Morgunblaðið - 18.02.1949, Síða 1
BiíreiSar teppast í
íömss á Meykjavik-
urffötum
UNDANFARNA daga hefui' kyngt niður miklum snjó hjer i
Reykjavík og hafa margar götur orðið ófærar bifreiðum, en í
fyrrakvöld var færðin víða svo slæm, að bifreiðar festust og
náðust ekki úr sköflunum fyr en í gærdag.
Göturnar ruddar
Verkfræðingadeild bæjarins
hefur unnið að því undanfarna
daga, að ryðja snjónum af göt-
unum og hefur verið lögð meg-
ináhersla á, að halda aðalgöt-
unum og aðalumferðaræðunum
akfærum. Morgunblaðið átti í
gær tal við Einar Pálsson verk
fræðing og spurði hann hvernig'
gengi að halda götunum akfær-
um.
Hann sagði, að erfitt væri að
koma við vjelum á sumum göt-
unum, en unnið væri' eins og
hægt væri að því að gera göt-
urnar færar bílum. í fyrrakvöld
gerði hjer hið versta veður með
mikilli veðurhæð af vestri. Var
vindhraðinn alt að því 10 vind-
stig í verstu hryðjunum.
Götur, sem ökumenn ættu
að. varast.
Einar gat þess, að margir bíl-
ar. hefðu orðið fastir í sköflum
vegna þess, að ökumenn hefðu
ekki gætt þess að velja sjer þær
götur til aksturs, þar sem snjó-
þyngsli eru minnst^í vestan átt
og skafbyl. Venjulegast væri
þæfingurinn minnstur á aðal-
götunum, en verstur á þeim göt
um, sem liggja opnar fyrir út-
synningi eins og t. d Sóleyjar-
gatan, sem var ófær í fyrra-
kvöld og í gærmorgun. Sömu
sögu væri að segja um Eiríks-
götu, Snorrabraut og hluta af
Hringbraut, einkum vestast og
við Hljómskálagarðinn. Það eru
þessar götur, sem bílstjórar
ættu að varast einna helst þeg-
ar veðri er háttað, eins og það
var í fyrrakvöld, sagði Einar
Pálsson.
KAUPMANNAHÖFN: — Tals-
maður danska utanríkisráðuneyt
isins hefur skýrt frá því, að Dan-
ir sjeu reiðubúnir til þátttöku í
Evrópuráði.
Vill aS AHanlshafs-
sáttmálinn nái til
Kyrrahafslanda
CAMBERRA, 17. febr. — Ro-
bert Menzies, leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar í Astralíu, gerði
það í kvöld að tillögu sinni, að
hið fyrirhugaða Atlantshafs-
bandalag yrði einnig látið ná
til Kyrrahafsins, Hann full-
yrti, að kommúnistar ógnuðu
friðnum alveg jafn mikið í
Kyrrahafslöndunum og lönd-
unum við Atlantshaf.
,,Við vitum - það af eigin
reynslu“, sagði Menzies enn-
fremur, ,,að sú styrjöld, sem
brýst út í Evrópu, hlýtur að
ná til okkar, og ef til ófriðar
kemur í Kyrrahafi, nær það til
fleiri heimsveldislanda en
Ástralíu". — Reuter.
UmræSur um kirkju-
mál í Tjekkó-
slóvakíu
PRAG, 17. febr. — Opinberlega
var tilkynnt hjer í Prag í dag,
að byrjaðar væru á ný sam-
komulagsumleitanir milli róm-
versk kaþólsku kirkjunnar í
Tjekkóslóvakíu og aðalfram-
kvæmdanefndar stjórnarinnar.
Umræðurnar munu fyrst og
fremst snúast um skólahald
kirkjunnar í Tjekkóslóvakíu og
framkomnar tillögur frá komm
únistum um að þjóðnýta kirkju
eignir þar. — Reuter.
Kommúnislar á ISIorður-
löndum kallaðir
á Kominformfund
Einkaskeyti til Morgunblaðsins.
K.HÖFN, 17. febr. — Kaup-
mannahafnarblaðið National
tidende skýrir frá því, að
kommúnistar frá Norðurlönd
úm, þar á meðal þrír full-
trúar kommúnistaflokks Dan
merkur, hafi verið kvaddir
á fund Kominform í Buda-
pest til að taka við fyrir-
mælum.
Fundur þessi hófst s. 1.
laugardag og aðalverkefni
hans er að leggja línuna á
Norðurlöndum í sambandi
við umræður, sem farið hafa
fram undanfarið, um að Norð
urlöndin treysti landvarnir
sínar.
Flokksþiitg norska verkamannaflokksins hófst í Oslc í gær
iervarnir og utanríkisstefna
íorðmanna eru aðalmái þingsins
Bandarískir flugmenn í heimsókn á-Spéni.
FYRIR NOKKRU fór sveit bandarískra flugmanna í kurteis-
isheimsókn til Spánar. Foringi fararinnar var William H.
Turner hershöfðingi, sem hefir verið foringi við loftbrúna til
Berlínar og sjest hann hjer fremst á myndinni með spánska
flugforingjanum Carlos Sartorius, sem tók á móti amerísku
sveitinni á flugvellinum í Barajas.
Viðskiftasamningur undirritaður
milli fsiendinga og Tjekka
Viðskiftin á hvora hlið nema um
SEINT í fyrrakvöld barst utanríkisráðuneytinu símskeyti frá
íslensku samninganefndinni, sem undanfarið hefur dvalið í
Prag, um að viðskiptasamningur íslands og Tjekkóslóvakíu
hefði verið undirritaður í fyrradag.
Samkvæmt samningi þessum,^
sem gildir til aprílloka 1950, |
selja íslendingar Tjekþum hrað I
frystan fisk, fiski- og síldar- ^
mjöl, iðnaðarlýsi, þorskalýsi,
gærur, saltsíld, niðursoðnar fisk
afurðir, ull, loðskinn, hreistur
og sútuð fiskroð.
Frá Tjekkóslóvakíu verða
keyptar svipaðar vörur og síð-
astliðið ár. Mun nánar-skýrt frá
I
tjekkneska vörulistanum, þegar ^
frekari upplýsingar hafa borist
ráðuneytinu frá samninganefnd
inni.
Gert fer ráð fyrir að viðskiptin
á hvorá hlið muni nema nálægt
30 millj. ísl. kr.
(Frá utanríkisráðuneytinu.)
15 prestar fyrir rjetti
SOFIA, 16. febr. — Rjettar-
höldin yfir búlgörsku prestun-
um fimmtán, sem ákærðir hafa
verið fyrir njósnir fyrir Bret-
land og Bandaríkin, munu hefj-
ast 21. febrúar. — Reuter.
<S> _____
hátttaka þeirra í
Atlantsh.banda-
lagi talin örugg
Einkaskeyti til Morgunblaðsins*
OSLO, 17. febr. — I dag hófst
hjer í Oslo þing norska verka
mannaflokksins. Viðstaddir
þingsetninguna voru forsætis-
ráðherrar Danmerkur og Sví-
þjóðar, en verkamannaflokk-
urinn bauð þeim til Oslo í ti|-
efni af flokksþinginu Telja
má víst, að umræður á þing-
inu muni að miklu eða öllu
leyti snúast um afstöðu Nor-
egs til hins væntanlega At-
lantshafsbandalags, en ákvarð
anir þingfulltrúanna í því
máli eru vissulega ákaflega
mikilvægar, þar sem það er
OSLO, 17. febr. — Ger-
hardsen, forsætisráðherra
Noregs, neitaði í dag al-
gerlega fregn, sem birt var
í „I^litiken“ og þar sem
því var haldið fram, að
Norðmenn, Danir og Sví-
ar mundu halda með sjer
fund, áður en Noregur
tæki lokaákvörðun um af-
stöðu sína til hins fyrir-
hugaða Atlantshafsbanda-
íags. Gerhardsen bætti við:
„Þó er ekki nema eðlilegt
að gera ráð fyrir því, að
við skýrum öðrum Skand-
inövum frá ákvörðun okk-
ar, áður en við birtum
hana opinberlega.—Reuter
verkamannaflokkurinn, sem
fer með stjórn í Noregi
Mikilsverðar ákvarðanir
Einar Gerhardsen forsætis-
ráðherra flutti aðalræðuna á
fundi flokksþingsins í dag. —•
Skýrði hann fulltrúunum þegar
frá því, að utanríkisstefna Nor-
egs og hervarnir landsins
mundu verða aðalmál þingsins,
en þau mál verða vitanlega á
þessu stigi ekki rædd nema með
tilliti til Atlantshafsbandalags-
ins fyrirhugaða og augljósra
óska Breta og Bandaríkjamanna
um þátttöku Norðmanna í því.
Gerhardsen sagði þingfulltrú-
unum ennfremur, að þær á-
kvarðanir, sem þingið kynni að
taka í þessum málum, mandu
hafa mikil áhrif á stöðu Noregs
á kcmandi árum.
Framh. á bls. 4