Morgunblaðið - 25.06.1949, Síða 1
16 síðuar
36. árgangur.
140. tbl. — Laugardagur 25. júní 1949
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Viðeyjarferð stúdenta
I VIÐEYJARFÖRINNI í fyrradag söfnuðust sti'. dentarnir á Norræna stúdentamótinu saman und-
ir klettabelti í hólnum, sem kallaður er Skúlahóll. Og prófessor Þorkell Jóhannesson sagði
stúdentunum frá landnámi Ingólfs í Reykjavík og sögu Viðeyjar. í gær fóru stúdentarnir til
Þingvalla og í dag er síðasti dagur stúdentamótsins. Lýkur því með skilnaðarhófi að Hótel Borg.
(Ljósm. Mbl.: Ólafur K. Magnúss.)
Kínveisko stjófiii
úr
AÞENA, 24. júní — Themis-
tocles Sofoulis, forsætisráð-
herra Grikklands, ljest í dag.
Hann var níræður.
fiöfnum kosngnúmsfa
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
CANTON, 24. júní — Kínverska stjórnin í Canton ráðlagði
fulltrúa Breta þar í dag að gefa öllum breskum skipum í
þeim kínverskum höfnum, sem nú eru á valdi kommún-
ista, skipun um að halda á brott þaðan. Mun stjórnin hafa
í hyggju að setja á sunnudag hafnbann á strandlengjuna,
sem kommúnistar ráða yfir.
Sofoulis gat sjer rnikið frægð
arorð fyrir baráttu sína gegn
ýmsum einræðisöflum, nú síð-
ast kommúnistum. Hann var og
á sínum tíma ákveðinn andstæð
ingur Mataxas einræðisherra,
og í síðustu heimsstyrjöld settu
Þjóðverjar hinn aldraðp stjórn-
málamann í Haidari fangabúð-
irnar.
Kgypskt skip slöðvað.
Undanfarna daga hefur þess
mjog orðið vart, að kínverska
stjórnin væri að undirbúa liafn
bannið. 1 dag stöðvaði eitt af
horskipurn hennar egypska skip
ið „Star of Zues“ undan mynni
Yangtsefljóts, eftir að hafa skot
ið nokkrum aðvörunarskotum
fyrir stéfni þess.
Skipið er 6,000 tonn.
Kínverskir sjóliðar fóru um
borð í það og tóku hafnsögu-
mann, sem með því var, en að
því loknu var því leyft að halda
áfram ferð sinni frá Shanghai
til Japan-
Nýr tendifíerra
í Moskva
MOSKVA, 24. júní — Sir David
Kelly, hinn nýi sendiherra
Breta í Moskva, kom þangað
flugleiðis í dag. Ýmsir af starfs-
mönnum erlendra sendisveita
þar í borg, auk margra hátt-
settra rússneskra embættis-
manna, tóku á móti sendiherr-
anum. — Reuter.
BELGRAD: — Júgóslavar hafa op-
inberlega krafist þess, að stórveldin
endurskoði afstöðu sína til landakröfu
Júgóslavíu á hendur Austurríki.
Sofoulis var þrívegis’ forsætis
ráðherra Grikklands, nú síð-
ast í nær tvö ár samfleytt.
—Reuter.
Themistocles Sofoulis f orsæti sráðherr a
ÞESSI mynd var tekin, er Sofoulis, forsætisráðherra, sem ljest
í gærdag, hafði fengið hjartaslag og verið fluttur á sjúkrahús
þar sem hann náði sjer að nokkru levti. Frederica Grikkjadrottn-
ing heimsótti hann í sjúkrahúsinu.
Rússor haia lA milj.
manna lið í N-Koreu
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
SEOUL, 23. júní. — Syngman Rhee, forseti lýðveldisins £
Suður-Koreu Ijet svo um mælt við frjettaritara Reuters hjer
í dag, að Bandaríkin ættu að gera tilraun til þess að sameina
Suður- og Norður-Koreu, sem Rússar ráða yfir, í eitt ríki.
Tjekkar biðja
aísökunar
LAKE SUCCESS, 24. júní —
Trygve Lie, aðalritari S. Þ.,
skýrði frá því á fundi með
frjettamönnum í dag, að stjórn
Tjekkóslóvakíu hefði nú beðið
Sameinuðu þjóðirnar afsökun-
ar, í sambandi við það, er tjekk
neskir lögreglumenn ruddust
inn í skrifstofur þeirra í Prag.
Lögreglumennii’nir voru að
gera tilraun til að handtaka
einn af starfsmönnum S. Þ.,
sem er tjekkneskur borgari og
kommúnistar fullyrða, að unn-
ið hafi gegn stjórnarvöldum
landsins.
Tilgangslaust að snúa
sjer til Rússa.
Rhee sagði, að Rússar og
Bandaríkjamenn hefðu gert um
það leynilega samninga á Yalta
ráðstefnunni, að skifta landinu
í tvennt, án þess að taka tillit
til vilja íbúa landsins. Hann
sagði, að tilgangslaust myndi,
að snúa sjer til Rússa í þeim
erindum, að fá þá til þess að
sameina landið og veita því fullt
sjálfstæði, og því væru Banda-
ríkin nú eina von Koreu-búa.
250 þúsund manna lið Rússa.
Þá sagði Rhee forseti, að i
Norður-Koreu væru a. m. k.
250,000 licrmenn, er Rússar
hefðu þjálfað. Kvaðst hann
sannfærður um, að hermenn
þessa ætti að nota til þess að
gera innrás í Suður-Kóreu,
þegar er Bandaríkjamenn
hefðu yfirgefið landið, að
Lie tjáði frjettamönnunum,
að hann hefði farið fram á, að
tjekkneska stjórnin skýr.ði ná-
kvæmlega frá því, hvað mað-
urinn væri sakaður um. Fyrr
en það hefði verið rannsakað,
og S. Þ. tekið afstöðu til sönn-
unargagnanna, yrði maðurinn
ekki afhentur lögreglunni.
Hann hefur nú dvalist í fjór-
ar vikur í skrifstofu Samein-
uðu þjóðanna í Prag, en starfs-
bræður hans þar hafa fært hon-
um matvæli. — Reuter.
fullu Og Öllll.
Kyrrahafsbandaíag.
Forsetinn ljet ennfremur svo
ummælt, að það væri álit sitt,
og margra fleiri stjórnmála-
manna, að Ástralíu bæri að hafa
forgöngu um stofnun Kyrrr-
hafsvarnarbandalags, með svio
uðu sniði og Atlantshafsband a-
lagið væri. Og hann kvaðst vilja
að það bandalag yrði stofrað
þegar í stað, en ekki yrði beð-
ið eftir að Bandaríkin væru
reiðubúin til þess að hafa for-
göngu í því máli.
Furðuleg þjóðarafkvæða-
greiðsla í Sýrlandi
Einn frambjóðandi að hælfi einræðbherra
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
DAMASKUS, 24. júní — Á morgun (laugardag) fer fram
í Sýrlandi þjóðaratkvæðagreiðsla, sem á ýmsan hátt er hin.
furðulegasta. íbúar landsins eiga meðal annars að „kjósa“
nýjan forseta, en sá er hængur.á, að aðeins einn maður er
í kjöri, eða Husni Zaim höfuðsmaður, sem heita má að
farið hafi með einræðisvald allt frá því að hann braust
til valda í marmánuði síðastliðnum.
Zaim höfuðsmaður rauf þing
ið í Sýrlandi fyrir nálega þrem
mánuðum. Frá þeim tíma hef
ur hann ráðið öllu í landinu, og
meðal annars tilkynnt að hann
ætli að gera það öflugast allra
Arabaríkjanna. Lítil breyting
hefur þó enn orðið á högum
landsins, nema hvað frjetta-
menn telja, að öllu athafnasam-
ara sje nú í hinum ýmsu stjórn
ardeildum en áður en Zaim
braust til valda.
Stjórnarskrá.
Auk þess sem Sýrlendingar
eiga á morgun að „kjósa“ nýj-
an forseta, er ætlunin að þeir
leggi blessun sína á spánýia
stjórnarskrá, sem þó hefur enn
ekki verið samin, en á að verða
til innan fjögra mánaða.