Morgunblaðið - 16.06.1949, Síða 5

Morgunblaðið - 16.06.1949, Síða 5
f Fimmtudagur 16- júní 1949. MORGUNBLAÐIÐ 5 Islensku bridgemennirnir, sem fóru til Færeyja. Myndin er tekin Jim borð í „Drottningunni“ (talið frá vinstri): Einar Ágústsson, jÖrn Guðmundsson, Skarphjeðinn Pjetursson, Sigurhjörtur Pjet- ÍU'sson og Gunngeir Pjetursson. © 0ii 91 ísl. bridgemcmnii EINS og áður hefur verið skýrt frá hjer í blaðinu komu bridge- mennirnir fimm, sem fóru til Þórshafnar í Færeyjum í boði P,Thorshavnar bridgefelag“ með ,,Drottningunni“ s.l. mánudag. Það var sveitin, sem var önnur í ,,Parísar-keppni“ Bridge sambands íslands, en í henni eru: Gunngeir Pjetursson Finar Ágústsson, Sigurhjörtur Pjetursson, Skarphjeðinn Pjetursson og Örn Guðmundsson. f,Thorshavnar bridgefjelag“ 'í> Bridgemennirnir ljetu mjög vel yfir Færeyjarförinni, er blaðið átti tal við þá í gær. „Thorshavnar bridgefjelag“ er 12 ára gamalt- Meðlimir þess eru um 45, alt ágætismenn, sem hafa mikinn áhuga á bridge Spiluðu íslendingarnir þar alls sjö leiki, og tóku flestir með- limir bridgefjelagsins þátt í þeim. í öllum þessum leikjum höfðu íslendingarnir betur. i l'æreysku bridge-menniruir Það, sem háði Færeyingun- um mest í þessari keppni, var övani þeirra að spila við ökunna menn, og einnig virt- ust þeir nokkuð taugaóstyrkir. Nokkur ónákvæmni var einnig í varnarspili þeirra og sagnkerf Sð ekki nógu nákvæmt, en þeir spiluðu yfirleitt vel úr spilun- um. Mennirnir eru skiljanlega nokkuð misjafnir, en að okkar <dómi geta þeir vel stillt upp góðu liði, sambærilegu við sæeistaraflokksliðin hjer* sögðu íslendingarnir, Keppnin í Fær- eyjum fór ágætlega fram und- ir stjórn Jakob Veyhe. Auk þess, sem íslendingarnir kepptu, spiluðu þeir einnig í heimahúsum flest kvöldin, á meðan þeir dvöldu í eyjunum. Ágæíar móttökur Bridgemennirnir rómuðu snjög móttökur Færeyinga, sem þeir kváðu framúrskarandi góð ar. Þeir fengu heilt hús til um- ráða á meðan þeir • dvöldu þar, hjá einum af bestu bridgespil- urunum, Roland Hansen, en xjölskylda hans var ekki heima. Fjórir þeirra voru þar, en einn hjá Gullak Zachariasens gjald- kera bridgefjelagsins. Eyjarnar skoðaðar Farið var með íslendingana íil Kirkjubæjar og þeim sýnd- 5r allir helstu staðir í nágrenni Þórshafnar.'Þá vár fárlð nieð þá í hringferð um Straumey á fc>át og bíl. Fannst þeim mjög mikið til þeirrar ferðar koma, bæði fyrir náttúrufegurð eyj- arinnar og hrikaleik. Einum þeirra fjelaga var og boðið til Suður-eyjar til að vera þar við- staddur færeyskt . kirkjubrúð- kaup. Var það ánægjuleg ferð. Á hvítasunnudag voru bridge mennirnir í boði Páls Ólafsson- ar, íslenska ræðismannsins Þórshöfn. Kveðjubóf Bridgefjelagið hjelt íslend- ingunum kveðjuhóf áður en þeir fóru og gáfu sveitinni áletr aðan silfurbikar til minningar um komuna. Skemmliferð iil Veslmannaeyja UM NÆSTU helgi ráðgerir Ferðafjelag íslands skemmti ferð loftleiðis til Vestma.ina eyja. Eyjarnar eru mjög sjer- kennilegar og fagrar og nú sá staður landsins, sem ber einna mestan vorsvip. Fjöldi af fögr- um stöðum er um Heimaey alla og útsýnin af Heimakletti (283 m.) eða Helgafelli er með af- brigðum tilkomumikil. Þeir staðir í Eyjum, sem þátttakend ur fyrirhugaðrar ferðar munu heimsækja eru t. d. Höfnin, Skansinn, hið forna varnarvígi Eyjanna, Helgafell, eitt form- fegursta eldfjall íslands. Þá verður farið út í Höfða, 5 km. leið frá kaupstaðnum og Hófða hellir skoðaður. Auk þess geng ið á Heimaklett eða Klifið, klettafell eggsljett ofan sem tún og fleiri staðir heimsóttir. Árbók F. í. hin síðasta er ein- mitt um Vestmannaeyjar. Far- ið verður, ef þátttaka verður nóg, eftir hádegi á laugardag og komið aftur á sunnudagskvöld. I björtu veðri er flugleiðin til Eyja ljómandi falleg. Væntan- legir þátttakendur snfd sjer til Ferðafjelags íslands, Túng^fu 5', sem gefur allar nánari upplýs- ingar. ■ ■ ■ íslandsmótið: Valur -1A 0:0 ÍÞRÓTTI -® FRA BELFAST ■ ■ ■ ■ FIMTI leikur íslandsmótsins fór fram á íþróttavellinum á þriðjudagskvöldið og kepptu þá Valur og í. A. Þegar í byrjun leiks hafði Valur betra vald á leik sínum og gerði marga skiplega sóknar at'löguna, en þó að þessi sam- leikur Valsmanna væri oft lag- legur, var hann óvirkur vegna þess, að hann var of þur og skorti allan hraða. Veitti því Akurnesingum Ijett að hrinda atlögum Valsmanna, enda hafa þeir allgóðri vörn á að skipa með Dagbjart Hannesson sem besta mann. Fyrri hálfleikur var að mestu leikinn á vallarhelmingi í. A., en þó gerðu þeir áhlaup á vörn Vals annað slagið, en sem ekki bar þó árangur. Ekki vantar þó hraðann í leik í. A., hins- vegar eru margir leikmenn þess mjög ónákvæmir í sendingum og er það mikið tjón fyrir leik þeirra. Fyrri hálfleikur endaði án þess að nokkuð mark væri skor- að og reyndi þó nokkuð á mark- vörð I. A. Magnús Kristjánsson, sem gerði margt mjög fallega. Seinni hálfleikur: Fyrstu mín útur seinni hálfleiks var Valur í sókn og komst Jóhann, hægri úth. í gott skotfæri, en hitti ekki. Þegar líða tók á, fóru Ak- urnesingar að sækja á og komst mark Vals nokkrum sinnum í hættu. Einkum má nefna það, þegar knötturinn lá í neti Vals eftir að Guðmundur miðfr.h. hafði spyrnt honum úr þvögu, en þetta mark var gert ógilt, vegna þess að knötturinn hafði snert hendi hans að sögn dóm- arins. Leiknum lyktaði 0—0 og er jafntefli sanngjörn úrslit. Bestan leik sýndi hægri fram vörður Vals, Gunnar, hefur hann verið í ^töðugri framför í vor og má vænta mikilis af honum, ef svo heldur áfram. Hinsvegar var sóknarlína Vals mjög slöpp. Sveinn gerir allt of mikið af því, að senda knött- inn aftur fyrir sig, a.-m. k. ætti hann að athuga, að ekki er skyn samlegt að senda knöttinn aftur fyrir sig, þegar komið er inn undir markteig andstæðingsins, en það ljet Sveinn sjást til sín í leik þessum. Halldór Halldórs- son var ekki eins góður nú og hann hefur áður verið, enda hafði hann harðsnúinn andstæð ing að eiga við, þ. e. hægri fram vörð I. A. Sveinn Teitsson. sem var nú einn af bestu mönnum síns liðs. — Dómari var Þor- lákur Þórðarson. Eftir þennan leik hafa öll fje- lögin, sem taka þátt í íslands- mótinu leikið tvo leiki og er staðan þannig: Reynir Sigurðsson. REYNV Sig- urðssyni, sem dvaiið hefur við nám í Lon don í vetur, var nýlega boð ið til Belíast í Norður-Ir- j landi til þátt- töku í alþjóða frjálsíþrótta- móti, sem þar var haldið. — Ameríkumennirnir, sem tóku þátt í Sex-landa-keppninni og Fanny Blankers-Koen voru m. a. meðal þátttakenda. Reynir hefur sent blaðinu eft irfarandi grein um írlandsferð- ina: BELFAST, 10. júni: — Jeg kom hingað til Belfast í gær í j boði Royal Ulster Constabulary til að taka þátt í móti, sem hjer er haldið. Ameríkumennirnir, sem tóku þátt í Sex-Ianda- keppninni eru hjer. Þeir kepptu í Dublin í fyrradag, komu hing- að í gær og fóru hjeðan í gær- kvöldi til Glasgow og keppa þar í dag. í Dublin vann Dillard 220 yrd. á 22,0 sek., Fox 880 yrd. á l. 55,7 mín., Frakkinn Heinrich 120 yrd. grintíahlaup á 15,2 sek., Bandarikjamaðurinn Ault 440 m. grind&hlaup á 54,2 sck., D. Phillips, USA, hástökk á 1.93 H. Douglas, USA, langstökk á 7,02 m. og Fanny Blankers- Koen 80 m. grindahlaup kvenna á 12,2 sek. Hún vann eínnig forgjafakeppni í 100 yrd. á 11.0 sek. Fyrir keppnina í gær var öll- um erlendu þátttakendunum boðið til hádegisverðar. Meðal gesta var forsætisráðhena N- írlands, Sir Basil Brooke og æðsti maður lögreglunnar-hjer, Sir Richard Pim. Hann sagði mjer, að hann hefði komið með Churchill til íslands á s'ríðs- árunum. J í keppninni um kvöldið var ! þeim Dillard og Fanny Blankers I -Koen tekið með bestum fögn- uði sem nærri má geta. Áhorf- endur tóku því með dynjandi lófaklappi er þulurinn tilkynnti að meðal þátttakenda í mótinu væri fyrsti íslendingurinn sem keppti á írskri grund. Fanny Blankers-Koen er in- dæl kona. Hún íók ekki úia í, þegar jeg spurði bana, hvort hún vildi ekki koma til Islands, þótt seinna yrði. í gær keppti jeg í 220 yrd. og varð fjórði. Bolen, USA, vann á 22,6 sek. Dillard vann 100 yrd. á 10,2, Bolen 440 yrd. á 50,6, Dillard 120 yrd. á 14,8, Ault 440 yrd. grindahlauD á 55,4 sek. og Blankers-Koen 80 m. grindahlaup á 12,0 sek. í dag varð jeg 4. í 100 yrd. ISFOR N-ÍRLAND við fyrstu grind. Og þá var sá araumurinn búinn. Móttökurnar hjer hafa vcrið dásamlegar og ferðin hin skemti legasta í alla staði. Einna mest þótti mjer þó varið í að kynnast og talá við Fanny Blankers- Koen. — Reynir. Um 100 þáttiakendur í 17. júní móti GERT er ráð fyrir að um 100 íþróttamenn og konur taki þátt í 17. júní-mótinu, sem fram fer hjer í Reykjavík á þjóðhá- tíðardaginn. Þjóðhátíðarnefnd skýrði blnða mönnum frá þessu í gær. Mót- inu verður ekki lokið 17. júní og heldur áfram þann 18., eins og venja hefur verið. Á þjóðhátíðardaginn verður keppt i 9 greinum, 3 00 metra hlaupi. bæði kvenna og karla. Taka 15 stúlkur þátt í þessari keppni og 21 karlmaður. — í kúluvarpi verða níu, stangar- stökki 3. Sex eru skráðir i spjót kasti, þrír í 5000 m hlaupi. og svo munu fimm sveitir keppa í 1000 m boðhlaupi. Ennfremur verður leikfimi- sýning karla, flokkur KR-inga sýnir. Þá sýna Ármenr.ingar, KR-ingar og piltar úr UMFR, glímu, en nokkrar stúlkur úr Ármanni, KR og ÍR keppa í kassaboðhlaupi. Keppt verður einnig í pokahlaupi og loks eggjaboðhlaup. I frjálsíþróttunum tekur þátt íþróttafólk úr öllum frjáls- íþróttafjelögum Reykjavíkur, frá UMF á Selfossi. Siglfirðing- ar og Hafnfirðingar. Vinna hafin í BRISTOL, 15. júní: — Hafnar verkamenn i Bristol eru alli komnir til vinnu og vin.na ru að fermingu og afferminga 2( skipa, þar á meðal skipsin; Montreal City, en aíferminj þess skips kom verkfallsöld unni af stað fyr4r einum mán uði- — Reuter. L U J T M St. og vann minn riðil í 120 yrd. | K R 2 1 1 0 6:4 3 grindahlaupi á 17,0 sek. Jeg tók 1 í A 2 0 2 0 3:3 2 það róle^a í undanrásirmi, ætl- | Víkingur 2 1 0 1 5:5 .2 aði að spara mig til úrslitanna, \ Fram 2 "1 0 1 5:6 2 en varð þá fyrir því óhappi, | Valur 2 0 1 1 2:3 1 vegna óvanans að keppa á gras- 1 braut, að renna og hálfdetía og OELTA M Vv dieselvjelar fyrir sjó og land. 5 hesta til '000 ■: hesta. Stuttur afgreiðslu t frestur. t Sturlaugur 3ónsson,« Co. j Hafnarstr. 15, sírrií 4680. ’ nmtiuiiiKiiiiiiiiiiiiinifininraiiimnqriiSi.nni'Tiji

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.