Morgunblaðið - 03.09.1948, Page 1

Morgunblaðið - 03.09.1948, Page 1
16 síður S5. árgangur 207. tbl. — Föstuclagur 3. september 1948. PrentsndSja Morgunblaðslfll! I Alsherjarþingið mun ræða kjarnorkumólin Tiliaga um effirliliS með kjamorkunni New York í gær. BÚIST er viS, að kjarnorkumálin verði eitt aðalumræðuefnið á, allsherjarþinginu, sem hefst í Paris 21. september. Fulltrúi < Eandaríkjanna í kjarnorkur.efnd Sameinuðu Þjóöanna lagði í gær af stað til Evrópu með breska skipinu Queen Mary. Áttu blaðamenn viðtal við hann skömmu áður en skipiö lagði úr höfn. Rætt um tillögur * kjarnorkunefndarinuar Jessup benti á, ao á allsherjar- þinginu myndi fyrst gefast tæki- færi til að ræða í smáatriðum áætlun þá um eftirlit með kjarn- orkumálunum, sem nefndin hef- ur gert uppkast að á undanförn- um tveimur árum. Rússar á móti Frá því kjarnorkunefnd S. Þ. var skipuð hefur hún haldið 200 fundi og í henni hafa átt sæti fulltrúar frá 17 þjóðum. 14 þess- ara þjóða hefur komið saman um tillögu þess efnis að skipa alþjóðaeftirlitsnefnd með öllum kjarnorkurannsóknum í heimin- um. Á móti þessari tillögu voru fulltrúar þriggja landa — Rúss- lands, Póllands og Ukrainu. Rússar eru á móti tillögunni vegna þess að í henni sje farið fram á að ríkin afsali sjer þjóð- ernislegum rjetti. Til varðveislu friðarins Jessup sagði við blaðamenn, að samþykki Bandaríkjanna við stofnun nefndar þessarar sje hið dýrmætasta tilboð, sem nokkur þjóð hafi boðið til varðveislu friðarins* Hann sagðist ekki vera í vafa um, að tillagan um eftirlit með kjarnorkunni myndi hljóta meirihlutafylgi á Allsherj arþinginu. Innbrotsjijófar 1 lianMnií' RANNSÓKNARLÖGREGL- AN hefur nýlega handtekið tvo unga menn, sem játað hafa á' sig nekkur af innbrotum þeim, •sem framin hafa verið nú upp, á síðkastið. Menn þessir hafa báðir áður komist undir mannahendur. — Annar þeirra er Sigurður Þor- kell Þorláksson frá Siglufirði, en hinn er Pálmi Gunnar Krist insson til heimilis að Asvalla- götu 35. Menn þessir frömdu í fjelagi innbrotið í skrifstofur Sam- bands ísl. samvinnufjelaga, og saman voru þeir við innbrotið í Varðarhúsinu, en þar brutust þeir inn í verslunina Sjóklæði og fatnaður, skrifstofu verslun- arinnar Ragnar Guðmundsson h.f. og happdrættisumboð Stef- áns Pálssonar og Ármann. Þá framdi Sigurður Þorkell innbrotið í Trípólibíó. Nú sitja fjórir aðrir menn í gæsluvarðhaldi, sem uppvísir hafa orðið að ýmsum þjófnuð- um, en rannsókn í málum þeirra er enn ekki lokið. Tjekkóslóvakía kærð fyrir ólöglega vopna- flutninga til Israel Washington í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunbl. frá Reuter. UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ til- kynntí hjer í kvöld, að Banda- ríkin hefðu sent Tjekkóslóvakíu mótmæli vegna „ólöglegra flutn- inga“ á flugvjelum og vopnum til Israels. Ráðuneytið hafði áð- ur sent Bernadotte greifa skýrsl ur um, að bandarískir ríkisborg- arar hefðu tekið þátt í flutning- um þessum. Ætlað er, að ráðu- neytið hafi fengið sannanir fyr- ir því i skriflegum og eiðfestum yfirlýsingum frá bandarískum ríkisborgurum, að vopn og flug- vjelar væru nú fluttar frá Tjekkóslóvakíu til Israel, enda þótt Sameinuðu Þjóðirnar hefðu bannað alla slíka flutninga. Ró í Palcstínu Bernadotte, sáttasemjari S.Þ. í Palestínu, kom í dag til Róm frá Genf á leið sinni til Rhodos. — í París átti greifinn tal viö Trygve Lie, aðalritara S. Þ. — Hann ljet svo ummælt við frjettamenn, áður en hann hjelt þaðan, að ró væri nú yfirleitt komin á í Palestínu, nema í Jerúsalem, en þar væri ástandið enn alvarlegt. Hflenn eru vongóðir í Berlín í vanda sfaddur ... en Rússar segja að enn sje verið að gera við járnbrautina Berlín í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. ÞAÐ er haft eftir tryggum heimildum, að hernámsstjórum Vesturveldanna í Berlín hafi verið gefnar fyrirskipanir um að ljúka viðræðum sínum um Berlínarvandamálin innan tíu daga, Hernámsstjórarnir komu í dag saman á fund. Er sagt, að þeir ! hafi rætt um að koma aftur á flugsamgöngum milli Vestur- Þýskalands og Berlín og vandamálið um gjaldmiðil Berlínar- borgar. Robert Schuman, sem nú er að reyna að mynda stjórn í Frakk- landi, segist ekki ætla að gefast upp við það. Hjer er nýleg mynd af honum, sem bendir til þess, að hann sje í nokkrum vanda staddur. Austrænt ritfrelsi. ! VARSJÁ -— Sjera Sigmunt Kacsynski ritstjóri kaþólska vikuritsins í Póllandi var ný- , lega handtekinn af pólsku rík- ! islögreglunni og blaðið bannað. Eins og hálfs tíma fundur. Engin opinber tilkynning var gefin út um fund hernáms stjóranna, sem fór fram í bækr' stöðvum Rússa í borginni og stóð yfir í einn og hálfan tíma. Verkföll víða um Frakkland Frönsk sljérn án þáffföku jaín- aðarmanna. París í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. ROBERT SCHUMAN heldur áfram tilraunum sínum til stjórn- armyndunar. Líkurnar fyrir, að honum takist það minnkuðu í dag, vegna þess, að sósíaldemókratar tilkynntu, að þeir myndu ekki styðja stjórn hans. Skömmu síðar áttu blaðamenn viðtal við hann. Sagði hann, að han.i myndi halda áfram tilraunum sinum um stjórnarmyndun, enda þótt sósíaldemókratar hefðu skorist úr leik. Seint í kvöld gáfu sósíaldemókratar skýringu á neitun sinni um stjórnarsamvinnu. tJrslit fyrir kvöldið. Schuman sagði við blaða- menn, að hann myndi halda á- fram tilraunum sínum til stjórnarmyndunar, hvort sem sósíaldemokratar vildu taka þátt í henni eða ekki. Hann vildi ekki segja neitt um lík- urnar fyrir því, hvort þing- meirihluti næðist án samvinnu við sósíaldemokrata, en sagði hinsvegar að ef honum ekki tækist stjórnarinyndunin fyrir kvöldið, myndi hann gefa það frá sjer. Skýrsla sósialdemokrala. Seint í kvöld birtu sósial- dcmokratar skýrslu um ástæð- urnar fyrir, að þeir töldu sjer ekki fært að styðja Schuman. Segir í skýrslunni, að þeir geti ekki stutt efnahagsáfonn Schu mans. Segja að í þeim sje ráð- ist á hag verkamanna, en ekki sje ráðlegt að mynda stjórn án stuðnings verkalýðsins. VerkföII í Frakklandi. Nokkurs óróa gætir meðal vorkamanna í Frakklandi og hafa þeir byrjað verkföll í nokkrum borgum, einkum í Lyons, Marseille og Rouon. Lá undir gruni, en var sleppf London í gær. BRESKA stjórnin hefur gef ið skýringu á því, hvernsvegna dr. Wladislav Dering var slept úr fangabúðum stríðsglæpa- manna í Þýskalandi, en bresk blöð hafa undanfarið gert mik ið veður út af því að honum var sleppt. í skýrslu stjórnar- innar segir, að þótt Pólverjar hafi sakað Dering um stríðs- glæpi, hafi ekkert slíkt á hann sannast, enda var hann í fanga búðunum aðeins vegna gruns. — Reuter. Berlínarbúar vongóðir. Menn eru vongóðir í Berlín og talið er að ekki muni nú líða á löngu uns samkomulag náist um öll deilumál varð- andi borgina. Einkum þykir það benda til góðs, að flutn- inganefnd fjórveldanna kom saman í kvöld og talið að þar hafi verið rætt um afljettingu samgöngubannsins. Samkomulag um miðjan mánuð? Þýska frjettastofan segir að enn sje of snemt að vera svart- sýnn eða bjartsýnn, en bendir þó á, að miklar líkur sjeu til, að hernámsvöldin vilji koma Þýskalandsmálunum í rjett lag áður en allsherjarþing Samein uðu þjóðanna hefst 21. sept. Viðgerðum ekki enn lokið. Frjettastofan á hernáms- svæði Rússa skýrði frá því í dag, að viðgerðum á járnbraut arlínunni milli Berlín og Helm stedt væri ekki enn lokið og væri ómögulegt að segja hve- nær línan yrði nothæf. íþréttamenn koma heim EJÓRIR frjálsíþróttamann- anna, sem hafa verið í keppn- isferð um Norðurlönd, komu. heim í gærkveldi, og ennfrem- ur þjálfari þeirra og farastjóri Olle Ekberg. Þeir, sem komu, voru Finn- björn Þorvaldsson, Sigfús Sig- urðsson, Óskar Jónsson og Torfi Bryngeirsson, en Clau- sen-bræður urðu eftir í Sví- þjóð og koma sennilega ekki heim fyr en um miðjan sept- ember.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.