Morgunblaðið - 21.06.1949, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.06.1949, Blaðsíða 12
VKWIÍ! Þriðjudagur 21- júni 1949. 12 MORGUNBLAÐIÐ Karl Sigurðsson' verslm- Minningarorð I DAG er til moldar borinn Karl Sigurðssðn verslunarmaður, en hann andaðist í Lhndakotsspítala 13. þ. m. Karl var fæddur að Háfi í Holt- um 8. des. 1904 og voru foreldr- ar hans Sigurður Þorgeirsson bóndi þar og kona hans Þorbjörg Simonardóttir. Karl var aðeins á þriðja ári, þegar faðir hans drukknaðí, frá mörgum börnum í ómegð. Var hann skömmu síðar tekinn til fósturs af hinum merku hjónum, sjera Ólafi Finnssyni í Kálfholti og konu hans Þórunni Ólafsdóttur. Ólst hann upp hjá þeim fram undir fermingaraldur, pn naut þeirra ekki lengur, því þau dóu þá og várð skammt í milli þéírra. Fói* Karl eftir ferm- ingu til náms á vegum fóstur- systkina sinna, fyrst í Flensborg- arskólann í Hafnarfirði og síðan í Gagnfræðaskólánn á Akureyri, en þar var þá skólameistari Sig- urður Guðmundsson, en kona hans er Halldóra.. Ólafsdóttir, Finríssonar, frá Kálfholti. Lauk hann þar gagnfræðaprófi. Eftir það stundaði Karl ýmis- konar vinnu, en. gerðist síðan starfsmaður við Bókaverslun Sig- fúsar Eymundssonar og vann þar i fjölda mörg ár og allt þar til hann varð að hætta starfi upp úr síðustu áramótum vegna veik- inda. Hann var . samyiskusamur og lipur starfsmaður, en.naut sín ekki sem skyldi sökum heyrnar- deyfu, enda grunur minn, að hann hafi mörg hin síðustu árin að öðru leyti ekki gengið heill til skógar. Rann var.að eðlisfari dul- ur maður og lítt-fyrir -að láta í Ijós, þótt fyndi.. til. Karl var greindur vel og hafði vndi af ða lesa góðar bækur, enda ias hann mikið og var því fróður um margt. Hann var mjög við- kynningargóður maður, vildi hvers manns bón gera og því sjerstaklega vel Játinn af öllum þeim, sem við hann áttu.skipti. Karl kvæntist.1936 eftirlifandi konu sinni, Mörtu Guðjónsdóttur, ágætri konu, og eignuðust þau þrjú börn, hið elsta 12 ára, en yngsta 2 ára. Karl vár ágætur heimilisfaðir, sem Ij’et sjer mjög umhugað um heimili sitt og börn sín. Er því mikill harmur kveðinn að konu hans og hinum ungu börnum þeirra að missa hann á besta.aldri. Vil jeg svo að lokum enda þessi fátæklesu minningarorð með því að þakka hinum látna frænda mínum og vini fyrir góða viðkynningu um leið og jeg sendi eftirlifandi konu hans og börnum samúðarkveðju. J. J. S. Veglegt samsæti í tilefai 19. júní DAGUR kvennanna, 19. júní, var haldinn hátíðlegur með f jöl- mennu kaffisamsæti, er Kven- rjettindafjelag íslands gekkst fyrir í Tjarnarkaffi á sunnu- dagskvöldið. Heiðursgestir voru forsetafrú Georgia Björnssop, sendiherra Dana, frú Bodil Beg- trup og frú Stella Kornerup, frá Danmörku. Hófið hófst með því, að for- maður skemmtinefndar frú Guð rún Guðlaugsdóttir bauð gesti velkomna með nokkrum orðum. Síðan ávarpaði frú Sigríður Magnússon, formaður Kvenrjett indafjelagsins, heiðursgesti sjer staklega. Þá flutti frú Bodil Begtrup skemmtilega ræðu. Gat hún þess sjerstaklega, hve mikinn hlýhug íslenskar konur hefðu sýnt henni og hve vel henni liði hjer. Næst talaði frú Stella Korn- erup, sem er hjer í heimsókn á vegum Kvenrjettindafjelags ís- lands. Frú Kornerup hefir um margra ára skeið verið lífið og sálin í samvinnu norrænna kvenna og hefir ;hún gengist fyrir nokkrnum kvennamótum á hinum Norðurlöndunum. Sagði hún í ræðu sinni að sig langaði mjög til þess að hægt væri að halda norrænan kvenna fund hjer á íslandi á næstunni. Þá las frú Guðrún Guðlaugs- dóttir upp smásögu og flutti frumort kvæði. Og að lokum var dansað til kl. 1. Hóf þetta var mjög fjölsótt og skemmtu konur sjer prýðilega. Framhald 17.-júns mófsins: Finnbjörn vann 200 metra á 21,9 sek. 17. JÚNÍ.-MÓTIÐ hjelt áfram s. 1. laugardag. Þann dag vakti 200 m. hlaupið mesta athygli. Haukur Clausen, sem hefir ver- ið þar ósigrandi undanfarin tvö ár, varð nú að láta sjer nægja þriðja sætið, sem er óvenjuleg- ur staður fyrir hann. Haukur tók þegar forystuna og var orð- inn fyrstur, en er líða tók á hlaupið, fór hann að gefa sig. Finnbjörn, sem var með hraðan endasprett, fór fram úr honum, og á marklínunni náði Guð- mundur Lárusson honum einnig. Finnbjörn hljóp á 21,9 sek., sem er besti tími, sem hann hefir náð í þessu hlaupi. Hann ler annar íslendingurinn, sem hleypur innan við 22 sek. Timi Guðmundar er þriðji besti tími íslendings í 200 m. Hauk skorti bersýnilega úthald, sem stafar af því, hve takmarkað hann hef ir getað æft í vor vegna meiðsla í fæti. Aftur á móti hefir hann síst minni flýti en áður. Gefur það vonir um, að hann nái betri árangri síðar í sumar en nokkru sinni fyrr. Finnbjörn hefir aldrei verið sterkari en nú og er þá nokkuð sagt. Framfar- irnar hjá Guðmundi Lárussyni eru jafnvel meiri en bjartsýn- ustu menn þorðu að vona, er þeir sáu fyrst til hans í fyrra- haust. Hörður Haraldsson vill gleymast, þegar talað er um hlaup þetta — en það er ástæðu laust að gleyma honum. 22,6 hefði einhverntíma þótt boðleg ur tími og er sjöundi besti ár- angur íslendings. 110 m. grindahlaup vann Ingi Þorsteinsson á 16,0 sek., en Sig- urður Björnsson hljóp á 16,1. Þetta eru 4. og 5. bestu tímar íslendinga í þessari grein. Há- stökkið vann Halldór Lárusson óvænt, stökk 1,75 m. — ÍR stillti nú upp sterkustu sveit sinni í 4x100 m. boðhlaupi og vann með yfirburðum á 43 sek., sem er aðeins 1/10 sek frá íslands- metinu. Stúlkunum er alltaf að fara fram, að minnsta kosti í hlaup- unum og halda áfram að bæta metin. Sem fyrr ganga KR- stúlkurnar þar á undan. Úrslit 200 m. hlaup: — 1. Finnbjörn. Þorvaldsson, ÍR, 21,9 sek., — 2. Guðmundur Lárusson, Á., 22,0 sek., 3. Haukur Clausen, ÍR, 22,0 sek. og 4. Hörður Haraldsson, Á, 22.6 sek. Hástökk: — 1. Halldór Lárus- son, Á, 1,75 m., 2. Kolbeinn Krist insson, Selfossi, 1,70 m., 3. Sig- urður Friðfinnsson, FH, 1,70 m. og 4. Eiríkur Haraldsson, Á, 1,65 metir. Kringlukast: — 1. Gunnar Huse by, KR, 42,35 m. 2. Friðrik Sig- urðsson, KR, 40,97 m. 3. Gunnar Sigurðsson, KR, 40,21 m. og 4. Þorsteinn Löve, ÍR, 38,76 m. 1500 m. hlaup: — 1. Stefán Gunnarsson, Á, 4,17,2 mín. og 2. Þórður Þorgeirsson, KR, 4.18,0 mín. 400 m. hlaup: — 1. Sveinn Björnsson, KR, 52,1 sek. 2. Ingi Þorsteinsson, KR, 53,7 sek. og 3. Skúli Magnússon, Á, 55,4 sek. 110 m. grindahlaup: — 1. Ingi Þorsteinsson, KR, 16,0 sek. og 2. Sigurður Björnsson, KR, 16,1 sek. Langstökk: — 1. Torfi Bryn- geirsson, KR, 6,89 mín. 2. Magnús Baldvinsson, ÍR, 6,56 m. 3. Halldór Lárusson, Á, 6,49 m. og 4. Guðm. Árnason, ÍBS. 6,26 m. Stangarstökk: — 1. Torfi Bryn geirsson, KR, 3,80 m. 2. Kolbeinn Kristinsson, Selfossi, 3,50 m. og 3. Bjarni Linnet, Á, 3,30 m. 4x100 m. hlaup: — 1. ÍR, 43,0 sek. 2. Ármann, 44,0 sek. 3. KR, 45,2 sek. og 4. Ármann (B) 46,9 sek. — í ÍR-sveitinni voru: Stefán Sörensson, Finnbjörn Þor valdsson, Örn og Haukur Clau- sen. Kúluvarp kvenna: — 1. Dagg- rós Stefánsdóttir, Á, 8,06 m. 2. Margrjet Margeirsdóttir, KR, 7,92 m. og 3. Steinvör Sigurðardóttir, Umf. R., 7,49. m. 4x100 m. boðhlaup: — 1. KR (A), 56,7 sek., 2. KR (B), 59,1 sek. 3. ÍR, 59,3 sek. og 4. Ármann 60,1 sek. — Hinir nýju íslands- meistarar eru: Elín Helgadóttir, Helga Elísbergsdóttir, Sesselja Þorsteinsdóttir og Hafdís Ragnars dóttir. — Þ. Blindur garðyrkjumaður PLYMOUTH — George Hudson sem er 59 ára gamall og alger- lega blindur, hefur vakið at- hygli á sjer fyrir dugnað við garðyrkju. Hann ræktar ýmis- konar grænmeti og fólk, sem ekki veit að hann er blindur, hefur oft orð á því, hversu vel garður hans sje hirtur. »„llllf,i„ll„IIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlilillM|||1|,|M##M|||#(|1H|||I(r|ftf|||i|(|||MM||IHI|||||1|||,llIIIIIIlll|,I„H„iii„„„i„i i„„, u, Markú* A Á £ ék Eftir Ed Dodd XII, „„, i„„„, — Markús hefir komist upp úr ánni og bjargast. Hann er að minnsta kosti á ferðinni lif- andi, eins og ekkert hafi fyrir hann komið. — Það hefur verið þessi ljós- hærði, sem hefur bjargað hon- um. Við verðum með einhverju móti að stúta þeim báðum. — Hvað ætlarðu að gera, Vígbjörn? — Bíddu bara rólegur. Þú skalt fá að sjá það. Hvar er hann Jón rósamagi. — Heyrðu Jón rósamagi. Það er best, að þú höggvir krónuna af furutrjenu, sem eldingin fjeU niður í. — Ertu bandsjóðandi vit- laus, Vígbjörn? — Norrænf Kominíorm Framh. af bls. 1 Moskva hafa nákvæma skrá yfir alla menn, sem framarlega standa í fjelags og menningar- málum á Norðurlöndum. I þeim tilgangi hafa finskir kommúnistar verið sendir til Prag til að kynna sjer nafna- skrár-kerfi það, sem kommún- istar í Tjekkósióvakíu höfðu komið sjer unp og notuðu við valdaránið þar í landi. Peningagreiðslur frá Sviss. Lehen á að stjórna fjárveít- ingum til kommúnistaflokka Norðurlanda. Flestar greiðslui til kommúnistaflokkanna eru i tjekkneskum krónum, en þeim er aftur skift í mynt viðkom- andi lands í Svisslandi, sem er eina landið, þar sem hægt er að skifta peningum í mynt Norð urlanda fyrirhafnarlaust og án formsatriða. Þaðan er svo peningunum smyglað til þeirra landa, sem þeir eiga að fara. — Páll. Ctvarpið: 8,30—9,00 Morgunútvarp. — 10,10 Veðurfregnir. 12,10—13,15 Hádegis- útvarp. 13,30 Messa í Dómldrkjunní Setning synodus (Prjedikun: sjera Jósep Jónsson prófastur að Setbergi. — Fyrir altari: herra Sigurgeir hisk up Sigurðsson). 15,30 Miðdegisútvarp — 16,10 Veðurfregnir. 16,15 Utvarjt úr kapellu Háskólans: Sett presta- stefna. — Skýrsla biskups. 19,25 Veð urfregnir. 19,30 Tónleikar: Danslög leikin á píanó (plötur). 19,45 Aug lýsingar. 20,00 Frjettir. 20,30 Syno- duserindi í Dómkirkjunni: 1 dag og i gær (sjera Bjami Jónsson vígslu- biskup). 21,05 Sönglög eftir Pjetur Sigurðsson (Maríus Sölvason og Ól- afur Magnússon frá Mosfelli syngja; «0 „Ætti jeg hörpu“. b) „Smala- stúlkan“. c) „Vor“. d) „Konan, sem kyndir ofninn minn“. e) „Erla“ f) „Litla kvæðið urn liílu hjónin1'. 21,30 Upplestur: fJr Sjóferðasögunt Svein- bjarnar Egilson (Gils Guðmundsson ritstjóri). 21,55 Tónleikar (plötur): 22,00 Frjettir og veðurfregnir. 22,05 Vinsæl lög (plötur). 22,30 Dagskrár lok. Erlendar útvarps- stöðvar Bretland. Til Evrópulanda. Bjdgju lengdir: 16—19—-25—31—49 m. — Frjettir og frjettayfirlit: Kl. 11—13 —14-15,45—16— 17,15 —18—20— 23—24—01. Auk þess m.a.: Kl. 12,30 BBC- hljómsveit Ieikur ljett lög. Kl. 13,15 BBC-leikhúshljómsvcitin leikur ópcrn lög. KI. 16,15 Symfónía nr. 4 í a- dúr eftir Mendelssohn. Kl. 18,30 Leik rit. KI. 22,45 Slavneskir dansar eftir Dvorák. Kl. 0,30 Lcikrit. ' Noregur. Bylgjulengdir 11,54, 452 m. og stuttbylgjur 16—19—25 —31,22—41—49 m. — Frjettir kl. 07,05—12,00—13—18,05— 19,00 — 21,10 og 01. Auk þess m.a.: Kl. 16,05 Síðdegis hljómleikar. Kl. 17,00 Spönsk og portúgölsk píanó-músik. Kl. 19,00 Samnorræn bljómlist. KI. 20,25 Bjarne Brustad-hljómleikar. Danmörk. Bylgjulengdir: 1250 og 31.51 m. — Frjettir kl. 17.45 og kl. 21.00. Auk þess m.a.: Kl. 18,20 Lög eftir Robert Schumanu. Kl. 19,00 Sígild dönsk lög. Meðal listamannanna, sem skemmta er Elsa Sigfviss. Kl. 20,45 Rauði Krossinn danski. KI. 21,15 Kammermúsik. Svíþjóð. Bylgjulengdir: 1388 og 28,5 m. Frjettir kí. 18 og 21,15. Auk þess m.a.: Kl. 11,10 Alt-trióið sjmgur. KI. 11. ‘ilbrigði framar öllu. Kl. 19,45 Uu. tanríkismál, fyr irlestur: Gösta Bringmark. Kl. 20,15 Balletsvíta eftir Gottfredo Petrassi. Gautaborgarútvarpshlj ómsveit in I ei k- ur, höfundurinn stjórnar. Kl. 21,30 Melódíur úr Friml-óperettum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.