Morgunblaðið - 29.07.1948, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.07.1948, Blaðsíða 1
E5 árgangur 177. tbl. — Fimtudagur 29. júlí 1948. PrentsmiSj* MorgunblaÖsLða 6110 farast við sprengingu í Ludivigshafen -«> Olytnpíuleikvangurinn s London. Kviknaði í efnaverk- smiðju I. G. Farben Mannheim í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter, ÓSKAPA sprenging varð í verksmiðju I. G. Farbenindustrie í I udwigshafen. Síðast þegar frjettist var talið, að 600 manns hefðu þegar beðið bana, en 1200 höfðu verið fluttir á sjúkrahús i nágrenninu. Strax eftir sprenginguna kom mikið lögreglulið á vettvang, sem hefur unnið stanslaust að því í marga klukku- tíma að bjarga fólki úr rústunum. Auk þess vinnur þýskt, banda- rískt og franskt slökkvilið að þvi að slökkva bálið, en gengur illa vegna þess, að hitinn er svo mikill, að erfitt er að komast rærri mesta eldinum. Ekki er vitað um upptök eldsins, en þar sem hann kom upp er klóroform framleiðsla. Wembley-Stadion í London, þar sem Olympíuleikarnir fara fram. Úlympíuleikornir hefjost í Setningarafhöfnin cg glæsileg. í DAG kl. 13,30 eftir ísl. sumartíma verða Olympíuleikarnir iiinir 14. í röðinni frá því þeir voru endurvaktir, settir af kon- ungi Bretaveldis, Georg VI. Eftir nokkurt forspjall hirðsiða og þegar konungur er kominn í stúku sina munu keppendur allra þátttakandi þjóða, fylkja liði og ganga inn á leikvanginn, stöðvast tíðan á innra leikvelli hans, með fánaborg í fylkingarbrjósti. Fyrir hverri þjóð er borinn þjóðfáninn og spjald er sýnir hvaða þióð er hjer á ferð. Hátíðleg setning ' Eftir að fylkingin er komin á sinn afmarkaða stað, rís konung urinn úr sæti og setur leikana með eftirfarandi orðum: „Jeg lýsi því yfir að hinir fjórtándu Olympisku leikar haldnir í London eru hafnir.“ Lúðrar eru þeyttir og þús- urídum dúfna er slept lausum sem síðan flögra yfir leikvang- inum til marks um vopnafrið. Síéan heyrast drunur 21 fall- bysssu, þær drynja til heiðurs konungi, keppendum og áhorf- endum. Olympíueldurinn kemur Rjett í því að drunurnar deyja út kemur síðasti boð- hlauparinn með Olympíueldinn frá Grikklandi, þar sem eldur- inn var kveiktur með sólargeisl- unum á grískri grund fyrir nokkrum dögum siðan og borinn til London í gegnum lönd meg- inlandsins, en boðhlaupararnir voru fulltrúar frá viðkomandi þjóð. Olympíufáninn er dreginn að hún ,hægt og hátíðlega, við tónaflóð frá Olympíulofsöngn- um. Olympíueiðurinn Síðan kemur fram íþrótta- maður sem fer með Olympíu- eiðinn, sem er svo hljóðandi: „Við heitum að við munum keppa á Olympíuleikunum í heiðarlegum leik og fylgja þeim Framh. á bls. 2. ilugvjel ferst í Þýskalandi Frankfurt í gær. TILKYNT var í dag að dönsk flugvjel hefði farist fyrir tveim- ur dögum nærri Freiburg á franska hernámssvæðinu í Þýskalandi. Var þetta lítil tveggja manna flugvjel, sem var á flugi frá Lausanne í Sviss til Strassburg ásamt átta öðr- um. Sjón'arvottar segja, að allt hafi virst í besta gengi, þegar flugvjelin skyndilega lækkaði og hrapaði niður í þjettan skóg. Tveir menn voru i flugvjelinni og fórust báðir. -— Reuter. New Delhi í gær. KASMÍR nefnd Sameinuðu Þjóðanna situr nú i New Delhi og ræðir Kasmír vandamálið við leiðtoga Hindustan-ríkis. — Var þriggja klukkutíma fundur haldinn í dag, þar sem stjórn Hindustan gerði grein fyrir skoðunum sínum. Á föstudag fer nefndin til Karachi, höfuð- borgar Pakistan. — Reuter, L I. Virthanen vænlanlegur í VETUR sem leið endurnýjaði Háskóli íslands heimboð sitt til hins heimsfræga finnska vís- indamanns og Nobelsverðlauna- manns A. I. Virthanen. — Var lengi vel efamál, hvort hann gæti komið hingað á þessu sumri, en nýlega hefur komið skeyti frá honum um það að hann sje væntanlegur hingað 7. eða 8. næsta mánaðar. Flugæfingar við Súes skurðinn BRESKA flugmálaráðuneytið tilkynti í dag, að breski flug- herinn myndi halda flugæfing- ar á næstunni í nánd við Súes- skurðinn. Notaðar verða stórar sprengjuflugvjelar og orustu- vjelar og eru þær að leggja af stað til Egyptalands. festurveldii summálu um mótmæiuorðsend- ingu til Rússu Washington í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. MARSHALL utanríkisráðherra sagði á fundi með blaðamönnum í dag að Bandaríkin, Bretland og Frakkland hefðu komist að samkomulagi um efni næstu mótmælaorðsendingarinnar til Iiússa, en eins og kunnugt er sátu fulltrúar þessara landa fund í London til að ræða þessi mál. Marshall sagði, að efni orðsend- ingarinnar yrði ekki birt fyrst í stað. * Geigvænlegar skemdir. Ludwigshafen er á franska hernámssvæðinu í Þýskalandi og stendur við Rín gegnt borg- inni Mannheim. Sjónarvottar segja í stuttu máli, að spreng- ingin hafi verið óskapleg og Ludwigshafen hafi öll orðið hjúpuð þjettu reykskýi. Skemd ir urðu á húsum í Mannheim hinumegin við fljótið, flestar rúður brotnuðu þar og þar af er hægt að gera sjer í hugar- lund, að skemdir í Ludwigs- hafen hafa orðið geigvænlegar. Talið er að fá hús sjeu uppi- standandi þar, en sjest ekkert vegna reyksins. Hætta á eiturlofti. Strax eftir sprenginguna var lögreglulið kallað til úr öllum nálægum borgum til að hjálpa til við björgunarstarf og við slökkvistörf vann þýskt, banda- rískt og franskt slökkvilið. Bæði hjörgunar- og slökkvistarf er erfitt vegna mikils hita og ým- issa eitraðra lofttegunda, sem stafa frá efnabirgðum, sem nauðsynlegar eru við ýmiskon- ar efnaiðnað. Voru hættumerki gefin í Mannheim vegna ótta við eitraðar lofttegundir. 600 manns hafa farist. Síðast þegar frjettist var tal- ið, að um 600 manns hefðu far- ist við sprenginguna, en auk þess voru öll sjúkrahús í ná- grenninu þegar full af særð- um og limlestum mönnum. Ekki er vitað nákvæmlega um tölu þeirra, en reiknað út að það muni vera um 1200 manns. Seint í gærkvöldi var enn unnið að því að grafa dauða úr rústunum og að slökkvistörf- um. Afhent í vikulok Frjettamenn telja líklegt, að Rússum verði afhent orðsend- ingin í lok þessarar viku, en þá verða sendimenn Vesturveld- anna í Moskvu komnir þangað austur. Talið er, að Vesturveldin krefjist þess, að reynt verði að komast að samkomulagi um ein- hverja lausn í vandamálum Þýskalands og stingi upp á að fundur fjögurra utanríkisráð- herra verði haldinn á næstunni. Júgóslavar vilja vingast við Rússa. BELGRAD. — Kardelj starfsbróðir og vinur Títós sagði í ræðu í dag, að Júgóslavía myndi halda áfram að styðja untanrikisstefnu Rússa gegn „heimsveldisstefnu" Vesturveldanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.