05E H0T ’ Q0
Cfi.RZ THAT ^
HE H,A$
INTBtöUE
AIxanwhile, PHIL HA5 ZUmCUSD A
WRECKER T0 THE -&CENE CP TH£
SUBMERGED TRAlLER-TRUCK----
Karmen: Jæja, þá, ei þú færð ekki hjartuslag, Konur dást að sniöugum og snarráðum mönnum. ir bílar, einhvern veginn verð jeg að leika á hann.
máttu kyssa mig. GuIIaldin: En, — þú sagðir rjett Og þú þarft ekki að vera neinn draumur, ef þú Á meðan hefur X-9 sótt viðgerðarvagn og þeir
áðan, að jeg væri andstyggilegur. — Karmen: ert bara nógu kaldur. (Hugsar): Svo eru það þess- byrja að draga vörubílinn upp.