Morgunblaðið - 18.08.1948, Page 12
yEÐURUTLITTÐ (Faxaflól)?
SUÐ-AUSTAN kaldi og rign-
Ing. —_______________
193. tbl. — Miðvikudagur 18. ágúst 1948.
í kvöld klukkan 6
verður fjelagið til
fegrunar bæjarins
stofnað
AFMÆLISDAGUR Reykjavíkurbæjar er \ dag, og eins og skýrt
hefur verið frá verður haldinn framhaldsstofnfundur fjelagsins,
scm stofnað var til að fegra bæinn 17. júní s.l. Fundurinn verð-
ur í Tripólí-bíó og hefst kl. 6 siðd. — í kvöld fara svo fram
skemmtanir í fjórum kvikmyndahúsum bæjarins og í skemmti-
garðinum í Tivolí, ennfremur verða seld merki dagsins. Ágóð-
anum verður varið til framkvæmda við sjóbaðstaðinn í Naut-
hólsvík og útivistarsvæðisins í Öskjuhlíð.
Flufaingamir til Berlínar
Ekki annað hús að fá.
Það reyndist ógerningur að
fá húsnæði á betri stað, þar
sem öll helstu samkomuhúsin
1 miðbænum eru í viðgerð. —
Varð því miður einnig að breyta
hinum auglýsta tíma, þar sem
skemtun hefst í Trípólibíó kl.
9.15. Þess cr fastlega vænst,
að sem alira flestir bæjarbúa
mæti á fundinum, þar sem lög
fjelagsins, nafn þess og stjórn
verða ákveðin.
Stofnendaskírteini seld
til miðnættis.
í dag eru þannig síðustu for-
vöð fyrir menn að gerast stofn-
endur þessa fjelags, en stofn-
endaskírteini verða seld til mið
nættis. Það er sómi Reykjavík-
ur, að sem flestir íbúar henn-
ar sýni áhuga sinn fyrir útliti
borgarinnar með því að gerast
aðilar að þesum samtökum, og
það er styrkur samtakanna, að
þau verði sem almennust.
Á vinnustöðum.
Það er ómögulegt að segja
til um það að svo stöddu, hvað
margir hafi þegar gengið í
fjélagið, þar sem listar liggja
frammi á fjölmörgum stöðum,
en margir menn hafa síðustu
daga gerst fulltrúar fjelagsins
á vinnustöðvum sínum og safna
áskriftum þar. Hafa undirtekt-
ir aimennt verið mjög góðar.
19. ágúst verður birtur listi yf-
ir þá starfsmannahópa, sem
hafa gengið í fjelagið, og einn-
ig yfir þau fjelög og fyrirtæki,
sem gerðust stofnendur.
Sjerstök deild
íjeiag'a og fyrirtækja
Það er ætlunin, að sú deild
innan fjelagsins, sem einvörð-
tingu verður skipuð fjelögum og
fyrirtækjum, ákveði sjálf lög
sín og stjórn, og viðvíkjandi árs-
gjaldinu er rjett að taka það
fram, að það verður að sjálf-
sögðu deildarinnar sjálfrar að
ákveða það í framtíðinni. Þessi
deild á að vera eín meginstoð
f jelagsins, og það er því mikils-
vert, að sem flest fjelög og fvr-
irtæki standi að stofnun hennar.
Þess má geta, að Sveinafjelag
skipasmiða varð fyrst allra fje-
laga að ganga í þessa fjelags-
deild. Hafa og mörg þegar til-
kynt þátttöku sína, en ennþá er
dagur til steínu, og símar fje-
lagsins í dag eru 4177 og 7765.
TakiS þátt í hátíðahöldunum
Með því að taka þátt í hátíða-
höldunum í kvöld styrkja menn
fyrsta aðalverkefni fjelagsins,
þvi að ágóðinn rennur allur til
hins fyrirhugaða skemmtigarðs
í Öskjuhlíðinni og sjóbaðstaðar-
ins í Fossvogi, en það er mikið
hagsmunamál allra Reykvík-
inga.
Á GATOW-FLUGVELLINUM í Berlín, sem Bretar og Bandaríkja-
menn ráða yfir. Breskar ílutningaflugvjelar sjást á myndinni og
birgðir, sem þær hafa flutt til borgarinnar.
Samsæli fyrir dr. Th.
Thorláksson
ÞJÓÐRÆKNISFJELAG íslend-
inga hjelt dr. Th. Thorlaksson
frá Winnipeg, konu hans og dótt
ur kvöldverðarboð að Hótel
Borg í gærkvöldi, þar sem mætt
var stjórn fjelagsins og fulltrúa-
ráð.
Ófeigur Ófeigsson, framkv,-
stjóri fjelagsins, bauð gesti vel-
komna, en Sigurgeir Sigurðsson
biskup flutti aðalræðuna fyrir
minni dr. Thorláksson. Einnig
tóku til máls sr. Friðrik Hall-
grímsson, Jónas Jónsson og að
lokum þakkaði dr. Thorláksson
vingjarnlegar móttökur á ís-
landi og mælti á enska og ís-
lenska tungu.
Þau hjónin og dóttir þeirra
fara í dag flugleiðis norður á
land, en þau ætla að heimsækja
æskustöðvar forfeðra dr. Thor-
láksson að Stóru-Tjörn í Ljósa-
vatnsskarði.
Yngsta listakona
íslands komin heim
ÞórimR Jóhamwdólfir heldur hjer
píanéhljómlelka
VNGSTA listakona íslands, Þórunn litla Jóhannsdóttir, var vænt-
anleg hingað til Reykjavíkur í nótt með síðustu flugvjelinni,
sem kemur með íslensku gestina, sem voru á Ólympiuleikunum. Er
Þórunn í fylgd með föður sinum, Jóhann Tryggvasyni. Þessi litla
stúlka hefur eignast marga aðdáendur hjer heima, er hún hefur
leikið hjer, og nú mun Islendingum enn gefast kostur á að hlusta
t leik'hennar.
Síldarmerkin
fundusl
Raufarhöfn, þriðjudag.
Frá frjettaritara vorum.
ÞEGAR síðasta síldin var
brædd hjer í verksmiðjunni,
voru síldarmerki sett í kviðar-
hol fimm síldar og brennt í
pressum, til að fá vitneskju
um hvort merkin findust aft-
ur.
Við vinnslu síldarinnar komu
tvö merkjanna á rafsegul, sem
ætlaður er til að taka járna-
rusl úr síldarmaukinu, áður en
það fer í kvarnirnar til mjöl-
unnar.
Talið er að þetta sje góð út-
koma og vjelstjórar búast við
að fleiri merki finnist, þegar
vjelarnar verða hreinsaðar á
hausti komanda. — Einar.
Aðeins níu ára. •
Þótt Þórunn sje aðeins níu
ára á hún merkilegan og glæsi-
legan námsferil að baki. Hún
stundar nú nám við Royal Aca-
demy of Music í London, en
notar skólafríið sitt til þess að
koma hingað heim og halda
hjer hljómleika.
Nýtur mikilla vinsælda.
Þórunn er yngsti nemandinn
í hinu konunglega Academy of
Music og nýtur þar mikilla
vinsælda, enda stundar hún
nám sitt af mikilli kostgæfni
og hefur tekið miklum fram-
förum. Hún hefur leikið á
hljómleikum skólans og hlotið
mjög lofsamlega dóma. Opin-
bera hljómleika getur hún aft-
ur á móti ekki haldið í Eng-
landi, þar sem bannað er að
börn komi þar þannig opinber-
lega fram.
Bjóðum hana velkomna.
Þórunn litla er falleg og
blíð stúlka og vinnur hugi allra
sem kynnast henni. Það er
unun að horfa á hana, þegar
hún situr fyrir framan píanóið
og leikur, hvað þá að hlusta á
það. Við bjóðum hana vel-
komna heim til Islands. Það
þarf ekki að efa að hjer fær
hún þær móttökur, sem henni
ber.
KA vann bæði
meislaraflokk
karla og kvenna
Akureyri, mánudag-
HANDKNATTLEIKSMÓT
Norðurlands fór hjer fram um
síðustu helgi i meistaraflokki
karla og kvenna. Aðeins þrjú
fjelög kepptu, Tindastóll frá
Sauðárkróki og KA og Þór frá
Akureyri.
KA vann Tindastól með 7
mörkum gegn 3 og Þór vann
Tmdastól með 4:2 í meistara-
flokki kvenna. tJrslitaleikinn
vann KA með 3:2.
I meistaraflokki karla vann
KA Þór með 14:7.
Á sunnudagskvöldið var hald
inn dansleikur að Hótel Norð-
urland fyrir íþróttafólkið, og
voru verðlaun afhent þar. — I
karlaflokki var keppt um IR-
bikarinn í fyrsta skipti og
hlaut KA hann. — KA vann
einnig handknattleiksbikar
Norðurlands í kvenflokki, gef-
inn af Jóni Egils kaupmanni á
Akureyri. Vann KA hann nú í
fjórða sinn. Þór hefur unnið
hann tvisvar og Völsungar á
Húsavík einu sinni. KA sá um
mót þetta. — H. Vald.
ATBURÐIRNIR í rússnesku
ræðismannsskrifstofunni. —i
B!ls. 7.
íslensku íþrólla-
mennirnir sigur-
sælir í Bergen
ISLENSKU íþróttamennirn-i
ir kepptu í Bergen á mánudag-
inn og í gær. Um úrslitin á
’ mánudaginn er blaðinu ekki
i kunnugt, en í gær urðu þeir
: fyrstir í f jórum greinum.
Örn Clausen vann 110 m.
grindahlaup á 15,4 sek., Sigfús
Sigurðsson vann kúluvarp með
14,63 m., Haukur Clausen
vann 200 m. á 22,3 og Óskar
Jónsson 1500 m., en um tím-
ann er ekki kunnugt (sennil.
3,58,0). Torfi Bryngeirsson
varð 'annar i stangarstökki,
stökk 3,91 m. Kaas vann á 4
metrum.
Keflavíkurflugvöllur
er næsfi áfangi
þrýsliloflsflugvjel-
anna
BRESKU þrýstiloftsflugvjel-
arnar eru nú á leið til Eng-
lands frá Bandaríkjunum og
amerísku þrýstiloftsflugvjelarn
ar, sem verið hafa að æfingum
i Þýskalandi, eru á leið vestur
yfir til Bandaríkjanna.
Bresku flugvjelarnar fóru kl.
6,20 í gærkvöldi frá Goosebay
flugvelli í Labrador áleiðis til
flugvallarins Blue West 1 við
Narsasuak í Grænlandi, en
þangað voru þær væntanlegar
kl. rúmlega hálf níu í gærkv.
Næsti áfangi þeirra á leið sinm
til Bretlands, verður Keflavík-
urflugvöllur, en ókunnugt er
blaðinu um hvenær þeirra er
von þangað.
Amerísku þrýstiloftsflugvjel
arnar „Shuting Stars“ fóru frá
flugvellinum. við Odeham í
Suður-Englandi kl. 5,15 í gær
og var flogið .til Stormoway-
flugvallar, en þar lentu þær kl.
rúmlega 6,30 í gærkvöldi. —-
Næsti áfangi þeirra er Kefla-i
víkurflugvöllur og bíða þar nú!
byrjar í Stormoway.
writuP- ; •• ©3^