Morgunblaðið - 18.05.1949, Page 11
Miðvikudagiy; 18. xnaí 1949.
MORGUNBLAÐIÐ
11
Frá Fegrunarfjelagi Reykjavíkur:
Skrnðgurðoræktun
Fyrri grein.
Eftir E.B. Malmquist.
ÞAÐ VERÐUR að játa. að
ræktunaraðstaða okkar er að
ýmsu leyti erfiðari en t. d. ná-
grannaþjóðanna, en því þrýnni
er nauðsyn þess, að ræktunar-
þekking einstaklinga og bjóðar-
innar í heild verði meiri og
gerðir hennar eftir því.
Þrátt fyrir lágan meðalhita
um sprettutímann — vor og
sumarmánuðina — og óstöðuga
veðráttu er þó öruggt, að rækt-
un okkar, sú, er rniðar að því
að prýða umhverfið og gera það
hlýlegra, getur náð æskilegum
árangri, ef vandað er til undir-
búningsins og hinir tæknilegu
mpguleikar hagnýttir til hins
ýtrasta.
Ef við reisum hús á slæmum
grunni og skeytum ekki um að
fá örugga undirstöðu, getur það
aldrei orðið annað en ljéleg
eða jafnvel algerlega óhæf
bygging. — Þetta vita allir
enda er kappkostað að vanda
svo til bygginga, að svikul und-
irstaða fái þeim ekki grandað,
jafnvel án tillits til þess, hvað
það kann að kosta. Þekkingin
,og raunhæfnin hafa hrósað
■ sigri á því sviði.
En það er öðru máli að gegna
með skipulagningu húslóðar-
innar hjá okkur og stofnun
skrúðgarðsins, þrátt fyrir það
að megin undirstöðuatriðin sjeu
þai sama eðlis eins og í flest-
um verklegum framkvæmdum.
Best og hagkvæmast væri að
taka til greina þegar í byrjun
húsbyggingarinnar, að síðar eigi
að koma trjálundur eða skrúð^-
garður í kringum húsið.
Þegar fengin er jarðýta eða
ippmokstursvjel til þess að
•grafa fyrir húsgruiminum, ætti
ætíð að byrja á því að forða
efsta jarðlaginu frá, þannig að
matarmoldin lendi ekki undir
uppmokstri úr grunninum og
íari þannig forgörðum í stað
þess að koma að notum við
ræktun lóðarinnar.
Ennfremur myndi það auka
mjög lítið á byrjunarkostnað
byggingarinnar, ef graftrarvjel
er fengin á annað borð, að grafa
fyrir aðal-holræsum lóðarinn-
ar, væntanlegum trjábeðum og
jafnvel girðingarstæði, ef á-
formuð er steypt girðing kring-
um lóðina.
Hjer í bænum og nágrenni
hans er jarðvegur yfirleitt frem
ur leirblendinn og frjóefna-
snauður, þungur og kaldur, a.
in. k. þar sem engin ræktun
hefir áður íarið fram og eins
og áður er sagt verður því ávalt
nokkrum erfiðleikum bundið að
hefja ræktunina, enda þótt örð-
ugleikar þessir sjeu á engan
hátt óyfirstíganlegir.
Það má segja, að hornsteinn
skrúðgarðaræktunarinnar hvíli
á eftirfarandi atriðum, sem þeg
ar frá upphafi verður að vinna
að:
1) að garðstæðið sje hæfilega
þurrt, 2) að jarðvegsblandai:
sje ekki of þjett, 3) að loft-
hreyfingar geti átt sjer stað,
4) að rætur gróðursins fái sem
hindrunarminnst og best jarð-
vegssamband, 5) að jarðvegur-
inn sje gerður sem móttækileg-
Myndirnar sýna, hvernig
leggja má steinaræsi.
astur fyrir hitasöfnun frá geisl-
um og bakteríugróðri.
Góð framræsla á húslóðinni
er nauðsynleg svo að segja hvar
sem er í þessu bæjarlandi þótt
mismunandi sje. Hæfilegt er að
holræsin sjeu um 1,20—1,40 m.
að dýpt.
Auðvitað getur komið til
greina að nota ýmiss konar efni
við í holræsin, en ef steinaræsi
eru vel lögð, munu þau reyn-
ast endingargóð og með tilliti
til fullkominnar þurrkunar
landsins þá eigum við ekki
kost á betra efni.
Hvernig best er að ræsa
fram húslóðir er ekki hægt að
gefa neinar algildar reglur um,
og ættu menn, ef kostur er, að
ráðfæra sig við kunnáttumenn
í því efni.
Það má þó segja, að jafnan
skal leitast við að hafa ræsin
sem næst hinum kröfumeiri
gróðri í garðinum, en oft get-
ur þó farið saman að hafa hol-
ræsi meðfram eða undir gang-
stígum.
E. B. Malmquist.
Rímnafjelagið
Frh. af bls. 10.
þeir óvitrustu, sem ekki skilja,
að með þessu eru þeir að fletta
ofan af sinni eigin fákænsku.
Þetta er þegar spor í rjetta átt.
Þó þarf enn að glæða skilning-
inn á þessari einstæðu bók-
mentagrein okkar — hinni þjóð
legustu þeirra allra“.
Stjórn fjelagsins skipa: Jör-
undur Brynjólfsson, alþm ,'for-
seti; Arnór Guðmundsson, skrif
stofustj. Fiskifjelagsins, gjald-
keri; Lúðvík Kristjánsson, rit-
stjóri, ritari; Friðgeir Björns-
son, stjórnarráðsfulltrúi, bóka-
vörður. Til einhvers þessara
manna ber þeim að snúa sjer,
sem gerast vilja fjelagar.
Fjelagsmaður.
Niyada
FJÁRFESTINARLEYFI OG INN
KAUPAHEIMILDIR
ÞAÐ ER ÓHÆTT að segja,
að Framsóknarmenn hafa sjald-
an komist lengra í því að bera
fram tillögur til þess að sýnast
heldur en þegar þeir báru fram
á Alþingi frumvarp, sem með-
al margs annars af svipuðu
tagi, felur það í sjer, að jafn-
framt því, sem einstaklingi eða
fjelagi sje veitt fjárfestingar-'
leyfi, til dæmis til byggingar
húss, þá skuli fjárfestingarleyf-
ið jafnframt gilda sem innflutn-
ingsleyfi fyrir öllu því, sem til
hússins þarf.
Það er óneitanlegt, að slík
tillaga lítur ekki illa út á papp-
írnum og einmitt þessvegna er,
henni varpað fram. Hitt dylst
svo aftur engum, sem athugar
nánar þetta fyrirkomulag, að
það er gersamlega útilokað, að
nokkrum geti dottið í hug, að
það sje framkvæmanlegt.
Takmörkun fjárfestingar.
Þegar gripið var til þess ráðs
að fá nokkrum stjórnskipuðum
mönnum í hendur að segja til
um hverjir mættu festa fje í
framkvæmdum eins og húsbygg
ingum. var þess auðvitað ekki
að dyljast, að slíkt hlyti að vera
óvinsælt. Framkvæmd svo yfir-
gripsmikilla hafta hlaut að
verða örðug og hjer var um
nýja tegund opinberrar íhlut-
unar að ræða, sem hlaut að
koma mörgum að óvörum. Það
þarf naumast að taka það fram,
að á framkvæmd veitingar f jár-
festingarleyfa, hafa orðið ýmis-
leg mistök, þótt samkomulag
sje um, að slíku eftirliti beri
að halda uppi.
Blöð Framsóknarmanna hafa
gert það sem þau hafa getað til
að magna óánægjuna með veit-
ingu fjárfestingarleyfannna.
Það er síst af öllu hægt að hafa
framkvæmdina svo öllum líki,
það hlaut þessvegna altaf að
verða stór hópur óánægðra
manna. Þau sömu mistök áttu
sjer stað við úthlutun fjárfest-
ingarleyfanna eins og við út-
hlutun seðla t. d. til kaupa á
vefnaðarvöru, að menn sátu
uppi með ónýta seðla af því að
engar vörur voru til. Þótt fjár-
festingarleyfi hafi til dæmis
verið veitt til byggingar húss,
þá hefur ekki verið tryggt, að
nægilegar byggingarvörur af
öllum tegundum væru til. Þótt
til dæmis, hafi verið unnt að
fá cement og timbur, hefir ef
til vill vantað flest annað til
húsagerðar, þakskífur, gólf-
dúka, skrár og lamir og yfir-
leitt allt, sem nöfnum tjáir að
nefna.
„Framsóknarmenn hafa gert
sjer grein fyrir þessu missmíði
í framkvæmd fjárfestingarmál-
anna“ segir Tíminn.
Það þarf vitanlega ekki að
táka það fram, að fleiri hafa
tekið eftir þessu en Tíminn, og
hjer í blaðinu hefir oftsinnis
verið á það þent, að um leið og
skömmtunarseðlar væru út-
gefnir, bæri að sjá fyrir því,
að almenningur fengi vörur út
á miðana og hið sama gildir um
fjárfestingarleyfin, að sje leyfi
veitt, t. d. til þess að byggja
hús á tilteknum tíma, þarf um
leið að sjá um, að byggingar-
yörur sjeu til í landinu. Þetta
á auðvitað að framkvæma
með því móti' að sjeð
verði fyrir því, að bygg-
ingarvöruverslanir fái leyfi til
að flytja inn vörur, sem síðan
dreifast á venjúlegan hátt til
þeirra, sem fá fjárfestingar-
leyfi.
Sá háttur hefir verið hafður,
að þeir sem hafa í höndum f jár-
festingarleyfi, hafa orðið að
sýna heimild sína, þegar um’
hefir verið að ræða úttektir á
aðaltegundum byggingarvara,
svo sem sementi, járni og
timbri, til þess að tryggja að
þessar vörur gengju til þeirra,
sem hafa fjárfcstingarleyfi, og
er slíkt sjálfsögð ráðstöfun, með
an þeim höftum er haldið uppi.
sem nú eru á þessum sviðum.
Ný Framsóknarverðbrjef
til sölu.
Framsóknarmenn hugsa sjer
hinsvegar aðra aðferð, en hún
er sú, að jafnframt því, sem
einstaklingur fær leyfi til að
byggja hús, fái hann einnig
innflutnings- og gjaldeyrisleyfi
fyrir öllu, sem til hússins þarf,
hvort sem smátt er eða stórt.
í þessu sambandi hefir alvcg
láðst að geta þess hvernig fara
cigi að því að útbúa slíkt inn-
flutnings- og gjaldeyrisleyfi
fyrir öllu, sem þarf til marg-
brotinnar framkvæmdar, scm
enn er ekki hafin. En slíkt mun
Skúla Guðmundssyni og öðr-
um Framsóknarmönnum sama
sinnis þykja óþarfi, því tillagan
er hvort sem er ekki borin fram
nema til að sýnast.
Þótt svo sýnist sem hver ein-
staklingur gæti samkvæmt til—1
lögunni pantað erlendis frá sjálf
ur allt, sem þarf til leyfðrar
framkvæmdar, munu tillögu-
mennirnir þó tæplega gera ráð
fyrir að slíkt eigi sjer stað og
hver veit þó? Eins og tillagan
er orðuð er slíkt heimilt, en
flestir munu geta sjeð, að þess
háttar er ekki framkvæman-
legt. Almennast mundu leyfis-
hafar afhenda leyfi sín versl-
unum, sem síðan panta vöruna,
en um framkvæmd á slíku er
auðvitað allt í óvissu meðan
enginn getur sagt um hvernig
fyrirhugað er að sjálft gjald-
eyris- og innflutningsleyfið
hljóði.
Einnig má hjer gera þá at-
hugasemd, að ekki verður úr
framkvæmdum fyrir nærri því
öllum, sem fá f járfestingarleyfi.
Veldur því margt, breyttar á-
stæður manna og ýms atvik
sem gera að verkum, að þeim
er ekki unnt að leggja út í fram
kvæmdir, þegar til kemur, þótt
þeir væru alráðnir í að hefjast
handa, þegar leyfið var veitt.
Mun það vera rúmur þriðjung-
ur af leyfðum framkvæmdum
einstaklinga, sem misferst þann
ig á einn og annan veg. Er
glöggt, að það gæti haft ýmsar
varhugaverðar afleiðingar, ef
hópur manna, sem þannig
stendur á fyrir, hefði í hönd-
um gjaldeyris- og innflutnings-
leyfi fyrir mikluir. cf phæðum.
Það þarf vita~ s '.‘:g ekki að
orðlengja, að slík tjE.vij eins og
Framsóknarmenn stinga upp á,
yrðu hin ákjósanlegustu keppi-
kefli og mundu verða álitleg-
ur söluvarningur fyrir þá, sem
hefðu þau í höndum. Þegar svo
hefir farið, að minni háttar inn-
flutnings- og gjaldeyrisleyfi
hafa gengið kaupum og sölum
manna á millí, má nærri geta
hvernig færi Um leyfi eins og
þau, sem Framsóknarmenn ætl-
ast til að gefin verði út. Fram-
sóknarmenft hafa fyrr og síðar
verið furðu lagnir á að útgefa
slík „verðbrjef“.
Það sem býr á bakvið.
Þegar á það er litið, að bæði
fjárfestingarleyfi Og leyfi til
innflutnings eru í höndum eins
og sama aðila, má nærri geta.
að unnt er að koma þ.yí svo
fyrir, að leyfi og vörur standist
á, ef vilji er til slíks. f
Allir, sem til þekkja, hljóta
að sjá hvað býr bak við tillögu
Framsóknarmanna, en eins og
áður er sagt er hún aðeins einn
liður í þeirri viðleitni að not-
færa sjer pólitiskt þá óánægju,
sem er með framkvæmd hinna
mörgu hafta og þcssvegna eru
tækifærin gripin til þess að bera
fram yfirskynstillögur, sem líta
vel út á pappír, en geta aldrei
orðið annað og meira en puppir.
Yfirlýsing
viðskiptamálaráðherra.
Viðskiptamálaráðherra lýsti
því yfir á Alþingi fyrir skömmu
að fyrirhugað Væri að flytja
meira inn af skömmtunarvör-
um en seðlaútgáfu nemur, svo
heldur yrðu til birgðir en hitt.
Þetta er í samræmi vlð það,
sem Mbl. hefir barist fyrir, og
er þess að vænta, að sami hátt-
ur verði tekinn upp hvað við-
kemur þeim vörum, sem til þess
þurfa, að fjárfestingarleyfi geti
ætíð orðið fullgild leyfi og ann-
að og meira en pappírinn einn.
DPPBO
Opinbert uppboð verður haldið að Grjótlæk í Slokks-
eyrarhreppi, Árnessýslu, laugardaginn 21. mai kl. 1
eftir hádegi, og þar selt, ef viðunandi boð fæst: 2—3
kýr, 4 kvígur, 1—2 vagnhross, búshlutir, smíðatól, bygg
ingarefni, girðingarstólpar, re'iðtýgi og margt fleira.
Nókkrir hestar af töðu utan uppboðs.
Söluskilmálar birtir á staðnum.
Hreppstjóri-
AUGLÝSING E R GULLS ÍGILDl