Morgunblaðið - 29.07.1948, Page 2
2
MORGVNBl 4 Ð11
Fimtudagur 29. júlí 1948, J
Mito þorf
'Á BÆ J ARST JÓRN ARFUNDI
í gær var til umræðu samþykt
bæjarráðs frá 23. júlí um það
að íbúðirnar í bæjarbyggingun-
um nr. 19—25 við Löríguhlíð
verði seldar við kostnaðarverði
með eftirtöldum kjörum:
Kaupendur greiði kr. 50.000
á 50 árum með 3% ársvöxtum.
Á 10 árum greiði kaupendur 3
herb. íbúða kr. 40.000.00 með
4</2% ársvöxtum, en kaupendur
2ja herbergja íbúða kr. 20.000,
á sama tíma með sömu kjörum.
Bæjarráð samþ. að taka veð-
deildarlán út á húsin, kr. 20.000
út á 3ja herb. íbúðir, en kr.
15.000 út á 2ja herb. íbúðir, og
taki kaupendur að sjer greiðslu
þessara lána.
Kaupendur greiði þegar kaup-
in verða gerð það sem á vantar
að framangreind lán hrökkvi
fyrir byggingarkostnaði, en nú
er áætlað að hann nemi kn,
180.000 fyrir 3ja herb. íbúð, en
jkr. 138.000 fyrir 2ja herb. íbúð.
Ef framangreint kaupverð
hrekkur ekki fyrir girðingu um
húslóðina og lóðarlögun, er
kaupandi skuldbundinn til að
greiða að sínum hluta það sem
á vantar, svo og árlegan rekstr-
arkostnað lóðarinnar, hvort-
'tveggja eftir fyrirsögn bæjar-
•stjórnar.
Söluskilmáiar.
Gunnar Thoroddsen borgar-
■it.jóri, tók fyrstur til máls út af
tiilögu þessari og komst meðal
•annars að orði á þessa leið:
Samkvæmt tillögu þessari er
gert ráð fyrir, að kaupendur
oorgi við afhendingu 70.000 kr.
fyrir þriggja herbergja íbúð-
arnar, en 53.000 krónur fyrir
xninni íbúðirnar, en lánskjör á
hinum hiuta kaupverðsins sjeu
sem í tiliögunni segir. Um leið
og jeg Iegg þessa tillögu bæjar-
ráðs fyrir bæjarstjórnina, vil jeg
víkja nokkrum orðum að bygg-
ingum þessum. Smíði þeirra
hófst í ársbyrjun 1946. Var þá
byrjað að grafa fyrir grunni
húsanna. Ekki er víst hvenær
verður hægt að flytja inn í þær
íbúðir, sem fyrst verða tilbúnar,
en eítirlitsmenn télja að það
muni geta orðið fyrst í október
næstkomandi. Siðan mun Iíða
nokkur timi uns hægt verður
að flytja í íbúðirnar allar.
JL&n fengust ekki.
Það mun hafa verið tilætlun
bæjafstjórnarinnar að fá lán út
á hús þessi hjá ríkinu, sam-
kvæmt lögum um byggingar í
kaupstöðum frá árinu 1946. Á
síðasía þingi var framkvæmd
þessara laga frestað fyrst um
sinn. Þó þessar byggingar væru
þá langt komnar, neitaði fje-
lagsmálaráðuneytið að veita lán
út á þær samkvæmt þessum lög-
um.
Jeg var því andvígur að lög-
um þessum yrði breytt eða
framkvæmd þeirra frestað, þar
sem jeg tel slíkt vera til óhag-
ræðis fyrir bæinn, en skil á hinn
bóginn rök Alþingis fyrir frest-
uninni, þar sem svo miklir erf-
iðleikar eru á útvegun lánsfjár.
Lán hafa ekki fengist í láns-
sípfnunum út á þessi hús, nema
í feðdeild 20,000 á þriggja her-
bqrgja íbúðirnar og 15.000 á
tveggja herbergja. Gera má þvi
ráð fyrir, að bæjarsjóður verði
sjálfdr að veita lán þau sem
íbúðir eítir gæðum
Frásögn borgarstjóra
um Lönguhlíðarhúsin á
bæjarstjórnaríundi í gær
hjer um ræðir út á hús þessi.
En útborgunin, samkvæmt til-
lögum bæjarráðs, verður á allar
íbúðirnar 1,832,000 krónur. Er
ætlast til að bærinn noti þetta
fje til áframhaldandi íbúðar-
húsabygginga.
Fólk vill eiga íbúðirnar
sjálft.
Jeg. skal ekkert fullyrða um,
hvort bæjarstj. hefði ákveðið að
selja íbúðirnar eða leigja þær, ef
hagstæð lán hefðu fengist. En
reynslan sýnir að betra er og
borgurunum geðfeldara, að þeir
eigi íbúðir sínar sjálfir. Fólk er
að jafnaði ánægðara í eigin í-
búðum og þar er umgengnin
betri en í hinum. Býst jeg við,
að bærinn geti ekki átt íbúðir
og leigt þær út nema með halla,
því reynslan er, að kröfur um
viðhald íbúðanna og þörfin fyr-
ir umbætur í bæjanbúðunum er
mikil. Ef stilla ætti leigunni í
hóf, mundi bærinn ekki fá upp
í kostnað sinn.
Mánaðargreiðslurnar.
Útborganir þær, sem ráðgerð-
ar eru, eru nokkuð háar — 38
til 39% af kostnaðar- og sölu-
verði húsanna, en lánin, sem
veitt eru, eru á hinn bóginn
hagstæðari en þau lán, sem nú
er hægt að fá. Mánaðargreiðsl-
ur til bæjarins frá kaup. 3 herb.
íbúðanna verða fyrstu tíu árin
kr. 779.16 fyrir þriggja her-
bergja íbúðirnar, en að tíu ár-
um liðnum lækka þessar greiðsl
ur, eða rentufje, í kr. 357.92.
Þeir, sem kaupa tveggja her-
bergja íbúðirnar, greiða mán-
aðarlega fyrstu tíu árin kr.
520.42, en síðan kr. 309,59. Er
lækkunin hlutfallslega minni
fyrir-tveggja herbergja íbúðirn-
ar vegna þess að tiu ára lánin
eru þar tiltölulega lægri. Út-
borgunin er hjer ekki reiknuð
með.
Byggingarkostnaður þess-
ara húsa þykir hafa orðið all-
hár. Mun húsameistari bæjar-
ins og eftirlitsmaðurinn með
byggingunum bráðlega gefa
skýrslu um gang bygginganna
og kostnað við þær. En það
verða menn að taka til greina,
að íbúðir þessar eru óvenju-
lega vandaðar, telja jafnvel
sumir að of mikið sje í þær
borið.
Einnig er það villandi, og
gefur ónákvæma mynd, ef þess
ar íbúðir eru bornar saman við
aðrar tveggja og þriggja her-
bergja íbúðir, svo sem verka-
mannabústaðina í Stórholti,
þar sem þriggja herbergja í-
búðir hafa kostað rúmar 100.000
kr. Tveggja herbergja íbúðir í
Lönguhlíðarhúsunum eru til
dæmis stærri en þriggja her-
bergja íbúðir í verkamannabú-
stöðunum. Þær eru 84 ferm. að
stærð, en þriggja herbergja í-
búðirnar í verkamannabústöð-
unum tæplega 69 ferm. Tveggja
herbergja íbúð í Lönguhlíðar-
húsunum mætti eins kalla fjög
urra herbergja íbúðir, þar sem
að hverri íbúð fylgir herbergi
í rishæð, en aðalstofan er svo
stóf að auðvelt er að skipta
henni í tvennt. Sama er að,
segja um þriggja herbergja í-
búðirnar, er telja má að sam-
svari fimm herberga íbúð. Jeg
nefni þetta til leiðbeiningar
fyrir þá, er vilja bera' þessar
ibúðir saman við aðrar íbúðir
í bænum og byggingarkostnað
þeirra.
Nauðsynlegt að meta
íbúðir eftir gæðum.
Þegar íbúðir eru bornar
saman til verðs, verður að
meta þær mismunandi eftir
gæðum. Er brýn nauðsyn á að
samdar verði fastar reglur um
flokkun íbúða eftir því hversu
vandaðar þær eru. Þetta er tal-
ið sjálfsagt erlendis en hefur
hjer á landi lítið verið af því
gert. Landsbankinn hefur þó
í sambandi við veðdeildarlán
látið meta jafnstór hús bygð
samtímis, á mismunandi verði
með tilliti til gæða þeirra. Má
vera, að til slíkrar flokkun-
ar þurfi lagafyrirmæli. Sje
svo, þá eru þau mjög aðkall-
andi, því að slíkar reglur
mundu sporna við ýmiskonar
húsabraski og koma í veg fyrir
að gölluð hús sjeu seld fullu
verði.
Nýjar Ieiðir.
Jeg ætla ekki í þetta skipti
að ræða húsnæðisvandamálið
í bænum almennt. Húsnæðis-
vandræðin eru mikil, en þetta
er ekkert einsdæmi hjer í
Reykjavík, það er svo í flest-
um kaupstöðum landsins og
flestum borgum nágrannaland-
anna. Jeg ætla þó að óvíða sje
gert jafn mikið af bæjarfjelags-
ins hálfu eins og hjer, til þess
að leysa úr þessum vanda. Bær
inn greiðir til dæmis eina milj
ón króna á ári í óafturkræf
framlög til verkamannabú-
staða. Hinsvegar er mer alveg
ljóst, að þótt bærinn byggi
stórhýsi eins og þau við Löngu
hlíð, verður ekki með því leyst
úr þessu vandamáli. Það verður
að grípa til annarra ráða. Jeg
hefi haft til athugunar aðra
lausn á þessu máli, þar sem
sameinað eru íorganga og fram
lög bæjarins og framtak ein-
staklinganna sjálfra. Hef jeg
haft samráð við sjerfróða menn
um þessi mál. en athuganir á
því eru ekki komnar svo langt
að jeg geti skýrt frá því enn.
Að lokum minntist borgar-
stjóri á, að þeir, sem kéyptu
íbúðirnar í Lönguhlíðarhúsun-
um, yrði að fallast á sömu skil-
mála og þeir, sem keyptu Mela
húsin, sem eru þess eðlis, að
spornað er við því, að íbúðirn-
ar lendi í braski.
iiiaiif
og finnskur
í uppgftngi
.. \
i
I vi S?einblöm Jónsson bygg-
istgamieislara.
IÐNAÐURINN í Noregi og Finnlandi er í örum vexti. Efnis-»
skortur háii að vísu báðum, en að öðru leyti lítur út fyrit"
að þeir vinni sig fljótt upp. Svíar fundust mjer hinsvegar vera
svartsýnir á sinn hag, enda þótt þeir‘sjeu með fullar búðir a£
' örum. óttast þeir mjög gengisíall gjaldeyris síns. Álita margir
að óhjákvæmilegt sje að lækka sænsku krónuna. Svíar eiga eríitt
með að selja vörur sínar vegna þess að þær þykja of dýrar.
Þannig fórust Sveinbirni Jóns-*1
syni byggingarmeistara orð er
blaöið spurði hann tíðinda úr
för hans, en hann fór nýlega
ásamt konu sinni til Norður-
landa til þess m. a. að taka þátt
í Nordisk Haandværkeruke, sem
haldin var á vegum Norræna
fjelagsins í Noregi. Ennfremur
sat Sveinbjörn Jónsson, ásamt
Páli S. Pálssyni framkvæmdar-
stjóra Fjelags ísl. iðnrekenda, 50
ára afmælishátíð finnska iðnað-
arsambandsins.
Við fórum 8 íslendingar, sem
boðnir höfum verið til þess að
taka þátt í Nordisk Haandverke-
ruke í Noregi. Þangað voru einn-
ig boðnir fulltrúar frá iðnaðar-
mönnum hinna Norðurlandanna.
Norðmenn sýndu okkur gest-
unum iðnaðarfyrirtæki og menn
ingarstofnanir í landinu og enn-
fremur voru fluttir fyrirlestrar.
Við komum á vörusýninguna í
Bergen, þar sem sýndar voru
framleiðsluvörur Noregs til
lands og sjávar. Ennfremur
vorum við viðstaddir afhend-
ingu sveinsbrjefa i ýmsum grein
um norsks iðnaðar.
Þá var ferðast víða um Nor-
eg °S ýmsir merkisstaðir skoð-
aðir, m. a. heimili Edvards
Griegs tónskálds á Troldhaugen.
Blómsveigur var lagður á gröf
Mikkelssens, hins þekta norska
stjórnmálamanns.
Á kosningadaginn
í Helsingfors
Frá Noregi hafið þið svo farið
til Finnlands?
Já, við fórum til Finnlands
um Svíþjóð og komum til Hels-
ingfors þann 2. júlí, þ. e. a. s.
síðari kosningadaginn. Þar var
allt með kyrrum kjörum og eng-
ar æsingar að sjá á almenningi.
Það, sem mjer fannst sjerstak
lega til fyrirmyndar í sambandi
við finnsku kosningarnar var
það, að áróðurs og kosninga-
miðar sáust hvergi límdir á hús-
veggi eða girðingar, heldur á
sjerstök spjöld, sem reist voru
upp við hús, girðingar og trje.
En þau voru öll horfin daginn
eftir að kosningunum lauk.
Hvernig tóku Finnar kosn-
ingaúrslitunum ?
Ósköp rólega sýndist mjer, en
sumir undruðust hið geysilega
atkvæðatap kommúnista. Al-
ment hafði verið gert ráð fyrir
að þeir töpuðu en ekki svo
miklu, sem raun varð á.
Hátíðahöld iðnaðarmanna
Hátíðahöldin i tilefni 50 ára
afmælis finnska iðnaðarsam-
bandsins stóðu yfir þann 3. og
4. júlí. Fór fyrst fram hátíðleg
athöfn í fundarsal kauphallar-
innar. Voru þar flutt erindi á
finnsku um finnskan iðnað, erí
síðan fluttu fulltrúar Norður-
landaþjóðanna, sem þarna voru
staddir, kveðjur og árnaðaróskir
þjóða sinna.
Ennfremur flutti iðnaðar- og
viðskiptamálaráðherra Finna
þarna ræðu. Um kvöldið var svo
haldið samsæti en daginn eftir
var okkur erlendu gestunum
sýnd Sveaborg, sem er gamalt
sænskt virki.
Þ. 5. júlí sátum við Páll svo
fund í stjórn Norr. iðnaðarsam-
bandsins. Voru þar rædd fræðslu
mál og önnur menningarmál
norræna iðnaðarmanna. — Aði
þeim fundi loknum var erindi
okkar til Finnlands lokið og
hjeldum við þá heimleiðis.
— Olympíuleikarnir
. Framh. af bls. 1
reglum, sem settar eru, og við
viljum taka þátt í þeim með
sönnum íþróttaanda til sóma
föðurlandi og heiðurs 'iþróttun-
um.“
Eftir þetta munu þátttakend-
ur yfirgefa leikvanginn og hin
eiginlega keppni er þar með haf-
in.
Dagskráin
Þar sem vitað er að áhugi
okkara ísl.. er mestur fyrii*
frjálsum íþróttum, sundi og
knattspyrnu, fer hjer á eftir
dagskrá morgundagsins, fyrstá
keppnidagsins á þessum leikum,
Frjálsar íþróttir
Föstudagur 30. ágúst:
Kl. 10 Hástökk (undankeppni)!
— 13.30 400 m. grindahlaup
(undanrásir)
— 14.00 100 m. hlaup (undan-
rásir)
— 14,30 Kringlukast (Konur)
— 15.00 800 m. hlaup (undan-
rásir)
— 15.30 Hástökk (úrslit)
— 16.00 400 m. grindahlauþ
(milliriðlar)
— 16,30 100 m. hlaup (milli-
riðlar)
— 17.00 10 km. hlaup (úrslit))
Sund
Sundknattleikskeppnin hefsij
strax um kvöldið á setningar-
daginn, föstudag.
Kl. 8.00 Dýfingar, karla.
— 13.00 100 m. frjáls aðferð
karla (undanrásir)
200 m. bringusund,
konur (undanrásir)
— 18.00 100 m. frjáls aðferð,
konur (undanrásir)
100 m. frjáls aðferð,
karlar (milliriðlar)
Knattspyrnan hefst á laugar-
dag.