Morgunblaðið - 03.09.1948, Page 6

Morgunblaðið - 03.09.1948, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 3. sept. 1948. fB SigsBS’bgörn EimesrssevSM: BLEKKING OG HVAÐ? ÞAÐ getur verið gaman að ræða við gáfaða heiðingja, ef þeir eru sannsýnir og einlægir eg dálítið dómbærir á vanda- mál mannlegrar hugsunar og tilveru. Og mikið getur sá, sero þó er þeim í engu eða fáu sam- dóma, grætt á því að lesa bæk- ur slíkra manna, ef vel er á málum haldið af þeirra hálfu, viturloga og drengilega. Þegar vitað var, að íslensk- ur háskólakennari í læknis- fræði hefði samið bók, sem vera skyldi sóknarskjal gegn kirkj- unni og kristinni trú, ætla jeg að margir hafi hugsað með eft- irvæntingu til útkomu þeirrar bókar, unnendur kirkjunnar og játendur trúarinnar ekkert síð- ur en aðrir. Þeim þótti sem slík bók mundi vera líkleg til góðrar tilbreytni í andlegu fá- sinni íslenainga, gerðu sjer von ir um, að þannig yrði á málum haldið af hálfu slíks höfundar, að það gæti orðið grundvöllur nýtilegra umræðna um trúmál, sem vektu rnenn til umhugsun- ar og hreinsuðu til. Langt er síðan það tók að kvisast, að þetta verk væri í smíðum og raunar fullsmíðað. Jók það enn frekar á eftirvæntingu manna og vonir um, að hjer myndi koma vandað verk. Enda þótt gert væri að sjálfsögðu ráð fyr- ir, að þetta væri hjáverka- vinna, unnin í tómstundum frá mikilvægum embættisstörfum, mátti telja líklegt, að yfirlega um árabil myndi bera allmik- inn ávöxt og að einhverju góð- an, þótt hann kynr.i að verða beiskur á bragð. Þeir, sem hafa byrjað að lesa „Blekkingu og þekkingu“ Níels ar próféssors Dungals með þess um huga, munu skammt hafa lesið, þegar þeim var orðið ljóst, að hjer var allt annars konar verk á ferð, en vonir þeirra höfðu staðið til. Bragðið reyn- ist hvorki beiskt nje, sætt, því að hjer er hvergi bitastætt. Þetta er heljarmikill kúfur af froðu, samantíndum á ýmsum fjörum og í gruggugum flæð- armálum. Tæplega getur nokkr um heilbrigðum orðið bumbult af þessu, og vart vinnur það neinum grand, sem ekki er bráð feigur þegar, því síður að neinn geti nærst á því, þótt einhverj- ir kunni að láta eitthvað af því ofarf í sig í því skyni. Satt er það: Bókin er ákæra á‘ hendur kirkjunni og kristin- dóminum og blacr hennar allur þannig, að ekki verður annað sjeð en aö höf. sja alhuga í því að láta atlöguna valda usla með- al ákærðra, jafnvel uppgjöf. En málatilbúnaður er þannig, að höggið kemur livergi á. Söguleg yfirsýn, grundvallarafstaða og röksemdir í einstökum atriðum minna svo mjög á stig trúmála- umræðnanna hjá okkur forðum daga í 2. og 3. bekk, að það er nálega með ólíkindum. Höf. hef- ur aðeins komist yfir fleiri skruddur og tínt meira í sarpinn en við höföum íök á í þá daga, þegar við vorum hvað eítir ann- að að ganga af kirkjunni dauðri. Hann hefur sýnilega haft álit- legan haug aí bókum fyrir fram Nokkrar athugasemdir við bók Níelsar próf. Dungals: Blekking og þekking an sig og skrifað feikn upp úr þeim, en bæði val þeirra og notk un er með þeim hætti, að vís- dómsorðin, sem höf. tilfærir á bls. 22 um, að enginn sje svo mikið flón, að hann finni ekki annað flón til að trúa sjer, ger- ast óþægilega og sjálfsagt ómak lega nærgöngul við lesandann. Bókin á einkum að vera sag- an af viðskiptum kirkjunnar við vestræna menningu. Sjónarmið og vinnubrögð eru sams konar og ef rakin væri saga kirkjunn- ar á íslandi á þann veg, að Jón biskup Gerreksson væri gerður að „týpu“ íslensks klerkdóms, háttalag hans og sveina hans væri gert að allsherjar einkenni íslenskrar kirkjusögu. Til viðbót ar og árjettingar væri svo glefs að upp úr þjóðsögum og „presta- sögum“ allt það, sem fundið verður fáránlegast, satt og log- ið, þessu enn til stuðnings hrifs- aðar setningar úr prjedikunum til og frá, án tillits til samheng- is, aðeins farið eftir því, hvað best virðist fallið til þess að fullkomna óhrjáleik myndarinn- ar, og íslendingum síðan boðið upp á að falla fram fyrir þessari afhjúpun blekkinganna. Þetta ritverk getur, því miður, ekki vakið neinar umræður eða neina hreyfingu. Enginn leggur sig niður við að svara slíkri „árás“, sem er langt fyrir neð- an það lágmark, sem gera verð- ur til svaraverðrar ádeilu. En vegna þeirra, sem kynnu að halda, að hjer sje of fast að orði komist og vilhallur dómur ,'upp kveðinn og mjög svo ótrú- legur, þar eð hörundurinn er þó háskólakennari, skal bent á , örfá atriði til dæmis um það, | hve athugun höf. er glögg, þekk- ingin á þeim málum, sem hann tekur hjer til meðferðar, hald- góð og vandvirknin mikil. Fyrst skal borið niður á bls. 408, gripið ofan í langan lest- ur um Biblíu-rannsóknir, lestur, sem raunar er eitt glórulaust moldviðri. Á tilgreindri bls. seg- :r svo: „Bauer er glöggur á, hve ; nerkileg frásögnin er um spurn- ■ ;zgu Pjeturs í Caeserea Philippi. '■ T lærisveinunum hefði verið ljist að Jesús væri Messías, hcfði Pjetur auðvitað ekki farið a3 spyrja hann að því, hvort svo \rcri. Og ef Jesús hefði sjálfur hr.ldið því fram, hefði Pjetur iic dur ekki þurft að spyrja. Þecsi ritningarstaður hlýtur því aö vera óspilltur og er einhver bosía sönnunin fyrir því, að Marlcúsar guðspjall sje elst“. (Leturbr. hjer). Nú skulum við slá upp í Mark úsarguðspjalli, 8. kap., 27.—29. versi Þar segir svo: „Og Jesús iir út og lærisveinar hans til þorparna í kring um Sesareu i Fiiippi, og á leiðinni spuröi hann lærisveina sína og sagði við þá: ! Hvern cegja menn mig vera? {En þeir svöruðu honum og 1 sögðu: Júhannes skírara, og aðr- ir: Elía, en aðrir: einn af spá- mönnunum. Og hann spuröi þá: En þjer, hvern segið þjer mig vera? Pjetur svaraði og segir við hann: Þú ert Kristur." (Let- urbr. hjer). Þegar menn hafa borið sam- an frásögn guðspjallsins og út- listun prófessorsins hafa þeir fengið hugmynd um gætni hans og grandvarleik í meðferð texta. Hann virðist aldrei hafa opnað Nýja testamentið á þessum stað (sbr. og stafsetningu hans á staðarnafninu) því síður borið saman frásögur hinna guðspjall anna af sama atviki (Matt. 16, 13nn, Lúk. 9,18nn), og lætur þó svo sem hann hafi á þessum stað gert mikla uppgötvun — með aðstoð Bauers að vísu, hvernig sem hann hefur lesið rykfallnar og mjög svo úr sjer gengnar bækur þess höfundar. En svo mikið er víst, að ekki ei Bauer rjettilega bendlaður við slíkan lestur, því að læs var hann og byggði ekki textagagn- rýni á ólesnum setningum. En svona vendilegur er sá lestur, sem ályktanir próf. Dungals byg'gjast á — og mjög svo jafn- ræði á milli lesningar og álykt- ana víðast hvar. Þegar gátsemin og dómgreindin er slík í með- höndlun jafn aðgengilegrar til- vitnunar, má nærri geta, hve meðferð annarra torlesnari heim ilda er gagnsamleg. Á bls. 264 er rætt um kirkju- þingið í Níkeu (árið 325) og á næstu bls. neðanmáls er sam- þykt þingsins, „fyrsta trúarjátn ing kristnu kirkjunnar" (svo!) í nýrri og mjög nýstárlegri þýð- ingu. En sleppum þýðingunni — þýðingar höf. bera yfirleitt með sjer, að hann hefur lítt tafið sig á að huga að frumheimildum, enda skortir hann í mörgum til- fellum skilyrði til að færa sjer þær i nyt. Höf. segir, að „sund- urlyndi, hatur og vígaferli" krist. inna manna á þessu skeiði hafi verið út af einu o og þykir firn mikil. Nú er ekki loku fyrir það skotið, að einn bókstafur geti snúið við merkingu, það skiptir t. d. nokkru, hvort læknir úr- skurðar mann með ráði eða ó- ráði, einft bókstafur til eða frá bókstafsatriði. Annað hvort eru' heimildir hans eitthvað einkenni legar, eða lesturinn er hroðvirkn islegri en svo, að skammlaust. sje. Höf. kann ekki nokkur skil á því, sem hann er að skrifa um. Og ekki er þess að vænta, að hann bæti um fyrir sjer, þegar hann fer að álykta og gera nán bls. 486, enda þótt nóg sje kom- ið og af nógu að taka. Þar segir svo: „Þeim, sem þekkja nokk- uð til sögu kirkjukenninganna, þykir það viðeigandi frámleng ing af öðrum samþykktum kirkj unnar og hennar þinga, að hafa tekist að senda sjálfan Jesú Krist til helvítis. En að þurfa endilega að koma því inn í trú- arjátninguna og láta hvert barn þylja þessa fjarstæðu, þykir öll- um, sem eitthvað hugsa, meira en góðu hófi gegnir. Hvað á barnið að halda að verði um sig og foreldra sína og alla, sem það þekkir? Hver skyldi eiginlega til frá sjálfum sjer efnið í Jesú bamið, er hann gat það með Maríu, og hvort hann hefði lagt það til eins og hver annar karl- maður.“ Það kann að vera eitthvað notalegt við það að geta komist í námunda við kynferðismál í þessu sambandi, en það rjettlæt- ir ekki einu sinni sálfræðilega þennan makalausa þvætting, sem er allsendis botnlaus. Spurn ingin um „Jesúbarnið" og getn- að þess var alls ekki á dagskrá 'í þessum umræðum, eins og hver maður með ráði og rænu sjer þegar af samþykkt þingsins 1 Níkeu (jafnvel í þýðingu próf. Dungals), því að öll útlistunin þar á sambandi Krists og Guðs kemur áöur en fæðing Jesú á jörð er nefnd á nafn. Ágrein- ingsefnið var ekki það, hvernig Jesús hefði „íklæðst holdi og orðið maður“, heldur hitt, hvort hinn yfirjarðneski, guðlegi frels- ari (Logos) væri skapaður eða hvort hann væri eitt með Guði frá öndverðu, sömu veru (ousia) og faðirinn í fortilveru sinni. Það, sem hjer var í húfi, var sem sje það, hvort kirkjan skyldi halda áí'ram að vera eingyðis- trúar eða hvort hún skyldi sveigja fyrir grískum hugsunar- hætti (Aríus) og hefja skapaða veru til guðlegrar tignar. Þetta lítilræði var í húfi í Nikeu, fólg- ið í þessum eina bókstaf, sem ekki var o, heldur j. Slík eru vinnubrögð þessa höf. og sannfræði bókarinnar. Það þarf ótrúlega kergju til þess að setja saman bók upp á meira en fimm hundruð bls., buslandi svona í sífelldu kafi botnlausrar vankunnáttu um þau efni, sem hún f jallar um. Á bls. 193 greið- ari grein fyrir þessu máli. Hann iosna vjg ag fara helvítis, úr segir, að þessi „ósvikna guð-1 ag jesús sjálfur þurfti að fræðingadeila hafi snúist „um fara þangað? Hann sem var þó það, hvort guð hafi sjálíur lagt | aigeriega syndlaus, eftir því sem barninu er kennt.“ Þessi ummæli bera sjálfum sjer og höf. vitni án allra skýr- inga og hefðu gjarnan mátt fylgja boðsbrjefinu fræga til enn frekari sönnunar á djúpsæi höf. og snilld hans í viðureigninni við blekkingarnar. í samanburði við þetta má það heita saklaust, sem höf. seg- ir um afdrif óskírðra barna, en þau eiga að fara til helvítis „samkvæmt kenningu lútherskr- ar og kaþólskrar kirkju“ (bls. 471 o. v.). Hvorug kirkjan kenn- ir það og ratast höf. raunar satt á munn um þetta, að því er kaþólsku kirkjuna snertir, á bls. 196, en aftar í bókinni er móð- urinn orðinn svo mikill, að slík sannleikskorn hrökkva út í hafs- auga. Þetta verður að nægja og nægir, Það væri endalaust verk að halda svona áfram um mold- veðursstíga og göslgötur þessar- ar einstöku bókar, enda gefur það, sem hjer hefur veriff drepið á, fullnægjandi hugmynd um staðgæði þeirrar þekkingar, sem hún flytur. Það hefði verið fengur að greindarlegri og sæmilega vel gerðri bók frá „efagjörnum manni“, en þessi bók vekur eink- um efasemdir um hofundinn og þótt það kunni að vera allmikil bylting, þá er hún þó a. m. k. staðbundin og verður naumast að neinu almennu hitamáli. Sigurbjöm Einarsson. í kemískri formúlu getur o^ ir höf. sjálfum sjer viðlíka löðr- valdið nökkurri truflun. Slíka smámuni'- skal höf. mega skilja eins og hánn vill. En úr því hann fór að minnast á þetta, hefði verið viðkunnanlegra, að hann hefði sagt satt um bókstafinn. Krists-fræðideilur 4. aldar — próf. Dungal segir, að þær hafi geysað í margar aldir — sner- ust ekki um neitt o, heldur eitt j. Jeg get ekki vitað, hvaðan þetta o er komið inn í hugar- fylgsni höf., sá bókstafur hefur, mjer vitáhlega aldrei áður angr- að nokkurn mann neitt sjerstak- lega, en cþetta ber vott um, að eitthvað.sjeu smásjár prófessors ins vafasamar. Ekki vantar þó að hann geri veður úr þessu ung á kafsundi sínu, minnist a nýlega, kaþólska kennisetningu, sem páfinn sló fastri árið 1854, þess efnis, að María sje getin á yfirnáttúrlegan hátt. Segir höf., að þessi trú hafi byggst á „rangri þýðingu í grískri þýð- ingu Gamla testamentisins (Jes. 7,14“). Höf. hefur sýnilega ekki hugboð um, hvað hann er að fara með, heldur sig vera að berjast við kenninguna um fæð- ingu Jesú af meyju, þegar hann str'iðir við Píus gamla 9. og kenn ingu hans um yfirnáttúrlegan getnað Maríu. Til frekari vitnisburðar um þekkingu höf. á trúarlærdómun- ]um, vil jeg að lokum benda á IMMIIItlllllll ■•■■•1111111111111111111111 Kærustupar óskar eftir § Herbergi til leigu. Æskilegt að eld unarpláss fylgi, helst í Laugarneshverfi eða aust- urbænum. Mikil fyrir- framgreiðsla. Tilboð legg- ist inn á afgr. Mbl. merkt „Húsnæði — 989“. Óska eftir Ráðskonustcðu á fámennu heimili. Til- boð merkt: „Ráðskona — 990“ leggist inn á afgr. Mbl. fyrir þriðjudagskv. A U G L Y SI /V G ER GVLLS IGILDI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.