Morgunblaðið - 13.07.1948, Qupperneq 12
VEÐUKÚTLITIÐ: Faxaflói:
SAMBAND kommúnista við
20 fulltrúar sitja þing
Norræna heimilisiðnað-
arsambandsins
Fíölbreyfl, Borræa heiniilisiðnaðarsýn-
ing, opnuS í gær.
1 GÆRMORGUN kl. 10 var 0. þing Norræna heimilisiðnaðar-
sambandsins Nordens husflidsforbund sett í Alþingishúsinu. --
Þetta er í fyrsta sinn, sem þingið er háð hjer á íslandi. Á siðasta
þinginu, sem haldið var i Stokkhólmi 1937, var ákveðið, að
næsta þing skyldi háð á íslandi, en vegna stríðsins og sam-
gönguerfiðleika eftir stríðið hefur ekki getað orðið af bvi, fyrr
cn nú. —‘ Á þingi þessu eru alls 21 fulltrúi, 2 frá Danmörku, 3
frá Finnlandi, 2 frá Svíþjóð, 4 frá Noregi og 10 frá íslandi. —
Meðal íslensku fulltrúanna eru Matthías Þórðarson, formaður
Sambands íslenskra heimilisiðnaðarfjelaga og Ilalldóra Bjarna-
dóttir ráðunautur um heimilisiðnaðarmál á íslandi.
»-------------------------------
Heimilrsiðaaðarsýningin
opnuð
í sambandi við þingið var í
gær opnuð Norræn heimilisiðn-
aðarsýning í Listamannaskálan-
um og mun hún að öllum líkind-
um standa yfir 10 daga. Um leið
og sýningin var opnuð. fluttu
fulltrúar Norðurlandanna fimm
stuttar ræður. Matthías Þórðar-
son bauð fulltrúa og sýnirigar-
gesti velkomna. Síðan talaði
Svend Möller af hálfu Dmrrerk-
ur, Toini-Inkeii Kaukonen af
hálfu Finnlands, Kr. Grepctad
af hálfu Noregs og Bo Ilamm-
erskjöld af hálfu Svíþjóðar. —
Loks mælti Ragnar Nordbv,
heimilísráðunautur Noregs,
nokkur orð á ítlensku.
FiÁltrúar flytja kveðjur
Hinir erlendu fulltrúar fluttu
allir kveðjur írá heimalöndum
sínurn og ljetu í ljós gieði sína
yfir því, að hafa fengið tæki-
færi til þess að sækja „Sögu-
eyjuna" heim. — Þeír lögðu í-
herslu á það, að Norðurlöndin
væru öll á sama menningar-
svæði, eins og sjá mætti af sýn-
ingu þessari, og þess vegna bæri
að stuðla að ö!Iu því, er orðið
gæti til þess £ð efla norræna
satpvinnu.
Fjölbreytt sýning
Á sýningu þecsari hefur hvert
landanna eigin deild. Er íslenska
deildin mest að vöxtum og auk
heimilisíðnaðai eru sýndir
nokkrir listiðnaðarmunir. Það
yrðí of langt rrál að telja hjer
upp alla þá muni, sem á sýr.ing-
unni eru, en hún er furðu fjöl-
brwytt. Munirnir hafa verið vald
ir með það fyrir augum, að gefa
sem gleggsta hugmynd um heim
ilisiðnað hvers lands fyrir sig,
og virðist valið hafa tekist með
ágætum. Er þarna að fá gott yf-
irlit yfir það, hvernig heiinilis-
iðnaður er á Nc rðurlöndurn.
Þijigið skal háð 3. hvert ár
Híð norræna heimilisiðnaðar-
samband er myndað af sambönd
um heimilisiðnaðarfjelaga á
Norðurlöudunura fimm. Sam-
kvæmt lögum þess á að halda
þing þriðja hvert ár, en vegna
styrjaldarinna. hofur ekki getað
orðið að þinghaldi síðan 1937,
sem fyrr segir.
Við setningu þingsins í gær-
morgun gáfu fidltrúarni- skýrsl
ur um þróun heimilis;ðnaðar-
ins á Norðurlöndum síðan hið
síðasta sambandsþing var háð.
KI. 5 flutti frú Anna Hald Ter-
kelsen erindi tm heimilisiðnað
kvenna í Danmörku og kl. 8.30
flutti frk. Inga Lárusdóttir er-
indi með skuggamyndum um ís-
lenskan heimihsiðnað.
Mörg erindi flutt.
AUir velkomnir.
í dag heldur svo þingið áiram
í 2. kennslustoíu Háskólans. —
Frk. Hulda Kontturi flytur kl.
10 fyrirlestur um tóvinnuefni
og notkun þeirra í Finnlandi á
stríðsárunum. Síðan talar Norð-
maðurinn Nordby um kennslu í
heimilisiðnaði. Síðari hluta dags
skoða þingfulltrúar Hitaveituna,
og þaðan til Þingvalla, þar sem
snæddur verður kvöldverður.
Á morgun kl. 10 mun Gertrud
Rodhe, landshöfðingjafrú, flytja
erindi um sænskan iðnað til
heimilisnotkunar og frú Laufey
Vilhjálmsdóttir flytur erindi kl.
2 um þróun og v erkefni íslensks
heimilisiðnaðar, sjerstaklega ull
ariðnaðar, og nauðsynieg skil-
yrði til eðlilegra framfara nans.
Annað kvöld flytja svo er-
lendu fulltrúarnir kveðjuorð í
útvarpið, og þinginu verður slit-
ið með sameiginlegu borðhaldi.
Landsmót í golfi
halið
LANDSMÓT I golfi hófst á
sunnudag og eru þáttt.akendur
20. 14 frá Reykjavík, prír frá
Vestmannaeyjum og þrír frá Ak
ureyri. Fyrsta daginn var und-
irbúningskeppni og komust 16
þeir efstu í úrvalsflokk, en hin-
ir fjórir í fyrsta flokk. I undir-
búningskeppninni varð efstur
Jóhanses Helgason með 78 högg
(18 holur). í gær hófst sjálf
keppnin og voru leiknar 36 hol-
ur. Efstir voru, Jakob Hafstein j
og Jóhannes Helgason. báðir á
153 höggum.
Frá opfltrn norrænu heimilisiðnaðarsýningarinRsr.
■UDSM. M0L: DL. K. MAGNUSSDN.
Talið frá vinstri: Matthías Þórðarson, formaður Sambands íslenskra heimilisiðnaðarfjelaga, Svenð
Möller, húsameistari, fulltrúi Danmerkur, Halldóra Bjarnadóttir, ráðunautur um heimilisiðnaðarmál á
fslandi, Bo Hammerskjöld, landshöfðindi, fulltrúi Svíþjóðar, Toini-Inkeri Kaukonen ráðunautur, full-
trúi Finnlands og Iír. Grepstad, skólastjóri, fulitrúi Noregs.
McCormick ofursfi
í einkaflugvjel tii
íslands
í GÆRKVÖLDI kom hingað til
lands, Robert R. McCormick of-
ursti og frú hans. Komu þau í
einkaflugvjel til Keflavíkur og
er það „fljúgandi virki“, ,,B 17“
sem hefir verið útbúin, sem far
þega flugvjel.
McCormitk ofursti er heims-
frægur blaðaútgefandi og rit-
stjóri. Hann er eigandi eins
stærsta blaðs Bandaríkjanna,
Chicago Tribune, sem kemur út
í rúmlega einni miljón eintaka
daglega og einni og hálfri milj.
einkum á sunnudögumf Hafa
greinar hans í Tribune oft vak-
ið heimsathygli.
Auk fjögra manna áhafnar í
flugvjelinni er ritari McCor-
micks, ungfrú Dorothy McMurr
ay með í ferðinni. I fyrjrakvöld
kom hingað til lands William
J. Fulton, frjettastjóri Chicago
Tribune í London, til að undir-
búa komu McCormicks hingað
til lands.
Cormickshjcnin dvelja hjer
aðeins í sólarhring og munu
fara hjer um nágrenni til að
skoða sig um. Hjeðan fara þau
á miðnætti í nótt til Skotlands,
Fleiri þrýsfiloffsfiug-
vjelar fil islands
15 bandarískar þrýstilofts-
flugvjelar af gerðinni Lockheed
Shooting Star lögðu af stað frá
Selfridge flugvelli nálægt De-
troit og er ætlunin að fijúga
þeim yfir Atlantshafið alla leið
til Þýskalands, en þar munu
þær fá bækistöð í framtíðinni.
Flugvjelar þessar munu koma
við á íslandi.
— Reuter.
29 þúsund mál með
rúml. 70 skipum
Siglufirði í gærkveldi.
SÍÐAN á hádegi á laugardag
og þar til í gærkveldi hafa
komið 73 skip, með rúmlega
20 þús. mál síldar. í gær var
engin veiði og komu því skip
þessi á laugardag og sunnudag.
Nokkru eftir hádegi í dag
höfðu verksmiðjurnar hjer á
Siglufirði tekið á móti um 30
þús. málum.
7 skip.
Af þeim skipum sem lönd-
uðu í gær, sunudag, hafði m.s.
Helga RE mestan afla, 1382
mál, næstur Dagur RE með
1100 mál, Böðvar AK, 650 mál,
Jón Finnsson GK 600, Víðir AK
650, Ásgeir RE 550 og Vörður
TH með 500 mál.
Sunnudagurinn.
Bræla var á miðunum í gær,
sunnudag. Þá kom flotinn því
nær allur að landi. Hjer var
mikill fjöldi skipa og sagt var
að um 70 skip lægju undir
Þórðarhöfða.
Um hádegi í dag tók veður
að lagast og um líkt leyti lagði
flotinn af stað út á mið. í
kvöld um kl. 9 höfðu engár
frjettir borist frá flotanum.
Logn var á miðunum, en dimt
yfir og gat því ekkert síldar-
leitarflug farið fram í kvöld.
Malbikun gafna
Á FUNDI bæjarráðs, er hald
inn var s.l. föstudag, var rætt
um malbikun gatna og var sam
þykkt að láta nú á næstunni
malbika þrjár götur og gatna-
spotta- Göturnar eru þessar:
Amtmannsstígur, Holtsgötu
milli Bræðraborgarstígs og
Framnesvegar og Ingóifsstræti
frá Amtmannsstíg að Banka-
stræti.
Uppreisnáilutninga-
skipi ■ ' 1
London í gær.
í DAG heyrðust neyðarmerkf
frá 7100 smálesta bandarísku
flutningaskipi, „William Car-
son“, sem er statt út af Portú-
gal á siglingu frá Genúa á ít-
alíu til Bandaríkjanna. — ÞaS
fylgdi með í skeytinu, að skips-
höfnin hefði gert uppreisn, en
skipstjórinn og nokkrir menn,
sem hægt var að treysta, rjeðu
enn yfir brúnni og loftskeyta-
klefanum.
Það var Valentiaútvarpsstöð-
in á írlandi, sem heyrði neyðar-
skeytið og kom hún boðum til
annars bandarísks flutninga-
skips, sem var skamt frá „Willi
am Carson“ — Reuter.