Morgunblaðið - 18.12.1948, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.12.1948, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 18.>áos. 1948- i. L «Sff '$ %■ II 44 il'-l* m w* ■■ *** H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj. Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri- ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstrœti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands, kr. 15.00 utanlands. 1 lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók. Komm únistar og atvinnulífið KOMMÚNISTAR láta nú eins og að þeim sje bað mikið áhugamál að koma í veg fyrir að íslenskt atvinnulíf kafni í verðbólgu og dýrtíð. Sjerstaklega gera þeir sjer far am að sanna stuðning sinn við sjávarútveginn. En kommúnistar leika í þeim efnum sem öðrum einstæðan skrípaleik Með* an þeir tóku þátt í ríkisstjórn var látið í veðri vaka að ekki rnyndi standa á þeim til þess að tryggja rekstrargrundvöll binna nýju tækja, sem þjóðin af mikilli bjartsýni og þrótti var að eignast. Ef að það kæmi í Ijós, sögðu kommúnistar, eð rekstur hinna nýju tækja og atvinnutækjanna yfirleitt, bæri sig ekld, þá myndu þeir ekki hika við að talca þátt í niðurfærslu framleiðslukostnaðarins. En hvað hefur gerst síðan? Það, sem gerst hefur er það fyrst og fremst, að auðsætt er orðið, og það fyrir alllöngu, að verulegur hluti af fram- ieiðslutækjum okkar er rekinn með halla. Útflutningsvara ckkar er ekki samkeppnisfær á heimsmarkaðnum. En hvernig hafa kommúnistar efnt loforð sitt um að taka þátt í niðurfærslu framleiðslukostnaðarins? Þeir hafa efnt það með því að hefja hverja herferðina á fætur annari fyrir hækkuðum framleiðslukostnaði en barist eins og Ijón gegn hverskonar viðleitni til þess að stöðva vöxt dýrtíðarinnar. En jafnhliða því að kommúnistar hafa beitt sjer fyrir því að eyðileggja rekstrargrundvöll atvinnutækjanna í landinu hafa þeir reynt að spilla fyrir þjóðinni út á við. Þeir hafa krafist þess að íslendingar neituðu að taka þátt í efnahagssamvinnu Evrópuþjóðanna og einangruðu sig þannig gjörsamlega frá þeim þjóðum, sem kaupa megin- hluta afurða þeirra og selja þeim þær vörur, sem nauðsyn- legastar eru, bæði til almennrar neyslu og reksturs at- 'dnnutækjanna. Ef ráðum kommúnista hefði verið fylgt um utanríkis- viðskipti okkar væri íslenskur sjávarútvegur og atvinnu- lif þjóðarinnar í heild í kaldakolum. Markaðir okkar í löndum Vestur Evrópu væri að mestu lokaðir. Neitun ís- lendinga á þátttöku í efnahagslegri endurreisn viðskipta- landa sinna hlaut.að hafa þær afleiðingar. En segjum að við hefðum þá getað selt meira en við nú gerum til landanna í Austur-Evrópu. Engar líkur benda til þess að þau viðskipti hefðu getað tryggt afkomu íslensks atvinnulífs. Flestar þessar þjóðir byggja utanríkisverslun sína að verulegu leyti á vöruskiptum. En hvaðan áttum við Islendingar þá að fá svokallaðan frjálsan gjaldeyri til þess að kaupa fyrir margskonar vörur, sem við óumflýjanlega verðum að kaupa fyrir sterlingspund eða dollara? Þeirri spurningu er vandsvarað. En jafnhliða hinni viðskiptalegu einangrun, sem stefna kommúnista hefði þýtt fyrri íslendinga, hlaut önnur ein- sngran engu betri að skapast. Við hefðum að meira eða minna leyti einangrast stjórnmálalega. Við hefðum orðið viðskila við þær þjóðir, sem eru okkur skyldastar að upp- runa, hugsjónum og stjórnarháttum. Það þarf mikla óskammfeilni til þess, að mennirnir, sem stefndu að því að gera alla aðstöðu íslands svo gjörsamlega vonlausa, geti komið fram fyrir þjóðina og sagst vera einu bjargvættir og verndarar atvinnulegs og stjórnmálalegs sjálfstæðis hennar og öryggis. En íslenska þjóðin væntir einskis bjargræðis frá þess- im einstæðu hræsnurum og loddurum. Þessvegna verða öll þjóðholl öfl í landinu að vinna saman að því að tryggja rekstur atvinnutækjanna innanlands og viðskiptalegt og pólitískt sjálfræði út á við. Verðbólgan ógnar hinu atvinnu- lega öryggi landsmanna. Þrátt fyrir ákveðna viðleitni til þess að bægja þeirri hættu á braut horfir ekki vænlega í þeim málum í dag. Erfiðleikarnir á því að finna raunhæfar leiðir, sem sarnkomulag geti náðst um, standa ennþá í vegi íyrir öðrum lausnum dýrtíðarvandamálsins en ábyrgðum á verði útfíutningsafurða og niðurgreiðslum á vöruverði innanlands. ■ • -• .-,■' XJílzverji ðkrif-ar; ÚR DAGLEGA LÍFINU Kaffi og pönnu- kökur í Alþingi. ÞAÐ var ekki laust við, að mjer þætti það dálítið skrýtið er jeg kom í heimsókn í Alþingi Is- lendinga og var boðinn uppá kaffi og pönnukökur. En við nánari athugun, hvar eiga þessar þjóðlegu góðgerðir betur heima en einmitt á þingi? Þingmenn hafa sína eigin kaffi- stofu, eða stofur og ekkert er í sjálfu sjer eðlilegra, en að þar sjeu bornir fram þjóðarrjettir. Ekki fæst þar samt hákarl og brennivín. Þegar einhverjir Ijettlyndir þingmenn orðuðu það sín í milli — og vafalaust meira í glensi, en alvöru — að í þinginu ætti eiginlega að vera ,,bar“, ætlaði allt að springa. • En ,,EgiI“ fá þeir þó. LÓGLEGT Egilsöl geta þing- menn keypt sjer í veitingastof- um þingsins og að minsta kosti einn þingmaður tók það fram yfir kaffi og með því, þenna umrædda dag, sem jeg kom i heimcókn. ,,Barinn“ bar á góma þarna við kaffidrykkjuna og einhver minti á, að í breska þinginu hefðu þingmenn og gest ir þeirra aðgang að vínstofu. Það þykir hæfa hjá „móður lýðræðisþinga“, eins og breska parlamentið er kallað, en ekki hjá „ömmu lýðræðis þinga“, eins og Alþingi hefir verið nefnt. En nóg um það. „Hætta á að upplitið yrði skrýtið á sumum þingmönnunum að aðrir þola illa slík þægindi“, eins og ein- hver komst að orði í þessum umræðum. 9 Þar verða Herodus og Pilatus vinir. OG það yrðu víst fleiri hissa, sem kæmu inn í kaffistofuna í þinginu í eftirmiðdagskaffi- tímanum. Því það má nú segja, að þar verða þeir Herodus og Pilatus vinir. Þingmenn af öll- um flokkum sitja saman í friði og spekt við sama borð og gæða sjer á kaffi og með því. Skifst er á spaugiyrðum og glensi. En þó segja kunnugir, að það geti farið eins og í salarkynnum Goðmundar á Glæsivöllum, „að hnútur fljúgi um borð“. Þröngt setinn bekkur. ALÞINGI Islendinga á við hús- næðisþrengsli að stríða ekki síður en margir aðrir. Það sjest á ýmsu. Jafnvel eftir, að þing- ið hefir fengið talsvert af hús- rúmi, sem háskólinn rjeði yfir áður er svo þröngt að til vand- ræða horfir. Sjálf ríkisstjórnin hefir eng- an samastað út af fyrir sig í ró og næði og ef kalla þarf saman ráðherrafund, verða ráðherrar að fá lánað herbergi, sem öðr- um hefir verið ætlað. Flokk- arnir hafa sín herbergi. Sjálf- stæðisflokkurinn er í nor- rænu og lagadeildinni gömlu, framsókn í læknadeild og .Alþýðuflokkurinn í guð- fræðideild, en kommúnistar í vistarveru, sem kölluð er Hlað- búð, uppi á lofti. Verst búið að blaðamönnum. AÐ engum, sem í þinginu þurfa að starfa daglega er þó eins illa búið og að blaðamönnunum. Mönnunum, sem eiga að segja þjóðinni hvað gerist á þingi. Þeir hafa stúkuholu uppund- ir lofti, sem er þröng og daun- ill. Þar komast illa fyrir, eða ekki í einu, frjettaritarar frá dagblöðunum í Reykjavík, hvað þá frá fleiri blöðum. Það eru erfið vinnuskilyrði fyrir „augu og eyru“ þjóðarinn- ar. Lofað bót, sem ekki kom. ÞAÐ væri ekki rjett, að segja, að frjettaritarar íslenskra blaða á Alþingi hefðu ekki aðgang að síma. Þeim mun vera frjálst að nota síma skrifstofunnar, ef aðrir eru ekki að brúka þá. En hitt er hverju orði sann- ara, að enginn þeirra hefir af- drep, þar sem hann gæti geymt ritvjel sína, eða nauðsynleg plögg í skúffu. Meðal þingmanna hafa jafn- an verið bæði starfandi blaða- menn og menn, sem þekkja til blaðamensku af eigin raun. Þeir tóku sig til um árið, eftir áskorun frá Blaðamannafjelag- inu, og fengu samþykkt fyrir ; því, að betur skyldi búið að I blaðamönnum á þingi, en gert hefir verið. En efndir hafa engar orðið. o Einsdæmi í heiminum. EKKI mun of sagt vera, að hvergi í heiminum er svo hrak- smánarlega búið að blaðamönn- um, sem í Alþingi Islendinga. Flest lýðræðisþing í heiminum jskilja, að það er í hag þingsins, að vel sje búið að þeim,sem halda við sambandinu milli , þingsins og þjóðarinnar. Það minsta, sem hægt sje að gera fyrir þessa menn sje, að veita þeim mannsæmandi vinnuskyl- yrði. En því er ekki að fagna á þessu þingi og kann, að vera deyfð blaðamannanna sjálfra um að kenna, að þeir hafa ekki einurð, eða festu til að fylgja sínum rjettmætu kröfum til streitu. I • „Draugar“ og „lávarðar“. ALÞINGISMENN hafa sín eig- in orðatiltæki, sem lítið eru not uð utan þings og koma ókunn- ugum spánskt fyrir. „Hver er þessi þarna?“ spurði jeg þingmann, sem jeg þekki. „Þessi? Það er nú draugur- inn minn“, var svarið. Við eftirgrenslan kom í ljós, að maðurinn var uppbótarþing- maður í kjördæmi þess er spurður var. Uppbótarþing- mennirnir eru kallaðir „draug- ar“. Neðri deildar menn kalla efri deildar þingmen stundum ,,lávarða“ og þá helst í óvirð- ingarskyni. — Sinn er siður í landi hverju, því sumstaðar þykir hefð að slíkum titlum. Þannig kom mjer Alþingi ís- lendinga fyrir sjónir, er jeg drakk þar eftirmiðdagskaffi einn daginn núna í vikunni. MEÐAL ANNARA ORÐA . . . Mikill olíufundur í Kanada. Eftir CHARLES LYNCH, frjettaritara Reuters KANADA er orðið eigandi að nýrri tegund af gulli. í hæðun- um undir Klettafjöllum hefur „olíuæði“ gripið um sig á und- anförnum tveimur árum. Þetta „æði“ virðist nú hafa náð há- marki sínu, enda hafa sjerfræð- ingar spáð því, að olíufram- leiðslah í Kanada verði orðin svo mikil eftir fáein ár, að land ið geti sjálft sjeð sjer fyrir öll- um þörfum sínum á því sviði. Og eftir svo sem fimmtán ár, segja þeir, ætti Kanada að vera, orðið eitt fremsta olíuútflutn- ingsland í heimi. o o OLÍUBRUNNUR „SLEPPIR SJER“. ÞAÐ var 1946 sem olía fyrst fór að finnast í stórum stíl í Kanada. En það var í raun og vera ekki fyr en snemma í ár, sem Kanadgbúar almennt gerðu sjer ljóst, hvað hjer var á ferð- inni. Það var þegar olíubrunn- ur, sem nefndur er Atlantis númer 3 „sleppti sjer“, flæddi yfir allstórt landssvæði og myndaði heilt stöðuvatn af þykkri, dökkri olíu. Það tókst að lokum að temja þennan brunn, en þó ekki fyr en elds- neisti hafði kveikt í „vatninu“ og orsakað stærsta eldhafið, sem nokkru sinni hefur sjest í Vest- ur-Kanada. Þegar allt var hjá liðið, hafði hver einasti Kanada maður heyrt getið um nýja Leduc olíusvæðið. o » 20,000 TUNNUR. MEÐAN Atlantis númer 3 ljet sem verst, stöðvaðist öll vinna á Leduc olíusvæðinu. En í dag er unnið að því af alefli, að kanna stórt landssvæði í kring- um Luduc-svæðið, með þeim árangri, að þegar hefur fundist fjöldi nýrra olíubrunna. Framleiðslan á Leduc-svæð- inu nemur þegar um 20,000 tunnum af olíu á dag, og hún mun að öllum líkindum hækka upp í 50,000 tunnur áður en langt um líður. Þetta mun þó í sjálfu sjer ekki hrökkva langt til þess að fullnægja olíuþörf Kanada, sem er um 260,000 tunnur á dag. En það þykir sannað, að í brunn- um Leduc-svæðisins sjeu að minnsta kosti 200,000.000 tunn- ur, og í aðeins um tíu mílna fjarlægð hafa fundist tvö ný olíusvæði, sem virðast vera að minnsta kosti jafn auðug, O Qt IMPERIAL OLÍU- FJELAGIÐ. ÞAÐ var Imperial olíufjelagið í Kanada, sem einkum beitti sjer fyrir olíuleitinni þar i landi að heimsstyrjöldinni síð- ari lokinni. Og 1946 fundu leit- armenn fjelagsins olíu í Alberta sem nú hefur reynst það mikil, að sýnt er, að miljónaframlög fyrirtækisins ætla að borga sig. Imperial hefur í ár varið því- nær 54,000,000 dollurum í leit að olíu og til olíuvinnslu, og fjelaginu þykir hin nýfundnu olíusvæði svo mikilvæg, að það hefur selt olíurjettindi sín í Suður Ameríku, til þess að geta einbeitt sjer að framkvæmdum í Vestur Kanada. Imperial olíufjelagið er nú langsamlega stærsti olíufram- leiðandinn í Kanada.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.