Morgunblaðið - 28.06.1949, Page 8

Morgunblaðið - 28.06.1949, Page 8
8 MORGUNRLAÐIÐ Þriðjudagur 28. júní 1949. f Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. * Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands, kr. 15.00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með LesbðK. Metum þá baráttu að verðleikum VEÐUR hefur á skamri stundu skipast í lofti. í rjettan hálfan mánuð hafa óvenjuleg hlýindi sett svip sinn á veður- íarið. Þennan tíma hafa um land allt skipst á bjartir og heitir sólardagar og mildir regndagar. Afleiðing þessara skyndilegu umskipta í veðurfarinu hefur ekki látið á sjer standa. Snjóana hefur leyst og tún og hagar grænkað og gróið. Horfir nú víðast hvar vel með sprettu enda þótt hið harða vor hafi tafið mjög allan gróður. Almenningur við sjávarsíðuna gerir sjer e.t.v. ekki ljóst, hversu gífurlegum örðugleikum vorharðindin hafa valdið bændum í flestum hjeruðum landsins. Enda þótt flestum þeirra hafi tekist að fleyta fjenaði sínum yfir fóðurskortinn hafa þeir þó engu að síður beðið geysilegt tjón. Er þar fyrst til að telja að fjöldi bænda hefur orðið að kaupa fóðurbæti i'yrir mikið fje. Eru þess dæmi að einstakir bændur hafa keypt fóðurvörur fyrir tugi þúsunda króna. Við þann kostnað bætist svo mikill lambadauði á búum einstakra bænda. Fyrirhöfn bænda og erfiðleikar um sauðburðinn þegar stórhríðar geysuðu og vaka varð yfir hverri á, sem bar í húsum inni, voru svo miklir að þá getur enginn skilið, nema sá, sem þekkir til allra aðstæðna. í þessu sambandi er það sannarlega tímabært að leggja áherslu á hinn þýðingarmikla þátt bændastjettarinnar í ís- lenskum þjóðarbúskap. Það er að vísu rjett að landbúnaður- inn aflar þjóðinni tiltölulega lítinn beinna gjaldeyristekna. En hann sparar henni geysimikinn erlendan gjaldeyri. Hann leggur þjóðinni til hollustu og nauðsynlegustu matvæli henn ar, mjólk, kjöt og garðávexti. Þeir fáráðlingar eru að vísu til hjer á landi, sem halda því fram að íslendingum væri heppilegra að kaupa þessar matvörur frá útlöndum. En geip þeirra tekur enginn alvarlega. Við íslendingar megum ekki láta landbúnaðarframleiðslu okkar dragast saman. Við verð- um þvert á móti að auka hana stórlega. Okkur vantar meiri mjólk, meiri og fjölbreyttari garðrækt, meira af smjöri og yfirleitt aukinn mjólkuriðnað. Sem betur fer standa líka miklar vonir til þess að land- búnaðurinn auki framleiðslu sína verulega á næstu árum. Aðstaða bænda fer víða mjög batnandi. Aukin tækni skapar fullkomnari búnaðarhætti, meiri ræktun og betri umgengni við landið. Rányrkjan lætur undan síga fyrir rjettlátri og skynsamlegri sambúð við gróðurmoldina. Þess ber enn að minnast nú, að loknu harðasta vori þess- arar aldar, að vinnudagur fárra mun nú lengri en bænda þegar undan eru teknir sjómenn. Fólksfæðin í sveitum landsins hefur gert störf alltof margra íslenskra bænda að óslitnum þrældómi. En jafnvel þeir bændur, sem sæmilega eru á vegi staddir með vinnuafl eiga langan vinnudag og fáar tómstundir. Hendur sveitafólksins eru sjaldan iðju- lausar. Það er ástæða til þess að minna marga íslendinga á það, að grundvöllurinn að þeim framförum sem orðið hafa í þessu landi s.l. áratugi er vinna, skapandi starf í sveitum og við sjó. Það eru framleiðslustjettirnar á íslandi, sem við eigum að þakka hin auknu lífsþægindi, sem við í dag bú- um við. Því hafa alltof margir íslendingar gleymt um þessar mundir. Þess vegna er það ekki búskapur og sjósókn, sem laðar fólk aðallega til sín nú heldur fyrirhafnar minni og ljettari störf. Engin þjóð getur til lengdar notið lífsþæginda og atvinnu- öryggis, ef hún gerir sjer það ekki fyllilega ljóst, að fram- leiðslustörfin, vinnan í sveitum landsins og á skipum hennar, eru henni gjörsamlegur kjarni málsins. En því miður er það þannig að mikið brestur á að við íslendingar höfum gert okkur þetta ljóst á undanförnum árum. Flóttinn frá fram- leiðslustörfunum í sveitum landsins sýnir það betur en nokkuð annað. íslenska þjóðin fagnar gróandanum og hlýviðrinu, sem leysti harðindavorið af hólmi. En hún verður að gera meira. Hún verður að sýna að hún meti þá baráttu að verðleikum, sem sigraðist á erfiðleikum þess. *-ar: \Jilwerjl ábrija ÚR DAGLEGA LxFINU „Lokað vegna sumarfría“ NU ER komið að þeim tíma er fólk fer að hugsa um sumar- fríin og ef að vanda lætur verð ur ekki langt til, að það fer að færast deyfð yfir borgina. Seinni árin hefir það færst í vöxt, að fyrirtæki hafa veitt öllu starfsfólki sínu sumarleyfi í einu lagi og „lokað búð og hætt að höndla“ á meðan. Þetta fyrirkomulag er að mörgu leyti ágætt, þótt ekki fari hjá því, að það valdi nokkr um erfiðleikum, ef ekki er at- hugað í tíma hvaða fyrirtæki hafa lokað vegna sumarfría. • Best fyrir starfsfólkið LOKUN vegna sumarfría kem- ur jafnast og best niður á starfs fólkinu. Þegar einn og einn voru að fara í sumarleyfi fór ekki hjá því, að meiri vinna lagðist á þá sem eftir voru og sumstaðar var það svo, að of fátt starfsfólk var í fyrirtækj- unum alt sumarið og þessi besti tími ársins því erfiðastur_ Þar sem hægt er að koma því við, er lang heppilegast að loka alveg og leyfa öllum að fara í einu. Það þarf bara að auglýsa það vel hvaða fyrirtæki eru lokuð og á hvaða tíma til þess að viðskiftavinirnir geti gert sínar ráðstafanir í tíma. • Er hann lagstur í rigningar? ÞEIR, sem eru í þann veginn að fara í sumarfrí, hpgsa og tala um veðrið. Er hann nú lagstur í rigningar? spyrja menn kvíðafullir. Vikum sam- an hafa menn beðið þess með eftirvæntingu að fara í sumar- frí og svo verður kannski rign- ing allan tímann. Það er gömul hjátrú hjá þeim, sem þetta ritar, að blaða menn eigi helst að láta veðrið í friði og skrifa ekki mikið um það þegar það er gott, því þá breyttist það áður.en varir. ■— Það er álíka og þegar menn í bíl eru að hæla veginum, hvað hann sje sljettur og góður. Þá bregst það varla, að bað næsta sem skeður er að bíllinn hlamm ast niður í holu og alt fer í háaloft. Lýsing á hljóm- leikum EINN af rólegri gestunum á nýaístöðnum tónleikum hjá Tónlistarfjelaginu skrifar eftir farandi lýsingu á þeim. Og þarf enga athugasemd við þá lýsingu því hún mun vera rjett: „Jeg get ekki orða bundist. Jeg er styrktarmeðlimur Tón- listarfjelagsins, og sæki því alla hljómleika þess, ef ekkert hamlar. „Þeir síðustu voru á þriðju- daginn í Austurbæjar bíó þar sem óperusöngvarinn Einar Anderson, söng. Skyldi honum ekki hafa brugðið í brún að sjá framkomu gesta? „Þótt söngurinn byrjaði ekki fyrr en um 15 mín. eftir aug- lýstan tíma, sem áreiðanlega stafaði af, hve fólkið kom seint og mikill umgangur í húsinu, var fólkið altaf að týnast í sæti eftir að söngvarinn var byrjað- ur að syngja, en yfir tók þegar aðalhljeið kom. • í hljeinu „FLESTIR af gestum munu vera vanir að sækja söngskemt anir og ættu því ekki að vera neinir viðvaningar, en það skyldi maður þó ætla eftir að hafa verið á áðurnefndum hljómleikum „Þegar hljeið kom, sem allir vita að er stutt, ruddist fólkið upp úr sætum sínum í stríðum straumum og fór fram, og þetta fólk var svo að segja alt frammi er söngvarinn kom aftur inn, og þegar þeir, sem setið höfðu ró- legir í sætum sínum, höfðu lokið við að hylla hann með lófaklappi, átti náttúrlega söng urinn að hefjast, en það varð *nú nokkuð á aðra leið. Þá fór fólkið að streyma inn, sumir rólega og báru höfuðin hátt, en aðrir, sem líklega hafa fundist þeir vera full seinir, hlaupandi. Á meðan þessu fór fram langa stund, stóð söngvarinn og beið, og hann gat ekki stillt sig um að brosa að þessum ósköpum, sem vonlegt var, hlaup, tramp, smellir og ískur í sætum. • Þurfa að fá sjer reyk „ÞETTA er ömurleg og ótiúleg „Einhvern heyrði jeg segja, að fólkið væri að fara fram til að fá sjer reyk. Það er nú svo. Er fólkið virkilega svo aðfram komið, eftir að hafa setið 30— 45 mín., að það geti ekki setið á sjer fyrir hálfa eða eina sígarettu. „Svo annað. „Mjer finnst lítt viðeigandi að fara með ung börn á óperu- söng og yfirleitt á stærri hljóm leika. Það var smá barn, sem kom af stað klappi í miðri aríu. Það skeði eftir hið eftirminni- lega hlje, svo það varð til að kóróna það sem á undan var gengið“. • „Islænder“, eða ..Islænding“ NOKKUÐ hefir verið rætt um það í Danmörku, hvort það muni ekki vera móðgandi, að kalla íslending í Danmörku ,,Islænder“, þar sem að þetta nafn sje einnig haft um ís- lensku hestana. Kaupmanna- hafnarblaðið Berlingske Aften avis“ skrifar ritstjórnargrein um málið nýlega og kemst að þeirri skynsamlegu niðurstöðu, að það sje síður en svo niðrandi. Bendir blaðið á, að til sjeu hestar, sem kallaðir eru „Rúss- ar“ á dönsku hænsi geti verið „ítalir“, klukkur og síld heiti stundum ,,Bornhólmarar“ og það sje síður en svo verið að óvirða kínversku þjóðina, þótt skotið sé ,,Kínverjum“ við og við. Og loks bendir blaðið á, að Danir hafi ekkert á móti því, að ákýeðin hundategund sje kölluð „Stór-Dani“ (Grand Danois“. Alveg rj#tt athugað ÞEIR Islendingar, sem á annað borð nenna að hugsa um þetta heldur lítiðfjörlega atriði, munu vafalaust vera sammála „Ber- lingske Aftenavis“ um að það sje enginn móðgun við ís- lendinga, þótt þeir sjeu nefnd ir sama nafni og „þarfasti þjónninn“, í Danmörku. Danir geti alveg feimnislaust kallað okkur, sem komum til þeirra frá sögueyjunni „Is- lændere“, hvort, sem það eru hestar, eða menn, sem þeir eiga við í það og það skiftið- lýsing, en því miður sönn. lllllllltlllHIIIHHIHtlHllfttVllllllllllltllllllllllllllltlllllMlllltllllllllllllllfQI MEÐAL HIIIIIIIIIIHIIHIIIHIHIIIHIIHIIII1IIIIIIIIIIIIHIIII ANNÁRA ORÐA . . . . IIHIHIHIIIIIIIHIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIiniHHIHIIIIIIHIIHIHIIIIIIIIIIIIIIIHinilllHIIIIIIIIHHIIIIHIIIIIIHHIIHH Umfangsmiklar framkvæmdir fyrirhugaðar á Grænlandi Eftir Charles Croot, frjettaritara Reuters. KAUPMANNAHÖFN — Yfir 6.000 vísindamenn, verkfræð- ingar og verkamenn munu fara til Grænlands í ár, til þátttöku þar í -umfangsmestu fram- kvæmdupum, sem Danir hafa nokkru sinni ráðist í þar í landi. Talið er, að þessar fram- kvæmdir eigi að geta haft geysi mikil áhrif á allt líf þeirra 20.000 innfæddu manna, sem nú byggja Grænland. í augum Grænlendinga verð- ur merkilegasta nýungin að ætla má raflýsing fjögurra stærstu þorpa þeirra. • • FÁ AÐ HEYRA í ÚTVARPI. MENN vona, að þegar næsta vetur verði búið að koma upp rafmagnsstöðvum í Godthaab, Julianhaab, Holsteinborg og Egedesminde. Margir Grænlendingar munu nú í fyrsta skipti heyra í út- varpi, og ennfremur munu þeir vafalaust margir hverjir líta á hluti eins og rafmagnsstraujárn og ýmis önnur rafmagnsáhöld sem merkilegt nýnæmi. Eske Bruun, formaður Græn- landsnefndarinnar, lýsir hinum fyrirhuguðu framkvæmdum næstu árin á eftirfarandi hátt: • • SLÁTURHÚS. „VIÐ ætlum að byggja stórt sláturhús og niðursuðuverk- smiðju í námunda við Julian- haab. Við gerum ráð fyrir að geta slátrað þarna tíu til fimm- tán þúsund lömbum á ári. Þá höfum við og í hyggju að reisa frystihús, sem taka á á móti mestu af þéssu kjöti. Enda þótt hægt yrði að sjálfsögðu að flytja það út, er í ráði að nota það innanlands. Við væntum þess, að lokið hafi verið við að reisa allar nauðsynlegar byggingar á staðn um fyrir veturinn, og verksmiðj urnar ættu að hefja starfrækslu 1950.“ FISKVEIÐARNAR. BRUUN skýrði svo frá, að reynt yrði af fremsta megni að auka fiskveiðar Grænlendinga. tilraun verður og gerð með út- flutning á laxi frá Grænlandi, auk þess sem reynt verður að frysta hvalkjöt, enda þótt Bruun játi, að talið sje, að lítið verði hægt að flytja út af því. | Fiskiðjuverin verða stækkuð. Grænland flutti síðastliðið ár út 6.000 tonn af saltfiski til Mið jarðarhafslanda, og vonir standa nú til, að hægt verði að auka þennan útflutning mjög bráðlega. Framh. á bls. fi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.