Morgunblaðið - 01.10.1948, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 1. októbej 1948.
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.).
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
ÍVusturstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði, innanland*,
tr. 12,00 utanlands,
í lausasölu 50 aura eintakið. 75 aura með Lesbók.
Skólagarðar
og mannrækt
FYRIR nokkrum dögum var slitið yngsta skólanum, sem
starfar hjer í Reykjavík, hinum svokölluðu skólagörðum
bæjarins.
Síðan í byrjun júní í vor hafa 55 börn á aldrinum 10 til
14 ára verið við nám í þessum skóla, sem tók þá í fyrsta
skipti til starfa. Á þessum tíma hafa þessir ungu garðyrkju-
menn framleitt kartöflur og grænmeti fyrir 45 bús. krónur.
Kennslutilhögun hefur verið þannig að nemendurnir hafa
undir umsjón kennara annast sameiginlega reiti í görðunum
en jafnhliða hefur hver einstakur þeirra annast lítinn af-
mældan reit, sem hann hefur borið ábyrgð á.
Yfirleitt hafa börnin sýnt mikinn áhuga fyrir að rækja
skyldur sínar í þessum skóla. Flest þeirra unnu störf sín af
mikilli natni og umhyggjusemi fyrir að ræktunin tækist
sem best, ekki hvað síst í litlu reitunum, sem hverju ein-
stöku þeirra höfðu verið fengnir til umhirðu. Það er þannig
álit þeirra manna, sem þessari tilraun stjórnuðu að hún hafi
gefist mjög vel og orðið börnunum, sem þátt tóku í henni
til gagns og þroska.
Um það er óþarfi að fara mörgum orðum að stofnun skóla-
garðanna og starfsemi þeirra í sumar er ein hin merkilegasta
nýung síðari ára í uppeldismálum okkar. Með henni er stefnt
að því að þroska og rækta skapgerð æskunnar við skapandi
starf. Hlutverk skólagarðanna er þannig ekki fyrst og fremst
ræktun og framleiðsla garðávaxta og grænmetis heldur
mannrækt.
Við eigum að halda þessari starfsemi áfram og gefa stöð-
ugt fleiri börnum og unglingum kost á að gerast þátttakend-
ur í henni. Sannleikurinn er sá að þó að við höfum komist
af án slíkrar sfarfsemi til þessa þá er hún mjög nauðsynleg og
þýðingarmikil. Það er mikið talað um nauðsyn tómstunda-
heimilis fyrir ungt fólk og víst er æskilegt að koma slíkum
áamkomustöðum upp. En grundvöllurinn að manndómi og
þroska barna og unglinga verður þó aldrei lagður á tóm-
stunda og æskulýðsheimilum. Hann er lagður á allt öðrum
vettvangi, nefnilega á heimilum barnanna og í þeim störfum,
sem þeim eru engin á fyrstu starfsárunum þegar þörfin fyrir
að hafa eitthvað fyrir stafni er ríkust.
Hið unga þjettbýli og borgarbúskapur okkar íslendinga
hefur skapað fjölmörg vandamál í uppeldismálum. Þessvegna
eru þau víxlspor, sem í þeim hafa verið stigin eðlileg.
En þjettbýlismenning okkar er nú að ná þeim þroska að
gáleysi það, sem ríkir um vernd æskunnar fyrir áhrifum
götunnar og iðjuleysisins, er ekki lengur afsakanlegt. Það
er t. d. hneyksli, sem verður að útrýma hið fyrsta, hvernig
börnum innan fermingaraldurs er liðið að flækjast úti á
götum, jafnvel inn á veitingastöðum og kvikmyndahúsum,
langt fram á kvöld, allan ársins hring. Það er ekki nóg að
banna þetta með lögum og reglugerðum. Það verður að fram-
kvæma slíkar reglur. Böm og unglingar innan við 16 ára
aldur eiga alls ekki að hafa aðgang að veitingastöðum að
kvöldlagi. Þau hafa ekkert að gera þar. Á götunum eiga þau
heldur ekkert erindi á þeim tíma sólarhringsins. Þau eiga að
vera heima á heimilum sínum.
Annars verður ekki gengið á snið við þá staðreynd að sú
stefna hefur verið alltof mikils ráðandi hjer, sem lagt hefur
á það höfuðáherslu að beina unglingunum burt frá heimilum
sínum til opinberra samkomustaða. Það getur verið ágætt
og nauðsynlegt að eiga góð fjelagsheimili og æskulýðshallir
þar sem ungt fólk getur átt athvarf og tekið þátt í hollu
íjelagslífi. En það er óskaplegur misskilningur að venja
seskuna frá heimilum sínum og fá þau uppeldisáhrifum slíkra
hópstöðva.
Kjarni málsins er sá að við þurfum að leggja meiri alúð
við að rækta og þroska skapgerð íslenskrar æsku. Skólagarð-
arnir, skapandi starf og vinna að nytsamlegum framkvæmd-
um, eru líklegri. til; þess að leggja þeirri viðleitni lið en
samkomuhúsafjelagslíf, jafnvel þó að það eignist yfir sig
myndarleg salarkynni;
*ar:
werji óbrifa
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Laxveiðirabb.
Á DÖGUNUM hitti jeg Sig-
björn Ármann kaupmann og
þessa leið: „Ef þið íslendingar
hafið áhuga fyrir að hæna
ferðafólk til landsins til þess að
spurði hann hvort hann gæti. hafa.upp úr því erlendan gjald-
sagt mjer eitthvað frá laxveið- eyri, þá eigið þið ekki að aug-
unum í sumar. Jú, það gat lýsa neitt lúxusflakk heldur
hann raunar, en var ekki alveg eigið þið að auglýsa landið sem
tilbúinn, svo jeg sló því upp í ævintýraland, þar sem menn
grín og gat þess til, að varla geti komist 1 ferðalög um
væri nógu langt um liðið frá óbygðir á íslenskum hestum og j
veiðitíma'bilinu til þess, að lax- kynst óhréyfðri náttúru og nátt ,
arnir væru orðnir hæfilega úrupndrum.
stórir til að segja frá þeim og
þá einkupa þeir, sem ekki náð-
ust á land.
Laxveiðimaðurinn.
OG UFP ÚR þessu spratt svo
samtal, nokkuð fróðlegt, því
Sigbjörn fór að segja mjer frá
amerískum kunningja sínum,
Með því gabbið þið engan, en j
hinsvegar þurfið þið ekki að .
kvíða því, að ekki fáist ferða-
mer.n til landsins á þeim for-
sendum bæði vetur og sumar".
•
Minkandi áhugi.
EN ANNARS er eins og á-
hugi ráðandi manna fyrir að fá
sem hann hafði fengið brjef frá hingað ferðafólk hafi mjög dofn
nýlega, en þessi maður, sem! að upp á síðkastið. Það eru
margir munu kannast við hjer, j fleiri og fleiri, sem segja. „Til
Clifton Lisle ofursti, var mik- i hvers er að narra hingað ferða-
ill laxveiðimaður og fjek'k fólk, þegar ekki er hægt að
mikinn áhuga fyrir landinu á veita því sæmilegan beina og
laxveiðiferðalögum sínum á aðbúnað.
meðan hann dvaldi hjer.
Pjesi Benjamíns
Franklín.
En þá hafa menn luxusflakk
ið í huga og það er alveg víst,
að enn er langt í land, þar til
að ísland verður annað eins
OG NÚ SÝNDI Sigbjörn ferðamannaland og t. d. Sviss.
mjer fornfálegt plagg, en það I •
var pjesi, sem Benjamín gamli j
Franklín stofnaði til útgáfu á j
Uppgjöf?
ÞAÐ ER óþarfi að gefast upp.
1741, en er nú gefinn út af ‘ Nú á Ferðaskrifstofa ríkisins að
Pennsylvanía háskóla. í þessu I gefa skýrslu um ferðalög er-
riti er grein um ísland eftir
Lisle ofursta.
Greinin er mjög vingjarnleg
í garð okkar, eins og við erum
vanir að segja, þegar eitthvað
lendra manna hjer á landi á
þessu ári og reyna að komast
eins nærri því og hægt er,
hvaða gjaldeyristekjur hafa
orðið fyrir þjóðina af ferðafólk
birtist um okkur erlendis, sem inu. Þá er hægt að gera sjer ein-
ekki eru beinlínis skammir. j hverja grein fyrir, hvort það
Rjett og satt frá hlutunum
skýít. Að öðru leyti er óþarfi
að rekja efni greinarinnar.
En reynsla Lisle ofursta
minti mig á setningu, sem út-
lendingur sagði einu sinni er
rætt yar um ísland sem ferða-
mannaland.
Ekki luxusflakk,
heldur ævintýri.
borgar sig, að vera að leggja
það á sig, að hæna hingað ferða
menn, eða hvort við eigum að
gefast alveg upp.
•
MaSurinn úr Vogunum.
FYRIR NOKKRU hitti jeg
Suðurnesjamann, sem var í
leiðu skapi. Nú geta Suðurnesja
menn átt það til eins og aðrir,
að vera leiðir í skapi og þetta
MAÐURINN sagði eitthvað á hefði ekki verið neitt tiltöku-
mál, ef hann hefði ekki sagt
mjer, hvað það var, sem angr-
aði hann.
„Það er verið að stela af okk
ur Voganafninu", sagði hann,
,,og það dugar ekki“.
Og hann hjelt áfram
„Fyrir nokkru var auglýst í
dagblaði, að hús í Vog-
unum væri til sölu. Jeg hitti
nokkra samsveitunga, sem
spurðu mig hver væri nú að
selja í Vogunum. Síðar kom
það upp úr kafinu, að það var
enginn að selja í Vogunum,
heldur við Nökkvavog eða Ell-
iðaárvog við Reykjavík.
•
Nafnaþjófnaður.
ÞAÐ ER hægt að vera hinum
þungbúna Suðurnesjamanni
sammála um, að það nær ekki
neinni átt, að láta þá hefð kom
ast á, að eitthvað pláss, annað
en en hinir rjettu Vogar, sem
svo hafa heitið frá landnáms-
tíð, haldi sínu nafni einir.
Og það má gera ráð fyrir,
að þegar menn fara að hugleiða
þetta, þá gefi þeir sig ekki í
þvílíkan örnefnaþjófnað.
Þá mun líka þessi Suður-
nesjamaður, sem jeg mintist á
og aðrir taka gleði sína aftur.
•
Viðkvæmni.
ÞANNIG GETA menn verið
viðkvæmir fyrir nöfnum, eins
og Suðurnesjamaðurinn. Og
það er ekki rjett að gera sjer
leik að því, að búa til ný ör-
nefni eða götuheiti og hverfa
hjer í Reykjavík, sem minna á
þekt nöfn úti á landi.
Það eru ekki allir eins ljett-
lyndir í þessum efnum, eins og
maðurinn, sem var spurður
hvaðan hann væri og sagðist
hann vera frá Englandi, sem
er bæjarnafn í sveit hjer á
landi.
Sá, sem spurði, hváði við og
fannst maðurinn ekkert Eng-
lendingslegur og þá kom svar-
ið, sem lengi hefir verið minst:
„Það er víðar England en í
Kaupmannahöfn“.
MEÐAL ANNARA ORÐá
Landakröfur Júgóslavíu á hendur Auslurríki
Eftir HUBERT HARRISON,
frjettaritara Reuters.
Vínarborg.
DR. KARL RENNER, forseti
Austurríkis, hefur enn á ný far-
ið þess á leit við júgóslavnesku
stjórnarvöldin, að þau falli frá
landakröfum sínum á hendur
Austurríkismönnum. — Telur
Renner, að kröfur þessar hafi
gert sambúð Austurríkism. og
Júgóslava óþarflega erfiða, og
vekur athygli á vinsamlegri sam-
vinnu þessara þjóða fyrir stríð.
I ræðu, sem dr. Renner flutti
í Klagenfurt (rjett við landsvæði
það, sem Júgóslavar gera kröfu
til) komst hann meðal annars að
orði á þessa leið:
• •
„FRÁMUNALEGA
LEITT“.
„Það er frámunalega leitt, að
iandamæradeila skuli hafa kom-
ið upp milli okkar og nágranna-
ríkisins í suðri. Meðan Austur-
ríki fór sjálft með stjórn mála
sinna, var sambúð þess og þessa
nágrannaríkis hin vinsamlegasta.
En rjettindamissir okkar og
heimsstyrjöldin síðari hafði því
miður truflandi áhrif á þessa
góðu samvinnu“.
Dr. Renner lýsti því yfir í ræð-
unni, að öll austurríska þjóðin
hefði glaðst yfir sjálfstæði Jú-
góslavíu. Austurríkismenn, sagði
hann, bera virðingu fyrir þeim
iei ðtogum'Júgósi ava, sem tókst
að gera þetta að raunveruleika,
enda þótt starfsaðferðir þeirra
komi Austurríki stiundum ein-
kennilega fyrir sjónir. „En við
höfum aðeins eina ósk: Góða sam
búð við þetta nágrannaríki“.
• •
FYRIR 30 ÁRUM.
Dr. Renner vjek nokkrum orð-
um að því, að Austurríkismenn
sjeu þeirrar skoðunar, að gengið
hafi verið endanlega frá kröfum
Júgóslava fyrir 30 árum síðan.
Þá hafi íbúarnir á landsvæðinu,
! sem Júgóslavar gera kröfu til,
með allsherjaratkvæðagreiðslu
lýst yfir þeim vilja sínum, að
þeir yrðu áfram hluti af Austur-
ríki. Þessu verður ekki breytt,
sagði Renner, enda er rjettlætið
okkar megin í málinu.
• •
HITLER.
Dr. Renner vakti athygli á því,
að Hitiler hefði jafnan leitast við
að afsaka yfirgang sinn með ým-
iskonar innlimunarkröfum, ekki
ósvipuðum þeim, sem Júgósavar
nú bera fram. Hann hefði þannig
haldið því fram, að þýsk þjóð-
arbrot í öðrum löndum ættu
kröfu á því, að verða hluti af
Þýskalandi, enda þótt Þjóðverjar
væru í litlum meirihluta eða jafn
vel í minnihluta á sumum þeim
landsvæðum, sem hann heimtaði
yfirráð yfir. Þetta leiddi að lok-
um til heimsstyrjaldarinnar síð-
ari og allra þeirra hörmunga, er
henni fylgdu.
• •
ÁSKORUN.
Renner lauk ræðu sinni með
því að lýsa yfir, að Austurríkis-
menn sjeu staðráðnir í að berjasti
gegn öllum breytingum á landa-
mærum þeirra, frá því sem þau
voru áður en Hitler innlimaði
Austurríki. Hann skoraði því á
Júgóslava, að falla frá landakröf
um sínum og leggja í þess stað
höfuðáherslu á að treysta vin-
áttu og samvinnu Austurríkis og
Júgóslavíu.
BERLIN — Þakið á Palmet leik
húsi í Berlín hrundi nýlega. Til-
kynning var gefin út skömmu
síðar um að 13 hefðu látist og
40 slasast alvarlega.