Morgunblaðið - 30.01.1949, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 30.01.1949, Qupperneq 8
Sunnudagur 30. janúar 1949 8 m O R G V N B I 4Ð IÐ Otg.: H.f. Árvakur, Reykjavík Framkv.stj. Sigfús Jónsson. ÚR DAGLEGA LÍFINU Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgóaxm.) Frjettaritstjóri ívar Guðmundssor Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson, Ritstjórn, auglýslngar og afgreiðsl*' Austurstræti 8. — Sími 1G00. Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands, kr. 15.00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók. Utvarp og áróður ÍSLENSKA Ríkisútvarpið er ung stofnun, aðeins treplega 20 ára gömul. En vöxtur þess hefur verið mjög ör. Útvarps- hlustendum hefur fjölgað hratt og þeir munu nú tiltölulega fleiri en víða annarsstaðar. Útvarpið nær nú inn á svo að segja hvert heimili í landinu. Það er ástæða til þess að fagna þessari þróun. Útvarpið er eitt af áhrifamestu menningartækjum nútímans. Og þótt íslenska útvarpinu hafi verið og sje um marga hluti ábóta- vant, flytur það þó hlustendum sínum fjölþættan fróðleik, skemmtun og tilbreytingu í lífi þeirra og starfi. Meginregla Ríkisútvarpsins í stjórnmálum er sú að það er hlutlaust ,,gagnvart öllum flokkum og stefnum í almennum málum“ eins og segir í lögum um útvarpsrekstur ríkisins. Þetta þýðir það að engum einstökum stjórnmálaflokki er heim- ilt nje heldur mögulegt að láta útvarpið túlka málstað sinn einhliða eða flytja áróður til framdráttar hagsmunum sín- um. Hinsvegar eiga allir stjórnmálaflokkar rjett á því að rökræða við þjóðina í útvarp á jafnrjettisgrundvelli. ★ Þó Ríkisútvarpinu hafi gengið misjafnlega vel að fram- fylgja reglum sínum um almennt hlutleysi í stjórnmálum, verður ekki annað sagt en það hafi tekist sæmilega hin síðari ár. Almenningsálitið er nú yfirleitt þannig, að það tekur hart á misnotkun útvarpsins til flokkspólitísks áróð- urs. Það græðir enginn flokkur eða einstaklingur á því að misnota útvarpið og brjóta hlutleysi þess. Þorri þjóðarinn- ar. hefur skömm á slíkum tiltektum, enda þótt einstaka menn kitli í eyrun við að heyra hagsmunum flokks síns hagrætt í útvarp. ' ★ Þrátt fyrir aðhald almenningsálitsins í þessum efnum, bryddir þó öðru hverju á því að pólitískir fiokkar reyni að lauma áróðri sínum á ótilhlýðilegan hátt inn í frjettir eða dagskrárliði útvarpsins. Eitt dæmi um það hefur nýlega gerst. Kommúnistaflokkurinn hefur undanfarið beitt sjer fyrir fundahöldum um þýðingarmikið utanríkismál, sem gert er ráð fyrir að muni bera að á næstunni. Á þessum fundum hafa kommúnistar og fylgilið þeirra, nokkrir skoð- analitlir „uppsiáttarmenn“, látið samþykkja* tillögur, sem hafa falið í sjer ákafan áróður fyrir stefnu kommúnista í utanríkismálum. Hefur jafnframt verið skorað á öll önnur fjelagasamtök í landinu að gera svipaðar samþykktir. Hafa kommúnistar lagt mikið kapp á að þessar áróðurssamþvkkt- ir yrðu birtar í almennum frjettum Ríkisútvarpsins. Þeir hafa viljað fá tækifæri til þess að láta útvarpið veita straum af samþykktum flokksfjelaga sinna yfir þjóðina. ★ Engum nema kommúnistum getur komið til hugar að slík- ur frjettaflutningur samræmist hlutleysisreglum útvarps- ins. Svo auðsær er áróðurinn í tillögum þessum. En það er táknrænt fyrir rjettlætishugmyndir þessara manna, hvernig þeir bregðast við þegar meirihluti útvarps- ráðs gætir skyldu sinnar og kemur í veg fyrir birtingu slíks áróðurs í útvarpinu. Þá ætla kommúnistar að ærast. Út- varpsráð á að hafa brotið allt velsæmi, þröngvað skoðana- írelsi, ritfrelsi og málfrelsi, með því að hafa komið í veg fyrri að áróðurssamþykktirnar væru birtar í útvarpsfrjett- um. Það liggur við að að því sje látið liggja, að útvarpsráð hafi algerlega komið í veg fyrir að þjóðin sæi spekina frá umræddum fundum, jafnvel hindrað birtingu hennar í blöð- um kommúnista!!! En kommúnistar misskilja afstöðu íslendinga til þessa máls eins og fleiri mála. Þjóðin vill ekki gera Ríkisútvarp- ið að áróðurstæki, sem ausi yfir hana áróðri einstakra flokka, eins og tíðkast í þeim löndum, þar sem kommúnistar ráða. En þar é!r það aðeins einn flokkur, sem ræður því. hvað þjóðín má heyra í útvarpi og sjá í blöðum. íslenskir komm- únistar hafa ekki aðstöðu til þess að skapa slíkt ástand í þessu landi. Þeir munu aldrei fá þá aðstöðu. Fyrsta skautamótið á Tjörninni BÆJARBLÖÐIN hafa verið að segja frá því undanfarna daga, að fyrsta skautamótið á Reykja víkurtjörninni hafi verið hald ið fyrir rjettum 40 árum. eða í janúar 1909. Það er ekki rjett, að þetta hafi verið fyrsta skautamótið á Tjörninni. Fyrsta skautamótið, þar sem sigurvegurum voru veitt verðlaun var haldið 10. mars 1896, eða fyrir 53 árum. Og á því móti komu fram keppendur, sem síðar urðu landsfrægir menn. Áður en þetta rpót var haldið höfðu unglingar í Reykjavik oft þreytt með sjer skautahlaup, en verðlaun voru í fyrsta sinn veitt á þessu kappmóti. Það vár Skautafjelag Reykja víkur, sem gekkst fyrir keppn- inni. Kómið var upp tjaldi fyr ir lúðrasveit og þótti mótið hinn mesti viðburður. • Sigurvegararnir KEPPT var í kvenflokki, drengjaflokki og karlaflokki. Dómarar voru þeir Hannes Haf stein, skáld, Magnús Jónsson, síðar bæjarfógeti í Hafnar- firði, og Pjetur Hjaltested. í drengjaflokki varð fyrstur Pjetur Jónsson. Hann varð síð ar frægur óperusöngvari í Þýskalandi og viðar um heim. í kvenflokki kepptu tvær ungar stúlkur, Sigríður Björns dóttir, ritstjóra Jónssonar, systir fórseta íslands og Ásta Sveinbjörnsson, síðar kona Magnúsar Einarssonar, dýra- læknis. í karlaflokki var keppt í fjórum flokkum og margir keppendur. Sigurvegari varð ’Friðrik. Hallgrímsson síðar dómprófastur. • Verðlaunin TVEIM dögum eftir mótið, þ. 12. mars, gekkst skautafjelagið fyrir hófi fyrir keppendur. Þar fór fram verðlaunaafhending. Friðrik Hallgrímsson hlaut að sigurlaunum skautasegl eitt gott. Pjetur Jónsson fjekk barnabók og Ásta Ljóðmæli Hannesar Hafstein. Var þetta hóf fjörugt og skemmtilegt, að sögn þeirra, sem það muna vel. Um þessar mundir var mikill áhugi hjá unga fólkinu’ í bænum fyrir skautaíþróttinni og skautafje- lagið var öflugt fjelag. Er frá þessu sagt hjer til þess að það sje haft, sem rjettara reynist. Því þótt þetta mót hafi eftil- vill ekki verið eins glæsilegt og mótið 1909, þar sem verð- launin voru silfurbikar, þá var það fyrsta skautamótið á Reykjavíkurtjörn, sem sögur fara af. Miklu skemmtilegra í gamla daga HEIMILDARMAÐUR minn fyrir því sem hjer er að fram- an sagt er gamall Reykvíking- ur, fæddur hjer og uppalinn. I sambandi við frásögn hans af mótinu ryfjaði hann upp ýmsar gamlar endurminningar úr fje lags- og skemmtanalífi Reyk- víkinga fyrir 50—60 árum. Og sagði: „Það var miklu skemmtilegra hjer í Reykjavík í þá daga, en nú“. Skal það ekki efað, en segj- um við það ekki öll, þegar við minnumst æskudaganna. í gær hitti jeg Pjetur Jóns- son óperusöngvara á götu og spurði: „Er það satt, að þú hafir sigrað í skautakeppni hjer á Tjörninni þann 10. mars 1896“. „Já, það er satt. Og jeg ætl- aði einmitt að fara til þín til þessN að segja þjer frá, að blöð- in sögðu ekki rjett frá, að fyrsta skautamótið hafi ekki verið haldið hjer í bænum fyr en 1909“. Heilabrot FYRIRSÖGNIN yfir þessari klausu gæti gefið tilefni til að velta því fyrir sjer. hvort hægt sje að reikna með heila- brotum, en velturnar eru heila brot dagbókardeildarinnar í þessu blaði og skal ekki farið lengra út í þá sálma. En það eru fleiri hundar svartir en hundur prestsins, eins og þar stendur og flestir þurfa að brjóta heilan núna þessa síðustu daga þegar frest- urinn til skattaframtals er að renna út. Fyrir miðnætti aðra nótt á skattskýrslan að vera komin til skattstjórans. Það er því ekki furða, þótt margir klóri sjer í höfðinu og nagi pennastengur um þessar mundir. • Ófært skatt- greiðslufyrir- komulag OG skattframtalið minnir á annað mál, en það eru skulda- dagar skattsins, sem fylgja í kjölfar framtalsins. Þeir, sem eru þessa dagana að telja fram tekjur sínar s.l. ár, geta nokk- urnveginn sjeð hvað þeir skulda ríkinu og bæjarfjelagi. „Mig hryllir við að kyssa þig, Fúsi“, sagði kerlingin og eitthvað álíka geta skattgreið- endur sast er þeir hugsa til skuldadaganna. Margir eru búnir að eyða öllu, sem þeir öfluðu. Os mönnum væri ljett ara, ef skatturinn hefði verið tekin af þeim jafnóðum og tekjurnar komu. Það er fyrirkomulag á skatta greiðslum, sem þarf að koma á. í stað þess að geyma það til næsta árs að greiða skatta og skyldur, eins og nú er gert. MEÐAL ANNARA ORÐA . 111111111111 Þýikir stjórnmálamenn heimsækja Bandaríkin Frá JACK SMYTH, frjettaritara Reuters. WASHINGTON — Hinar ró- legu forsetakosningar, látlaus framkoma stjórnmálaleiðtog- anna, lýðræðisandinn í háskól- anum og „allur fjöldinn ,af stórum bílum“ er aðeins nokk uð af því, sem fjórir þýskir stjórnmálamenn ráku augun í og furðuðu sig á, er þeir fyrir skömmu fóru í heimsókn til Bandaríkjanna. Þessir fjórir menn, sem eru meðlimir tveggja aðalflokk- anna á bandaríska hernáms- svæðinu í Þýskalandi. sósíal- demokráta og kristilegra demo krata, fóru fyrst og fremst til Bandarrkjanna til þess að vera viðstaddir forsetakosningarnar þar. En þeir kynntust einnig efnahags- og stjórnmálalífi Bandaríkjamanna í heild. • • ENGIN STYRJALDAR- EYÐILEGGING ÞÝSKU fulltrúarnir komu í ferð sinni við í fjöldamörgum amerískum borgum, meðal annars Boston, New York, Washington, Minneapolis og Detroit. Á kjördag voru þeir í Rochester og fylgdust ineð kosningunum þar. Samkvæmt upplýsingum Louis Kelly, fylgdarmanns þeirra, brá þeim fyrst í brún, þegar þeir sáu borgir, sem engri eyiðleggingu höfðu orðið fyrir. Þeim fannst einnig mjög mikið um stærð og fjölda bif- reiðanna. Einn Þjóðverjanna reyndi að telja þær á fjölfar- inni götu, en hann gafst bráð- lega upp við það verk. í útvarpsræðu, sem hann síð ar flutti hafði hann orð á þessu, og skýrði frá því, að í Þýska- landi gæti enginn enn eignast góða bifreið, nema hann væri þá fjölríkur. • • BANDARÍSKU STJÓRNMÁLA- MENNIRNIR ÞJÓÐVERJARNIR fjórir urðu einnig ákaflega undrandi yfir því, hversu auðvelt var að ná tali af stjórnmálamönnum í Bandaríkjunum. Þeir komust að þeirri niðurstöðu, að banda- rísku stjórnmálamennirnir væru yfirleitt ósparir á tíma sinn, jafnvel þegar allir voru önnum kafnr vegna forseta- kosninganna. Þjóðverjarnir áttu þráfald- lega tal við blaðamenn. En blaðamannafundirnir tókust misjafnlega og þýsku fulltrú- arnir reyndust oft tregir til að láta í ljós skoðanir sínar á við- kvæmum málum. • • VINGJARNLEGAR MÓTTÖKUR EN framkoma bandarísks al- mennings við Þjóðverjana var bæði vingjarnleg og örfandi. Ein af ástæðunum fyrir þessu mun vera sú, að vitað var, að þessir þýsku stjórnmálamenn höfðu ætíð barist gegn nasist- um. I Concord, Massachussetts, ætluðu Þjóðverjarnir ekki að fást til að trúa því, að einn af borgarst j órnarmeðlimunum væri ekki fæddur í Bandaríkj- unum. Dr. Werner Helpert, fjármálaráðherra Hessen, sagði í þessu sambandi, að þetta ætti að auka vonir manna um að flóttafólk gæti fengið algera jafnrjettisstöðu við almenning í Þýskalandi. • • FERÐIN TÓKST VEL KYNNISFERÐ þýsku stjórn- málamannanna lauk í Was- hington og Detroit. Þeir dáð- ust mjög að bandarísku höfuð- borginni og fólkinu, sem þeir mættu í hermálaráðuneytinu og utanríkisráðuneytinu. í Detroit heimsóttu þeir Prnmh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.