Morgunblaðið - 09.06.1949, Síða 8

Morgunblaðið - 09.06.1949, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 9. júni 1949. Jtg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri ívar Guðmundsson A.uglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla. Austunrtrœti 8. — Sími 1600. Askriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands, kr. 15.0C utanlands. f iausasölu 50 aura *intakið, 75 aura með Lesbók Ráðstefna í Rósahöll ÞANN 23. maí s.l. hittust þeir í Rósahöllinni í París, Ache- son utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Bevin, Vishinsky og Schuman, utanríkisráðherrar Breta, Rússa og Frakka. Var tilgangur þeirra að ræða Þýskalandsvandamáhð. Rúss- ar áttu að verulegu leyti upptökin að þessari ráðstefnu um leið og þeir slökuðu á samgöngubanninu við Berlín. Ráðstefnan í Rósahöllinni fór ekki sem allra verst af stað. Á fyrsta degi hennar náðist samkomulag um dagskrá henn- ar og þótti það ekki sæta litlum tíðindum. Samkvæmt því skyldi í fyrsta lagi rætt um sameiningu Þýskalands, í öðru lagi um Berlínarvandamálið, í þriðja lagi um undirbúning friðarsamninga við Þýskaland og í fjórða lagi friðarsamn- inga við Austurríki. ★ Hvernig hefur nú hinum fjórum stóru gengið að ljúka þessum dagskrármálum? Þeim hefur vægast sagt gengið það mjög illa, svo illa að eftir 14 fundi telja stjórnmálafrjettaritarar í París, að þeir sjeu engu nær samkomulagi en í upphafi fundarins. Umræðurnar hófust um fyrsta atriði dagskrárinnar, sam- einingu Þýskalands. En sjónarmiðin voru mjög andstæð í því máli. Hinir tveir hlutar landsins, hernámssvæði Vestur- veldanna annars vegar og hernámssvæði Rússa hins vegar hafa nú fengið hver sína stjórnarskrá og stjórnskipan, Vestur-Þýskaland frá Bonn en Austur-Þýskaland frá hmum rússneska hluta Berlínar. Meginágreiningurinn um meðferð Þýskalands virðist vera sá að Rússar vilja halda sjer sem mest við ástandið frá 1946. Þeir vilja hafa áfram neitunarvald í herráði Banda- manna í Berlín o. s. frv. Að öðru leyti er Rússum það mikið kappsmál að stjórnar- skrá sú, sem þeir hafa þröngvað upp á hernámssvæði sitt í Austur-Þýskalandi verði látin gilda í öllu landinu og „eining“ Þýskalands framkvæmd á grundvelli hennar. — Stjórnir»Vesturveldanna og forystumanna lýðræðisflokk- anna í Vestur-Þýskalandi benda hins vegar á að sú stjórn- arskrá fullnægi engan veginn þeim kröfum, sem almenn- ingur á hernámssvæðum Vesturveldanna gerir til almennra mannrjettinda og lýðræðishátta. ★ Viðræðurnar í París hafa ekki farið mjög óvinsamlega fram, enda þótt þar hafi kastast í kekki milli Vishinskv og hinna utanríkisráðherranna. En framkoma Rússa í Berlín é meðan Vishinsky ræðir við utanríkisráðherra Vesturveld- anna gefur engan veginn til kynna að hugarfar þeirra hafi breyst mikið eftir að samgöngubannið við Berlín átti að heita afnumið. Sú ráðabreytni Sovjetstjórnarinnar að efna t. d. til heræfinga flugflota síns svo að segja á flugleið Vesturveldanna til Berlínar er ekki sjerstaklega friðsamleg eða líkleg til þess að sýna einlægan vilja til samkomulags um ágreiningsmálin í Þýskalandi. Stefna Vesturveldanna í málefnum Þýskalands virðist vera sú að gefa Þjóðverjum aukið áhrifavald í málum sínum, koma í veg fyrir alla möguleika þeirra til endur- vígbúnaðar, en skapa þeim lýðræðisstjórnskipulag í sam- einuðu Þýskalandi, sem byggt sje upp af hinum ýmsu ríkj- um þess, er njóti allvíðtækrar sjálfsstjórnar um innri mál sín. Rússar hafa hins vegar látið í veðri vaka að þeir vildu efla vald hinnar þýsku ríkisheildar á kostnað hinna ein- stöku ríkja innan hennar. En að sjálfsögðu miðast sú afstaða þeirra við það, að hið sterka ríkisvald, byggist á stjórnar- skránni, sem kommúnistar sömdu í Berlín. ★ Engu skal um það spáð, hver verði niðurstaða ráðstefn- unnar í Rósahöll. Horfur eru þar í bili slæmar. En það er þá fremur ótrúlegt að Rússar hætti á það að láta hana fara gjörsamlega út um þúfur. Sprettur það fyrst og fremst af tvennu: Vissu þeirra um hina nánu samvinnu vestrænna lýðræðisþjóða á grundvelli Atlantshafssáttmálans og vax- andi þörf margra leppríkja þeirra fyrir verslunarviðskipti við Vestur-Evrópu. \Jdar óhri^ar: ÚR DAGLEGA LÍFINU Þá og nú EFTIRFARANDI brjef hefir Dc;lega lífinu borist um fund- arboð og póstútburð: „í Lesbókinni 15. maí ’49 ,er skýrt frá slæmum póstskilum á árunum 1857 og ’58. Sýnir það að „það er ekki ný bóla“ að slíkt komi fyrir. En eftir því sem póstsam- göngur batna og afgreiðslu- möguleikar eru gerðir fullkomn ari, ættu skil á pósti líka að batna — að öðru jöfnu. Svo finnst mjer þó ekki alltaf og að öllu leyti. Nefni svo nokkur dæmi úr næsta nágrenni, nefni lega borginni okkar Reykjavík. • Fundarboð „JEG hefi þrautreynt það, að þurfi maður að senda út fund- arboð með pósti hjer, má fyrir varinn helst ekki vera styttri en vika, ef nokkurnveginn trygt á að vera, að boðið verði komið flestum móttakendum í hendur í tæka tíð. En þó er altítt að þetta sje ekki nóg; hefi jeg margreynt, að skilin hafa tekið um og yfir hálfan mánuð á sum um brjefunum. Hjer eru svo tvö skýr dæmi: • Leið og beið „HINN 10. nóv. síðastliðinn sendi jeg út nokkuð á annað hundrað brjefa. Utanáskriftin var skýr og hvert brjef greini- lega merkt til endurskila, ef móttakandinn fyndist ekki. Nú leið og beið, ekkert brjef kom til baka á „normal“-tíma, en um hitt, hvort öll hafa kom- ist til skila, er mjer ókunnugt, því að 13 fjelagsmenn hafa engin skil gert á vetrinum; er þó engin ástæða til að ætla að þeir hafi ekki fengið sín brjef. En 19- des., röskum fimm vikum eftir að brjefin voru lögð í póstinn, kemur eitt þeirra til baka með áletruninni — „Flutt“. Þetta eru Ijeleg skil. Þó er hitt enn verra. Þessu brjefi fylgdi til mín brjef, sem lagt vár í póst hjer í Reykjavík 27. apríl 1948 (skilað 19. des. 1948). Það var því átta mánuði á leiðínni milli húsa hjer í bæn- um. o Eins og fyrir 90 árum „AUÐVITAÐ er sjálfsagt að viðurkenna, að áritunin á þetta brjef var mjög ófullkomin. — Sendandamerkið var þó afar skýrt, svo að vel hefði mátt end ursenda honum brjefið strax. En svo var líka hægt með einni upphringingu að fullkomna árit un brjefsins, og gaf hin ófull- komna áritun greinilega bend ingu um, hvar upplýsinga um það væri að leita. Svona geta póstskilin verið enn í dag eins og fyrir 90 árum, en mikill er þó munurinn á því hversu ljettara er að vinna þessi störf nú en þá, og meiri möguleikar á að Vinna þau betur“. • Ljelegir áhorfendur ÍSLENDINGAR eru ljelegir áhorfendur. Þeir kunna ekki að koma fram sem áhorfendur, haga sjer oft eins og óþroskað- ir krakkar, þegar þeir eru komnir einhversstaðar saman í hóp. Þetta kom meðal annars í ljós á síðasta leiknum við bresku knattspyrnumennina. Einn áhorfandanna hefir skýrt Daglega lífinu frá því, að svo mikill múgur hafi þust inn á knattspyrnuvöllinn að leikslok um, að knattspyrnumennirnir hafi átt erfitt með að komast til búningsklefa sinna. • Margcndurtekin tilmæli ÞARNA höfðu áhorfendurnir að engu hin margendurteknu tilmæli, sem heyra má á öllum íþróttamótum hjer á landi: — Áhorfendur eru vinsamlega beðnir um að fara ekki inn á ' völlinn að leilc loknum. Það er skiljanlegt þótt ungl- ingar og börn gleymi sjer eft- ir „bardagann“ og reyni að rjrðja sjer braut að íþróttahetj- unum sínum. Fullorðið fólk ætti hinsvegar að geta staðist þessa freistingu. o Kappreiðar Fáks STUNDUM kemur það jafnvel fyrir, að áhorfendurnir stofna lífi sínu í hættu með því að rjúfa allar reglur samkomu- svæðisins. Eftirfarandi brjef vekur athygli á be^su: „Hestamannafjelagið Fákur heldur árlega kappreiðar á 2. í hvítasunnu. Kappreiðarnar eru vinsælar og draga að sjer mikinn fjölda áhorfenda. — Margir þeirra eru svo fádæma kærulausir, að það má heita mesta mildi, að stórslys skuli ekki þegar hafa hlotist af. © Lögregla gætir áhorfenda „ÞEIR gera sjer það meðal ann ars að leik að hlaupa yfir skeið völlinn. Þeir setjast innan við girðinguna við völlinn, cn hún hefir auðvitað fvrst og fremst verið reist með það fyrir aug- um að halda áhorfendunum frá keppnisbrautinni. Og loks standa hinir brntlegu áhorfend- ur á enda brautarinnar, þar sem hestarnir koma í mark. „Þetta er auðvitað stranglega bannað. Þetta kæruleysi gæti auðveldlega valdið stórslysi. —- Þegar hestarnir koma í mark, eru það þeir, sem ráða ferðinni, og áhorfendur á vegi þeirra gætu slasað bæði sjálfa sig, knapa og hest. „Á kappreiðum Fáks voru margir lögregluþjónar til bess að gæta áhorfendanna. Þó dugði það ekki til og fiöldi manna þverbraut allar reglur skeið- vallarins“. tlllllllHMIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIflllllllllllHMIIIIIIIMIIUItllllMlfMIIIMIIIIIIIIIMllllliiiiiiiiiiinniuiiiiiniiKiiiiifiniiiiiiiiHifiilMlllllllllllli | MEÐAL ANNARA ORÐA . . “•I Mlllll •1111111111111111111111111 lllllll II llllllllllllllllllllllllllfirillllllllllllllMIIMIIIIIIIIIHII' I i Prag í vandræðum í ENGU LANDI hefir valdataka kommúnista haft svo skyndi- lega og ákafa hrörnun lífskjara í för með sjer og í Tjekkósló- vakíu. Tjekkar, sem áður nutu svipaðra lífskjara og þjóðir Vestur-Evrópu, eru nú álíka á vegi staddir og hinar sára fá- tæku þjóðir Austur-Evrópu. ÓSTJÓRN KOMMÚNISTA ÓSTJÓRN kommúnista í Tjekkoslóvakíu í atvinnumál- um og fjármálum hefir komið í ljós á margan hátt_ Allt at- vinnulífið hefir verið hnept í fjötra pólitískia tilskipana. — Sjerþekkingunni hefir verið útrýmt úr verslun og iðnaði, en í stað hennar 'hafa sendi- sveinar kommúnista ruðst þar inn. Verkalýðsfjelögin hafa verið ,,skipulögð“ eftir Sovjetfyrir- mynd. Verkamönnum hefir ver ið fyrirskipað að vinna eftir á- kveðnum vinnuhraða og til að knýja hann fram hafa kommún istar ekki hikað við að beita ýmiskonar þvingunarráðstöfun um. Meðal mikils fjölda verka- manna ríkir mikil beiskja og vonbrigði vegna þessa ástands. UTANRIKIS- VERSLUNIN ONNUR þýðingarmikil ástæða fyrir hinni almennu skerðingu lífskjaranna hefir verið íú breyting utanríkisverslunarinn ar, sem kommúnistar og þá fyrst og fiemst Rússar, hafa unnið ötullega að. — Gagn- stætt því, sem gildir um önn- ur lönd fyrir austan járntjald- ið, hefir Tjekkoslóvakía fengið mjög mikinn hluta hráefna sinna frá Vestur-Evrópu. Jafn- vel árið 1947, þegar reynt var eftir megni að auka verslunina við Austur-Evrópu, fluttu Tjekkar inn fimm sinnum meira frá Englandi og Banda- ríkjunum en frá Sovjet-Rúss- landi. Eftir valdatöku komm- únista hefir Tjekkoslóvakía að verulegu leyti slitið sig úr við- skiptalegum tengslum við Vest- ur-Evrópu, til þess að þóknast Rússum. SovjetRússland, sem árið 1947 var fimmti stærsti seljandi Tjekka (næst á eftir Svíþjóð) og sjöundi í röðinpi af kaupendum, varð árið 1948 langsamlega stærsta viðskipta- land Tjekkoslóvakíu. -— Þessi breyting hefir haft örlagarík áhrif á fjárhag Tjekka. — Inn- flutningurinn hefir bæði orðið dýrari og verri. í öðru lagi hef- ir hinn mikli útflutningur Tjekka til Rússlands gert þá gjörsamlega háða því verðlagi, sem ákveðið er í Moskva. • • STJÓRNIN í VANDRÆÐUM AFLEIÐINGAR þessarar stefnu stjórnarinnar í Prag eru ekki ennþá að öllu leyti komnar í ljós- Er það m.a_ að þakka lán- um þeim, sem Bretar veittu Tjekkum, meðan það var enn lýðræðisþjóð. En nú eru þessi lán að verða búin. Þrátt fyrir hinar stöðugu árásir kommún- ista í Prag á hið „breska auð- vald“, hafa þeir mikinn áhuga fyrir að fá nýtt breskt lán_ — Þessvegna hafa fyrir skömmu verið teknir upp viðskiptasamn ingar milli Tjekka og Breta í London. Fyrir nokkrum mánuð um var einnig send tjekknesk viðskiptanefnd til Bandaríkj- anna, til þess að reyna að fá þar stór lán. Þeir samningar urðu árangurslausir. — Hins- vegar notaði einn af samninga- mönnum Tjekka tækifærið til þess að komast undan stjórn Gottwaids, og gaf Bandaríkja- mönnum tækifæri til þess að Framhald á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.