Morgunblaðið - 18.08.1948, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 18. ágúst 1948.
Rússnesku kennararnir
Frarrih. af bls. 7.
skýringu á því, að kenslu-
konan stekkur út um
glugga á ræðismannsskrif-
stofunni, lýsir því yfir að
hún hafi verið fangi hans
og segist hafa óttast um
líf sitt, ef hún yrði send
heim til Rússlands?
2. Ef það er rjett hjá Loma-
kin ræðismanni, að Sam-
arin og fjölskyldu hans
sje haldið með valdi í
Bandaríkjunum, hvernig
fær hann þá skýrt það, að
Samarin og fjölskylda
. hafa neitað að notfæra sjer
þá yfirlýsingu Bandar'íkja-
stjórnar, að þeim sje
frjálst að hverfa heim til
Rússlands þegar í stað, —
ef þau kjósa það sjálf?
3. Hvernig stendur á því, að
starfsmenn rússnesku ræð-
ismannsskrifstofunnar
reyndu að koma í veg fyr-
ir það, að frú Kosenkina
yrði flutt í sjúkrahús og
virtust jafnvel mótfallnir
því, að læknir fengi að
vitja hennar?
4. Og hver er ástæðan fyrir
því, að Samarin hefur rit-
að stórblaðinu New York
Times brjef, þar sem hann
heldur því fram, að jafn-
vel börn sín þrjú sjeu nú
ofsótt sem „óvinir Sovjet-
ríkjanna" ? Brjef þetta
hefur verið birt opinber-
lega.
ÞAU ÁTTU AÐ HVERFA
MÁL kennaranna, sem nú er
augljóst, að stendur í sambandi
við uppljóstranir um starfsemi
rússneskra njósnahringa í Banda
ríkjunum, hefur þegar vakið
óhemjumikla athygli. Rússnesku
kennarana átti að senda heim,
sökum þess að óttast var að dvöl
þeirra 'i Bandaríkjunum hefði
breytt skoðunum þeirra á dýrð
kommúnistaríkisins í austri, og
því ekki talið með öllu hættu-
laust, að þeir mundu fúsir til
að skýra frá moldvörpustarfi
þeirra manna, sem hafa sett sjer
það takmark að sigrast á lýð-
ræðinu í Bandaríkjunum og
þeim löndum öðrum, sem enn
eiga við lýðræði að búa. Það
átti að láta þessi mikilvægu
vitni hverfa, en þegar það mis-
tókst, var gripið til þess bjarg-
ráðs að semja 19. aldar reyfara
um eitt af samsærum kommún-
ista 20. aldarinnar. Hvaða álit
lýðræðisblöðin hafa á þessari
starfsemi einræðisherrans aust-
an járntjaldsins, má meðal ann-
ars sjá af eftirfarandi umsögn-
um nokkurra Bandaríkjablaða:
Chicago Sun-Times:
Þegar frú Konsenkina hætti
lífi sínu til þess að flýja sína
eigin landsmenn, lagði hún
fram öflugra ákæruskjal á
hendur hinu kommúnistiska
lögregluríki en fram hefur kom
! ið í þeim tugþúsundum orða,
! sem þeir, er einnig hafa kosið
frelsið, hafa ritað.
New York Times:
„Glæpur“ frú Kosenkinu og
Samarinfjölskyldunnar er sá,
að þau hafa kosið frelsið. En
eins og utanríkisráðuneytið hef-
ur fullvissað þau um, mun þessi
„glæpur“ ekki hafa í för með
sjer brottrekstur þeirra frá
Bandaríkjunum. Þau hafa þvert
á móti áunnið sjer virðingu
Bandaríkjamanna.
New York Herald Tribune:
Það gefur mönnum góða hug
mynd um hina rússnesku
Paradís, að þessir tveir kenn-
arar skyldu leggja sig í slíka
hættu til þess að verða útlag-
ar það sem eftir er ævinnar.
Og þó verður þessi mynd ennþá
áþreifanlegri, þegar litið er á
þær miskunnarlausu aðferðir,
sem ræðismannsskrifstofan not
aði til þess að ná kennurunum
aftur á sitt vald.
Hvarf konunnar frá
Arnarholfi
SÍÐDEGIS sunnudaginn 8
þ. m. skýrði Gísli Jónsson for-
stjóri mjer frá því, að kven
mannslík hefði þá fundist hátt
upp í Esju í svonefndu Vallár
giH, og taldi Iklegt, að það
væri af Önnu Guðjónsdóttur
sjúkling, sem hafði horfið frá
Arnarholti og óskaði eftir að
jeg kæmi á staðinn með hon
um, sem jeg kvaðst myndi
gjöra og gerði.
Lagt var af stað um kvöld-
ið kl. 8.30 og haldið upp Vall-
árgil og voru 14 menn með í
förinni, þar á meðal Árni Pjet-
ursson læknir og venslamenn
Önnu sál. Um kl. 9.40 fannst
Hkið, og reyndist það vera af
Önnu Guðjónsdóttur. Virtist
sem Anna sál. hefði fallið og
fengið högg mikið og látist sam
stundis.
Er þarna í gljúfrinu lausa
urð, klettar stórir og hál stein-
klöpp, sem vatn sitrar um og
gerir umferð slæma.
Anna sál fannst nær efst upp
í árgljúfrinu á þeim stað, sem
illt var að festa auga á, nema
að komið sje nær alveg á stað-
inn. —
Vilhelm Sigurðsson, Njáls
götu 75, Rvík og kona hans
voru stödd á Vallá og fóru
ásamt drengjum sínum tveim
ur, sem dveljast í sumar á
Vallá upp í Vallárgil, og var
ætlun þeirra að fara alla leið
upp að klettunum og sjá foss,
sem þar er, og voru þá svo
lánsöm að finna hina týndu
konu.
Eru allir þakklátir þeim hjón
unum og drengjunum fyrir
fund þeirra. Mjög mikil leit
hafði verið gerð að konunni og
kvöldið áður var allt Skraut
hóla- og Esjubergsfjall leitað
til Mógilsár. Áður var leitað
allt Brautarholts- og Arnar
holtslönd, þar sem menn röð
uðu sjer á svæði með stuttu
millibili. Var ákveðið að halda
slíkri leit áfram. Áður höfðu
einnig skátar og menn frá Rvík
og úr sveitinni leitað allt næsta
nágrenni.
Ekkj er verið að nefna þetta
með tilliti til launa eða ann
ars, heldur einungis til að skýra
rjett frá, svo að enginn mis
skilningur geti komist að.
Brautarholti 16. ág. 1948.
Ólafur Bjamason.
Ádræðisafmæli
80 ÁRA verður miðvikudag-
inn 18. þ. m., Ólafía Hannes-
dóttir, Hólvangi, Akranesi,
ekkja Guðmundar Sigurðsson-
ar sjómanns og verkamanns. Á
Sólvang bjuggu þau Ólafía og
Guðmundur um mörg ár, og
eignuðust þrjár dætur, sem all-
ar eru á lífi, og einn son, sem
ljest ungur að aldri. Mann sinn
misti Ólafía fyrir nær 20 árum
síðan.
Er Guðmundur maður Ólafíu
minnisstæður öllum sem hann
þekktu, vegna mannkosta sinna,
enda var hann eftirsóttur
fjelagi og liðsmaður bæði á sjó
og landi, sökum verkhæfni sinn
ar og gleðivekjandi framkomu.
Ólafía Hannesdóttir er hin
mesta myndarkona, velþekt og
vinsæl í sínu byggðarlagi. Hin
síðustu árin hefur heilsu henn-
ar farið hnignandi, þó hefur
hún enn fótavist flesta daga og
getur notið þess að ganga um
og gleðjast við heimsókn kunn-
ingja og vina á þeim kæra stað
þar sem hún hefur átt svo lengi
heima, en á Sólvangi býr Ólafía
nú í hlýju skjóli dætra sinna
og tengdasonar. Og þannig
munu nú á þessum merkisdegi
í æfi hennar, streyma til henn-
ar góðar óskir og kveðjur frá
vinum nær og fjær.
K. Ó.
Úfsvör á Akranesi
Á AKRANESI e nú lokið nið
urjöfnun útsvara. Alls er jafn-
að niður kr. 2.397.750 á 812
gjaldendur.
Sami útsvarsstigi var við-
hafður og í Reykjavík, að við-
bættum 5%, í stað 10% á s. 1.
ári. Nemur því lækkun útsvara
5% á sömu tekjur og í fyrra.
Á fjárhagsáætlun Akraneskaup
staðar var gert ráð fyrir að út-
svarsgreiðslur bæjarbúa myndu
nema kr. 2.250.750. í fyrra var
jafnað niður kr. 1.841.800 á alls
794 gjaldendur.
Það sem veldur hækkaðri
heildarupphæð útsvaranna er
að tekjur almennings eru mun
hærri í ár en í fyrra.
Hæstu útsvarsgreiðendur á
Akranesi eru: Haraldur Böðv
arsson & Co. kr. 120.450, Sigur
fari s.f. kr. 48.705, Fiskimjöls-
verksmiðjan kr. 38.010, Bæjar
útgerð Akraness kr. 36.940,
Olíuverslun íslands kr. 22.765,
Akraness Apótek kr. 21.490,
Ásmundur h.f. kr. 17.480 og
Axel Sveinbjarnarson h.f. kr
11.280.
Ljelu ekki sann-
færasf
Berlín í gærkveldi.
FJÓRIR rússneskir blaða-
menn, sem nýkomnir eru hing-
að frá Ludwigshafen, þar sem
þeir hafa verið að rannsaka or-
sakir sprengingarinnar miklu,
er varð þar fyrir hálfum mán-
uði, sögðu her í dag að þeir
væru sannfærðir um, að spreng
ingin hefði orsakast af ólög-
legri framleiðslu á vopnum. —
Bæði Þjóðverjar og Frakkar,
en Ludwigshafen er á hernáms
svæði þeirra, hafa neitað því,
að nokkur fótur sje fyrir þess-
um fregnum hinna rússnesku
blaðamanna, en þeim var boðið
til Ludwigshafen af Frökkum,
til þess að þeir gætu sannfærst
af eigin raun um það, að eng-
in ólögleg vopnaframleiðsla
ætti sjer stað þar. Bersýnilega
hafa þeir ekki látið sannfær-
ast. — — Reuter.
f
Komin heim
JON SIGTRYGGSSON
tannlæknir.
— Meðal annara orða
Framh. af bls. 6.
ir í umferð, en hinir voru gerð
ir upptækir, áður en framleið-
endur þeirra gátu komið þeim
frá sjer.
• •
NOTUÐU FLUGVJELAR
Stærsti glæpaflokkurinn, sem
grunaður var um dollarafram-
leiðslu, náðist eftir víðtæka
rannsókn í Georgia og Florida
Einn lögbrjótanna átti einka
flugvjel og lögreglan varð að
nota flugvjelar til þess að fylgj
! ast með ferðum hans. Þegar
1 grafist hafði verið nægilega vel
fyrir starfsemi þessa glæpa-
hrings, handtók lögreglan níu
meðlimi hans og gerði upptæka
60,000 falsaða dollara, sem þeir
höfðu í fórum sínum. I sam-
bandi við handtökur þessar kom
og í ljós, að glæpamennirnir
Ijetu sjer ekki aðeins nægja
dollarafölsun, heldur gerðu
einnig mikið af því að stela bif-
reiðum og selja þær.
Auglýsendur
afhugiS!
«8 tsafold og Vörður er
vinsælasta og fjölbreytt-
urta blaðið ( ■veitum lanaa
tna. Kemur út einu dnni
i viku — 18 tiður.
-*»■■■■■ MniuBauiVKianaa ■
■ ■ ■altfc** «M • JMUi ■■ ■ ■ ■aúuounnc.
Fjelagið til fegrunar bæjarins
Stofnfundur í Trípoli-bíó í kvöld kl. 6.
Stofnskírteini seld í aðgöngumiðasöl-
unm.
í búð
Stór 2ja herbergja íbúð 1
til leigu í haust. Fyrir- |
framgreiðsla eða lán. Til- |
boð sendist afgr. Mbl. fyr |
ir föstudagskvöld, merkt: |
„Ný íbúð — 673“:
HIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII Mll III1111111111111111-
Reknet {
línustampar og lagnings- |
apparat til sölu. Uppl. á §
Þverveg 14, Skerjafirði. =
lllllllltlllllltlllllMIIIIMIIIIIIIIIIMIIIIIIMIMIIIIMIIIMI “
| Mótorhjól |
Mótorhjól óskast. Þarf að 1
| vera 3V2—5 ha. Tilboð |
1 sendist á afgr. Mbl. fyrir |
í fimtudagskvöld, merkt: |
| „Mótorhjól ■— 668“.
| Drif eða kambhjól óskast í
Austin 7
| Uppl. á Raftækjavinnu-
£
5 stofú Lúðvíks Guðmunds-
| sonar, Laugáveg 48B.
1 Vörupallur
| nvr, smíðaður úr járni, á-
| samt vökvasturtum, til
| sölu á Laugaveg 71. •—
I Sími 1849.
= Góð stór 3ja herbergja
| fbúð
| til leigu. Tilboð sendist
; afgr. Mbl. merkt: „1384
I — 674“.
! llllillMMflllMIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIMII -
j Bifreiðaviðgerðar-
mann
É viljum vjer ráða á verk-
Í stæði okkar nú þegar.
Bifreiðastöð Steindórs.
Fordson
| sendiferðabíll til sölu. —
| Bíllinn er mjög vel með-
| farinn, með ísettum sæt-
| um og rúðum. Til sýnis á
| Óðinstorgi frá kl. 1—6.
íbúð
| Sá, sem getur útvegað
| 30 þús. kr. lán, gegn góðri
Í tryggingu, getur fengið
1 leigða 3ja herbergja íbúð
Í í nýju húsi í haust. Til-
i boð merkt: „30 þús. —
i 671“ sendist afgr. Mbl.
Í fvrir föstudagskvöld.